Morgunblaðið - 27.08.1982, Side 1
56 SÍÐUR
187. tbl. 69. árg.
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Beirút:
Lífið færist
í fyrra horf
Beirút, 26. ágúst. AP.
BANDAKÍSKAR, franskar og ítalsk-
ar gæslusveitir skiptu í dag með sér
verkum við þá línu í miðborginni,
sem skiptir Beirút í tvo hluta á sama
tima og níundi farmurinn af PLO-
mönnum hélt áleiðis með skipi frá
borginni. Sungu PLO-mennirnir, 697
að töiu, baráttusöngva og hömpuðu
myndum af leiðtoga sínum, Yasser
Arafat.
Sýrlenski herinn sendi í dag 60
vörubíla til vesturhluta Beirút til
að undirbúa brottflutning 5000
sýrlenskra hermanna, sem verið
Sími hins opin-
bera þagnaði
UeKe, Belgíu, 26. ágúst. AP.
ÞAÐ hefur verið óvenjuhljótt á
opinberum skrifstofum i borginni
að undanförnu þar sem símamála-
stjórnin hefur látið klippa á um
500 línur vegna vangoldinna af-
notagjalda, sem nema 15 milljón-
um franka.
Klippt var á línurnar þann ní-
tjánda ágúst, en síðan þá hafa
einungis 10 línur verið tengdar
aftur.
Borgin hefur verið að gera
ráðstafanir til að greiða
ógreiddu reikningana, en talið
er að þrátt fyrir það muni enn
líða nokkrir dagar þar til sam-
band við skrifstofur hins opin-
bera verður orðið eðlilegt.
Hæsta gullverð
í átta mánuði
Lundúnum, 26. ágúst. AP.
GULLVERÐ var þegar markaðir lok-
uðu í dag hærra en það hefur verið í
átta mánuði. Var únsa gulls skráð á
415,50 dollara í I.undúnum seint í
dag. Ekki er meira en vika frá þvi
gullverð var 50 dölum lægra.
Staða dollarans styrktist aðeins í
dag, mest vegna hækkaðra vaxta í
Evrópu. Breytingin var þó einungis
lítilfjörleg.
hafa í borginni. Á brottflutningi
þeirra að ljúka á næstu 5 dögum.
ítölsku hermennirnir lentu í dag
í deilum við PLO-menn um hvar
þeir ættu að hafa aðsetur í borg-
inni. Á meðan varð lið þeirra að
bíða um 5 klukkustundir.
Rúmlega 450 franskir gæsluliðar
stigu á land í dögun og sameinuð-
ust 350 manna deild úr frönsku út-
lendingaherdeildinni, sem þegar
var komin til borgarinnar. Var
þeim vel fagnað af borgarbúum,
sem stráðu yfir þá hrísgrjónum af
svölum sínum.
Ibúar Beirút sneru aftur svo
hundruðum skipti í dag til borgar-
innar. Von er á mörg þúsund
manns, sem hafst hafa við annars
staðar i landinu frá þvi innrás
ísraela hófst. Er lífið í borginni
óðum að komast í fyrri skorður.
Kók og pylsa í sólinni ern vel þegin eftir sundsprcttinn. Mvndin er tekin fyrir utan Laugardalssundlaugina.
300.000 manns hlýddu á messu í Czestochowa:
Glemp erkibiskup hvetur yfir-
völd til að sleppa Lech Walesa
Czestochowa, 26. ágúst AP.
„FRELSID Walesa eða gerið honum
a.m.k. mögulegt að tjá sig sem frjáls
maður,“ sagði Josef Glemp, erki-
biskup í Póllandi í einhverri harð-
orðustu ræðu sinni um langt skeið
þegar hann messaði yfir áætluðum
fjöída 300.000 manna, sem voru
saman komnir í Czestochowa í dag
til að minnast 600 ára afmælis helg-
asta tákns Pólverja.
Þegar nafn Walesa var nefnt
laust mannfjöldinn upp fagnaðar-
ópi og linnulaust lófatak í sam-
fleytt tvær mínútur glumdi við.
Glemp lagði einnig til að yfirvöld
slepptu öllum þeim, sem hnepptir
hefðu verið í fangelsi vegna brota
Josef Glemp, erkibiskup
á herlögum og veittu þeim sakar-
uppgjöf. Ennfremur lagði hann
áherslu á, að göturnar væru ekki
rétti vettvangurinn til að mót-
mæla. Ganga bæri frá öllum mál-
um við samningaborðið. Þá lagði
Glemp áherslu á að yfirvöld
nefndu ákveðinn dag fyrir heim-
sókn Jóhannesar Páls páfa II.
Á sama tíma hélt páfi sérstaka
guðsþjónustu í lítilli kapellu í
Vatikaninu, sem útvarpað var á
móðurmáli hans, pólsku, til Pól-
lands. Sagði hann í ræðu sinni, að
það væri skylda sín að heimsækja
föðurland sitt. Páfi ætlaði að vera
við hátíðahöldin í Czestochowa, en
pólsk yfirvöld meinuðu honum að
koma til landsins.
Tólf manns hófu í dag föstu í
kirkju í Czestochowa til a leggja
áherslu á að yfirvöld samþykktu
tilmæli Glemps. Erkibiskupinn
fór í maí fram á það við yfirvöld,
að þau slepptu öllum konum úr
haldi. Tveimur mánuðum síðar
urðu yfirvöld við þeirri beiðni þeg-
ar þau slepptu 1200 manns úr
haldi, þar með talið öllum konum.
Á meðal þeirra, sem taka þátt í
föstunni nú er sonur önnu Walen-
tynowicz, kranamanns við höfina í
Gdansk. Brottrekstur hennar fyrir
tveimur árum var helsta kveikjan
að verkföllum, sem síðar leiddu til
stofnunar Samstöðu.
„Afstaða Kremlverja á ekki að
hafa áhrif á bandarísk viðskiptiu
— segir George Bush um deilurnar vegna gasleiðslunnar frá Síberíu
Yfirmenn kirkjunnar telja að
Glemp hafi valið þennan sérstaka
dag til þess að vekja enn frekari
athygli á tillögum sínum. Hins
vegar sögðu kirkjuleiðtogar, að yf-
irvöld væru ekki á þeim buxunum
að gefa svar af einu eða neinu tagi
strax. Yfirvöld vöruðu aftur enn
eina ferðina í dag við óeirðum,
sem þau sögðu Samstöðu vera að
undirbúa.
WaMhington, 26. kgúsL AP.
BANDARÍKJASTJÓRN ákvað í
dag að setja tvö frönsk fyrirtæki á
„svartan lista“ fyrir að fara ekki
að fyrirmælum hennar og hætta
við að afhenda samningsbundna
hluti í gasleiðsluna frá Síberíu.
Annað þessara fyrirtækja er dótt-
urfyritæki Dresser Industries Inc.
í Texas. Verður tekið fyrir allan
innfiutning dótturfyrirtækisins,
Dresser France, frá Bandaríkj-
unum. Var því ennfremur lýst yfir,
að ef fieiri fyrirtæki yrðu uppvís að
því að fylgja fordæmi þessara
tveggja fyrirtækja yrði gripið til
svipaðra aðgerða gegn þeim.
Franska flutningaskipið Boro-
dine hélt í kvöld úr höfn í Le
Havre áleiðis til Riga í Sovét-
ríkjunum með 3 dælur, sem
tengja á við gasleiðsluna. Eru
þær sjöundi hluti þeirra dæla,
sem Dresser France skuldbatt
sig til að afhenda. Ákvað fyrir-
tækið að standa við allar skuld-
bindingar sínar eftir að fyrir-
mæli frá frönsku ríkisstjórninni
þess eðlis höfðu borist.
George Bush, varaforseti
Bandaríkjanna, sagði í dag á
fundi með fréttamönnum, að
Bandaríkjastjórn hafnaði alfar-
ið þeim ummælum þeirra
Evrópuríkja, sem hlut eiga að
máli við lagningu gasleiðslunn-
ar, að refsiaðgerðir Bandaríkja-
stjórnar væru óréttmætar.
„Við höfum heyrt kvartanir
víða að, en við getum ekki hlust-
að á þær. Bandaríkin eru leið-
andi ríki í hinum frjálsa vest-
ræna heimi. Þessi stjórn hefur
ákveðið að tími sé til kominn að
haga sér í samræmi við það,“
sagði Bush á fundinum. Þá lagði
hann einnig áherslu á, að Sov-
étmenn gætu keypt þann búnað,
sem þá vanhagaði um, annars
staðar. „I einlægni sagt, held ég
afstaða Kremlverja eigi ekki að
hafa áhrif á bandarísk viðskipti
í framtíðinni" sagði vara-
forsetinn.
Ráðist á vopna-
flutningalest
Szlerno, ftolíu, 26. ágúst. AP.
SKÆRULIÐAR vopnaóir vélbyssum
réðust í dag á vopnaflutningalest með
þeim afleiðingum, að lögregluþjónn lét
lífið og fjórir aðrir slösuðust, þar af
tveir alvarlega.
Engin samtök hafa enn lýst ódæð-
inu á hendur sér, en grunur fellur á
meðlimi Rauðu herdeildanna, sem
réðust fyrr í vikunni inn í vopna-
geymslur flughersins rétt utan við
Róm og stálu þaðan vopnum.