Morgunblaðið - 24.08.1982, Side 47

Morgunblaðið - 24.08.1982, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1982 27 Sænska knattspyrnuundrið IFK Gautaborg: Fyrsta lið Norðurlanda til þess að vinna Evrópukeppni í knattspyrnu Úrslit í síðustu lIEFA-keppni í knattspyrnu eru sjálfsagt mörgum knatt- spyrnuáhugamanninum enn í fersku minni, en sænska liðið Gautaborg, sem Þorsteinn Olafsson lék um skeið með, gerði sér lítið fyrir og sigraði örugg- lega i keppninni. Úrslitaleikurinn sjálfur var minnisstæðastur, en þá mætti liðið vestur-þýska stórliðinu Hamburger SV. Fyrst var leikið í Gautaborg við erfið skilyrði og urðu úrslitin óvænt, eða 1—0 sigur Gautaborgar. Útileikur- inn var eftir og þeir þýsku kokhraustir með afbrigðum. En hvað gerðist? Jú, sænska liðið gersigraði HSV fyrir framan 60.000 tryllta þýska áhorfendur. 3—0 urðu lokatölurnar og fór Gautaborg létt með. Nú hefur sænska knatt- spyrnulandsliðið stundum reynst hið frambærilegasta, en aðeins einu sinni áður hafði sænskt lið komist svona langt í Evrópukeppni félagsliða. Það var Malmö FF sem lék þá til úrslita um Evrópubikar meistaraliða gegn Nott- ingham Forest og tapaði 0—1 í hrútleiðinlegum leik. En margir knattspyrnu- sérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að lið (íautaborgar sé óumdeilanlega lið ársins 1982, og eftir árangur liðsins bæði heima fyrir og í Evrópukeppninni er erfitt að bera á móti því. Það væri því ekki úr vegi að skyggnast aðeins á bak við tjöldin og kynnast þessu merkilega sænska knattspyrnufélagi eilítið Knattspyrnufélagið IFK Gauta- borg var stofnað árið 1904 og er því 78 ára gamalt. Margir af fræg- ustu knattspyrnumönnum Svía hafa leikið með félaginu og nægir að geta þeirra Ove Kinvall og Ralf Edström. Keppnistímabilið 1969—1970 hallaði svo undan fæti hjá félaginu, að fall í 2. deild var óumflýjanlegt. Lék liðið í þeirri deild allt til 1976. En félagið er líklega það vinsælasta í Svíþjóð og sem 2. deildar félag fékk það að öllu jöfnu fleiri áhorfendur á leiki sína en 1. deildar liðin. Ekki dró úr aðsókninni eftir að liðið kom aftur í 1. deildina og þá með vísi að því liði sem nú er teflt fram. Gauta- borg er eins og Manchester Utd. Svíþjóðar, allir vilja komast í lið þegar leika á gegn Gautaborg og öll lið leggja sig fram um að sigra liðið. Rígurinn er einkum mikill í sjálfri Gautaborg. En þar geta önnur knattspyrnufélög varla keppt við IFK og taka það nærri sér. Örgryte leikur þar í 1. deild og spjarar sig þokkalega, en Hacken, Vestra Frölunda og GAIS leika í 2. deild. Gautaborg hefur því óum- deilanlega vinninginn, en sér- staklega var gaman að heyra gorgeirinn í Örgryte-mönnum í fyrra er þeir náðu að merja sigur gegn Gautaborg í bikarleik. „Við erum besta lið Gautaborgar," gall þá við úr herbúðum Örgryte og kímdu menn góðlátlega að öllu saman. En slík úrslit eru svo mik- ilvæg fyrir lið eins og Örgryte, sem stendur í skugganum, að því verður varla með orðum lýst. Sér- staklega þegar að er gáð, að áhorf- endur voru 30.000 talsins. árin 1979 og 1981 auk sigursins glæsilega í UEFA-keppninni í vor hafa verið vatn á myllu leik- manna, þeir hafa gefið sig meira að knattspyrnunni, verið áhuga- samari og í kjölfarið á því sigur- sælli. Þjálfari liðsins þessi síðustu velgengnisár, Sven Göran Erik- son, sem nú er farinn til Benfica, segir þó: „Ef félagið ætlar að halda stöðu þeirri sem náðst hef- ur, þarf það að færa út kvíarnar. Það þýðir ekki að láta leikmenn liðsins vera í fastri vinnu sem tek- ur 75 prósent af tíma þeirra. For- ráðamenn félagsins verða að öngla bikar og deildarkeppninni, átti lið- ið í stökustu vandræðum vegna þess að félög út um alla Evrópu reyndu að næla í bestu leikmenn þess. Há peningatilboð komu í sterkustu leikmennina og vissu- lega var erfitt, þrátt fyrir allt, fyrir hálf fjárvana félagið að hafna boðunum. En bæði leik- menn og forráðamenn liðsins átt- uðu sig æ betur á því er á leið, að ýmsir möguleikar voru fyrir hendi í UEFA-keppninni, þó svo að bjartsýnustu menn reiknuðu ekki með þeim árangri sem náðist. Þess vegna var samstaða um það hjá forráðamönnum og leikmönnum Talað hefur verið um að í sænsku knattspyrnunni ríki svo- kölluð hálfatvinnumennska. And- ers Bernmar, einn af stjórnarfor- mönnum IFK, leggur ekki þann skilning í kerfið hjá félaginu. Hann segir: „Það er full mikið sagt að við séum hálfatvinnu- menn. Undir venjulegum kring- umstæðum eru æfingar fjórum sinnum í viku og þá síðdegis. Ef þörf krefur hefur félagið aðstöðu og möguleika á því að auka við • Lykilmaður IFK á síðasta keppnistímabili, markaskorarinn Torbjörn Nilson, sem seldur hefur verið til þýska liðsins Kaiserslautern. frítíma leikmanna sem fer í fjöl- skyldur þeirra og knattspyrnuna. Dagana 26. júlí til 13. ágúst kaupir félagið leikmenn lausa frá vinnu- stöðum til þess að þeir geti helgað sig knattspyrnu og fjölskyldum sínum. Þetta kostar félagið 175.000 krónur.“ Sigrar í bikarkeppninni sænsku Glaumur og gleði á æfingum IFK, Hakon Sandberg og markvörðurinn Wernerson bregða á leik. saman nægu fé til þess að geta haft leikmennina á föstum laun- um að minnsta kosti 6 mánuði árs- ins.“ Og Erikson er ekki í vafa hvernig hala má inn slíkt fjár- magn. „Eftir slíka velgengni er ekki nokkur vafi að ná má miklu meira fé út úr auglýsingum. Hverju breytir það svo sem þó fé- lagið heiti til dæmis IFK Volvo Gautaborg, ef það tryggir nægt fjármagn á annað borð?“ UEFA-ævintýrið færði Gauta- borg 6 milljónir sænskra króna í budduna, hinn mikli áhorfenda- fjöldi, auglýsingar og svo sala markaskorarans Torbjörns Nil- sons til Kaiserslautern. En þar með er ekki öll sagan sögð, því megnið af þeim peningum fór í að rétta úr kútnum eftir fjárhagslega afleitt gengi frá keppnistímabil- inu á undan, er félagið styrkti lið sitt með því að kaupa þá Thomas Wernerson, Stig Frederikson og Hakon Sandberg. Félagið byrjaði auk þess ekki vel í sænsku deild- inni það árið og snardró úr áhorf- endafjölda við það. Meðan best gekk hjá félaginu á síðasta keppnistímabili og sigur- gangan lengdist bæði í UEFA- að enginn skyldi seldur fyrr en keppnistímabilið væri búið. Sá leikmaður liðsins sem mestu athyglina vakti var auðvitað Tor- björn Nilson. Anders Bernmar, stjórnarformaður IFK, var sá sem fyrstur kom auga á Nilson er hann lék með 3. deildarfélaginu Jons- • MaAurinn á bak við velgengnina, þjálfarinn Sven Göran Erikson. ered. Og þegar kappinn gafst upp á atvinnumennskunni hjá PSV Eindhoven árið 1977 lagði hann net IFK fyrir hann og veiddi grip- inn. Síðan hefur Nilson verið í hópi bestu framherja Evrópu, en ekki viljað reyna fyrir sér í at- vinnumennsku fyrr en nú, er hon- um finnst loks vera kominn tími til. Þjálfari liðsins á blómaskeiðinu sem nú stendur yfir er Sven Göran Erikson. Hann var samningsbund- inn til ársins 1983, en í samning- um hans var grein þess eðlis að ætti hann möguleika á því að kom- ast á mála hjá erlendu liði gæti hann fengið sig lausan hjá IFK áður en samningurinn væri allur. Erikson kom til IFK árið 1979, var áður hjá Degerfors. Hann tók við af Hassa nokkrum Karlson. Til að byrja með var ekki sérlega mikil ánægja með kappann, því mönnum þótti engu líkara en hann ætlaði að fórna „kampa- vínsknattspyrnu" félagsins fyrir kerfisknattspyrnu. Erikson svar- aði um hæl: „Hvað er á því að græða að leika áferðarfallega knattspyrnu ef stöðugleika og leikskipulag vantar." Hann hafði margt til síns máls, því hann bar slíkan mannskap í höndunum að jafnvel þó hann innleiddi skipulag og leikkerfi hjá IFK þá lék liðið skemmtilegustu knattspyrnu Sví- þjóðar. Og liðið fór nú að vinna titla. Erikson segir um UEFA-sigur- inn: „I fyrstu umferðum UEFA- keppninnar datt engum okkar í hug að við myndum standa uppi sem sigurvegarar. En í febrúar, rétt áður en við lékum fjórðungs- úrslitaleiki okkar gegn Valencia, lékum við æfingarleik gegn South- ampton. Þeir sigruðu okkur 2—0, en um tíma lékum við þá sundur og saman og 4—4 hefði gefið rétt- ari mynd af gangi leiksins. Eftir þennan leik vissi ég, og leikmenn mínir einnig, að við værum full- færir um að vinna keppnina." Og þannig fóru leikar, Gauta- borg sigraði HSV samtals 4—0 og milljónir sjónvarpsáhorfenda gætu hæglega haldið að „Englarn- ir“, gælunafn IFK, hefðu notið að- stoðar frá æðri máttarvöldum, því þeir þóttu sannarlega leika eins og englar. Þýtt, endursagt o.fl. — gg. • Stig Frederikson skorar þriAja markiA gegn HSV úr vftaspyrnu. IFK vann þýska stórliAiA samtals 4—0.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.