Morgunblaðið - 27.08.1982, Síða 1

Morgunblaðið - 27.08.1982, Síða 1
56 SÍÐUR 187. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Beirút: Lífið færist í fyrra horf Beirút, 26. ágúst. AP. BANDAKÍSKAR, franskar og ítalsk- ar gæslusveitir skiptu í dag með sér verkum við þá línu í miðborginni, sem skiptir Beirút í tvo hluta á sama tima og níundi farmurinn af PLO- mönnum hélt áleiðis með skipi frá borginni. Sungu PLO-mennirnir, 697 að töiu, baráttusöngva og hömpuðu myndum af leiðtoga sínum, Yasser Arafat. Sýrlenski herinn sendi í dag 60 vörubíla til vesturhluta Beirút til að undirbúa brottflutning 5000 sýrlenskra hermanna, sem verið Sími hins opin- bera þagnaði UeKe, Belgíu, 26. ágúst. AP. ÞAÐ hefur verið óvenjuhljótt á opinberum skrifstofum i borginni að undanförnu þar sem símamála- stjórnin hefur látið klippa á um 500 línur vegna vangoldinna af- notagjalda, sem nema 15 milljón- um franka. Klippt var á línurnar þann ní- tjánda ágúst, en síðan þá hafa einungis 10 línur verið tengdar aftur. Borgin hefur verið að gera ráðstafanir til að greiða ógreiddu reikningana, en talið er að þrátt fyrir það muni enn líða nokkrir dagar þar til sam- band við skrifstofur hins opin- bera verður orðið eðlilegt. Hæsta gullverð í átta mánuði Lundúnum, 26. ágúst. AP. GULLVERÐ var þegar markaðir lok- uðu í dag hærra en það hefur verið í átta mánuði. Var únsa gulls skráð á 415,50 dollara í I.undúnum seint í dag. Ekki er meira en vika frá þvi gullverð var 50 dölum lægra. Staða dollarans styrktist aðeins í dag, mest vegna hækkaðra vaxta í Evrópu. Breytingin var þó einungis lítilfjörleg. hafa í borginni. Á brottflutningi þeirra að ljúka á næstu 5 dögum. ítölsku hermennirnir lentu í dag í deilum við PLO-menn um hvar þeir ættu að hafa aðsetur í borg- inni. Á meðan varð lið þeirra að bíða um 5 klukkustundir. Rúmlega 450 franskir gæsluliðar stigu á land í dögun og sameinuð- ust 350 manna deild úr frönsku út- lendingaherdeildinni, sem þegar var komin til borgarinnar. Var þeim vel fagnað af borgarbúum, sem stráðu yfir þá hrísgrjónum af svölum sínum. Ibúar Beirút sneru aftur svo hundruðum skipti í dag til borgar- innar. Von er á mörg þúsund manns, sem hafst hafa við annars staðar i landinu frá þvi innrás ísraela hófst. Er lífið í borginni óðum að komast í fyrri skorður. Kók og pylsa í sólinni ern vel þegin eftir sundsprcttinn. Mvndin er tekin fyrir utan Laugardalssundlaugina. 300.000 manns hlýddu á messu í Czestochowa: Glemp erkibiskup hvetur yfir- völd til að sleppa Lech Walesa Czestochowa, 26. ágúst AP. „FRELSID Walesa eða gerið honum a.m.k. mögulegt að tjá sig sem frjáls maður,“ sagði Josef Glemp, erki- biskup í Póllandi í einhverri harð- orðustu ræðu sinni um langt skeið þegar hann messaði yfir áætluðum fjöída 300.000 manna, sem voru saman komnir í Czestochowa í dag til að minnast 600 ára afmælis helg- asta tákns Pólverja. Þegar nafn Walesa var nefnt laust mannfjöldinn upp fagnaðar- ópi og linnulaust lófatak í sam- fleytt tvær mínútur glumdi við. Glemp lagði einnig til að yfirvöld slepptu öllum þeim, sem hnepptir hefðu verið í fangelsi vegna brota Josef Glemp, erkibiskup á herlögum og veittu þeim sakar- uppgjöf. Ennfremur lagði hann áherslu á, að göturnar væru ekki rétti vettvangurinn til að mót- mæla. Ganga bæri frá öllum mál- um við samningaborðið. Þá lagði Glemp áherslu á að yfirvöld nefndu ákveðinn dag fyrir heim- sókn Jóhannesar Páls páfa II. Á sama tíma hélt páfi sérstaka guðsþjónustu í lítilli kapellu í Vatikaninu, sem útvarpað var á móðurmáli hans, pólsku, til Pól- lands. Sagði hann í ræðu sinni, að það væri skylda sín að heimsækja föðurland sitt. Páfi ætlaði að vera við hátíðahöldin í Czestochowa, en pólsk yfirvöld meinuðu honum að koma til landsins. Tólf manns hófu í dag föstu í kirkju í Czestochowa til a leggja áherslu á að yfirvöld samþykktu tilmæli Glemps. Erkibiskupinn fór í maí fram á það við yfirvöld, að þau slepptu öllum konum úr haldi. Tveimur mánuðum síðar urðu yfirvöld við þeirri beiðni þeg- ar þau slepptu 1200 manns úr haldi, þar með talið öllum konum. Á meðal þeirra, sem taka þátt í föstunni nú er sonur önnu Walen- tynowicz, kranamanns við höfina í Gdansk. Brottrekstur hennar fyrir tveimur árum var helsta kveikjan að verkföllum, sem síðar leiddu til stofnunar Samstöðu. „Afstaða Kremlverja á ekki að hafa áhrif á bandarísk viðskiptiu — segir George Bush um deilurnar vegna gasleiðslunnar frá Síberíu Yfirmenn kirkjunnar telja að Glemp hafi valið þennan sérstaka dag til þess að vekja enn frekari athygli á tillögum sínum. Hins vegar sögðu kirkjuleiðtogar, að yf- irvöld væru ekki á þeim buxunum að gefa svar af einu eða neinu tagi strax. Yfirvöld vöruðu aftur enn eina ferðina í dag við óeirðum, sem þau sögðu Samstöðu vera að undirbúa. WaMhington, 26. kgúsL AP. BANDARÍKJASTJÓRN ákvað í dag að setja tvö frönsk fyrirtæki á „svartan lista“ fyrir að fara ekki að fyrirmælum hennar og hætta við að afhenda samningsbundna hluti í gasleiðsluna frá Síberíu. Annað þessara fyrirtækja er dótt- urfyritæki Dresser Industries Inc. í Texas. Verður tekið fyrir allan innfiutning dótturfyrirtækisins, Dresser France, frá Bandaríkj- unum. Var því ennfremur lýst yfir, að ef fieiri fyrirtæki yrðu uppvís að því að fylgja fordæmi þessara tveggja fyrirtækja yrði gripið til svipaðra aðgerða gegn þeim. Franska flutningaskipið Boro- dine hélt í kvöld úr höfn í Le Havre áleiðis til Riga í Sovét- ríkjunum með 3 dælur, sem tengja á við gasleiðsluna. Eru þær sjöundi hluti þeirra dæla, sem Dresser France skuldbatt sig til að afhenda. Ákvað fyrir- tækið að standa við allar skuld- bindingar sínar eftir að fyrir- mæli frá frönsku ríkisstjórninni þess eðlis höfðu borist. George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í dag á fundi með fréttamönnum, að Bandaríkjastjórn hafnaði alfar- ið þeim ummælum þeirra Evrópuríkja, sem hlut eiga að máli við lagningu gasleiðslunn- ar, að refsiaðgerðir Bandaríkja- stjórnar væru óréttmætar. „Við höfum heyrt kvartanir víða að, en við getum ekki hlust- að á þær. Bandaríkin eru leið- andi ríki í hinum frjálsa vest- ræna heimi. Þessi stjórn hefur ákveðið að tími sé til kominn að haga sér í samræmi við það,“ sagði Bush á fundinum. Þá lagði hann einnig áherslu á, að Sov- étmenn gætu keypt þann búnað, sem þá vanhagaði um, annars staðar. „I einlægni sagt, held ég afstaða Kremlverja eigi ekki að hafa áhrif á bandarísk viðskipti í framtíðinni" sagði vara- forsetinn. Ráðist á vopna- flutningalest Szlerno, ftolíu, 26. ágúst. AP. SKÆRULIÐAR vopnaóir vélbyssum réðust í dag á vopnaflutningalest með þeim afleiðingum, að lögregluþjónn lét lífið og fjórir aðrir slösuðust, þar af tveir alvarlega. Engin samtök hafa enn lýst ódæð- inu á hendur sér, en grunur fellur á meðlimi Rauðu herdeildanna, sem réðust fyrr í vikunni inn í vopna- geymslur flughersins rétt utan við Róm og stálu þaðan vopnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.