Morgunblaðið - 28.08.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
3
íslendingar fá
norrænan styrk
STJÓRN Norræna irtnartarsjórtsins
samþykkti á fundi sínum á Akureyri
sl. miAvikudag aA veita tveimur ís-
lenskum aAilum stvrki til þróunar- og
rannsóknarverkefna á sviAi iAnaAar.
1‘essir aAilar eru Samtok rafeindafyr-
irtakja og Össur Kristinsson sem
fengist hefur viA hönnun gervilima.
Þetta kom fram í viðtali við
Kristmund Halldórsson fulltrúa ís-
lands í stjórninni. Kristmundur
sagði að upphæðin sem hér væri um
að ræða, væri 750 þúsund sænskar
krónur. Fengju Samtök rafeinda-
fyrirtækja 100 þúsund króna styrk
og Össur 650 þúsund króna lán.
Kristmundur sagði að úthlutanir
sjóðsins væru tvíþættar, annars
vegar beinir styrkir og hins vegar
svokölluð áhættulán. Skilyrði fyrir
úthlutun væri að um samstarf
tveggja eða fleiri norrænna aðila
væri að ræða. Island hefði þó ávallt
haft nokkra sérstöðu, þar sem iðn-
aður hér væri nokkuð smærri í
sniðum en á öðrum Norðurlöndum.
Styrkurinn sem Samtökum raf-
eindaiðnaðar er veittur grundvall-
ast á 5 ára áætlun sem samtökin
hafa gert um eflingu rafeindaiðnað-
ar á Islandi. Með aðstoð norrænna
ráðunauta hyggjast samtökin inn-
leiða tækniþekkingu nágrannaþjóð-
anna í íslenskum iðnaði.
Áhættulánið til Össurar Krist-
inssonar. var veitt til samstarfs
hans og sænskra aðila. Hyggjast
þessir aðilar vinna að uppfinning-
um og þróun á sviði gervilimasmíði,
en Össur hefur um nokkurt skeið
unnið að þeim málum hér á Islandi.
Kröfluvirkjun:
Fyrsta holan vel
í meðallagi
FYRSTA holan sem boruð var í
sumar við Kröfluvirkjun hefur ver-
ið mæld og gefur hún 3—4 mega-
vatta afl, að sögn Gunnars Inga
Gunnarssonar staðarverkfræðings
Kröfluvirkjunar. Gunnar Ingi sagði
að ekki væri víst að þetta afl héld-
ist, það yrði að koma í ljós. Þessi
hola er vel í meðallagi miðað við
aðrar holur, að sögn Gunnars Inga.
Ferðamálaráðstefnan á Isafirði:
Útifundur Alþýðu-
bandalags á
Lækjartorgi í gær
FORYSTUMENN Alþýðubanda-
lagsins héldu útifund á Lækjartorgi
síAdegis í gær. MeAal ræAumanna
voru ráAhcrrarnir lijörleifur Gutt-
ormsson og Ragnar Arnalds auk
þingflokksformannsins Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Á meAan þeir fluttu
boAskap sinn gengu þeir Baldur
Oskarsson, erindreki flokksins, og
Einar Karl Haraldsson, ritsjóri
ÞjóAviljans, um torgiA og afhentu
vegfarendum orAsendingu. Efni orA-
sendingarinnar er tvíþætt. Annars
vegar lýsing á efnahagskreppu og
hins vcgar tillögur AlþýAubanda-
lagsins til úrbóta.
Ræðumenn Alþýðubandalags-
ins minntu launamenn á að flokk-
ur þeirra væri eina brjóstvörnin
gegn kjaraskerðingaröflunum —
aðeins hjá Alþýðubandalaginu
væri skjól að hafa fyrir láglauna-
fólk. Ekki virtust allir vegfarend-
ur sammála forystumönnum Al-
þýðubandalagsins hér um. Steyttu
menn ýmist hnefa eða gerðu hróp
að ræðumönnum þegar þeir ítrek-
uðu ágæti sitt og flokks síns.
Einkum skorti nokkuð á að þing-
flokksformaðurinn fengi gott
hljóð er hann hvatti menn til að
fylkja sér um Alþýðubandalagið,
brjóstvörn launamanna.
Ræðumenn lýstu því yfir að nú
væri kreppa á flestum sviðum
þjóðlífsins og það væri ríkis-
stjórninni að þakka að ekki væri
enn verr komið hag þjóðarinnar.
Með hag launamanna fyrir brjósti
hefði Alþýðubandalagið ýmsar
skynsamlegar tillögur fram að
færa.
Allt að eitt hundrað manns
gerðu stuttan stans á vegferð
sinni um Lækjartorg til að hlýða
á baráttu- og hvatningarorð for-
ystumanna. Meðfylgjandi myndir
tók Ólafur K. Magnússon, ljós-
myndari Mbl.
Ráðstefnugestum boð-
ið norður í Jökulfirði
RAGNAR Arnalds fjármálaráðherra
talaði máli Alþýðubandalagsins á
fundinum á Lækjartorgi og nokkrir
fundarmanna, þar á meðal sá, sem á
myndinni er, létu álit sitt á bráða-
birgAaliigunum og vísitöluskcrAing-
unni í Ijós með steyttum hnefa.
ísafirdi, 27. ágúst.
Ferðamálaráðstefnan, sem að
þessu sinni er haldin á ísafirði, var
sett kl. 10 í morgun af Heimi
Hannessyni, formanni Ferðamála-
ráðs. Heimir flutti síðan skýrslu
Ferðamálaráðs fyrir síðastliðið ár.
Kristján K. Jónasson, forseti bæjar-
stjórnar ísafjarðar, flutti ávarp og
bauð ráðstefnugestum til siglingar
með m/b Fagranesi norður í Jökul-
firði á kostnað bæjarsjóðs, en Krist-
ján er jafnframt framkvæmdastjóri
Útför Yvetta
Beuhaud gerð
á þriðjudag
ÚTFÖR Yvette Beuhaud, frönsku
stúlkunnar, sem lét lífið í harmleikn-
um á Skeiðarársandi, var gerð sl.
þriðjudag í heimabæ hennar René,
rétt við Nantes.
Systir hennar, Marie Luce, ligg-
ur á háskólasjúkrahúsi í Nantes.
Þar mun hún liggja í 7—10 daga,
en fer síðan á endurhæfingar-
miðstöð til að þjálfa upp vinstri
fótinn sem lamaðist að nokkru
vegna höfuðhöggsins, sem hún
hlaut.
Foreldrar stúlknanna hafa beð-
ið um að fram kæmi þakklæti
fyrir hjálpsemi, velvild og hlut-
tekningu, sem þau hefðu orðið að-
njótandi í stuttri dvöl sinni hér á
landi. Mikill fjöldi íslendinga
vottaði þeim samúð sína, m.a. for-
seti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, sem bauð fjölskyldunni á sinn
fund.
Hrunamannahreppur:
Deilur um staðsetningu lím-
trésverksmiðju á Flúðum
Syðra-Langholti, 27. ágúst.
IIREPFSNEFND Hrunamannahrepps
hefur ákveðið að staðsetja límtrés-
vcrksmiðju í Torfdal, á bakka Litlu
Laxár, við Flúðir, þrátt fyrir mótmæli
95 íbúa hreppsins. Forsaga málsins er
sú að undanfarið hefur stofnun lím-
trésverksmiðju verið í undirbúningi í
hrcppnum og er nú komin svo langt að
vélar hafa verið keyptar og búið er að
ráða byggingameistara til að reisa
verksmiðjuhúsið.
Hrunamanna-, Gnúpverja-,
Skeiða- og Biskupstungnahreppar
koma til með að eiga meirihlutann í
væntanlegu hlutafélagi. Danskt
fyrirtæki, Kaj Vilhelmsen að nafni,
mun eiga um 15% og það sem eftir
er hefur verið boðið aðilum innan-
héraðs og utan til kaups. Það verk-
smiðjuhús sem fyrirhugað er að
reisa er 2.000 fermetrar að stærð.
Reiknað er með að um 20 manns
vinni í verksmiðjunni sem áætlað er
að taki til starfa síðari hluta vetrar
og framleiða mun burðarbita og
sperrur úr límtré, um 800 rúmmetra
á ári.
Undirbúningsfélag verksmiðjunn-
ar leitaði til hreppsnefndar Hruna-
mannahrepps um verksmiðjulóð og
ákvað hreppsnefndin að úthluta fé-
laginu lóð við Flúðir, í svokölluðum
Torfdal, á hringvelli hestamanna
sem er á bakka Litlu-Laxár. Á laug-
ardaginn var fyrsta skóflustungan
tekin að verksmiðjuhúsinu með
pompi og prakt og tilheyrandi
veislukaffi. Á sunnudagskvöldið
hafði hreppsnefndinni hinsvegar
borist undirskriftalisti, sem 95
hreppsbúar höfðu skrifað sig á, þar
sem þeim tilmælum var beint til
hreppsnefndarinnar að hún sæi til
þess að límtrésverksmiðjan yrði
ekki byggð þar sem fyrirhugað væri.
Sigurgeir Sigmundsson, kaup-
maður á Flúðum, sagði í samtali við
Mbl. að almenn óánægja væri í
hreppnum vegna staðsetningar
verksmiðjunnar og ástæður hennar
væru að verksmiðja væri alveg við
byggðina á Flúðum og klyfi hana í
sundur að nokkru. Þarna við væru
íbúðarhús, elliheimili og hótelrekst-
ur og þetta svæði væri ákjósanlegt
útivistarsvæði. Börnin lékju sér
mikið þarna og hestamenn hefðu
lagt í talsverðar framkvæmdir og
komið sér upp ágætri aðstöðu. Sig-
urgeir sagðist vilja að hreppsnefnd-
in reyndi að finna aðra lóð undir
verksmiðjuna, það væri alls ekki
fullreynt enn, hvort aðrir möguleik-
ar væru fyrir hendi, þó að Flug-
málastjórn hefði af einhverjum
ástæðum lagst á móti byggingu
hennar á hentugum stað í landi
Grafar í nágrenni flugvallarins.
Staðsetning verksmiðjunnar stóð
síðan í þófi þar til í gær (26/8) að
hreppsnefndin gerði samhljóða
samþykkt um að breyta ekki fyrri
samþykkt sinni um staðsetningu
verksmiðjunnar. Loftur Þorsteins-
son oddviti sagði í samtali við Mbl.
að hreppsnefndin teldi útilokað að
finna annan stað sem hentað gæti.
Ix)ftur sagði að hægt væri að laga
svæðið fyrir hestamennina þannig
að þeir gætu vel við unað og yrði það
gert þeim að kostnaðarlausu. Hann
sagðist vonast til að málinu væri nú
lokið og að grafið yrði fyrir húsinu
um helgina, þannig að hægt verði að
byrja að slá upp fyrir grunninum á
mánudag.
Þegar endanleg ákvörðun hrepps-
nefndarinnar var borin undir Sigur-
geir Sigmundsson sagðist hann ekki
reikna með frekari aðgerðum af
hálfu þeirra sem stóðu fyrir undir-
skriftalistanum, en hann sagðist
harma það að hreppsnefndin skyldi
ekki taka meira tiliit til óska tæp-
lega 100 íbúa í ekki fjölmennara
sveitarfélagi.
Sig. Sigm.
Fagranessins. Magnús Reynir Guð-
mundsson bæjarritari á ísafirði
flutti erindi um ferðamál á Vest-
fjörðum.
Þá var gert matarhlé til kl. 14
en þá áttu að hefjast hringborðs-
umræður, en þegar ráðstefnu-
fulltrúar komu úr mat hafði verið
ákveðið að breyta dagskránni
vegna slæmrar veðurspár og fara
strax í siglinguna með Fagranes-
inu norður í Jökulfirði.
Ferðamálaráðstefnan hefst að
nýju kl. 10 í fyrramálið með
hringborðsumræðunum en verður
slitið síðdegis á morgun. Ráð-
stefnugestir, sem eru um 100 tals-
ins, sitja að lokum kvöldverðarboð
samgönguráðherra á morgun.
— ÍJIfar.
Örin á myndinni, sem er loftmynd af Flúðum, vísar á hringvöll hestamanna þar sem fyrirhugað er að byggja límtrésverk-
smiðju, en ekki eru allir íbúar Hrunamannahrepps ánægðir með staðsetningu verksmiðjunnar þar. (Ljósm. Mbl. Sig.Sigm.)