Morgunblaðið - 18.08.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
Ardiles langar
til Englands
KINS og allir vita ákvað Argentínu-
maðurinn Osvaldo Ardiles að leika
ekki með félagi sínu, Tottenham,
vegna Falklandseyjastríðsins, og
leigði félagið hann þess vegna til
1‘aris St. Germain í Frakklandi í eitt
ár. Ardiles hefur aðeins verið í
nokkrar vikur hjá nýja liðinu, en
virðist nú sjá eftir öllu saman.
Vill hann nú snúa aftur til Tott-
enham, en verður að sjálfsögðu að
bíða eftir því í eitt ár. „Það er
auðvitað ekki gæfulegt að tala um
að yfirgefa Paris St. Germain þeg-
ar ég hef aðeins dvalið hér í
nokkrar vikur," sagði Ardiles í
samtali við AP. „En ég verð að
viðurkenna að ég hugsa stöðugt
um Tottenham og vini mína. Hefði
ég vitað að striðinu lyki svo
skyndilega hefði ég getað verið í
Englandi nú.“
Ardiles snýr örugglega til enska
liðsins eftir eitt ár, og því til
stuðnings hefur hann ákveðið að
selja ekki hús sitt í úthverfi Lond-
on.
Osvaldo Ardiles
Njarðvíkurstrákar sigruðu á
alþjóðlegu móti í Danmörku
DRENGIR úr Ufm. Njarðvíkur fóru
mikla .sigurfór á alþjóðlegt ungl-
ingamót í handknattleik sem fram
fór í Dronninglund í Danmörku,
dagana 18.—22. júlí. Voru þátttak-
endur á annað þúsund frá 8 löndum.
Njarðvíkurdrcngirnir kepptu á þessu
sama móti fyrir tveimur árum og
sigruðu þá í sínum aldursflokki. Að
þessu sinni kepptu þeir í flokki sem
kallaðist á dönsku „Herre Junior“,
en það var flokkur 16 ára og yngri.
Piltarnir sigruðu aftur og nú með
meiri yfirburðum en áður.
í riðlakeppninni keppti liðið
fyrst við TSV Nieder Eschbach frá
Vestur-Þýskalandi^ og sigraði
16—3. Síðan var Árhus frá Dan-
mörku lagt að velli, 17—6, og loks
Öspel Kley frá Þýskalandi, 13—11.
I undanúrslitum mætti UMFN
fyrst TSV Nord Harrislee frá
Þýskalandi og sigraði 15—9. Síðan
var aftur leikið gegn Öspel Klay
og nú unnið með mun meiri yfir-
burðum en áður, eða 17—6. Til úr-
slita lék UMFN síðan gegn sænska
liðinu Burlövz HF frá Malmö.
Sigraði UMFN 19—7 og gekk lið-
inu allt í haginn. Allir leikirnir að
úrslitaleiknum undanskildum fóru
fram á grasvelli í 27—30 stiga
hita. Úrslitaleikurinn fór hins
vegar fram í veglegri íþróttahöll á
staðnum og var húsfyllir. Stóðu
áhorfendur næstum sem einn með
íslensku strákunum.
• Fremri röð frá vinstri: Hreiðar Hreiðarsson, Reynir Kristjánsson, Olafur
Ó. Thordersen, fyrirliði, Kristinn Rinarsson, Guðbjörn Jóhannesson, Ómar
Ellertsson.
Aftari röð frá vinstri: Ólafur Thordersen, þjálfari, Birgir Sanders, Jón Magn-
ússon, Guðjón Hilmarsson, Þórður Ólafsson, Teitur Örlygsson, Guðný
Thordersen, fararstjóri.
SINDRA
STALHF
SINDRA STAL
íþvlliggiir
styrkurinn
Það sem steypt er þarf að styrkja
með stáli — Steypustyrktar stáli.
Steypustyrktarstál er ein af okkar
sérgreinum.
Við geymum stálið í húsi, sem
heldur því hreinu og gljáandi,
þannig verður það þægilegra í
vinnslu og sparar tíma. Markmið
okkar er fljót og góð sendingar-
þjónusta.
Notaðu aðeins gott steypustyrktar-
stál, í því liggur styrkurinn.
Borgartúni 31 sími27222
Laval á toppnum
LAVAL, lið Karls Þórðarsonar, hef-
ur byrjað mjög vel í 1. deildarkeppn-
inni i Frakklandi i vetur. í gærkvöldi
var 2. umferðin leikin og sigraði lið-
ið þá Auxerre á útivelli 1—0. Það
var Þjóðverjinn Krause sem skoraði
eina markið. Hefur Laval þar með
unnið tvo fyrstu leikina og er i efsta
sæti ásamt Toulouse. „Eg hef nú
ekki talað við Kalla, en ég hlustaði á
lýsinguna á leiknum,“ sagði Erna,
eiginkona hans, er blm. talaði við
hana í gærkvöldi. Sagði hún að skv.
lýsingunni hefði Auxerre sótt mun
meira og Laval verið nokkuð heppið
að fara með sigur af hólmi.
Lens, sem Teitur Þórðarson
leikur með, vann glæsilegan sigur
á stórliðinu Bordeaux á heimavelli
sínum í gærkvöldi. Endaði leikur-
inn með sigri Lens, 3—2, eftir að
þeir höfðu leitt 2—0 í hálfleik. Það
eru engir smákarlar sem leika
með Bordeaux, og ættu menn að
kannast t.d. við karla einsog Gir-
esse og Tigana úr HM-liði Frakka.
Er Lens þá í öðru sæti ásamt fleiri
liðum með þrjú stig. Teitur Þórð-
arson hefur átt við meiðsli að
stríða undanfarið og ekki fékkst
staðfest hvort hann hefði leikið.
Ekki náðist í Teit í gærkvöldi.
Önnur helstu úrslit voru þau að
meistararnir Monaco gerðu 1—1
jafntefli á heimavelli við Paris St.
Germain með þá Ardiles og Roch-
etau innanborðs og þá kom á óvart
að Saint Etienne gerði markalaust
jafntefli á heimavelli sínum við
Brest, sem ekki hefur talist öflugt
hingað til. Greinilegt að St. Eti-
enne er fallandi stórveldi, nú þeg-
ar Platini hefur yfirgefið liðið.
Úrslitin urðu þessi:
Monaco — Paris St. Germain 1 — 1
Strasbourg — Lille 1—0
St. Etienne — Brest 0—0
Sochaux — Toulouse 2—3
Auxerre — Laval 0—1
Tours — Metz 3—2
Rouen — Lyon 2—1
Nantes — Bastia 3—0
Nancy — Mulhouse 6—0
Lens — Bordeaux 3—2
— SH.
Swansea vann
SWANSEA á nú góða mögulcika á
að tryggja sér sæti i 1. umfcrð
Evrópukcppni bikarhafa eftir að
hafa lagt portúgalska liðið Braga að
vclli í aukaumfcrð kcppninnar i
gærkvöldi. Endaði leikurinn, sem
var á hcimavclli Swansea i Wales,
með þrcmur mörkum gegn engu.
Jeremy ('harles skoraði tvö mark-
anna og fyrirliði Braga innsiglaði
sigurinn er hann sendi knöttinn í
eigið mark.
— SH.
Bikarúrslit
í kvöld
í kvöld fer fram úrslitaleikurinn i
bikarkeppni KSI í öðrum flokki. Það
eru Reykjavíkurfélögin Fram og Val-
ur sem leika til úrslita, og hefst leik-
urinn kl. 19.00 i Laugardalnum.
Þcss má geta að aðgangur er ókeyp-
is.
Sókndjarfir Siglfirðingar
skoruðu níu mörk
NÚ ER Ijóst, að úr B-riðli fara
Sauðkrækinga og Siglfirðingar í úr-
slitakcppni 3. deildar er hefst um
næstu helgi. Siglfirðingar urðu cfstir
á hagstæðara markahlutfalli, bæði
liðin hlutu 22 stig, en svo einkenni-
lcga sem það nú hljómar er staða
Sauðkrækingar miklu betri. Inn-
byrðis viðureignir i riðlakcppninni
reiknast með og þar hlutu Sauð-
krækingar 3 stig gegn einungis 1
stigi Siglfirðinga en staða KS er þó
engu að síður töpuð enn.
Árroðinn — KS 2:9 (0:5).
Heimamenn áttu aldrei mögu-
leika gegn firna góðu liði Siglfirð-
inga og voru flestir viðstaddra
sammála um að lið þeirra verð-
skuldar fyllilega 2. deildar sæti að
ári. Siglfirðingar fóru sem sagt á
kostum og þegar sá gállinn er á
þeim stenst lítið fyrir þeim.
Mörk KS gerðu Hafþór Kol-
beinsson 3, Hörður Júlíusson og
Óli Agnarsson 2 (Óli kominn með
20 mörk í deildinni), Jakob Kára-
son og Baldur Benediktsson 1
mark hvor. Helgi Örlygsson og
Sigurgeir Sigurgeirsson settu hvor
sitt markið fyrir Árroðann.
Austri — Tindastóll 0:2 (0:1).
Leikur þessi var all þokkalegur
lengst af og voru það aðkomu-
menn sem voru sterkari aðilinn
allan tímann og eru líklegir til af-
reka þegar aðal törnin byrjar eftir
tæplega viku. Gústaf Baldvinsson
kom Sauðkrækingum á bragðið í
fyrri hálfleik og í þeim síðari
bætti Örn Ragnarsson við öðru
marki en þá höfðu nokkur upplögð
færi farið í vaskinn. Dómari leiks-
ins var mjög í sviðsljósinu og rak
þjálfara Austra og markvörð
þeirra út af og tveir kauðar fengu
að sjá gul spjöld fyrir munnbrúk.
Magni — Huginn 3:3 (1:0)
Fyrri hálfleikur var jafn en þó
áttu heimamenn betri færi og
skoruðu eitt mark.
Síðari hálfleikur var miklum
mun fjörugri og þá komu mörkin
eitt af öðru en heimamenn voru
klaufar að vinna ekki því þeir voru
öllu betri og áttu fleiri upplögð
færi í opnum leik. Mörk Magna
gerðu þeir Jón Ingólfsson og
Hringur Hreinsson en fyrir
Sindra svöruðu Sveinbjörn Jó-
hannsson, Hilmar Harðarson og
Aðalsteinn Smári Valgeirsson.
MÞ
HSÞ - Sindri 1:2 (1:0)
Fátt benti til óvæntra úrslita í
þessum leik því heimamenn höfðu
frumkvæðið lengst af og Þorlákur
P. Jónsson eða „Láki pot“ skoraði
fyrir lið sitt í fyrri hálfleik. Síðari
hálfleikur var lélegri sér í lagi að
hálfu heimamanna og minna um
færi. En Sindra óx smám saman
ásmegin og fyrir rest skoruðu þeir
2 mörk, Grétar Vilbergsson að
verki í bæði skiptin og Árroðinn
því að öllum líkindum fallinn.
RE
f Elnkunnagjðflh
Lið Fram:
Guðmundur Baldursson 5
Þorstcinn Þorsteinsson 6
Trausti Haraldsson 5
Svcrrir Einarsson 4
Marteinn Geirsson 4
Halldór Arason 4
Valdimar Stefánsson 4
Viðar Þorkelsson 4
Lárus Grétarsson 4
Guðmundur Torfason 3
Hafþór Sveinjónsson 4
Lið KR:
Halldór Pálsson 6
Guðjón Hilmarsson 5
Magnús Jónsson 5
öttó Guðmundsson 5
Jakob Pétursson 5
Jósteinn Einarsson 5
Ágúst Már Jónsson 6
Hálfdán örlygsson 5
Óskar Ingimundarson 5
Sæbjörn Guðmundsson 6
Birgir Guðjónsson 5