Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1982
27
Sænska knattspyrnuundrið IFK Gautaborg:
Fyrsta lið Norðurlanda til þess að
vinna Evrópukeppni í knattspyrnu
Úrslit í síðustu lIEFA-keppni í knattspyrnu eru sjálfsagt mörgum knatt-
spyrnuáhugamanninum enn í fersku minni, en sænska liðið Gautaborg, sem
Þorsteinn Olafsson lék um skeið með, gerði sér lítið fyrir og sigraði örugg-
lega i keppninni. Úrslitaleikurinn sjálfur var minnisstæðastur, en þá mætti
liðið vestur-þýska stórliðinu Hamburger SV. Fyrst var leikið í Gautaborg við
erfið skilyrði og urðu úrslitin óvænt, eða 1—0 sigur Gautaborgar. Útileikur-
inn var eftir og þeir þýsku kokhraustir með afbrigðum. En hvað gerðist? Jú,
sænska liðið gersigraði HSV fyrir framan 60.000 tryllta þýska áhorfendur.
3—0 urðu lokatölurnar og fór Gautaborg létt með. Nú hefur sænska knatt-
spyrnulandsliðið stundum reynst hið frambærilegasta, en aðeins einu sinni
áður hafði sænskt lið komist svona langt í Evrópukeppni félagsliða. Það var
Malmö FF sem lék þá til úrslita um Evrópubikar meistaraliða gegn Nott-
ingham Forest og tapaði 0—1 í hrútleiðinlegum leik. En margir knattspyrnu-
sérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að lið (íautaborgar sé óumdeilanlega lið
ársins 1982, og eftir árangur liðsins bæði heima fyrir og í Evrópukeppninni er
erfitt að bera á móti því. Það væri því ekki úr vegi að skyggnast aðeins á bak
við tjöldin og kynnast þessu merkilega sænska knattspyrnufélagi eilítið
Knattspyrnufélagið IFK Gauta-
borg var stofnað árið 1904 og er
því 78 ára gamalt. Margir af fræg-
ustu knattspyrnumönnum Svía
hafa leikið með félaginu og nægir
að geta þeirra Ove Kinvall og Ralf
Edström. Keppnistímabilið
1969—1970 hallaði svo undan fæti
hjá félaginu, að fall í 2. deild var
óumflýjanlegt. Lék liðið í þeirri
deild allt til 1976. En félagið er
líklega það vinsælasta í Svíþjóð og
sem 2. deildar félag fékk það að
öllu jöfnu fleiri áhorfendur á leiki
sína en 1. deildar liðin. Ekki dró úr
aðsókninni eftir að liðið kom aftur
í 1. deildina og þá með vísi að því
liði sem nú er teflt fram. Gauta-
borg er eins og Manchester Utd.
Svíþjóðar, allir vilja komast í lið
þegar leika á gegn Gautaborg og
öll lið leggja sig fram um að sigra
liðið. Rígurinn er einkum mikill í
sjálfri Gautaborg. En þar geta
önnur knattspyrnufélög varla
keppt við IFK og taka það nærri
sér. Örgryte leikur þar í 1. deild og
spjarar sig þokkalega, en Hacken,
Vestra Frölunda og GAIS leika í 2.
deild. Gautaborg hefur því óum-
deilanlega vinninginn, en sér-
staklega var gaman að heyra
gorgeirinn í Örgryte-mönnum í
fyrra er þeir náðu að merja sigur
gegn Gautaborg í bikarleik. „Við
erum besta lið Gautaborgar," gall
þá við úr herbúðum Örgryte og
kímdu menn góðlátlega að öllu
saman. En slík úrslit eru svo mik-
ilvæg fyrir lið eins og Örgryte,
sem stendur í skugganum, að því
verður varla með orðum lýst. Sér-
staklega þegar að er gáð, að áhorf-
endur voru 30.000 talsins.
árin 1979 og 1981 auk sigursins
glæsilega í UEFA-keppninni í vor
hafa verið vatn á myllu leik-
manna, þeir hafa gefið sig meira
að knattspyrnunni, verið áhuga-
samari og í kjölfarið á því sigur-
sælli. Þjálfari liðsins þessi síðustu
velgengnisár, Sven Göran Erik-
son, sem nú er farinn til Benfica,
segir þó: „Ef félagið ætlar að
halda stöðu þeirri sem náðst hef-
ur, þarf það að færa út kvíarnar.
Það þýðir ekki að láta leikmenn
liðsins vera í fastri vinnu sem tek-
ur 75 prósent af tíma þeirra. For-
ráðamenn félagsins verða að öngla
bikar og deildarkeppninni, átti lið-
ið í stökustu vandræðum vegna
þess að félög út um alla Evrópu
reyndu að næla í bestu leikmenn
þess. Há peningatilboð komu í
sterkustu leikmennina og vissu-
lega var erfitt, þrátt fyrir allt,
fyrir hálf fjárvana félagið að
hafna boðunum. En bæði leik-
menn og forráðamenn liðsins átt-
uðu sig æ betur á því er á leið, að
ýmsir möguleikar voru fyrir hendi
í UEFA-keppninni, þó svo að
bjartsýnustu menn reiknuðu ekki
með þeim árangri sem náðist. Þess
vegna var samstaða um það hjá
forráðamönnum og leikmönnum
Talað hefur verið um að í
sænsku knattspyrnunni ríki svo-
kölluð hálfatvinnumennska. And-
ers Bernmar, einn af stjórnarfor-
mönnum IFK, leggur ekki þann
skilning í kerfið hjá félaginu.
Hann segir: „Það er full mikið
sagt að við séum hálfatvinnu-
menn. Undir venjulegum kring-
umstæðum eru æfingar fjórum
sinnum í viku og þá síðdegis. Ef
þörf krefur hefur félagið aðstöðu
og möguleika á því að auka við
• Lykilmaður IFK á síðasta keppnistímabili, markaskorarinn Torbjörn Nilson, sem seldur hefur verið til þýska
liðsins Kaiserslautern.
frítíma leikmanna sem fer í fjöl-
skyldur þeirra og knattspyrnuna.
Dagana 26. júlí til 13. ágúst kaupir
félagið leikmenn lausa frá vinnu-
stöðum til þess að þeir geti helgað
sig knattspyrnu og fjölskyldum
sínum. Þetta kostar félagið
175.000 krónur.“
Sigrar í bikarkeppninni sænsku
Glaumur og gleði á æfingum IFK, Hakon Sandberg og markvörðurinn
Wernerson bregða á leik.
saman nægu fé til þess að geta
haft leikmennina á föstum laun-
um að minnsta kosti 6 mánuði árs-
ins.“ Og Erikson er ekki í vafa
hvernig hala má inn slíkt fjár-
magn. „Eftir slíka velgengni er
ekki nokkur vafi að ná má miklu
meira fé út úr auglýsingum.
Hverju breytir það svo sem þó fé-
lagið heiti til dæmis IFK Volvo
Gautaborg, ef það tryggir nægt
fjármagn á annað borð?“
UEFA-ævintýrið færði Gauta-
borg 6 milljónir sænskra króna í
budduna, hinn mikli áhorfenda-
fjöldi, auglýsingar og svo sala
markaskorarans Torbjörns Nil-
sons til Kaiserslautern. En þar
með er ekki öll sagan sögð, því
megnið af þeim peningum fór í að
rétta úr kútnum eftir fjárhagslega
afleitt gengi frá keppnistímabil-
inu á undan, er félagið styrkti lið
sitt með því að kaupa þá Thomas
Wernerson, Stig Frederikson og
Hakon Sandberg. Félagið byrjaði
auk þess ekki vel í sænsku deild-
inni það árið og snardró úr áhorf-
endafjölda við það.
Meðan best gekk hjá félaginu á
síðasta keppnistímabili og sigur-
gangan lengdist bæði í UEFA-
að enginn skyldi seldur fyrr en
keppnistímabilið væri búið.
Sá leikmaður liðsins sem mestu
athyglina vakti var auðvitað Tor-
björn Nilson. Anders Bernmar,
stjórnarformaður IFK, var sá sem
fyrstur kom auga á Nilson er hann
lék með 3. deildarfélaginu Jons-
• MaAurinn á bak við velgengnina,
þjálfarinn Sven Göran Erikson.
ered. Og þegar kappinn gafst upp
á atvinnumennskunni hjá PSV
Eindhoven árið 1977 lagði hann
net IFK fyrir hann og veiddi grip-
inn. Síðan hefur Nilson verið í
hópi bestu framherja Evrópu, en
ekki viljað reyna fyrir sér í at-
vinnumennsku fyrr en nú, er hon-
um finnst loks vera kominn tími
til.
Þjálfari liðsins á blómaskeiðinu
sem nú stendur yfir er Sven Göran
Erikson. Hann var samningsbund-
inn til ársins 1983, en í samning-
um hans var grein þess eðlis að
ætti hann möguleika á því að kom-
ast á mála hjá erlendu liði gæti
hann fengið sig lausan hjá IFK
áður en samningurinn væri allur.
Erikson kom til IFK árið 1979, var
áður hjá Degerfors. Hann tók við
af Hassa nokkrum Karlson. Til að
byrja með var ekki sérlega mikil
ánægja með kappann, því
mönnum þótti engu líkara en
hann ætlaði að fórna „kampa-
vínsknattspyrnu" félagsins fyrir
kerfisknattspyrnu. Erikson svar-
aði um hæl: „Hvað er á því að
græða að leika áferðarfallega
knattspyrnu ef stöðugleika og
leikskipulag vantar." Hann hafði
margt til síns máls, því hann bar
slíkan mannskap í höndunum að
jafnvel þó hann innleiddi skipulag
og leikkerfi hjá IFK þá lék liðið
skemmtilegustu knattspyrnu Sví-
þjóðar. Og liðið fór nú að vinna
titla.
Erikson segir um UEFA-sigur-
inn: „I fyrstu umferðum UEFA-
keppninnar datt engum okkar í
hug að við myndum standa uppi
sem sigurvegarar. En í febrúar,
rétt áður en við lékum fjórðungs-
úrslitaleiki okkar gegn Valencia,
lékum við æfingarleik gegn South-
ampton. Þeir sigruðu okkur 2—0,
en um tíma lékum við þá sundur
og saman og 4—4 hefði gefið rétt-
ari mynd af gangi leiksins. Eftir
þennan leik vissi ég, og leikmenn
mínir einnig, að við værum full-
færir um að vinna keppnina."
Og þannig fóru leikar, Gauta-
borg sigraði HSV samtals 4—0 og
milljónir sjónvarpsáhorfenda
gætu hæglega haldið að „Englarn-
ir“, gælunafn IFK, hefðu notið að-
stoðar frá æðri máttarvöldum, því
þeir þóttu sannarlega leika eins og
englar.
Þýtt, endursagt o.fl. — gg.
• Stig Frederikson skorar þriAja markiA gegn HSV úr vftaspyrnu. IFK vann
þýska stórliAiA samtals 4—0.