Morgunblaðið - 22.08.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.08.1982, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1982 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Stykkishólmur Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið í Stykkis- hólmi. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 8293 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík sími 83033. fltovgtmÞIafeifr Garðabær Blaöberi óskast í Grundir. Einnig í Sunnflöt og Markarflöt. Uppl. í síma 44146. Gagnaskráning Opinber stofnun vill ráöa starfsmann til gagnaskráningar. Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist blaðinu fyrir 27. ágúst 1982, merktar „Reglusemi — 6147“. Hársnyrtinemi er lokið hefur 9 mánaöa skólanámi óskast strax. Upplýsingar veittar á staðnum. Saloon Ritz, Laugavegi 66. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Landspítalinn Aðstoðardeildarstjóri óskast sem fyrst á skurðstofu Kvennadeildar Landspítalans. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000. Aðstoöarmaöur óskast viö hjartarit Land- spítalans. Upplýsingar veittar í síma 29000—389. Starfsmaöur óskast sem fyrst í fullt starf á barnaheimili HSÍ. Upplýsingar veitir forstööumaður barna- heimilisins í síma 16077. Kristneshæli _ _ Reiói'jolaverslunm orninnF* Afgreiðslustarf — skrifstofustarf Óskum eftir röskum og áreiðanlegum starfskröftum í eftirtalin störf: Afgreiðslustarf í verzlun Hér er um framtíöarstarf aö ræða og er nauðsynlegt aö viðkomandi hafi áhuga á reiðhjólum og reynslu í afgreiðslustörfum. Skrifstofustarf Framtíðarstarf. Reynsla í almennum skrif- stofustörfum sem og bókhaldskunnátta nauð- synleg. Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 20 ára. Umsóknareyðublöð liggja frammi í verzl- unum og á skrifstofu, fram til fimmtudagsins 26. ágúst. Starf sendils Laust er til umsóknar starf sendils á aðal- skrifstofu félagsins. Um er aö ræða fullt starf. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu félagsins að Laugavegi 103, 2. hæð, Reykja- vík. Umsóknarfrestur er til 26. ágúst 1982. Brunabótafélag íslands, Laugavegi 103, 2. hæö, Reykjavík. Hársnyrtisveinn óskast Tilboö sendist augl.d. Mbl. fyrir 6. september merkt: „H — 3497.“ Saloon Ritz, Laugavegi 66. Kammerhljómsveit Hljóðfæraleikarar Áttunda október tekur til starfa í Reykjavík kammerhljómsveit, sem halda mun 8 tón- leika í vetur: laugardagana 30.10, 27.11, 18.12, 29.1, 26.2., 26.3, 30.4 og 28.5. Æfingar verða alla föstudaga sem hér segir: Strengir kl. 1.30—4.30, blásarar og aörir 2.30—5.30. Laun verða greidd samkvæmt kauptaxta FÍH. Hljóðfæraleikararnir verða ráðnir í allar deildir hljómsveitarinnar; 30 til 45 manns eftir atvikum. Prufuspil fer fram dagana 4. og 5. september. Frekari upplýsingar gefur Hafsteinn Guð- mundsson í síma 40556 kl. 17—19. Undirbúningsstjórn. Guömundur Emilsson, Þorkell Jóelsson, Sesselja Halldórs- dóttir, Ingjaldur Hannibalsson, Ásgeir Sigurgestsson, Sigurö- ur I. Snorrason, Hafsteinn Guömundsson. Endurskoðun Okkur vantar mann til starfa við endurskoð- un og bókhald. Æskilegt er aö viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu á sviði reikningshalds. Umsækjendur hafi samband við skrifstofu okkar á milli kl. 10.00 og 12.00 næstu daga. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Björn Steffensen & Ari Ó. Thorlacíus, endurskoöunarstofa, Ármúla 40, Reykjavík. Hlutastarf Laust er til umsóknar hlutastarf á skrifstofu hagsmunafélags, sem staðsett er við mið- borgina. Starfið er einkum fólgið í léttri af- greiöslu, upplýsingagjöf, símavörzlu og vélrit- un. Vinnutíminn er kl. 16—18. Umsóknir berist afgreiðslu Mbl. fyrir 28. ágúst nk. merkt: „Hlutastarf — 3466“. Hafnarfjörður Skrifstofustúlka óskast, helst vön. Vinnutími frá kl. 1—5. Umsóknir meö upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist fyrir 27. ágúst. Jón F. Arndal, Strandgötu 45, Hafnarfirði. Verkamaður óskast í timburafgreiðslu okkar að Súðarvogi 3. Upplýsingar á skrifstofunni. Húsasmiöjan hf. Skrifstofustörf Stúdent af viðskiptasviði óskast til fjöl- breyttra skrifstofustarfa. Framtíðarstarf. Starfsreynsla í skrifstofustörfum gæti komið í stað stúdentsprófs. Umsóknir, sem greini aldur, menntun og fyrri störf sendist til „Lífeyrissjóður“ Póstólf 645, 121 Reykjavík. Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi. Húsnæði og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma (96)31100. Ríkisspítalarnir. Reykjavík, 22. ágúst 1982. Forstöðukona á leikskóla Forstöðukona óskast að leikskólanum viö Skarðsbraut til afleysinga í eitt ár, frá 15. sept. nk. Fóstrumenntun áskilin. Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, mennt- un og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 3. sept. nk. Nánari uppl. veitir forstöðukona í síma 93—2663 eða undirritaöur í síma 93—1211. Félagsmálas tjóri, Kirkjubraut 2, Akranesi. ■ ■ Ráðgjafií prjónatækni Staða ráðgjafa í prjónatækni við Trefjadeild er laus til umsóknar. Reynsla í prjónaiðnaði tilskilin. Tækifæri bjóðast til aö fylgjast með tækniþróun í prjónaiðnaði innanlands og erlendis. Umsóknarfrestur er til 17. september nk. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun- ar- og starfsferil sendist deildarstjóra Trefja- deildar, Vesturvör 27, Kópavogi, sem gefur nánari upplýsingar. Iðntæknistofnun íslands Tölvari IBM 34 Sveltur sitjandi kráka ... en fljúgandi fær Við leitum að vönum tölvara fyrir einn af viðskiptavinum okkar. Viðkomandi verður einnig að hafa undirstöðuþekkingu í forritun. Hér er um gullið tækifæri að ræöa fyrir mann sem vill ná langt á sínu sviði og vinna sjálf- stætt. Laun í samræmi viö hæfileika og árangur í starfi. Vinsamlegast pantiö viðtal viö Helga Þórsson eða Björn Viggósson í síma 44033. Ráðgjafaþjónusta Stjófnun — Skipulag Skipulagnmg — Vinnurannsóknir Flutnmgataakm — Birgóahald Upplysmgakarti — Tölvuráógjóf Markaós- og sóluráógjóf Stfómanda- og ttarfst>jálfun REKSTRARSTOFAN — Samstarf sjálfataaóra rakstrarráógjafa á miamunandi sviðum — Hamraborg 1 202 Kópavogi Sími 91 -44033

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.