Morgunblaðið - 18.08.1982, Side 31

Morgunblaðið - 18.08.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982 3 1 11 Meistaraheppni! — Víkingar lögðu óheppna Eyjamenn VÍKINGAR færðust skrefi nær ís- landsmcistaratitlinum í gærkvöldi er liðið sigraði óheppna Vestmanney- inga í Laugardalnum. Já, nokkur heppnisstimpill var á sigri meistar- anna, og hefðu Eyjamenn i það minnsta verðskuldað annað stigið. Heimir Karlsson, markahæsti leik- maður 1. deildar, skoraði eina mark leiksins i fyrri hálfleik. Leikurinn var mjög fjörugur og ágætlega leik- inn. Liðin spiluðu bæði vel úti á vell- inum en einhvern brodd virtist vanta í sóknina, og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum, en í þeim síðari voru það Vestmanneyingar sem réðu gangi leiksins lengst af og gerðu oft harða hríð að Víkingsmarkinu. Tíðindalítið var fyrstu mín. leiksins, en síðan tóku Víkingar kipp eftir 15 mín. Ómar Torfason átti fallegt skot sem Páll varði glæsilega í horn og upp úr því kom markið. Stefán Halldórsson spyrnti fyrir markið og þar stökk Heimir Karlsson vel upp fyrir Pál markvörð og skallaði örugglega í netið. Fallegt mark. Siðan liðu aðrar 15 mín. áður en mörkin kæmust verulega í hættu, en fyrir utan vítateiganna tókst leikmönnum hins vegar ágætlega upp. Boltinn gekk vel milli manna. Þremur mín. fyrir hlé fékk ÍBV síðan gullið tækifæri til að jafna. Sigurlás fékk góða sendingu inn á teig, og þar barðist hann um bolt- ann við Ómar Torfason, og lyktaði viðureigninni með því að Sigurlás fékk dæmda vítaspyrnu eftir að Ómar hafði hrint aftan á hann. En heilladísirnar voru svo sann- arlega ekki með Vestmnnaeying- um í leiknum, boltinn rataði ekki einu sinni í netið í þetta sinn. Örn Óskarsson tók spyrnuna og var al- deilis ekki um neitt lúsaskot að ræða. En boltinn buldi í þver- slánni og þeyttist þaðan langt út á völl. ÍBV byrjaði svo mun betur í síð- ari hálfleiknum, en þá léku þeir undan nokkrum vindi, og var Vík- ingsvörnin mjög óörugg fyrstu mínúturnar. Síðari hálfleikurinn bauð upp á meiri spennu en sá fyrri, og voru Vestmanneyingar betra liðið, og mun aðgangsharð- ari. Víkingar drógu sig aftar, og var um stöðuga sókn ÍBV að ræða fyrsta hálftímann. Svo rennt sé yfir færin í stuttu máli, þá varði Ögmundur virkilega vel frá Kára Þorleifssyni, aftur varð hann að bjarga er Ómar Jó- hannsson átti þrumuskot af 35 m færi og síðan skallaði Þórður Hallgrímsson yfir af stuttu færi eftir fyrirgjöf Lása. Áfram sóttu Eyjapeyjarnir og næst var Ómar Jóhannsson aftur á ferðinni með glæsilegt skot vel utan teigs sem fór hárfínt yfir. Eftir u.þ.b. hálftíma af síðari hálfleik lifnaði aðeins yfir Víking- um, og komu þeir meira inn í leik- inn. Helgi Helgason var klaufi að skora ekki eftir að Páll Pálma hafði misst boltann eftir horn en skot Helga fór í hliðarnetið. Ómar Jóhannsson svaraði þessu fyrir hönd Eyjamanna með frá- bæru skoti úr aukaspyrnu nokkuð utan teigs strax á eftir. Hann sendi boltann framhjá veggnum, en hann hafnaði í hliðarnetinu, skall þar í aftari stönginni. Síðustu 5 mín. var eins og leikmenn ÍBV hefðu gefið upp alla von og meistararnir fengu síðustu tvö færin. Fyrst var mikill darrað- ardans í teig ÍBV eftir horn, og síðan fékk Heimir Karlsson al- gjört dauðafæri til að innsigla sig- urinn stuttu fyrir leikslok. Komst hann þá aleinn inn fyrir vörnina, svipað og gegn ÍA á dögunum, en Páll kom út á móti og varði vel. Eins og áður kom fram voru Vestmanneyingar óheppnir að ná ekki a.m.k. öðru stiginu í þessari viðureign. Þeir voru mun sterkari í síðari hálfleiknum, en náðu ekki að nýta yfirburði sína til marka. Munaði greinilega mikið um að Ómar Jóhannsson lék með á ný, og var allt annað að sjá til liðsins en gegn Val á dögunum. Þá var Sig- urlás ógnandi, og var ekki óalgeng sjón að sjá 2—3 Víkinga á honum. Ögmundur markvörður var Staðan Staðan í 1. deild er þessi eftir leik- inn í gær: Víkingur 14 6 7 1 22—15 19 KR 14 4 8 2 11—10 16 ÍBV 14 6 3 5 16—13 15 Valur 15 5 4 6 16—14 14 ÍA 14 5 4 5 16—16 14 ÍBÍ 15 5 4 6 22—25 14 Breiðablik 15 5 4 6 13—17 14 KA 15 4 5 6 14—16 13 Keflavík 14 5 3 6 13—17 13 Fram 14 3 6 5 14—15 12 besti maður Víkings í leiknum, og varði hann nokkrum sinnum mjög vel. Þá var Þórður Marelsson góð- ur, en hann var tekinn út af í síð- ari hálfleik fyrir Gunnar Gunn- arsson, þegar Víkingar vildu styrkja vörn sína. Víkingar misstu Aðalstein Aðalsteinsson út af rétt fyrir hlé, en hann hafði meiðst mjög fljótlega í leiknum. í stuttu máli: Laugardalsvöllur 1. deild: Vík- ingur-IBV 1—0 (1—0) Mark Víkings: Heimir Karlsson á 16. mín. Gul spjöld: Snorri Rútsson og Örn Óskarsson ÍBV og Jóhannes Bárðarson Víkingi. Dómari: Guðmundur Haralds- son, og dæmdi hann virkilega vel, hfði góð tök á leiknum. Áhorfendur: 894. — SH. ’ Elnkunnaglðfln Lið Víkings: ögmundur Kristinsson Þórður Marelsson Magnús Þorvaldsson Stefán Halldórsson Jóhannes Bárðarson Omar Torfason Helgi Helgason Aðalsteinn Aðalsteinsson Heimir Karlsson Sverrir Herbertsson Ragnar Gíslason Jóhann Þorvarðarson (vm) Gunnar Gunnarsson (vm) Lið ÍBV: Páll Pálmason Snorri Rútsson örn öskarsson Valþór Sigþórsson Viðar Elíasson Omar Jóhannsson Jóhann Georgsson Sveinn Sveinsson Kári Þorleifsson Þórður llallgrímsson Sigurlás Þorleifsson Hlynur Stefánsson (vm) Sigurlás Þorleifsson og Ómar Torfason berjast hér um boltann. Stuttu síðar hafði Guðmundur dómari blásið í flautu sína og fengu Vestmanneyingar vítaspyrnu þar sem Ómar hrinti á bak Lása. , VERÐIÐ HJA OKKUR ER SKORIÐ NIÐUR Sjón er sögu ríkari. STÓRÚTSÖL UM ARK AÐURINN Kjörgarói, Laugavegi 59, kjallara, sími 28640. • Buxur á alla fjölskylduna. • Herraskór. • Skíöavesti. • Peysur á alla, konur og karla. • Bolir. • Herrajakkar. • Unglingapils. • Sokkar. • Saengurver og barnafatnaður. • Náttföt og margt, margt fleira. Alltaf nýjar vörur að bætast við STÓR- UTSÖLUMARKAÐURINN KJÖRGARÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.