Morgunblaðið - 18.08.1982, Side 32
Síminn á afgreiöslunni er
83033
____________________________________MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982___
Frönsk stúlka myrt á Skeiðarársandi og systur hennar misþyrmt:
Leitað að árásarmanninum
í jökulgíg í Svínafellsjökli
( ra Olafi JóhaniiHHyni, blaóamanni Mbl. í Skafíafr lli, 17. ágÚHt.
„I.ÍKI'H benda til þess, aö maöurinn, sem (jrunaöur er um aö hafa myrt
frönsku stúlkuna misþyrmt hinni, sé í gíg í Svínafellsjökli, um 1—2
km frá rótum jökulsins, en gígur þessi er tugir metra á dýpt,“ sagöi
Friöjón (iuörööarson, sýslumaöur Austur-Skaftfellinga, í samtali viö
Mhl., en hann hefur stjórnað leitinni að fertugum manni, sem grunaður
er ’um morö á franskri stúlku, auk þess að misþyrma systur hennar, sem
nú liggur í Borgarspítalanum. í gærkvöldi átti aö útvega nauðsynlegan
búnaö til aö síga í gíginn, en þaö ætluðu tveir menn úr héraöinu aö gera
nú í morgunsáriö.
LjósmjDd Mbl.: KÖE.
Farangur frönsku stúlknanna borinn út úr sæluhúsinu, sem stendur skammt fyrir vestan Skeiðarárbrú.
Enn deilir ríkis-
stjórnin um efna-
hagsaðgerðirnar
Framsóknarmenn bjóða upp á afgreiðslu vísi-
töluskerðingarinnar með bókun í ríkisstjórn
„Vöruflutningabíllinn kom í hlað
í Skaftafelli um klukkan eitt í
fyrrinótt og tilkynnti ökumaður-
inn, að úti á Skeiðarársandi væri
mikið slösuð stúlka, sem þyrfti að-
stoðar við. Héðan fór lögreglumað-
ur i.g tveir landverðir til aðstoðar,"
sagði Friðjón Guðröðarson enn-
fremur.
„Við ókum um hríð vestur Skeið-
aiúisand, en snérum við þegar við
fundum ekkert. Þegar við ókum til
baka og vorum í nánd við afleggj-
ara að sæluhúsi, sem er skammt
vestan við brúna á Skeiðará, kom
stúlkan inn í geislana af bílljósun-
um og veifaði hún okkur. Stúlkan
var mjög blóðug í andliti og með
talsverða höfuðáverka. Einnig
blæddi henni mjög,“ sögðu land-
verðirnir Lára V. Helgadóttir og
Þorlærgur Jónsson, í samtali við
Mbl.
Sá grunaði tók þær systur upp í
bíl sinn í fyrrakvöld og ók þeim í
sæluhúsið við Skeiðará. Þangað
komu þau um kl. 20.00. Hann hélt
þá heim til sín og þær lögðust til
svefns. Um klukkan 23.00 kom
maðurinn að nýju i sæluhúsið. í
viðtalinu við þau Láru og Þorberg
kom fram, að stúlka hefði sagt
þeim, að maðurinn hefði heimtað
að þær kæmu með honum til Hafn-
ar í Hornafirði. Þær neituðu því
hins vegar. Þá fór hann út í bíl og
sótti rafmagnsvír, sem hann hótaði
að binda þær með, auk þess sem
hann hafði riffil meðferðis. „Hót-
aði hann stúlkunum öllu illu og
lenti stúlkan, sem við okkur ræddi,
í slagsmálum við manninn, en syst-
ur hennar tókst að hlaupa út. Taldi
stúlkan, að maðurinn hefði síðan
rotað sig. Þegar hún rankaði við
sér eftir nokkurn tíma voru árásar-
maðurinn og systir hennar á bak og
burt. Hún hélt sig heyra óp á sand-
inum og skothvell. Eftir það hefði
allt orðið hljótt,“ sögðu þau Lára
og Þorbergur ennfremur.
„Maðurinn stóð við bilinn og ég
stoppa þá flutningabílinn og skrúfa
niður rúðuna og heyri ógurleg
neyðaróp stúlkunnar,“ sagði
Sveinbjörn Garðarsson, bílstjóri,
sem kom á vettvang á Skeiðarár-
sandi, þar sem maðurinn og stúlk-
an, sem nú er látin, voru.
Sveinbjörn sagði ennfremur í
samtali við Mbl.: „Eg spurði mann-
inn hvað hefði komið fyrir og sagð-
TVÆR íslenzkar stúlkur voru hand-
teknar á Miami í Bandaríkjunum sl.
sunnudag fyrir aö smygla l'/i kg
marihuana inn í landið. Komu þær
fyrir rétt í gær og játuöu báðar sekt
sína.
Stúlkurnar sögðu við réttar-
ist hann hafa ekið á stúlkuna í
myrkrinu. Þá sá ég hvar stúlkan
kom aftur undan Benzinum og
kraflar sig í átt að bílnum mínum,
gripur í stuðarann, skríður upp
tröppurnar á bílnum og nær hand-
festu á spegilfestingunni. Hún
hrópaði: „Please help me. He tries
to kill me,“ og endurtók þetta í sí-
fellu. Eg spurði manninn því hvað
gengi á og segir hann stúlkuna
vankaða eftir höggið og biður mig
að sækja hjálp. Þegar ég ætla að
aka af stað til að sækja hjálp, hélt
hún dauðahaldi í bílinn. Þá endur-
tók hún hrópið: „Please help me.
He tries to kill me.“ Eg bað mann-
inn að fjarlægja hana af bílnum,
svo að ég keyrði ekki yfir hana.
Hann gerði það og hrópaði stúlkan
stöðugt á meðan. Ég ók af stað og
það siðasta sem ég sá var að hann
hélt henni við bíl sinn,“ sagði
Sveinbjörn Garðarsson ennfremur.
Læknirinn frá Höfn gerði að sár-
um stúlkunnar, sem síðan var send
með flugvél í Slysadeiid Borgar-
spítalans, þar sem gerð var mikil
aðgerð á höfði hennar og er hún
talin úr lífshættu. Græni Benzinn,
sem hinn grunaði ók, fannst síðan
um níuleytið í gærmorgun við
Hafrafell, skammt fyrir innan
Skaftafell. Lík stúlkunnar fannst í
farangursgeymslunni og voru á því
5 skotsár, en litlir áverkar að öðru
leyti. Skotin eru talin vera úr 22
kalibera riffli.
Friðjón Guðröðarson sagði menn
hafa verið nokkuð uggandi við leit-
ina, en leitað var á landi og í lofti. í
gærdag var svo leitað eftir aðstoð
sporhunda Hjálparsveitar skáta í
Hafnarfirði, sem fór austur. Hund-
urinn Perla hóf leit við bílinn og
tók fljótlega ákveðna stefnu upp á
Svínafellsjökul við Hafrafell og
endaði slóðin við gíg á jöklinum og
telja menn líklegt að maðurinn sé
þar niðri.
Stúlkurnar komu hingað til
lands 26. maí sl. með Flugleiðum og
hafa síðan verið á ferð um landið.
Sú látna hét Yvette Marie Bahu-
aud, fædd 19. maí 1961, en systir
hennar, sem liggur slösuð í Borg-
arspitala, heitir Marie Luce Bahu-
aud, fædd 20. júní 1953. Þær hafa
búið í úthverfi Parísar. Hinn grun-
aði er fertugur að aldri og hefur
búið á Hofi í Öræfum sl. tvö ár og
starfað við bílaviðgerðir.
höldin að þær hafi ætlað að nota
fíkniefnin í eigin þarfir, en ekki til
sölu. Dómarinn dæmdi stúlkurnar
í eins árs skilorðsbundið fangelsi
og ráðlagði þeim að hverfa til síns
heima. Að sögn Þóris S. Gröndal,
STJÓRNARLIÐAR hafa enn ekki
náö samstööu um hvernig standa
skuli að fyrirhuguöum efnahagsaö-
geröum og þrátt fyrir stööug fundar-
höld síðustu dægur stendur enn í
stappi með afgreiöslu eins meginþátt-
ar aögerðanna. Stjórnarliöar eru ekki
á eitt sáttir um i hvaða formi almenn-
ingi skuli birt sú sameiginlega
ákvörðun þeirra að skerða verðbóta-
þátt launa hinn 1. janúar nk. um
helming, eða sem nemur 10%. Nokkr-
ar sviptingar hafa verið í stjórnarher-
búðunum síðasta sólarhringinn vegna
þessa og var ríkisstjórnarfundi sem
halda átti í gsrmorgun frestað til
fréttaritara Mbl. í Florida, þykir
þetta vel sloppið.
Að sögn Þóris hefur mikil her-
ferð verið hafin í Florida til að
hafa hendur í hári fíkniefna-
smyglara.
dagsins í dag. Siðdegis í g«er var þó
talið af flestum viðmælendum blaðs-
ins úr hópi stjórnarliða, að takast
myndi að ná saman, en þó mætti enn
bíða niðurstaðna í einhvern tíma.
Gunnar Thoroddsen og framsókn-
armenn lögðu fyrst á það áherslu,
eins og kom fram í frétt Mbl. í gær,
að ákvæði um vísitöluskerðingu
yrðu sett í lög. Alþýðubandalagið
lagði þá til, að lagaákvæðið væri
heimildarákvæði, þ.e. ríkisstjórnin
hefði heimild til að ákveða þessa
verðbótaskerðingu, en framsókn-
armenn og forsætisráðherra voru
ekki tilbúnir til að fallast á slíkt.
Lagði þá forsætisráðherra fram
málamiðlunartillögu sem fól í sér að
hann einn hefði heimildina. Á þing-
flokksfundi Framsóknarflokksins í
gær kom fram mjög sterk andstaða
gegn því að Gunnari Thoroddsen
yrði veitt slík heimild. Þingflokkur-
inn samþykkti í framhaldi af því
heimild til ráðherra sinna að gengið
yrði frá ákvæðinu um vísitöluskerð-
inguna með bókun í ríkisstjórn og
fæli bókunin í sér skilyrðislaust
ákvæði um að lagt yrði fram frum-
varp til laga um vísitöluskerðinguna
á komandi vetri. Alþýðubanda-
lagsmenn voru í gærkvöldi ekki
fremur til umræðu um þennan hátt
á afgreiðslunni fremur en hinn.
Auk þessa ágreiningsefnis eru
ýmis atriði í væntanlegum efna-
hagsaðgerðum sem djúpstæður
ágreiningur er um meðal stjórnar-
flokkanna. Stjórnarliðar sem Mbl.
ræddi við í gærkvöldi voru þó á einu
máli um það, að áður en til þess
kæmi að reynt yrði að ná saman um
aðrar aðgerðir, svo sem skráningu
nýs gengis, vaxtahækkun og fleira,
yrði að ná samstöðu um þetta mál.
Rikisstjórnarfundi í gærmorgun
var frestað eins og fyrr segir, en
mikið var samt sem áður um fund-
arhöld. Árdegis fundaði ráðherra-
nefndin um efnahagsmál, auk efna-
hagsmálanefndar ríkisstjórnarinn-
ar. Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins kom saman kl. 14 og sat fund til
kl. 17, en þá kom ráðherranefndin
saman á ný. Þingmenn Framsókn-
arflokksins settust að nýju til við-
ræðna kl. 20.30 í gærkvöldi og efna-
hagsnefnd ríkisstjórnarinnar kom
saman enn á ný kl. 22. Það vakti
athygli, að þrátt fyrir alla þessa
fundi í gær sáu þingmenn Alþýðu-
bandalagsins ekki ástæðu til að
koma saman. Efnahagsnefndin
ásamt ráðherranefndinni kemur
saman kl. 9 árdegis, ríkisstjórnar-
fundur hefur verið boðaður kl. 10.
Sjá frásögn og myndir í miAopnu.
Miami á Florida:
Islenzkar stúlkur teknar með fíkniefni