Morgunblaðið - 22.08.1982, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982
5
Sjónvarp kl. 20.50:
„Knut Hamsun, nóbel-
skáld og landráðamaöur“
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.50 í
kvöld er heimildakvikmynd um
norska rithöfundinn Knut Ham-
sun sem nefnist „Knut Hamsun,
nóbelskáld og landráóamaóur".
Myndin er gerð af Birni Font-
ander og inniheldur efni sem
ekki hefur verið sýnt áður.
Knut Hamsun (1859—1952)
var ákaflega umdeildur rithöf-
undur og það var ekki vegna
bókmenntaverka hans heldur
vegna skoðana hans. Hann var
nefnilega nasisti. Og þegar Þjóð-
verjar hernámu Noreg árið 1940
hvatti hann landa sína til að
sýna enga mótspyrnu.
Norðmenn gátu ekki fyrirgefið
Hamsun þessa afstöðu hans og
eftir stríðið var hann lokaður
inni á geðsjúkrahúsi í Osló, þá 86
ára gamall. Hann hafði gert ým-
islegt sem Norðmönnum þótti
ekki vel heilbrigt, þar á meðal
sent nóbelsverðlaunamedalíuna
sína til Göbbels, heimsótt Hitler
í „arnarhreiður“ hans fyrir utan
Salzburg árið 1943, skrifað lof-
rollu um Hitler þegar að hann dó
og fleira í sama dúr.
Knut Hamsun. Myndin er tekin
vió réttarhöldin gegn honum í
(•rimstad 7. maí 1945.
Hljóðvarp kl. 10.25:
„Milli Grænlands köldu kletta“
Hljóðvarp kl. 20.30:
„Deilur tengjast bók-
menntum“ á árunum milli stríða
Á dagskrá hljóðvarps kl. 20.30 í
kvöld er þátturinn „Menningar-
deilur milli stríóa" í umsjá Arnar
Ólafssonar kennara. Örn sagði að
þetta væri fyrsti þátturinn af átta
og fjallaði hver þeirra um eitt
meginefni. „Þessi þáttur er um
deilur sem tengjast bókmenntum,
um mismunandi afstöðu til bók-
mennta á þessum árum milli stríð-
anna,“ sagði Örn.
„Fyrsti þátturinn er um menn-
ingartímaritin sem birtust á árun-
um milli heimsstyrjaldanna og um
bókaútgáfu á þessum áratugum.
Annar þátturinn verður svo um
átökin milli þeirra sem boðuðu
breytingar og „þjóðlegra íhalds-
manna,“ sagði Örn að lokum. Les-
ari með Erni í þáttunum verður
Hjörtur Pálsson.
Örn Ólafsson menntaskólakennari.
Friórik Páll Jónsson
Á dagskrá hljóðvarps kl.
10.25 í dag er þátturinn „Út
og suður“ í umsjá Friðriks
Páls Jónssonar. Hjörtur E.
Þórarinsson á Tjörn segir
frá för sinni til Grænlands
þar sem hann var fulltrúi
Búnaðarfélags íslands í
byrjun þessa mánaðar.
Nefnist frásögn hans „Milli
Grænlands köldu kletta".
Að sögn Friðriks var erindi
Hjartar þar líka að af-
henda formlega stóðhest
sem íslendingar gáfu
Grænlendingum, auk þess
sem hann kynnti sér land-
búnaðinn og sauðfjárrækt-
ina í Grænlandi.
Hjörtur E. Þórarinsson i Tjörn
Hljóðvarp kl. 18.00:
Lög eftir
Árna Björnsson
Á dagskrá hljóðvarps kl. 18.00 í
dag eru islon.sk dægurlög. Verða
m.a. leikin lög af plötu sem kom
út í fyrra með lögum eftir Árna
Björnsson. Stórhljómsveit Svans-
ins leikur. Var þessi hljómplata
gefin út í tilefni af því að Árni
Björnsson varð 75 ára og Lúðra-
sveitin Svanur 50 ára. Af plötunni
verða leikin þrjú lög. Þau eru „Að
ganga í dans“, „Ástarvalsinn" og
„Um kvöld".
Árni Björnsson
■ ■
Oll
almenn
ferða-
þjónusta
Viö veitum alla almenna
ferðaþjónustu, svosem
útgáfu flugfarseöla um allan
heim, pöntun á qistirými oq
alla skipulagningu einstaklings-
feróa, hvort heldur sem um
sumarleyfis- eða viöskiptaferðir
er aö ræöa. Okkar sérfræö-
ingur á þeim sviöum er Margrét Ás-
ólfsdóttir og hefur hún að baki starfs-
reynslu á þessu sviöi á annan áratug.
Heillandi fögur og skemmtileg borg, Fen-
eyjar Noröur-Evrópu. Miöstöö lista og
menningar. Fjölbreyttar skemmti- og skoö-
unarferðir. Amsterdam er líklega hagstæö-
asta verslunarborgin í Noröur-Evrópu um
þessar mundir.
Floriade, stærsta blómasýning veraldar
sem haldin er á 10 ára fresti, er opin til
októberloka.
Brottfarir á miðvikudögum og sunnudögum.
Ótrúlega ódýrar ferðir meö gistingu á góö-
um hótelum eða meö bílaleigubíl.
Flug og bíll frá kr. 3.900.
Flug og gisting frá kr. 4.600.
Mióad viö gengí 10. ágúst 1982.
Fsröaskrifstofan Laugavagi 66,
101 Raykjavík, sími 28633.