Morgunblaðið - 24.08.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
5
Útvarpsráð:
Fréttaflutning-
ur hljóðvarps af
efnahagsumræð-
unum gagnrýndur
Verið að setja olíumöl um borð i Drang.
Drangur lestaði olíumöl í Sundahöfn
HÖRÐ gagnrýni á meðferð frétta-
manna hljóðvarpsins á fréttum af
stjórnmálaviðburðum og umræðum i
ríkisstjórninni og almennt um efna-
hagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem
i uppsiglingu voru, kom fram á fundi
útvarpsráðs síðastliðinn þriðjudag.
Útvarpsráðsmennirnir Eiður Guðna-
son, Markús Örn Antonsson og Ell-
ert Schram vöktu meðal annars at-
hygli á því, að fréttastofa hljóðvarps-
ins væri ekki einungis málsvari ríkj-
andi ríkisstjórnar.
Eiður Guðnason, alþingismaður,
vakti athygli á því, að leiðtogar
stjórnarandstöðunnar hefðu ekk-
ert verið spurðir álits um viðhorf-
in í þjóðmálunum út frá efna-
hagsvandanum, sem við hefði ver-
ið að glíma og sem væntanlegar
efnahagsaðgerðir ríkisstjórnar-
innar beindust að. Ellert Schram
og Markús Örn Antonsson tóku
mjög undir sjónarmið Eiðs og
sögðu, að fréttastofa hljóðvarps-
ins yrði að gera sér grein fyrir því,
að hún væri ekki bara talsmaður
og málsvari ríkisstjórnar, sem við
völd væri á hverjum tíma.
Þá vakti Markús Örn athygli á
þeirri skoðun sinni, að sér fyndist
hlutverk fréttastofu hljóðvarpsins
í þessum fréttaflutningi afskap-
lega einkennilegt um það, sem
Ekið á mann í gær
EKIÐ VAR á fullorðinn mann laust
fyrir hádegi í gær, á mótum Sturlu-
götu og Öddagötu, samkvæmt upp-
lýsingum sem Morgunblaðið fékk
hjá slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar í gær.
Varð maðurinn fyrir framhjóli
vörubifreiðar og fótbrotnaði.
Einnig er talið að hann sé við-
beinsbrotinn. Hann var fluttur á
slysadeild.
væri að gerast í stjórnarherbúð-
unum að því leyti til, að það væri
eins og hún talaði fyrir munn
sjálfskipaðra blaðafulltrúa
Alþýðubandalagsins, eða ein-
hverra, sem væru sérstaklega
fengnir til þess að miðla fréttum
úr herbúðum þess stjórnmála-
flokks um hvað þar væri til um-
ræðu. Varaði Markús mjög ein-
dregið við því að fréttamenn
hljóðvarpsins yrðu eins konar
tæki í þessu áróðursstríði, sem
greinilega hefði verið í gangi milli
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins. Þó ekki væri
hægt að átelja menn fyrir það að
reyna að skýra frá því, sem væri
að gerast og gerjast á bak við
tjöldin, yrðu menn að vera mjög
vel á varðbergi gegn þessari
hættu, þegar þeir væru að afla sér
upplýsinga um það sem væri að
gerast, að verða ekki handbendi
einhverra aðila, sem hefðu j)óli-
tískra hagsmuna að gæta og ætl-
uðu að nota sér fréttastofu hljóð-
varpsins til þess að koma sjón-
armiðum sínum á framfæri í ein-
hverri meiriháttar leikfléttu.
Vilhjálmur Hjálmarsson, for-
maður útvarpsráðs, tók undir það
sjónarmið, að farið væri inn á
varhugaverðar brautir hjá frétta-
stofunni að tilgreina ekki heimild-
ir við fréttaflutning. Þá kom það
upp í þessum umræðum að frétta-
flutningur, þar sem heimildar-
manna er ekki getið, samrýmist í
raun og veru ekki fréttareglum
hljóðvarpsins, þó svo að menn
vildu ekki átelja fréttastofuna
beinlínis fyrir það, að reyna að
flytja fréttir af því sem væri að
gerast á sviði stjórnmálanna, en
ástæða væri til að taka þau mál til
umfjöllunar og að gæta yrði sam-
ræmis í vinnubrögðunum og fara
eftir gildandi reglum.
DRANGUR, strandferðaskip Norð-
lendinga, lestaði i Sundahöfn um
200 tonn af olíumöl í gær, sem fór til
Patreksfjarðar. Er það í fyrsta skipti,
sem Drangur hefur komið til
Reykjavikur, hann hafði áður flutt
malbikunarvélar frá llafnarfirði til
Húsavíkur.
Að sögn Örlygs Ingólfssonar,
skipstjóra á Drangi, hefur skipið
reynzt vel það sem af er. „Annars
FIMMTUDAGINN 26. ágúst opnar
scndiherra Dana á íslandi sýningu á
dönsku postulíni að Kjarvalsstöðum
í Reykjavík. Sýningin verður opin til
mánudagsins 30. ágúst. En hún er
merkasti þátturinn í umfangsmikl-
um sýningum, sem hin danska
postulínsverksmiðja heldur um allt
Island. Verða þar sérunnin listaverk
eftir nútímalistamenn, safn platta og
munir frá núverandi framleiðslu,
m.a. eftir íslenzkan listamann.
Á sýningunni verður reynt að
gefa mynd af breidd þessarar
rótgrónu postulínsverksmiðju.
Hún nær yfir sögulega postu-
línsmuni, yfir sjaldgæfa platta,
yfir nútíma sérunna steinleirslist,
yfir hugmyndir fyrir borðskreyt-
hefur alltaf verið rjómalogn og
blíða, svo það hefur ekki enn kom-
ið almennileg reynsla á skipið."
Það eru 4 menn, sem vinna um
borð. Drangur fer tvisvar í viku
frá Akureyri til Hríseyjar, Siglu-
fjarðar og Ólafsfjarðar á veturna,
og Grímseyjar hálfsmánaðarlega.
En á sumrin fjölgar ferðum að
mun.
ingar heima fyrir og sýningu á
gamalli iðnaðarhefð, sem enn er
við lýði í miðborg Kaupmanna-
hafnar.
Frá sögulega vettvanginum
verður m.a. sýnishorn frá heims-
sýningum, dæmi um gamlar
diskaskreytingar og verk, sem
unnin eru eftir þekktum verkum
myndhöggvarans Albert Thor-
valdsen. Þá verða munir frá fyrstu
tíð Bing & Gröndahl. En fram-
leiðslan hófst árið 1853. Þá fá
áhugamenn um platta tækifæri til
þess að skoða heildarsafn af Bing
& Gröndahl-plöttum. Var fyrsti
plattinn framieiddur árið 1895 og
hefur safnarahefð á þeim teygt sig
út um allan heim í dag. Plattar
Örlygur sagði, að Drangur gæti
lestað um 275 tonn með öllu og
bóman gæti lyft um 56 tonnum.
Notaðir væru lyftarar um borð til
þess að koma gámunum í land og
um borð. En bezt væri að hafa
skutbryggju eins og væri í Sunda-
höfn, þá væri unnt að aka um borð
með varninginn eins og gert væri
nú með olíumölina.
tengdir Islandi verða á sýning-
unni, sem voru gefnir út árin 1907,
1930 og 1974.
Þá verður útskýrt hvernig
postulínsstykki ' eru framleidd
ásamt sýnishorni, hvernig stykkið
er á hinum ýmsu þrepum fram-
leiðslunnar. Mun handskreytir
verða á sýningunni til þess að
sýna hvernig postulín er hand-
skreytt eins og gert var fyrir einni
öld. Jafnframt verður hönnunar-
keppni um postulínshönnun og
diskaskreytingar í tengslum við
sýninguna.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
verður opin frá 26. ágúst til 30.
ágúst kl. 14—22 daglega og er að-
gangur ókeypis.
Bing & Gröndahl:
Postulínssýning á Kjarvalsstöðum
1að'je'®^toó'bó'ar'Pa'