Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.08.1982, Blaðsíða 40
Síminn á afgretöslunm er 83033 Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 ÍW*ir0iwiX»Iírö>ifc FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1982 „Þetta er búið, nú deyjum við bæði“ Systkin björguðust en faðir þeirra drukknaði í sjóslysi á Breiðafirði „Hátnum hvolfdi í einu vetfangi «K kjölurinn var upp á samri stundu í ólagi sem sló bátnum undan á lensinu, en það var skollið á með illskusjó þar sem við sigld- um út Breiðafjörðinn um kvöldið en slysið varð um kl. 19.30. Við Kiín, systir mín, vorum á dekki þegar bátnum hvolfdi, en pabbi var inni i stýrishúsinu og festist þar. Ef við hefðum verið komin í lúkarinn hefði enginn bjargast. I'egar bátnum hvolfdi lömdust stög og mastrið í okkur, en við komumst á kjöl eftir 5—10 mín. í sjónum og þegar pabba skaut upp úr stýrishúsinu synti ég strax til hans; hann var þá orðinn meðvit- undarlaus. Ég reyndi að halda hon- um uppi, en okkur rak hratt frá bátnum og mig þraut krafta, varð að gefast upp og sleppa honum, það var hrikaleg stund,“ sagði Magnús Olason, 19 ára gamall, sem bjargaðist úr þessu hörmulega slysi ásamt Klínu systur sinni, 17 ára gamalli, en faðir þeirra, Óli T. Magnússon, 41 árs gamall, til heimilis að Kéttarbakka 15 í Keykjavik, fórst með báti sínum. Ilann var orðlagður sjómaður og jötunn að afli. Systkinin hafði hrakið í 4 manna gúmmibjörgun- arbát i na r I7 klst. þegar þyrla varnarliðsins bjargaði þeim um borð út af Knæfellsnesi um hádeg- isbil í gær, en vél i áætlunarflugi hcyrði neyðarsendingar frá björg- unarbátnum um kl. 9 i gærmorgun, skömmu eftir að Magnús hafði kvcikt á sendinum, en Sigurjón Óli T. Magnússon Kinarsson, flugmaður á vél Elug- málastjórnar, fann gúmmíbjörgun- arbátinn um kl. 10 í gærmorgun. Báturinn, sem fórst, hét Léttir SH I75, 6 tonn að stærð. „Eftir að ég hafði misst tökin á pabba, gat ég synt aftur að bátnum sem maraði í kafi á hvolfi og ég komst á kjöl til Elín- ar systur minnar. Við náðum í landfesti og ég batt öðrum end- anum um mig en Elín hélt í hinn á meöan ég kafaði undir bátinn til þess að reyna að losa gúmmí- björgunarbátinn, sem var fastur undir honum fremst. Ég varð að kafa tvisvar niður og það var óhugnanleg græn birta þar sem ég hélt mér undir bátnum á með- an ég reyndi að losa festingarn- ar. I seinna skiptið losnaði band- ið af mér og þá hélt ég mér í handið með tönnunum á meðan ég mjakaði björgunarbátnum úr festingunum svo að hann flaut upp. Við höguðum þessu þannig að Elín var öðru megin við kjöl- inn og hélt þannig á móti meðan ég stóð í þessu á hitt borðið, en einum hefði mér aldrei tekist þetta. Við komum bátnum síðan Magnús og Elín á heimili sínu I gærkvöldi. á kjölinn, en í hálftíma vorum við að berjast í þessu. Við ætluð- um aldrei að geta blásið bátinn upp, því bandið sem á að toga í var svo stíft að það gekk hrein- lega ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Ég var reyndar orðinn kaldur og þreklítill en náði að toga þó nokkrum sinnum og var hreinlega búinn að gefast upp þegar ég sagði við Elínu: „Þetta er búið, nú deyjum við bæði.“ Hún varð þá hamslaus og réðst á bandið og báturinn blés út. Við blésum síðan upp gólf bátsins og fórum um borð í hann og í álpok- ana í sjógöllunum. Sem betur fer var ekki komið myrkur þegar þetta skeði á svokölluðum Fláka á Breiðafirði, en skömmu seinna skall myrkrið á. Um kl. 3 um nóttina sáum við til báta og skutum upp neyðarblysi og ég veifaði vasaljósinu, en þeir sáu okkur ekki, enda var rekið mikið og öldugangurinn slíkur að þessi 4 manna bátur hefur sést illa. Ég slökkti á neyðarsendinum um nóttina af því að ég vissi ekki hvað rafhlaðan dygði, en kveikti aftur á sendinum um kl. 8.45 um morguninn þegar von var á flugvélum í áætlunarflugi yfir okkur. Við reyndum þannig að hugsa rökrétt og misstum aldrei stjórn á okkur, en vistin í gúmmíbátnum var ekki upp á það besta, við höfðum bæði drukkið mikinn sjó og Eiín var sjóveik, en lagaðist eftir að hafa tekið sjóveikipillur. Síðan mókt- um við í bátnum þar til flugvélin fann okkur og þökk sé björgun- armönnum okkar fyrir hetjulega framgöngu." Sjí bls. 3. Árásarmaðurinn faldi sig í byrgi í Hafrafelli: að vera valdur að frönsku stúlkunnar Játar dauða GRÉTAR Sigurður Árnason, fertug- ur maður, sem búsettur er á Hofi í Austur-Skaftafellssýslu, hefur játað að hafa sett frönsku stúlkuna, Yvette Bahuaud, í farangursgeymslu bifreiðar sinnar, lifandi en særða á baki af 4 haglaskotum. Hann skildi stúlkuna síðan eftir í farangurs- geymslunni og er talið að hún hafi látist þar skömmu síðar. Maðurinn leitaði hælis í Hafrafelli, skammt vestan Skaftafells í Öræfum og leyndist þar, aðeins örskammt frá veginum að Svínafellsjökli, þar sem hann skildi bifreið sína eftir. Hann hefur og játað að hafa veitt systur látnu stúlkunnar, Marie Luce Bahu- aud, mikla áverka á höfði með byssuskefti. Hún liggur nú á Borg- arspítalanum og er líðan hennar eft- ir atvikum. Maðurinn fannst um klukkan 10.30 í gær í byrgi sem hann hafði hlaðið sér í Hafrafelli og veitti hann ekki mótspyrnu þegar að honum var komið. Hann var vopn- aður haglabyssu og riffli og lét hann vopn sín af hendi. Hann var þegar fluttur í Skaftafell til yfir- heyrslu sem stóð í gærdag, en síð- an til Reykjavíkur, en þangað kom hann á miðnætti. Er hann í haldi í Hegningarhúsinu við Skólavörðu- stíg. I dag, fimmtudag, verður ákvörðun um gæsluvarðhaldsvist tekin. Við yfirheyrslur hefur maður- inn sagt að skot hafi hlaupið úr haglabyssu, sem hann ógnaði stúlkunum með, en hann segist hafa lent í átökum við þær. Slapp önnur frá honum, en hann fann hana síðar á þjóðveginum. Þá bar þar að flutningabílstjóra, en Grét- ar Sigurður sagði honum að ekið hefði verið á stúlkuna og"bað hann að sækja hjálp. Þegar bílstjórinn var farinn beitti hann stúlkuna valdi við að koma henni ofan í far- angursgeymslu bifreiðarinnar, en ók síðan á brott áleiðis að Hafra- felli. Þegar hann yfirgaf bifreið- ina tók hann með sér skotvopnin en leit ekki ofan í farangurs- geymsluna, þar sem stúlkan var. Stúlkan hafði hlotið fjögur skot- sár á baki eftir högl. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur aflað sér nokkurra upplýs- inga um ferðir frönsku systranna um landið síðan þær komu 26. maí sl. Systurnar virðast hafa komið víða við á ferð sinni og ber öllum sem þeim kynntust, og lögreglan hefur talað við, saman um að framkoma þeirra hafi á allan hátt verið til fyrirmyndar og þær hafi ekki neytt tóbaks, áfengis eða annarra vímuefna. Sjá viðtal og myndir í miðopnu. Friðjón Guðröðarson sýslumaður ræðir við leitarmenn í Skaftafelli í gær. Friðjón er til vinstri á mynd- inni. • • Onnur aðgerð gerð á frönsku stúlkunni FRANSKA stúlkan, sem mis- þyrmt var á Skeiðarársandi að- faranótt þriðjudagsins, gekkst í gær undir aðra höfuðskurðað- gerð á Borgarspítalanum. Að- gerðinni lauk í gærkvöldi og að sögn lækna var líðan hennar góð eftir atvikum. Stúlkan var tryggð hjá frönsku tryggingarfyrirtæki og samkvæmt tryggingarsamn- ingum ætlaði viðkomandi tryggingarfélag að sækja stúlkuna hingað í gær. Ætlun- in var að senda eftir henni sér- staka sjúkraþotu með læknis- þjónustu um borð, en að höfðu samráði við lækna á Borgar- spítalanum var hætt við ferð- ina, þar sem gera þurfti aðra höfuðaðgerð á stúlkunni og því talið varasamt að flytja hana. Grétar Sigurður Árnason leiddur út í lögreglubíl, eftir yfirheyrslur í Skaftafelli. Á undan og eftir fara rannsóknarlög- reglumenn. Ljfem. Mbl. KÖE.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.