Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 Norðmenn úr hval- veiðinefndinni? ÓnIó, IH. ágúnt — frá Jan Krik Lauré, frétUrit- ara Morgunblaðsin.s. Landsstjórn Norska fiskimannasambandsins telur aö Norðmenn eigi að ganga úr Al- þjóða hvalveiðinefndinni verði reglum nefndarinnar ekki breytt hið bráðasta. Telur fiskimanna- sambandið að Norðmenn eigi að hafa frumkvæði að því að nýrri alþjóðastofnun verði komið á fót með þátttöku þeirra þjóða sem stunda hvalveiðar. Thor Listau sjávarútvegsráð- herra segir ríkisstjórnina enn ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort Norðmenn eigi að segja sig úr nefndinni. Hins vegar sé ljóst að Norðmenn eigi áfram að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi á sviði fisk- veiða, en þessi yfirlýsing ráðherr- ans er talin vísbending um að stjórnin hyggist ekki fara að áskorun fiskimannasambandsins. Enn um hjónaband Marks og Önnu prinsessu; Fregnir um hjónavandann fá byr undir báða vængi ÍAindúnum, 18. ágúat AP. SÚ STAÐREYND, að Anna prins- essa og eiginmaður hennar, Mark Phillips, hafa ekki sést saman í 12 daga þykir ýta enn frekar undir þann orðróm, að ekki sé allt með felldu í sambúð þeirra hjóna. Anna hélt upp á 32 ára afmæl- isdaginn í Balmoral-kastala í Skotlandi á sunnudag, en Mark var þar hvergi nærri. Talsmaður Buckingham-hallar gaf þá skýr- ingu, að hann væri upptekinn við vinnu sína á búgarði þeirra hjón- anna, en enskir fjölmiðlar láta sér ekki slíkar útskýringar nægja. Telja enskir slúðurdálkahöfund- MiIIisvæðamótið í Toluca: Nunn og Ivanov deila með sér toppsætinu Toluca, Mexíkó, 18. ágúut. AP. EFTIR 6 umferðir á millisvæðamót- inu í skák í Toluca í Mexíkó hafa þeir John Nunn frá Bretlandi og Ig- or Ivanov frá Kanada forystuna með 4 vinninga hvor. Yasser Seirawan frá Bandaríkj- unum vann biðskák sína gegn Adorjan frá Ungverjalandi eftir 77 leikja viðureign og er nú með 3,5 vinninga en á biðskák ólokið gegn Rubinetti frá Argentínu. Boris Spassky, fyrrum heims- meistari, er einnig með 3,5 vinn- inga, ennfremur þeir Portisch og Adorjan frá Ungverjalandi og Balashov frá Sovétríkjunum. Yusupov frá Sovétríkjunum og Torre frá Filippseyjum eru báðir með 3 vinninga. Yusupov gerði jafntefli í 104 leikjum við Kúbu- manninn Rodriguez í biðskák, sem þeir áttu ólokið, í gærkvöldi. Á eftir þeim koma þeir Hulak frá Tékkóslóvakíu og Polugajevski frá Sovétríkjunum með 2,5 vinninga. Rubinetti og Rodriguez eru með 2 vinninga hvor, en sá fyrrnefndi á eftir biðskákina við Seirawan. Neðstur er Líbaninn Kouatly með hálfan vinning. ar nú víst, að óðum styttist í bita- stæð tíðindi frá Buckingham-höll. Síðast þegar álíka atburður var í uppsiglingu var þegar Margrét prinsessa og Snowdon lávarður skildu. Hann hefur þó æ síðan ver- ið ljósmyndari við hirðina. ... ■■ 4 Varð að gefast upp Ungi pilturinn er býsna óásjá- legur i þeim ham, sem hann er í á myndinni. Petta er hinn 11 ára gamli, Ja-son Pipoly, sem reyndi að synda yfir Ermarsund á laug- ardag, yngstur manna til þessa. Jason litli varða að gefast upp er hann átti þriðjung leiðarinnar eftir. Lenti hann í þungum straumi, auk þess, sem tekið var að hvessa. Aðkoman eftir eina sprenginguna í París á síðastliðnum 10 dðgum, en í þetta skiptið var fórnarlambið kona nokkur, er var á gangi fyrir utan banka Gyðinga í borginni. Frakkland: Barátta hafin við hryðjuverkamenn ParÍN, 18. ágÚHt. AP. Hryðjuverkasamtökin „Direct Action“ voru í dag gerð útlæg úr Frakklandi og meðlimum þeirra hót- að fangelsun sem tilraun til að binda endi á öldu hryðjuverka sem hefur gengið yfir Frakkland á undanfórn- um mánuðum. Ákvörðun franskra stjórnvalda nú að banna starfsemi þessa vinstrisinnaða öfgahóps kom að- eins 17 klukkustundum eftir að forseti Frakklands, Francois Mitt- erand, tilkynnti væntanlegar að- gerðir stjórnvalda til að reyna að forða frekari hryðjuverkum þar í landi. í þessum nýju tilraunum felst að myndað verður sérstakt emb- ætti í ríkisstjórninni sem fer með hryðjuverkamál og náið verður fylgst með því að enginn komist ólöglega inn í landið. Einnig verð- ur sett upp tölvumiðstöð þar sem verður að finna skrár yfir hryðjuverkamenn og þjálfað verð- ur sérstakt lögreglulið til að fást við þessi mál. Fyrstu fjórtán dagana í ágúst voru sjö árásir hryðjuverkamanna í París, sem leiddu til dauða sex manna og 29 særðust. Leiðtogi „Direct Action“, sem er 30 ára að aldri og eftirlýstur af lögreglu, sagði í viðtali við franskt dagblað að hreyfing hans bæri einungis ábyrgð á þremur þessara sjö árása. Hann taldi upp þær þrjár árásir sem hann viðurkennir að samtök sín hafi borið ábyrgð á, en í þeirri upptalningu eru sprengjur sem sprungu á mannlausum stöðum og segir hann því að hreyfing hans beri enga ábyrgð á þvi manntjóni sem aðrar árásir hafa haft í för með sér. „Direct Action" hefur einnig lýst sig ábyrga fyrir meira en 30 öðrum sprengingum og hryðju- verkaárásum í Frakklandi frá því hreyfingin var stofnuð fyrir þrem- ur árum. Vestur-Beirút: Matarbirgðir Rauða krossins uppurnar Beirút, Libanon, 18. á^ÚHt. AP. MATVÆLABIRGÐIR Rauða kross- ins í Vestur-Beirút voru uppurnar í morgun, en þær hafa hingað til hjálpað þúsundum manna sem eru peninga og atvinnulausir vegna bardaganna í þessum hluta borgar- innar. Svo fór um sjóferð þá Norðmenn í „haldi“ um borð í rússnesku skipi OnIó, 18. ágÚHt, frá Jmn Krik Lmuré fréttmritmrm Vlorgunblaðsins. TVEIR norskir tæknimenn komu í gær heim til Osló eftir þriggja vikna nauðungarvist um borð í sovézku rannsóknarskipi. Menn- irnir komu um borð í skipið í Kiel og sluppu ekki í land aftur fyrr en í Reykjavík, en þaðan voru þeir fljótir að koma sér heim til Nor- egs. Upphaflega var ætlunin sú að Norðmennirnir, sem starfa hjá Bergens Mekaniske Verksted og Bergens Nautic, færu með skip- inu frá Kiel til Hollands og færu þar í land, en dyttuðu að ýmsu um borð meðan á ferðinni stæði, en hún átti að taka tvo daga. Þegar til átti að taka lagðist skipið alls ekki að bryggju í Hollandi og heldur ekki á Kan- aríeyjum eins og ráðgert hafði verið, þannig að Norðmennirnir komust ekki í kallfæri við fjöl- skyldur sínar og vinnuveitendur til að láta vita um ferðir sínar. Eins og nærri má geta var farið að undrast um þá þegar þeir létu loks frá sér heyra, en það var í gær og þá hringdu þeir frá Kaupmannahöfn. Þá kom í ljós að þeir höfðu ekki fengið að fara í land fyrr en skipið lagðist að bryggju í Reykjavík, sem var á mánudaginn, en nú eru þessir „sjanghæjuðu" tæknimenn sem sé komnir til síns heima. Handan við „Grænu línuna" sem skiptir borginni hefur Rauði krossinn hundruð tonna af mat- vælum, lyfjum og öðrum hjálpar- gögnum, sem ekki er hægt að koma yfir til hins umsetna borg- arhluta vegna þess að ísraelar hefta þar alla umferð. John de Salis, sem er yfirmaður Rauða krossins á staðnum, sagði að einungis sex bílfarmar af mat- vælum hefðu komist í gegn á und- anförnum tíu dögum og hann bætti við: „Hvernig endar þetta í þessari hrjáðu borg?“ Þessir sex vöruflutningabílar sem komust í gegn fluttu 2.250 „fjölskyldupakka", eða matvæli sem ættu að duga meðalstórri líb- anskri fjölskyldu í tvær vikur. Hins vegar séu í hinum hluta borgarinnar 11700 „fjölskyldu- pakkar" að auki ásamt miklu magni af ópökkuðum matvælum. Israelar lokuðu einnig fyrir vatn til borgarhlutans þar sem búa um hálf milljón manna, en þeir hleyptu því aftur á um síð- ustu helgi. Ekki er vitað hversu margir þjást af matarleysi í Vestur- Beirút, en áætlað hefur verið að þar sé um að ræða 40.000 til 60.000 manns sem hafi í það minnsta lít- ið að bíta og brenna. Bauð apan- um í glas Munchen, 18. ágúst. AP. BÆVERSKUR bjórdrykkjumaður fékk skyndilega þá hugdettu að vingast við apa nokkurn í dýrag- arðinum í Munchen og vildi fyrir alla muni leyfa honum að njóta forláta bjórs, sem hann hafði í þar til gerðri krús, með sér. Klifraði hann yfir girðinguna og inn til simpansa, sem var þar fyrir innan. Apinn reyndist þegar til kom lítt ölkær, en launaði góðvilj- ann með því að ráðast á viðkom- andi. Lauk viðureigninni með því að apinn beit fingur af gestinum, braut á honum annan handlegginn og klóraði illa í framan. Var hon- um ekið i ofboði á sjúkrahús þar sem gert var að meiðslum hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.