Morgunblaðið - 18.08.1982, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 18.08.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982 19 Hve mikill er kostnadurinn við komu ykkar hingað? „Úff! Fyrir utan keppnisbílana sem Sambandið flytur, kostar þetta ferðalag okkur líklega um 30.000 dollara (um 390.000 ísl. krónur), og er það með öllum kostnaði," svaraði Giraudo. En þið akið sem sagt í einu stór- ralli írlega? „Já, við getum sagt það. Vanda- málið er tíma- og peningaleysi. Við neyðumst til að velja og hafna," sagði Cavarelli, en Gir- audo bætti því við, að íslenska rallið væri það besta. Finnst ykkur leiðirnar ekkert grófar? „Nei, Safari-rallið í Afríku er gróft, en ekki íslenska ...“ Hafið þið æft ykkur í akstri í ám? „Það er ekki sérlega mikilvægt. Árbotnarnir eru yfirleitt harðir. Það er best að fara rólega í þær, þetta ætti að bjargast," sögðu Cavalleri og Giraudo. Fáið þið nokkurn tímann þá til- finningu, að þið séuð týndir, þegar þið akið um óbyggðir íslands. „Já, við getum orðið fyrir þeirri reynslu. Það einmitt ein ástæðan fyrir því að við komum, eyjan er stór og ibúar fáir. Við getum ekið fleiri tugi kílómetra án þess að rekast á nokkurn lifandi mann. Þú færð sömu tilfinningu þegar ekið er í Sahara- eyðimörkinni, eins og við gerðum í Paris-Dakar-rallinu," sagði Cavalleri. Hafið þið skoðað keppnisleiðirn- ar? „Eins og þú veist, þá sá ég lítið í fyrra,“ svaraði Cavalleri brosandi, en hann valt í byrjun keppninnar. „En í lok keppninnar skoðuðum við nokkrar sérleiðanna." Italirnir hyggjast líta á einhverjar leiðir nú í vikunni. Cavalleri, hvað gerðist þegar bíll þinn valt í fyrra? „önnur góð spurning. Ég var að reyna að skýra fyrir aðstoðaröku- manni mínum hvernig nota ætti tölvuna við útreikning á tímakort- inu. Ég fylgdist ekki nægilega vel með veginum og þegar ég leit upp ... þá var það of seint. Við ultum á toppinn. Skemmdist billinn mikið? „Já, það þurfti að skipta um „body“ á bílnum. Vinur minn hér sá um það og gerði allt mjög vel. Ef einhver annar hefði smíðað bíl- inn, þá hefði það bæði verið dýrt og ekki eins vel gert.“ Hefur undirbúningur fyrir þetta rall tekið langan tíma? „Nei, það get ég ekki sagt. Við erum allir vinnandi menn og tím- inn líður hratt. Mest hefur verið unnið á kvöldin og næturnar," sagði Cavalleri. Eru bilar ykkar þá i góðu standi? „Já. Ascona-bíllinn er kannski gamall, en hann er mjög kraftmik- ill. Líklega skilar vélin 180 DIN- hestöflum. Hinir bílarnir eru frá 120-160 DIN hesthöfl.* Hvernig verður með viðgerðar- þjónustu hjá ykkur? „Við munum hjálpast að við við- gerðir hvor hjá öðrum. Vonandi bilar ekkert alvarlega. Við ætlum að athuga hvort sambandið getur hjálpað okkur um einn viðgerð- armann. Halldór Gíslason, um- boðsmaður okkar, og bróðir hans, Sverrir, munu veita okkur aðstoð. Það hafa margir hjálpað okkur hingað til, og við erum þakklátir fyrir það.“ Ætlið þið að berjast um toppsæti í Ljómarallinu? „Ég vonast aðeins til að ljúka keppni," svaraði Giraudo. Cavall- eri sagði: „Já, þetta er I þriðja skiptið sem við komum og það er tími til kominn að ljúka keppni. Við látum Ómar, Hafstein og Braga um baráttuna. Kannski eru fleiri góðir, sem við ekki þekkj- um.“ Þið ætlið þá ekki að þrýsta á topp- ökumennina? Hver veit? Það fer eftir ýmsu, markmið okkar er að ljúka keppn- inni. Við reynum að finna rétta hraðann." Langar engan ykkar að sigra í rallinu? „Allir vilja sigra, að sjálfsögðu. Vandamálið er að finna rétta takt- inn milli hraða og gætilegrar með- ferðar á bílnum. íslensku öku- mennirnir munu svo sannarlega ekki fara rólega. Það skemmtileg- asta hjá okkur Ítölum verður hver þessara þriggja ökumanna verður efstur," sagði Cavalleri og benti á hina. „Ég ætla að ljúka keppni. A.m.k. veit ég ekki ... við verðum einnig að athuga það að við höfum lítið viðgerðarlið. Kannski verður kaffibolli og sígaretta allt sem við fáum á viðgerðarsvæðum. Við höf- um eitthvað af varahlutum, en munum leggja áherslu á að nota þá í næturstoppum í Reykjavík.“ Nú vonuðu áhugamenn um rall- akstur að þið mynduð sýna tennurn- ar og slá íslensku ökumönnunum við. „Já, ég held að allir skilji það að við viljum ljúka keppni. Við at- hugum gang mála eftir fyrsta dag- inn og ef við teljum okkur eiga möguleika, þá er aldrei að vita hvað skeður,“ sagði Cavalleri að lokum. — GR. Stykkishólmur: Minna um mink en var í fyrra Stjkkishólmi, 14. ájpúnt. GUÐJÓN Hjaltalín í Brokey hefir undanfarin ár annast minkaveiðar hér um nærliggj- andi eyjar og eins á landi. Hann sagði mér í gær, að sér virtist vera minna af mink í eyjunum í ár en í fyrra. Hann sagðist vera búinn að vinna á um 70 stk. nú, en það ætti eftir að bætast við áður en árið yrði úti. Hann kvað talsvert hafa verið um mink á Skógar- ströndinni, en erfitt að ráða við hann því mikið af þessu væru hlaupadýr, sem kallað er, eins og í eyjunum. Guðjón hefir ásamt tveim félögum sínum verið í þara- töku hér og hefir það sem afl- ast hefir verið flutt að Reyk- hólum. Hann segir þá félaga vera búna að fá um 1.000 tonn og er það mjög góður fengur. En mikið þarf að hafa fyrir þessari veiði, m.a. að sæta sjávarföllum. Fréttaritari r® Fyrirlestur á vegum Landfræðifélagsins og Jöklarannsóknaféiagsins: Sýndar litskyggnur frá og rætt um hæstu fjöll heims Á VEGUM Landfræöifélags íslands og Jöklarannsóknafélags íslands veróur haldinn fyrirlestur og sýndar litskyggnur frá alþjóólegum leið- angri um fjallasvæðin í Karakorum í Asíu á árinu 1980 í stofu 201 í Árna- garði á morgun fimmtudag, klukkan 17.15. I fjallaklasanum í Karakorum er að finna mörg af hæstu og þekktustu fjöllum veraldar, en svæðið er í Himalaya á landamær- um Kína, Pakistan, Sovétríkjanna, Afganistan og Indlands. Hið konunglega enska land- fræðifélag hélt upp á 150 ára af- mæli sitt á árinu 1980 með því að standa fyrir alþjóðlegum leiðangri vísindamanna frá Kína, Pakistan, Sviss og Bretlandi á þetta hættu- lega háfjallasvæði. Leiðangurinn var styrktur af stjórnvöldum í Bretlandi, Kína og Pakistan, en stjórnandi hans var Keith Miller, prófessor, sem m.a. vann við rann- sóknarstörf ásamt íslenzkum vís- indamönnum á Vatnajökli á árun- um 1976 og 1977. Fyrirlesturinn, sem er opinn öll- um, verður fluttur á ensku og verða m.a. sýndar fjölmargar myndir af nokkrum hæstu fjöllum veraldar. Meðan á leiðangrinum stóð urðu nokkur slys á mönnum, enda land- ið mjög erfitt og hættulegt yfir- ferðar, m.a. fórst einn leiðang- ursmanna, Jim Bishop, en hann hafði einnig unnið að vísindastörf- um uppi á Vatnajökli, auk þess sem hann hafði unnið mikið að vísindastörfum á Suðurskauts- landinu. Húsnæðismiðlun námsmaimæ Hörgull á íbúðum Húsnæðismiðlun námsmanna tók til starfa þann 1. júlí sl. Miðlunin er fjármögnuð af Félagsstofnun stúd- enta en rekin af Stúdentaráði. Hlut- verk hennar er að útvega háskóla- stúdentum húsnæði, því eins og ástatt er nú í húsnæðismálum þessa fólks anna Stúdentagarðarnir engan veginn eftirspurn háskólastúdenta eftir húsnæði. Að sögn Jóhanns Gunnars Birgissonar formanns Stúd- entaráðs gekk húsnæðismiðlunin fremur illa fyrst í stað, en heldur hefði nú glæðst framboð á húsnæði. Það væri einkum einstaklings- herbergi sem í boði væru, en flestir þeirra, sem leituðu eftir húsnæði hjá miðluninni, væru fólk sem væri að leita eftir íbúðum. Jóhann Gunnar sagðist því vilja hvetja alla þá sem ættu íbúðir sem stæðu ónotaðar að setja sig í samband við húsnæðismiðlun námsmanna, sem yrði opin til 15. sept. nk. Því meiri kröfur, sem þú gerir til utanhúsmálningar því meiri ástæða er til að þú notir HRAUN, sendna akrýlplastmáln- ingin hefur allt það til að bera, sem krafist er af góðri utanhússmáln- ingu: Mikinn bindikraft, frábæra endingu — dæmi eru til um meiraen 17ár HRAUN stenst allan verðsamanburð. HRAUN litakortið fæst í öllum helstu máln- ingarvöruverslunum landsins. málning'f Þekur vel — hver umferð jafnast á við þrjár umferðir af venjulegri plastmálningu. Hefurfallega áferð — til bæði fín og gróf, og fæst í fjöl- breyttu litaúrvali.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.