Morgunblaðið - 24.08.1982, Side 44

Morgunblaðið - 24.08.1982, Side 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982 25 KA vann upp tveggja marka forystu IBV og krækti í stig KA NÆLDI sér i dýrmætt stig i hinni geysihörðu keppni í 1. deildinni þegar liðið gerði jafnteDi við ÍBV í Eyjum á laugardaginn. Bæði liðin skoruðu tvö mörk í leik sem var dæmigerður fyrir þetta sérstæða mót sem nú fer senn að draga til úrslita i; barátta og taugaveiklun, en samleikur og afgerandi einstaklingsframtak sárgrætilega af skornum skammti. Eyjamenn komust í 2—0 en með viljafestu tókst KA-mönnum að jafna metin og þeir voru nær því að knýja fram sigur í leiknum en heimamenn. Páll Pálmason markvörður þeirra Eyjamanna gerði sér lítið fyrir og varði með tilþrifum vitaspyrnu Eyjólfs Ágústssonar. mín. Friðfinnur Hermannsson 68. mín. Áminningar: Örn Óskarsson IBV og Sigurlás Þorleifsson ÍBV. Dómari: Magnús V. Pétursson.hkj. íbv:ka 2:2 Strekkingsvindur eftir vellinum endilöngum réði miklu um gang þessa leiks og kannski má skrifa það að mestu á þennan vind- skratta að liðunum tókst ekki bet- ur upp í því að leika góða knatt- spyrnu í leiknum. Eyjamenn léku fyrri hálfleikinn undan vindinum og voru afgerandi til að byrja með og þeir skora gott mark strax á 16. mínútu. Ómar Jóhannsson læddi boltanum þá laglega inn fyrir vörn KA og skyndilega voru þrír Eyja- menn komnir einir í gegn. Sigur- lás Þorleifsson var með boltann, lék léttilega á markvörð KA, Her- mann Haraldsson, og renndi bolt- anum auðveldlega í netið, 1—0. A 22. mínútu fengu svo KA- menn upplagt tækifæri til að jafna metin. Orn Óskarsson hrinti Ásbirni Björnssyni innan víta- teigs og réttilega dæmd víta- spyrna. Það var Eyjólfur Ágústs- son sem tók spyrnuna og fast skot hans stefndi neðst í hornið á markinu en Páll Pálmason sá við skotinu og varði hreint stórkost- lega. Eyjamenn voru mun atkvæðameiri fyrsta hálftímann en þá rífa KA-menn sig upp og gera harða hríð að marki ÍBV. Örn Oskarsson bjargar á línu eftir mikinn darraðardans í vítateig IBV og úr hornspyrnu sem af því hlaust skallaði Erlingur Krist- jánsson naumlega yfir þverslá. Á 38. mínútu komst Gunnar Gísla- son svo í upplagt færi en Páll varði þrumuskot hans mjög vel. Og á 42. mínútu var dæmd óbein aukaspyrna innan vítateigs ÍBV en ekkert varð úr og hún færði KA jöfnunarmark. Því naum forusta IBV í hálfleik og KA-menn óheppnir að hafa ekki skorað mark. Strax á fyístu mínútu seinni hálfleiks lá boltinn í netinu hjá IBV en markaskorannn Ásbjörn var greinilega rangstæður og „markið" því dæmt af. Af og til náðu Eyjamenn góðum sóknarlot- um uppí vindinn og á 62. mínútu skora þeir sitt annað mark. Kári Þorleifsson fékk góða sendingu fram völlinn frá Viðari Elíassyni, Kári lék skemmtilega á tvo varn- armenn KA sem sóttu að honum og skoraði með góðu skoti. 2—0 fyrir ÍBV og bjuggust margir við að þetta væri rothöggið sem myndi setja norðanmenn út af laginu, en annað átti svo sannar- lega eftir að verða uppi á teningn- um. Við þetta mótlæti tvíefldust leikmenn KA og tóku að sækja ákaft að marki ÍBV, jafnframt því sem Eyjamenn virtust slaka á og telja sigurinn vísan. Á 66. mínútu var dæmd horn- spyrna á ÍBV og hana fram- kvæmdi Eyjólfur Ágústsson, sendi boltann vel uppí vindinn sem bar boltann í sveig yfir Pál markvörð og beint í netið án þess að Eyja- menn kæmu nokkrum vörnum við. Og aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði KA metin mjög svo verð- skuldað. Eftir aukaspyrnu barst boltinn út úr vítateig IBV til Frið- finns Hermannssonar sem var óvaldur rétt utan við vítateigs- hornið vinstra megin, Friðfinnur skaut þegar á markið og boltinn hafnaði í netinu út við stöng, óverjandi fyrir Pál. Vörn ÍBV var oft óörugg í síðari hálfleik og mín- útu eftir jöfnunarmark Friðfinns varð misskilningur hjá varnar- mönnum IBV og boltinn féll fyrir fætur Gunnars Gíslasonar sem stóð fyrir opnu marki og skaut hörkuskoti, boltinn kom aðeins við fætur aðvífandi varnarmanns ÍBV og það nægði til að lyfta boltanum í þverslána. Þetta var síðasta marktækifær- ið í leiknum og eins og sjá má átti KA bæði fleiri og hættulegri færi, en Eyjamenn öllu meira með bolt- ann. Gæði knattspyrnunnar sem lið- in buðu uppá í leiknum voru ekki mikil en brá fyrir góðum köflum, en líka var mikið um kýlingar út í bláinn og sendingar mótherja í millum. KA-menn voru að berjast harðri lífsbaráttu og gáfu sig alla í leikinn. Þeir hefðu verðskuldað bæði stigin. Eyjamenn virðast ætla að endurtaka sama leikinn og í fyrra, missa af lestinni í síðustu umferðunum. í stuttu máli: Hásteinsvöllur 1. deild: ÍBV - KA 2-2 (1-0). Mörk ÍBV: Sigurlás Þorleifsson 16. mín. Kári Þorleifsson 62. mín. MÖrk KA: Eyjólfur Ágústsson 66. ógnuðu Valsmarkinu allan hálf- leikinn. Eins og fram kom í upphafi var seinni hálfleikurinn mun slakari, og er óhætt að segja að hann hafi dottið niður á plan meðalmennsk- unnar á köflum. Lítið var um færi, en meira um hnoð eða kýlingar úti á velli. Þá færðist nokkur harka í leikinn á stundum. Lítið hafði borið á Ómari Vík- ingsfyrirliða Torfasyni í fyrri hálfleiknum, en í upphafi þess síð- ari kom hann Valsmarkinu tvisv- ar í nokkra hættu. Fyrst með skoti úr miðjum teig eftir hornspyrnu, og síðan með þrumuskoti af stuttu færi, en Brynjar varði og hrökk boltinn út aftur. Besta færi hálfleiksins féll Heimi Karlssyni í skaut, er hann sópaði knettinum snyrtilega yfir markið úr miðjum markteignum. Boltinn var gefinn fyrir markið og skallað var niður til Heimis. Best er að tala sem minnst um síðari hálfleikinn. En í lagi er að lofa það sem. vel er gert, og fyrir leikhlé brá nokkuð oft fyrir ágæt- um leikköflum. Sérstaklega voru það Valsarar sem voru líflegir og sýndu þeir einhverja þá bestu kafla sem undirritaður hefur orðið vitni að á knattspyrnuleikjum Ögmundur sá um að ekki var skorað • Sigurlás Þorleifsson, sem skoraði fyrra mark Vestmannaeyinga í leiknum, sést hér í baráttu við Erling Kristjánsson, annan miðvörð KA-liðsins. Til vinstri er Haraldur Haraldsson, og í baksýn eru Friðfinnur Hermannsson sem skoraði seinna mark KA og Magnús dómari Pétursson. Mynd Sigurgeir. LEIKUR Víkings og Vals í I. deild- inni í gærkvöldi var ansi misjafn. Eins og fyrri hálfleikurinn var skemmtilegur og ágætlega leikinn, var sá síðari slakur og lítt fyrir aug- að. Valsarar voru mun sterkari fyrir leikhlé. Þeir sóttu meira og spiluðu mun betur, og fengu betri færi. En Ögmundur Vikingsmarkvörður bjargaði öðru stiginu fyrir sína menn með mjög góðri markvörslu. Arni og Kristján afgreiddu ÍBÍ ÍA VANN stóran sigur gegn ÍBÍ á ísafjarðarvelli á laugardaginn, 4—1 urðu lokatölurnar og er óhætt að segja Skagamenn hafa haft nóg við stigin að gera. Sigur ÍA var sanngjarn og vannst mest fyrir tilstilli Árna Sveinssonar og Kristjáns Olgeirssonar, en þeir skoruðu tvívegis hvor. Heimamenn léku oft ágætlega í leiknum, en þeir nýttu ekki færi sín og vörnin opnaðist um of á köflum. Fyrri hálfleikur var opinn og fjörugur, greinilegt að bæði liðin ætluðu að selja sig dýrt. Mikið fjör var strax á upphafsmínútunum, fyrst á 3. mínútu við mark ÍA, en Ámundi Sigmundsson brenndi þá af úr dauðafæri eftir mjög skemmtilega sóknarlotu ÍBÍ. Mín- útu síðar áttu Skagamenn eina skæða sem endaði með góðum skalla Sigþórs Ómarssonar, en Hreiðar markvörður varði vel. Heimaliðið var skeinuhætt næstu mínúturnar, Gunnar Pétursson óð inn í teig ÍA og skaut rétt yfir á 13. mínútu, og mínútu síðar skall- aði Örnólfur Oddsson naumlega yfir mark IA eftir sendingu frá Elnkunnagjofln Jóni bróður sínum Oddssyni. En Skagamenn svöruðu hrinu þessari með marki á 18. mínútu. Glæsileg sóknarlota, Sveinbjörn Hákonar- son skallaði fyrirgjöf Kristjáns Olgeirssonar í þverslá og Árni Sveinsson fylgdi vel og skoraði. Þremur mínútum síðar sóttu Skagamenn enn, en Hreiðar markvörður bjargaði naumlega í horn eftir að vörn hans hafði brugðist illa. ísfirðingarnir sóttu sig á ný og á 32. mínútu bjargaði Sveinbjörn Hákonarson skoti Gunnars Péturssonar á marklínu. Átta mínútum síðar fóru heima- menn síðan enn illa með dauða- færi, tveir þeirra voru í opnu færi eftir fyrirgjöf Halldórs Olafsson- ar, en þeir misskildu hvor annan LIÐ ÍBV: LIÐ ÍBÍ: Lirt Víkings: Lið ÍBK: Páll Pálmason 7 Hreiðar Sigtryggsson 5 Ögmundur Kristinsson 8 Þorsteinn Bjarnason 7 Virtar Elíasson 5 Gunnar Gurtmundsson 6 Ragnar Gíslason 5 Kristinn Jóhannsson 5 Snorri Rútsson 5 Halldór Ólafsson 5 Magnús Þorvaldsson 4 Rúnar Georgsson 6 Örn Oskarsson 6 Gurtmundur Jóhannsson 5 Aðalsteinn AAalsteinsson 5 Ingiber Oskarsson 6 Valþór Sigþórsson 6 Örnólfur Oddsson 7 Stefán Halldórsson 6 Gísli Eyjólfsson 7 Sveinn Sveinsson 6 Ámundi Sigmundsson 6 Jóhannes Bárrtarson 7 Sigurður Björgvinsson 7 Omar Jóhannsson 6 Jóhann Torfason 6 Jóhann Þorvarðarson 4 Einar Ásbjörn Ólafsson 7 Þórrtur Hallgrímsson 5 Gústaf Baldvinsson 7 Omar Torfason 5 Magnús Garrtarson 5 Hlynur Stefánsson 5 Jón Oddsson 6 Sverrir Herbertsson 5 Ragnar Margeirsson 7 Sigurlás Þorleifsson 6 Gunnar Pétursson 6 Helgi Helgason 4 Óli Þór Magnússon 6 Kári Þorleifsson 5 Einar Jónsson 5 lleimir Karlsson 4 Kári Gunnlaugsson 5 LIÐ ÍA: Gunnar Gunnarsson (vm) 4 Daníel Einarsson vm. 5 Davirt Kristjánsson 5 Lirt Fram: LIÐ KA: Gurtjón Þórðarson 6 Lið Vals: Gurtmundur Baldursson 7 Hermann Haraldsson 6 Jón Áskelsson 5 Brynjar Guðmundsson 6 Þorsteinn Þorsteinsson 5 Eyjólfur Ágústsson 6 Jón Gunnlaugsson 6 Úlfar Hróarsson 6 Trausti Haraldsson 7 Guðjón Gurtjónsson 6 Sigurrtur Lárusson 6 Grímur Sæmundsson 6 Sverrir Einarsson 6 Haraldur Haraldsson 6 Sigurrtur Jónsson 7 Magni Pétursson 6 Marteinn Geirsson 6 Erlingur Kristjánsson 6 Sveinbjörn Hákonarson 7 Dýri Gurtmundsson 6 Halldór Arason 6 Gunnar Gíslason 6 Árni Sveinsson 8 Þorgrímur Þráinsson 7 Gísli Hjálmtýsson 5 Steingrímur Birgisson 5 Kristján Olgeirsson 8 Ingi Björn Albertsson 5 Viðar Þorkelsson 7 Ormarr Örlygsson 5 Júlíus P. Ingólfsson 6 Ililmar Sighvatsson 7 Árni Arnþórsson 7 Hinrik Þórhallsson 5 Sigþór Omarsson 6 Valur Valsson 4 Guðmundur Torfason 5 Friðfinnur Hermannsson 5 Björn H. Björnsson vm. 5 Gurtmundur Þorbjörnsson 6 Hafþór Sveinjónsson 5 Ásbjörn Björnsson 6 Guðbjörn Tryggvason vm. 5 Njáll Eirtsson 6 Björn Ingólfsson 5 og færið rann út í sandinn. Og eins og fyrri daginn svöruðu Skaga- menn fjörbrotum ísfirðinga með marki. Það skoraði Árni Sveins- son á 43. mínútu eftir laglega sókn, 2—0 í hálfleik. Síðari hálfleikur var fremur tíð- indasnauður framan af, mikil bar- átta reyndar, en fátt um færi. Skagamenn brutu hins vegar isinn á 62. mínútu, Árni Sveinsson átti allan heiðurinn að markinu, góð sending hans rataði til Kristjáns Olgeirssonar sem skoraði laglega. Nokkrum mínútum síðar voru Skagamenn hársbreidd frá því að bæta fjórða markinu við, en Gúst- af Baldvinsson bjargaði af línu. ísfirðingarnir voru nú á því að tími væri kominn til að skora og það gerði Jón Oddsson úr víti sem IBÍ fékk á 75. mínútu. Markið kom hins vegar að litlum notum, því Skagamenn bættu fjórða markinu við aðeins þremur mínútum síðar, Kristján Ölgeirsson var þar á ferðinni eftir góða fyrirgjöf frá Birni H. Björnssyni. Eftir þetta mark var sem bæði liðin sættu sig við orðinn hlut, Skagamenn hægðu ferðina með sigur í höfn, heimaliðið hægði ferðina því það gat ekkert að gert. Lokatölur því 4—1 eins og fyrr sagði. Þetta var á köflum allgóður leikur og hæst bar frammistaða þeirra Skagamanna Árna Sveins- sonar og Kristjáns Olgeirssonar, sem báðir áttu stórleik. Þá áttu Sveinbjörn Hákonarson og Sig- urður Jónsson góðan dag. Hjá ÍBV léku þeir Gústaf Baldvinsson og Örnólfur Oddsson manna best, aðrir voru jafnari. I stuttu máli: íslandsmótið í knattspyrnu, deild: ÍBÍ - ÍA 1-4 (0-2) Mark ÍBÍ: Jón pddsson úr víti. Mörk ÍA: Árni Sveinsson 2 Kristján Olgeirsson 2 Spjöld: Kristján Olgeirsson ÍA. Áhorfendur: Um 600. Dómari: Þorvarður Björnsson. — Jens/gg. Grímur Sæmundssen, fyrirliði Vals, sem ekki er sérstaklega þekktur fyrir að skora mörk, fékk Ögmund tvisvar til að taka á hon- um stóra sínum í fyrri hálfleik er hann skaut þrumuskotum utan af velli. Það fyrra var snemma, er Ögmundur kýldi boltann aftur fyrir, og undir lok hálfleiksins varði hann afskaplega vel frá Grími í svipaðri aðstöðu. Annars fékk Ingi Björn besta færi leiksins á 15. mín. Auka- spyrna kom inn í teiginn frá hægri, Helgi Helgason ætlaði að skalla frá en rann til og datt á blautum vellinum. Ingi fékk bolt- ann rétt utan markteigs og var aleinn, en Ögmundur var fljótur að átta sig og þaut út á móti, og skaut Ingi í hann. Víkingur: rj.ft Valur U,W Stuttu seinna fékk Njáll Eiðs- son mjög gott færi eftir fyrirgjöf Guðmundar Þorbjörnssonar. Bolt- inn fauk til, þannig að Ögmundur náði ekki að grípa hann heldur kýldi hann frá. Þar kom Njáll að- vífandi og fast skot hans lenti framhjá. Fyrsta færi Víkings kom seint í hálfleiknum er Sverrir Herberts- son stökk hæst allra í teignum eft- ir hornspyrnu Stefáns Halldórs- sonar, og skallaði rétt framhjá. Var það í eina skiptið sem þeir sumarsins. Boltinn var látinn ganga manna á milli, jafnvel með einni snertingu, þannig að upp rann fyrir mönnum að þetta er enn til í íslenskri knattspyrnu þó sárgrætilega sjaldan sjáist það. Bestu menn Víkings voru tví- mælalaust Ögmundur markvörður og Jóhannes Bárðarson. Ögmund- ur varði oft mjög vel, eins og áður kom fram, og Jóhannes var mjög traustur í vörninni. Aðrir voru langt frá sínu besta. Hjá Val átti Hilmar Sighvatsson mjög góða spretti, og þeir Njáll Eiðsson og Guðmundur Þorbjörnsson gerðu einnig góða hluti. Aðall Valsliðs- ins í leiknum var sterkur leikur á miðjunni, en þar höfðu þeir mikla yfirburði, sérstaklega í fyrri hálf- leiknum. Lánlausir Keflvíkingar BOTNLIÐIÐ í I. deild, Fram, nældi sér í stig suöur í Keflavík í gær- kvöldi, er liðið mætti ÍBK. Lokatölur leiksins urðu 1—1 og var það einnig staðan í hálfleik. Úrslitin voru varla i samræmi við gang leiksins, Frammarar skoruðu mark sitt strax á fyrstu mínútu leiksins og eftir það má segja að stanslausar sóknarlotur hafi bulið á vörn liðsins. Heimaliðið fékk mýmörg tækifæri til að gera betur en ná jafntefli, en jafnan vant- aði herslumuninn, of oft ætluðu leikmenn liðsins að gera aðeins meira en þeir réðu við og því fór sem fór. Oruggur sigur ÍBK hefði orðið ofan á ef rétt hefði verið haldið á spilunum. Sem fyrr segir skoruðu Framm- arar mark sitt strax á fyrstu mín- útu leiksins. Vörn ÍBK virtist hreinlega ekki vera búin að hefja leik og Halldór Arason fékk að vaða óáreittur upp allan völl með knöttinn við tærnar. Hann sendi Jafnt í Njarövík i. og Njarðvíkingar mættu Völsungi í 2. deildinni um helgina á heimavelli, og varð jafntefli i leiknum, tvö mörk gegn tveimur. Fyrstu 30 mín. var jafnræði með liðunum en síðustu 15 mín. hálf- leiksins sóttu Njarðvíkingar stíft og áttu þá mörg tækifæri og flest- um fannst þá dómari leiksins sleppa augljósri vítaspyrnu er Jón Halldórsson var felldur inni í teignum. Á 36. mín. bar sóknin svo árangur, Jón Halldórsson skoraði með skalla. Tildrög marksins voru þau að Þórður Karlsson tók hornspyrnu og Haukur skallaði fyrir til Jóns sem skallaði í mark- ið. Einstaklega skemmtileg sam- vinna. Aðeins 46 sek. voru liðnar af síðari hálfleik er Njarðvíkingar bættu öðru marki við. Var Jón Halldórsson þar aftur að verki, komst einn inn fyrir eftir góða sendingu frá Þórði og skoraði framhjá úthlaupandi markverði. Á 53. mín. minnkaði Kristján Kristjánsson muninn fyrir Völs- ung. Mjög vafasöm aukaspyrna var dæmd á Njarðvíkinga rétt utan við miðjan vítateig. Njarð- víkingar stilltu upp varnarvegg fyrir miðju en skildu eftir bil beggja megin. Kristján notaði sér veiluna af öryggi með föstu skoti í það hornið sem markvörður Njarðvíkinga sleppti. Mjög vel gert hjá Kristjáni en einstaklega kjánalegt hjá Njarðvíkingum. Eft- ir markið færðust Völsungar allir í aukana en Njarðvíkingar dofn- uðu. Síðustu 15 mín. hrisstu þó Njarðvíkingar af sér slenið og sóttu mun meir. Það voru þó Völs- ungar sem skoruðu síðasta mark- ið. Kom það á 93. mín. Eftir mikil varnarmistök Njarðvíkinga náði Kristján knettinum og skoraði sitt annað mark. Fleiri urðu mörkin ekki og úrslitin jafntefli 2:2. Mjög slakur dómari leiksins var Úlfar Steindórsson. Vigdís hann síðan til Árna Arnþórssonar sem var á auðum sjó og Árni skor- aði örugglega. Keflvíkingarnir vöknuðu upp við vondan draum og hófu að sækja mjög. Á níundu mínútu fór Einar Ásbjörn Ólafs- son illa með kjörið tækifæri, fékk knöttinn á auðum sjó, en var held- ur seinn á sér að gera eitthvað af viti með knöttinn og Guðmundur markvörður krækti hann af hon- um. En þremur mínútum síðar bætti Einar ráð sitt, ÍBK fékk hornspyrnu og er þvaga myndað- ist við mark Fram upp úr henni náði hann knettinum og skoraði örugglega. Eftir markið jafnaðist leikurinn dálítið um tíma, en síðan sótti allt í sama horfið á nýjan leik. Færi fengu Keflvíkingarnir, en þau voru ekki nýtt. Og ekki breyttist gangur leiksins í síðari hálfleik, stórsókn ÍBK og strax á 51. mín- útu stóð Óli Þór með knöttinn rétt utan markteigs og virtist hægara að skora en hitt. Engu að síður tókst Óla hitt. Heimaliðið fékk mýmörg tækifæri það sem eftir lifði leiksins, en ávallt vantaði ein- hvern til að reka endahnútinn, iokatölurnar því 1—1. Þorsteinn Ólafsson var traustur í marki ÍBK, það reyndi að vísu ekki ýkja mikið á hann, en hann afgreiddi allt sem að markinu kom afar örugglega. Af útileikmönnun- um léku þeir best þeir Gísli Eyj- ólfsson, Sigurður Björgvinsson, Einar Ásbjörn Ólafsson og Ragn- ar Margeirsson. Hjá Fram voru það Guðmundur markvörður Baldursson og Trausti Haralds- son. Þá voru Árni Arnþórsson og Viðar Þorkelsson góðir. ÓT/gg. Jafnt í Borgarnesi SKALLAGRÍMUR og FH gerdu jafntefli, 1—1, í spennandi leik lið- anna í 2. deild íslandsmótsins í knattspyrnu, sem fram fór i Borg- arnesi um helgina. FH var betri aðilinn fyrsta hálftímann og yfir- spiluðu þeir þá heimamenn. Átti FH þá nokkur tækifæri, strax á 3. mín. áttu þeir skot á markið, eftir langt innkast en boltinn fór framhjá. Á 27. mín. náði FH verðskuldað forystunni með marki Sigurþórs Þórólfs- sonar. Þá fengu FH-ingar góðan tíma til að byggja upp mark en Sigurþór fékk fyrirgjöf og skaut snúningsbolta í bláhornið, óverj- andi fyrir Halldór i markinu. Þegar leið á hálfleikinn jafnaðist leikurinn aftur og síðan tóku heimamenn frumkvæðið. Á 32. mín. var mikill darraðardans t vítateig FH og síðan aftur á 40. mín. en Skallagrímsmönnum tókst ekki að nýta sér góð marktækifæri. FH átti skalla á Skallagrímsmarkið á 35. mínútu en Halldór varði vel og aftur á 44. mín. en þá fór skotið fram- hjá. Skallagrímur var betri aðiiinn í seinni hálfleik. Jöfnunarmark- ið kom á 14. mín. eftir mikla pressu á mark FH, Gunnar Orrason fékk knöttinn inní teig, gaf sér góðan tíma til að leggja þoltann fyrir sig og negldi síðan í markið. Á 19. mín. varöi Hali- dór í FH-markinu frá Ómari Sigurðssyni og Gunnar Orrason skaut rétt framhjá eftir gott upphlaup Skallagríms á 25. mín. FH átti varla færi í síðari hálf- leiknum og var ekki hægt að sjá hvort liðið væri að berjast á toppnum og hvort væri í baráttu við falldrauginn. Skallagrímur hefði átt að vinna leikinn eftir marktækifærum að dæma en það eru nú einu sinni mörkin sjálf sem gilda og því endaði leikurinn með jafntefli. Skallagrímur, sem er í næst- neðsta sæti deildarinnar, hefur enn möguieika á að bjarga sér frá falli eftir góðan árangur í 6 síðustu leikjum sínum, úr þeim hafa þeir náð 9 stigum eftir að hafa aðeins fengið 3 stig úr hin- um 9 leijtjunum sem þeir hafa leikið í sumar. Batinn er því mikill, en meira þarf til. FH hef- ur enn fræðilega möguleika á 1. deildarsæti þó þeir möguleikar hafi daprast nokkuð við missi stigsins í Borgarnesi um helgina, en Þróttur og Þór hafa þegar annan fótinn í 1. deild og má mikið koma til að þeir klúðri því. HBj. Þór vann upp 2ja marka forskot Á laugardaginn áttust við á Ak- ureyrarvelli Þór og Einherji í 2. deild. Leikur þessi var báðum lið- um mjög mikilvægur því ef Þórsar- ar ætluðu að styrkja stöðu sína á toppnura þá urðu þeir að vinna, en ef Einherji hinsvegar vnni þá væru þeir komnir i baráttuna um 2. sæt- ið í deildinni. Leiknum lauk með sigri Þórs 3—2 eftir að Einherji hafði verið að vinna 2—0 í hálf- leik. Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og í þrígang skall hurð nærri hælum upp við mark Einherja á fyrstu 15. mín. en Magni markvörður þeirra varði eins og herforingi. Eftir að Þórs- arar höfðu pressað stíft fyrstu 20 mín. fóru Einherjamenn að koma meira inn í leikinn og á 23. mín. átti Steindór Sveinsson gott skot sem fór í varnarmann Þórs og í þverslá. Aðeins mínútu síðar kom fyrsta markið. Þá virtist sem Helgi Ásgeirsson ætlaði að gefa fyrir markið en vindurinn hreif boltann með sér og sigldi hann yfir Eirík í markinu og fyrsta markið var staðreynd. Þrem mínútum síðar skoruðu Einherj- ar sitt annað mark, þá ætlaði Árni Stefánsson, varnarmaður Þórs, að gefa boltann aftur en sendingin var ónákvæm og Gísli Davíðsson náði knettinum og var hann þá einn á auðum sjó og lék á Eirík í markinu og sendi knött- inn í markið yfirvegað. Þessi tvö mörk komu sem köld vatnsgusa í andlit Þórsara og virtust þeir ekki geta haldið sömu baráttu og leikgleði það sem eftir lifði hálf- leiksins og þeir höfðu gert fram- anaf, og dofnaði þá mjög yfir leiknum. í seinni hálfleik var auðséð að Þórsarar ætluðu að sýna klærn- ar á ný en ekkert gekk í sóknar- aðgerðum þeirra fyrr en á 63. mín. en þá var tekið horn og barst boltinn stutt fyrir markið til Hafþórs Helgasonar sem spyrnti honum aftur fyrir sig yf- ir markvörðinn og inn, staðan 2—1. 11 mín. síðar náðu svo Þórsarar að jafna og var þar að verki Guðjón Guðmundsson, en hann skoraði með glæsilegum skalla eftir horn. Ekki liðu nema 5. mín. þar til Þórsarar voru enn á ferðinni með mark og var það að þessu sinni Nói Björnsson. Hann fékk knöttinn rétt fyrir utan vítateig og var ekkert að tvínóna við hlutina heldur sendi þrumufleyg beint í mark Ein- herja án þess að markvörður þeirra kæmi nokkrum vörnum við. Það sem eftir lifði ieiksins sóttu Þórsarar mun meira en ekki tókst a þeim að bæta fjórða markinu við. Ef á heildina er litið þá var þessi sigur vissulega verðskuld- aður því Þórsarar léku mun bet- ur, en þeir sýndu á köflum ágæt- an leik og brá þá fyrir mjög skemmtilegu spili af þeirra hálfu. Dómari leiksins var Steinn Helgason og hefði hann mátt sýna miklu meiri röggsemi. Þróttur sigraði í botnbaráttunni Botnharáttan f 2. deildinni er nú mjög hörrt, og eru nokkur lirt í mik- illi fallhættu. Eitt þeirra er Þróttur N., og er liðirt reyndar í neðsta sætinu. Þeir nártu sér þó í tvö dýrmæt stig um helgina er liðirt lagrti Fylki art velli fyrir austan. Endarti leikurinn 1-0. Fylkismenn byrjuðu mun bet- ur og áttu m.a. stangarskot fljótlega, en svo kom eina mark leiksins hjá Þrótti þvert ofan í gang leiksins. Það skoraði Magni Sigurðsson eftir góða fyrirgjöf Ottars Ármannssonar. Við markið lifnaði aðeins yfir Þrótt- urum og voru þeir sprækari fram að hléi. En í síðari hálfleik tóku Fylkismenn leikinn aftur í sínar hendur og sóttu nær lát- laust og fengu mjög góð færi. Þeir misnotuðu meira að segja vítaspyrnu 10 mín. fyrir leikslok, og verða þeir að teljast mjög óheppnir að tapa leiknum, en Agúst Þorbergsson, markvörður Þróttar og besti marður liðsins, sá tii þess að bæði stigin fóru til Þróttar. —Jóhann/ —SH.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.