Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.08.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1982 41 fólk í fréttum + Kínverski lennisleikarinn Hu Na bað nýlega um landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Hún kom til landsins með tennisliöi frá Kína til þess að leika á „Federation Cup“-mótinu í Kaliforníu. Ákvað Hu að snúa ekki aftur til heimalandsins og æfir nú meö tennisfélagi í Kaliforníu. Vves spilar á uppáhalds kaffihúsinu sínu. \ V **m*MímZ - Yves Montand í morgunmat fyrir framan fræga veggmynd eftir Léger. I afslöppun á heimaslóðum + Yves Montand er franskur leik- ari og söngvari sem að auki er kvæntur leikkonunni Simone Signoret, en nú liggur hún á spít- ala vegna augnaaðgerðar. Yves er aftur á móti nýlega kominn úr söngferðalagi til Bandaríkjanna, þar sem að hann m.a. söng í Metropolitan-óperunni í New York. Hann dvelur nú í Saint- COSPER — Þú hefðir heldur átt að kenna honum að þegja en tala. Paul-de-Vence í Suður-Frakklandi og reynir að slappa af fyrir næstu söngferð sína sem á að vera til Japan. Það var í Saint-Paul-de-Vence sem Yves Montand hitti Simone Signoret fyrst. Þá var hún gift Yves Allegret, en tveimur árum síðar var hún skilin og gift Yves Montand. Síðan er Saint-Paul-de- Vence sá staður sem þau helst kjósa að dvelja á. Þau hafa her- bergi á leigu allt árið um kring á hótelinu „Gulldúfunni" og það er í því sem Yves Montand dvelur núna. Á hverjum morgni fer Yves Montand á fætur kl. 7 og borðar morgunmat úti á svölunum fyrir framan veggmynd eftir Léger. Síðan fer hann á kaffihús og spil- ar á spil og les blöðin. Eftir það fer hann aftur heim á hótelið og syndir í sundlauginni. Hádegis- matinn borðar hann svo á sama kaffihúsinu og hann spilar á á morgnana. Það er alltaf fullt þar í hádeginu af fólki sem kemur til þess eins að sjá hann og biðja um eiginhandaráritun. Og Yves er ekkert nema elskulegheitin, hann gefur öllum sem biðja hann eig- inhandaráritun. Þríleikur Tónlíst Jón Asgeirsson Bræðurnir Staffan og Chrich- an Larson ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur fluttu tónlist eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Hans Kklund, Brahms og Beet- hoven. Tríó fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Sveinbjörn Svein- björnsson er hin ágætasta tón- smíð, rómantísk og full upp með stef, sem minna á ýmis sönglög hans, eins og t.d. Hvar eru fugl- ar? Flutningur verks eftir Sveinbjörn gæti gefið tilefni til útúrdúrs, hvað varðar réttar- stöðu tónskálds gegn sjóræn- ingjum og hugmyndalausum höfundum, sem þurfa í fátækt sinni að gramsa í kyrnum ann- arra höfunda, þá ekki síður að fjalla um þá ósvinnu, er menntamálaráðuneytið svo gott sem leggur blessum sína yfir lögbrot og bæta svo við smáskýr- ingum á höfundarétti, með því að breyta um viðfangsefni og spyrja, hverjum niyndu goðin reið- ast, ef eitthvert bókmenntaverk, myndverk eða kvikmynd og þá væntanlega sú nýjasta, væri tek- in og endurklyppt með sama hætti og vesalings þjóðsöngur- inn, sem menn með gervigremju fyrir hjartanu halda sig verða mikia menn á að böðlast á, undir yfirdrepi listamennsku, sem er nýtt orð yfir hugmyndaleysi og sóðaskap, en hér er hvorki stað- ur né stund til slíkrar umfjöllun- ar. Ánægjulegt var að heyra verk Sveinbjörns hér flutt óskemmt og vel útfært af vönd- uðum tónlistarmönnum, ungu og vel menntuðu tónlistarfólki, sem telur sig eiga annað erindi við list en að skrumskæla hana. Bra'ðurnir Staffan og Chrichan eru góðir tónlistarmenn og ekki spillir félagsskapur Önnu Guð- nýjar, sem er frábær kammer- tónlistarmaður. Annað verkið á efnisskránni er eftir Hans Ek- lund, Cante-Presto-Ostinato fyrir selló og píanó. Verkið, upphaflega ritað fyrir lágfiðlu en hér flutt í umritun fyrir selló, er vel unnið en ekki stórt skorið í gerð sinni. Scherzo í c-moll fyrir fiðlu og píanó eftir Brahms var næst á efnisskránni en tón- leikunum lauk með tríói op. 1 nr. 1 eftir Beethoven. Bræðurnir eru mjög góðir tónlistarmenn og með Önnu Guðnýju Guðmunds- dóttur mynda þeir „klassa“ eða fyrirmyndar tríó. Allt var vel gert á þessum tónleikum, en þó var flutningur Beethovens í bestu jafnva*gi, einkum tveir síð- ustu kaflarnir. 7 ! ^ INNHVERF IHUGUN TÆKNI SEM TRYGGIR ARANGUR Almennur kynn- ingarfyrirlestur verður annað kvöld, miðviku- daginn 25. ágúst kl. 20.30 að Hverfisgötu 18 (gengt Þjóð- leikhúsinu). Allir velkomnir. ÍSLENSKA ÍHUGUNARFÉLAGIÐ _____________________J Plasteinangrun ARMAPLAST Glerull — Steinull X’—r/ ’Armúla 16 sími 38640 VO Þ. ÞORGRÍMSSON & CO TÖLVUNÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN 9—16 ÁRA Námskeiðið er hvort tveggja í senn nám og leikur. Á daginn læra börnin grundvallaratriði forritunar- málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö einföld forrit. Meö aöstoö litskyggna er þeim kynnt bygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa. Á kvöldin eru leik- og æfingatímar. Börnin fá viðurkenningarskjal aö loknu námskeiöi. Námskeiöiö stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2 tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu. Viö kennsluna eru notaðar vandaöar einkatölvur frá ATARI meö lit og hljóöi. TÖLVUSKÚLINN SkLpholti 1. Simi 2 5400

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.