Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982
19
Fyrstu skærulið
arnir komnir til
Arabaríkjanna
Beirut, 23. áfrúst, AP.
Hussein Jórdaníukonungur býður velkominn einn þeirra PLO-skæruliða
sem hann hefur skotið skjólshúsi yfir, en hópurinn kom til Amman á
sunnudag með viðkomu á Kýpur. M' símamynd
BROTTFLUTNINGUR palestínskra
skæruliða frá Líbanon hófst fyrir al-
vöru í gær, sunnudag, eftir kveðju-
athöfn á íþróttaleikvangi í Vestur-
Beirut, þegar um 1000 manns voru
fluttir um borð í skip, sem flvtur þá
til Kýpur. Þaðan munu þeir svo
halda til Túnis. í útvarpsfregnum
sagði, að í þessum hópi hefðu verið
nokkrir frammámanna í PLO.
Maher Hamdi, foringi fyrir
róttækum klofningshópi innan
PLO, sagði við fréttamenn, að
skæruliðarnir hefðu ekki i hyggju
að vera lengi í Túnis áður en þeir
létu til skarar skríða aftur gegn
ísraelum. „Eina viku, tvær vikur,
tvo mánuði," sagði hann, „og þá
munum við taka upp baráttuna að
nýju.“ Allir voru skæruliðarnir vel
vopnaðir bandarískum, sovéskum,
breskum og tékkneskum hríð-
skotarifflum auk annarra léttra
vopna.
IIÉR fer á eftir yfirlit yfir mestu
hryðjuverk, sem framin hafa verið í
Miðausturlöndum á síðustu 14 ár-
um. Að sögn ísraela hefur PLO,
frelsisfylking Palestínu, staðið að
baki þeim öllum og að í Beirút hafi
hryðjuverkamennirnir fengið þjálfun
16. desember 1968. Tveir Arabar
ráðast á flugvél frá ísraelska flug-
félaginu E1 A1 i Aþenu, drepa einn
farþeganna og særa flugfreyju.
Tveimur dögum síðar gera Israel-
ar loftárás á flugvöllinn í Beirút
! og sprengja upp 13 arabískar
farþegaþotur.
6. september 1970. Hryðju-
verkamenn sprengja upp banda-
ríska Jumbo-þotu, sem þeir höfðu
i rænt í Kairó og neyða tvær aðrar
þotur, svissneska og bandaríska,
til að lenda í jórdanskri eyðimörk.
Þremur dögum síðar neyða þeir
breska þotu til að lenda þar og
Sýrlenska ríkisstjórnin gaf í
skyn í gær, að hún myndi hvetja
skæruliða, sem nú er verið að
dreifa um Arabaríkin, til að safn-
ast saman þar í landi. „Við mun-
um sjá þeim fyrir því, sem þeir
þurfa til að geta snúið aftur til
Palestínu — föðurlands þeirra,"
sagði háttsettur embættismaður
stjórnarinnar í gær, en eftir heim-
ildum innan PLO er haft, að þess-
um yfirlýsingum sé treyst í hófi.
Nokkur hópur palestínskra
skæruliða, sem hliðhollur er Irök-
um, kom til íraks í gær og var
mikið um dýrðir við komu þeirra.
Foringi hópsins flutti ræðu við
tækifærið og kvað skæruliðana
komna til að halda áfram barátt-
unni gegn ísraelum auk þess sem
þeir væru reiðubúnir til að berjast
með írökum gegn „innrásarher Ir-
ana“.
í gær komu einnig til Jórdaníu
sprengja allar vélarnar í loft upp.
Þessi flugrán ollu því, að Hussein
Jórdaníukonungur rak PLO, frels-
isfylkingu Palestínu, frá Jórdaníu
til Líbanon.
30. maí 1972. Fjöldamorðin í
Lod-flugstöðinni. Þrír liðsmenn
japanska Rauöa hersins, sem tekið
hefur höndum saman við palest-
ínska hryðjuverkamenn, koma til
Lod með franskri flugvél og hefja
að skjóta á fólk með sjálfvirkum
rifflum og kasta að því hand-
sprengjum. 26 létu lífið og 70
særðust. Tveir Japananna féllu en
sá þriðji er í ævilöngu fangelsi í
Israel.
5. september 1972. Fjöldamorðin
á Ólympíuleikunum í Múnchen
Félagar úr samtökunum Svarta
september drepa tvo ísraelska
íþróttamenn og táka níu í gísl-
ingu. Daginn eftir ráðast þýskir
265 skæruliðar og tók Hussein
konungur sjálfur á móti þeim.
Hann kvað þá hafa barist af
hetjuskap gegn ofurefli liðs og
sagðist vera viss um lokasigur pal-
estínsku þjóðarinnar. Athygli
vakti hve skæruliðarnir fögnuðu
Hussein innilega en hann hefur
öryggisverðir á hryðjuverkamenn-
ina á flugvellinum í Múnchen og
fella fimm þeirra en allir gíslarnir
láta lífið.
17. desember 1973. Hópur ara-
bískra hryðjuverkamanna spreng-
ir upp farþegaþotu frá Pan Am á
flugvellinum í Róm, 29 manns far-
ast. Síðan ræna þeir þotu frá Luft-
hansa, taka tólf manns i gíslingu
og fljúga til Aþenu. Þar drepa þeir
tvo gíslanna meðan þeir semja við
yfirvöld um frelsi tveggja félaga
sinna.
11. apríl 1974. Átján ísraelar
falla og 16 særast þegar hryðju-
verkamenn ráðast inn í blokkar-
byggingu í bænum Kiryat
Shmona, nærri líbönsku landa-
mærunum. Arabarnir láta lífið
þegar vopnabirgðirnar, sem þeir
höfðu meðferðis, springa.
15. maí 1975. Hryðjuverkamenn
frá Líbanon drepa þriggja manna
verið mjög umdeildur meðal
þeirra frá því hann hrakti PLO-
samtökin frá landinu til Líbanons.
„Iængi lifi konungurinn, lengi lifi
Abu Ammar (Yasser Arafat),"
hrópuðu þeir, og kváðust fúsir til
að falla fyrir kónginn og sitt nýja
föðurland.
fjölskyldu og tvær arabískar kon-
ur áður en þeir ná á sitt vald skóla
sem í voru 95 unglingar, í landa-
mærabænum Maalot . ísraelskir
hermenn ráðast inn í skólann og
22 barnanna, hryðjuverkamenn-
irnir þrír og einn hermaður láta
lífið í bardaganum. Hin börnin 73
særðust öll.
27. júní 1976. Fjórir arabískir
hryðjuverkamenn ræna í Aþenu
þotu frá Air France, sem var að
koma frá Tel Aviv, og neyða flug-
mennina til að lenda í Entebbe í
Uganda. Viku síðar frelsa ísraejar
102 gíslanna en þrír falla í bar-
daganum og einn deyr í Uganda
nokkru síðar. Tuttugu hermenn
frá Uganda, sjö hryðjuverkamenn
og einn Israeli falla.
11. mars 1978. Þrjátíu og tveir
Israelar falla í árás hryðju-
verkamanna á þjóðveg skammt
frá ströndinni, mesta hryðjuverk í
ísrael. Hryðjuverkamennirnir,
sem voru tólf saman og komu sjó-
veg, náðu á sitt vald tveimur
fólksflutningabifreiðum með ísra-
elskum ferðalöngum, tróðu þeim
inn í annan bílinn og héldu þaðan
uppi vopnaviðskiptum við lögregl-
una. Margir ísraelanna létust þeg-
ar handsprengjur sprungu inni í
bílnum. Al-Fatah kveðst bera
ábyrgðina.
Eitraður búð-
ingur veldur
dauðdaga
Lissabon, 23. ágúst. Al*.
ÞREriÁN ára gamall portúgalskur
drengur lést á fdstudag eftir að hafa
snætt eitraðan búðing sem móðir
hans segist hafa skilið eftir í ís-
skápnum til að hafa fyrir sjálfa sig
daginn eftir, en með þeim hætti
hugðist hún fremja sjálfsmorð.
Frú Pinto tjáði lögreglunni að
sonur hennar, Rogerio, hefði tekið
eitraða eftirréttinn þar sem hann
stóð í ísskáp fjölskyldunnar innan
um aðra meinlausa rétti sem þar
voru.
Lögreglan segir að frúin hafi
ráðgert að svipta sig lífi daginn
eftir með því að borða af réttinum.
Hún mun nú vera í gæsluvarð-
haldi og fyrirskipuð var krufning
á syninum.
Veður
víða um heim
Akureyri 10 léttskýjað
Amsterdam 20skýjaö
Aþena 33 heiöskirt
Barcelona 27 skýjað
Berlin vantar
BrUssel 18 skýjað
Chicago 25 skýjað
Dyflinni 17 skýjað
Feneyjar 24 léttskýjað
Frankturt 22 skýjað
Genf 21 heiðskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Hong Kong 31 heiðskirt
Jerúsalem 29 heiðskirt
Jóhannesarborg vantar
Kairó 34 heiðskírt
Kaupmannahöfn 19 heiðskirt
Las Palmas 24 hélfskýjað
Lissabon 28 heiðskirt
London 20 skýjað
Los Angeles 30 heiðskírl
Madrid 33 skýjað
Malaga 31 skýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Mexikóborg 22 skýjað
Miami 34 skýjað
Moskva 26 rigning
Nýja Delhi 32 skýjað
New Vork 23 skýjað
Ostó 21 heiðskirt
Parfs 23 skýjað
Perth 12 rigning
Rio de Janeiro 32 skýjað
Reykjavik 9 skýjað
Rómaborg 28 heiðskírt
San Francisco 18 heiðskírt
Stokkhótmur 21 heiðskírt
Sydney 20 heiðskirt
Tel Aviv 30 heiðskfrt
Tókýó 32 heiðskírt
Vancouver 21 skýjað
Vinarborg vantar
Þórshöfn 11 skýjað
Mestu hryðjuverkin
á síðustu 14 árum
Óeirðir
í Perú
Lima, l*erú, 23. ágúst. Al*.
SEX þjóðvarðliðar og 20 skæruliðar
létu lífið í bardögum er stóðu í fimm
klukkustundir á laugardag við stöðv-
ar þjóðvarðliða i afskekktu þorpi,
samkvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í gærkvöld.
Lögreglan í Ayacucho, 569 kíló-
metra suð-austur af Lima, sagði
að þrír þjóðvarðliðar að auki væru
illa slasaðir og bætti því við að
skæruliðar hefðu flúið af vett-
vangi og borið suma manna sinna
á brott.
Talsmaður lögreglunnar sagði
að árásin hafi verið gerð á þjóð-
varðliðastöðina og stæði þar nú
ekki steinn yfir steini.
I kjölfar þessara bardaga fylgdu
nokkrar sprengingar í höfuðborg-
inni fyrir utan verslanir og aðrar
þjónuátumiðstöðvar. Ekki hefur
verið upp gefið hverjir séu ábyrgir
fyrir árásinni, en talið er að þar sé
um að ræða skæruliðahóp Sendero
Luminoso, sem hefur á stefnuskrá
sinni að hrekja núverandi forseta
frá völdum.
SVEFNHERBERGISHUSGOGN
Vinsælu svefnherberg-
ishúsgögnin eru nú
komin aftur í miklu úr-
vali.
Einnig geysigott úrval
af alls konar húsgögn-
um af ýmsum geröum.
■
Opið kl. 9—9.
KM-
húsgögn,
Langholtsvegi 111,
sími 37010 — 37144.