Morgunblaðið - 27.08.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.08.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982 Lóðarsamningur við Kolsýnihleðsluna: Var skylt að undir- rita samninginn — segir Davíð Oddsson borgarstjóri „BORGARRÁÐ ákvað á sín- um tíma, árið 1981, undir for- ystu þáverandi meirihluta, að framlengja lóðarsamning við Kolsýruhleösluna hf. um tíu ár, í stað 30 ára, eins og farið var framá og skrifstofustjóri borgarverkfræðings lagði til,“ sagði Davið Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið, en hann var spurður um ástæðu þess að samningurinn var framlengd- ur. „Þetta var samþykkt í borgarráði og eftir að þessir aðilar höfðu undirritað lóð- arsamninginn, þá var mér, sem borgarstjóra, skylt fyrir hönd borgarstjórnar að und- irrita samninginn, enda var ekki komin fram nein bein tillaga um að rifta honum og hæpið að það yrði gert án verulegra skaðabóta af borg- arinnar hálfu. Það var því fyrrverandi meirihluti sem samþykkti samninginn og ég var aðeins að uppfylla form- lega skyldu mína með því að undirrita hann. Mér var ekki stætt á að neita því eftir að þessir aðilar höfðu uppfyllt þau skilyrði sem borgarráð setti fyrir lóðarsamningn- um,“ sagði Davíð Oddsson. Myndin er tekin við opnun sýningar á dönsku postulíni í Kjarvalsstöðum í gær. J. Paludan sendiherra Dana er til hægri, en fremst er frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, að skoða styttu er henni var gefin við opnunina, konu með barn á brjÓStÍ. Ljósm.: Krtetján E. Einarsson. Janúar—júní: Um 61% samdráttur í loðskinnaútflutningi Útflutningur á „ytri fatnaði“ jókst hins vegar um 300% Baldur Eyþórs- son í Odda látinn Látinn er í Reykjavík sextíu og fjögurra ára að aldri, Baldur E. Eyþórsson forstjóri Prentsmiðjunnar Odda hf. Baldur var fæddur hinn 2. september árið 1917 að Sólheimum í Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Eyþórs l>órar- inssonar og Hildar Margrétar Vilhjálmsdóttur. VERULEGUR samdráttur varð í útflutningi á vörum úr loð- skinni fyrstu sex mánuði ársins, samkvæmt yfirliti Útflutn- ingsmiðstöðvar iðnaðarins. Tímabilið janúar-júní í ár voru flutt út 5,6 tonn samanborið við 14,4 tonn á sama tíma í fyrra, eða liðlega 61% samdráttur. Baldur nam prentnám í Isafold- arprentsmiðju á árunum 1933 til 1937, og þar tók hann síðar sveinspróf í setningu og meistara- bréf hlaut hann 1942. Hann vann í Alþýðuprentsmiðjunni frá 1940 til 1943, en þá stofnaði hann Prentsmiðjuna Odda ásamt þeim Ellert Ág. Magnússyni og Björg- vin Benediktssyni. Baldur gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum um dagana, var til dæmis í stjórn Hins ísl. prentarafélags, sat í stjórn lífeyrissjóðs prentara og var lengi formaður Félags prent- iðnaðarins. Þá sat hann um skeið í miðstjórn Alþýðuflokksins, var formaður skólanefndar Iðnskólans í Reykjavík og sat í bankaráði Búnaðarbankans á annan áratug. Verðmætaaukningin milli ára var hins vegar um 22,6%, en fyrstu sex mánuðina voru flutt- ar út vörur úr loðskinnum fyrir 4.724,7 þúsund krónur, saman- borið við 3.853,2 þúsund krónur á sama tíma í fyrra. I samdrættinum vegur þyngst, að fyrstu sex mánuði ársins voru ekki fluttar út nein- ar vörur úr loðskinnum til Sov- étríkjanna, en á sama tíma í fyrra voru flutt þangað liðlega 7,3 tonn, eða liðlega helmingur alls útflutnings á þessum vör- ennfremur verulegur samdrátt- ur í útflutningi á prjónavörum, en í ár voru flutt út 173.5 tonn, samanborið við 221,0 tonn fyrstu sex mánuðina í fyrra. Samdrátturinn milli ára er því 21.5%. Hins vegar varð verðmæta- aukningin milli ára liðlega 23%, en verðmæti prjónavöruútflutn- ingsins fyrstu sex mánuðina í ár var 79.461,8 þúsund krónur, samanborið við 64.510,2 þúsund krónur sömu mánuði í fyrra. Tæplega 4% aukning varð á útflutningi ullarlopa og bands fyrstu sex mánuðina, en í ár voru flutt út 412,1 tonn, sam- anborið við 396,7 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukningin milli ára var liðlega 56.7%, en fyrstu sex mánuðina í ár var verðmæti út- flutnings ullarlopa og bands 40.627,4 þúsund krónur, sam- anborið við 25.930,1 þúsund krónur á sama tíma í fyrra. Útflutningur á ullarteppum fyrstu sex mánuði ársins jókst um liðlega 16.8%, en í ár voru flutt út liðlega 66,1 tonn, sam- anborið við 56,6 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmætaaukning- in milli ára var um 88,5%, en í ár var verðmætið 8.282,7 þúsund krónur, samanborið við 4.393,7 þúsund krónur í fyrra. Útflutningur á svokölluðum „ytri fatnaði" jókst um 300% fyrstu sex mánuði þessa árs, en út voru flutt 12.8 tonn, en til samanburðar aðeins 3.2 tonn á sama tíma í fyrra. Verðmæta- aukningin milli ár var tæplega 565%, en í ár var verðmætið 7.868,5 þúsund krónur, saman- borið við 1.183,4 þúsund krónur í fyrra. Ástæða þessarar miklu aukningu er fyrst og fremst sú, að í ár kaupa Sovétmenn af okkur 8.9 tonn, en keyptu ekkert á sama tíma í fyrra. 45 þúsund króna sekt — afli og veiðarfæri gerð upptæk DÓMUR í máli skipstjúrans á Þór- kötlu GK 97, sem staðinn var að ólög- legum veiðum 0,7 mílur innan land- helgi, undan Dyrhólaey, gekk hjá bæjarfógetaembættinu í Keflavík í gær. Var skipstjórinn dæmdur til að greiða 45 þúsund króna sekt til Landhelgissjóðs íslands og var vararefsing ákveðin 2ja mánaða varðhald og kemur það til fullnustu verði sektin ekki greidd innan fjög- urra vikna. Afli og veiðarfæri voru gerð upptæk, þar með taldir dragstrengir. Þá var skipstjórinn dæmdur til greiðslu málskostnaðar. Dóminn kvað upp Sigurður Hall- ur Stefánsson héraðsdómari. um. Fyrstu sex mánuðina varð Forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen, í útvarpsfréttum 1 gær: Getur komið upp stjórnskipuleg sjálfhelda þegar svona stendur á Ekkert vandamál — þrátt fyrir fljótfærnislegar yfirlýsingar í hita og reiði núna „í RAUNINNI getur komið upp stjórnskipuleg sjálfhelda þegar svona stendur á. Við skulum segja, að ríkisstjórnin hafi meirihluta á þingi, 31 þingmann, en minni hlutinn, sem hefur stöðvunarvald í neðri deildinni — hann vill nýta sér þataðstöðu til að fella eða stöðva frumvarp fyrir stjórninni. Hvað á þá að gera? Á stjórnin sem styðst við meirihluta að segja af sér til þess að hinir geti tekið við, sem í rauninn geta ekki myndað stjórn, — eru í minnihluta? svaraði Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra spurningu fréttamanns útvarpsins í gærkvöldi um hvort ríkisstjórn hans færi frá, ef ekki tækist að semja við stjórnarandstæðinga i neðri deild Alþingis um afgreiðslu mála i vetur. Forsætirsráðherra sagði í framhaldi af því, að sér fyndist slíkt ekki lýðræðislegt og að hann hefði gert tillögu í stjórnarskrár- nefnd um að Alþingi yrði breytt i eina málstofu. Fréttamaðurinn spyr Gunnar í upphafi viðtalsins hvort hann sé sammála ummæl- um Ólafs Jóhannessonar utanrík- isráðherra um að ríkisstjórn, sem ekki hafi 32 þingmenn sé óstarf- hæf. Forsætisráðherra svarar því til, að æskileg afstaða sé að hún hafi meirhluta í báðum þingdeild- um, minnst 32 þingmenn. Hann segir stöðuna nú einfaldlega þýða. að ríkisstjórnin þurfi að semja við þingmenn úr stjórnarandstöðu um framgang mála. Þá segist hann sannfærður um að bráða- birgðalögin verði samþykkt á Al- þingi í meginatriðum. Verið geti að þau taki einhverjum breyting- um í meðförum þingsins. Fréttamaður spyr í framhaldi af því: — „Hefur þú tryggt þér stuðning einhverra þingmanna stjórnarandstöðunnar við þessi bráðabirgðalög? Forsætisráðherra: „Ég er eins og sagði alveg sannfærður um það að þetta verður ekkert vandamál, þrátt fyrir þessar yfirlýsingar — fljótfærnislegar yfirlýsingar manna í hita og reiði núna vegna þess að ríkisstjórnin náði sam- komulagi. Ég tek ekki mark á þeim. Ég er sannfærður um það að þegar til kemur þá fæst nægur stuðningur við bráðabirðgalögin." Ráðherrann er þá spurður, hvort hann taki ekki mark á um- mælum Alberts Guðmundssonar og Eggerts Haukdal. Hann segist ekki tjá sig um einstaka þing- menn í þessu sambandi og segir síðan: „Ég er að svara almennum fyrirspurnum um stöðuna í þing- inu og hef þegar gert, það er að svara því sem þú hefur spurt um, en að fara að ræða hér um ein- staka þingmenn. Það dettur mér ekki í hug.“ Fréttamaður. — „Skýrðir þú forseta íslands frá því að þessi bráðabirgðalög nytu stuðnings meirihluta Alþingis?" Gunnar: „Ég fer að sjálfsögðu ekki hér í útvarpi að skýra frá viðræðum manna við forseta ís- lands", og bætir síðan við útskýr- ingum á ákvæðum stjórnarskrár- innar um útgáfu bráðabirgðalaga. Fréttamaður spyr síðar hvort ekki væri hreinlegast að kalla saman þing samstundis til að fá úr því skorið hvort meirihluti sé fyrir hendi. Forsætisráðherra: „Það er engin ástæða til þess að vera að efna til þess aukakostnað- ar nú að kalla saman aukaþing. Þingið kemur saman 11. október samkvæmt lögum og þá verður úr þessu skorið." Lokaspurning fréttamannsins: — „Getur komið upp sú staða í vetur að við sætum uppi með minnihlutaríkisstjórn?" „Ég hef enga trú á því. Ég býst við því að þessi meirihlutastjórn okkar haldi áfram út þetta kjör- tímabil," svaraði forsætisráð- herra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.