Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982 3 íslendingar fá norrænan styrk STJÓRN Norræna irtnartarsjórtsins samþykkti á fundi sínum á Akureyri sl. miAvikudag aA veita tveimur ís- lenskum aAilum stvrki til þróunar- og rannsóknarverkefna á sviAi iAnaAar. 1‘essir aAilar eru Samtok rafeindafyr- irtakja og Össur Kristinsson sem fengist hefur viA hönnun gervilima. Þetta kom fram í viðtali við Kristmund Halldórsson fulltrúa ís- lands í stjórninni. Kristmundur sagði að upphæðin sem hér væri um að ræða, væri 750 þúsund sænskar krónur. Fengju Samtök rafeinda- fyrirtækja 100 þúsund króna styrk og Össur 650 þúsund króna lán. Kristmundur sagði að úthlutanir sjóðsins væru tvíþættar, annars vegar beinir styrkir og hins vegar svokölluð áhættulán. Skilyrði fyrir úthlutun væri að um samstarf tveggja eða fleiri norrænna aðila væri að ræða. Island hefði þó ávallt haft nokkra sérstöðu, þar sem iðn- aður hér væri nokkuð smærri í sniðum en á öðrum Norðurlöndum. Styrkurinn sem Samtökum raf- eindaiðnaðar er veittur grundvall- ast á 5 ára áætlun sem samtökin hafa gert um eflingu rafeindaiðnað- ar á Islandi. Með aðstoð norrænna ráðunauta hyggjast samtökin inn- leiða tækniþekkingu nágrannaþjóð- anna í íslenskum iðnaði. Áhættulánið til Össurar Krist- inssonar. var veitt til samstarfs hans og sænskra aðila. Hyggjast þessir aðilar vinna að uppfinning- um og þróun á sviði gervilimasmíði, en Össur hefur um nokkurt skeið unnið að þeim málum hér á Islandi. Kröfluvirkjun: Fyrsta holan vel í meðallagi FYRSTA holan sem boruð var í sumar við Kröfluvirkjun hefur ver- ið mæld og gefur hún 3—4 mega- vatta afl, að sögn Gunnars Inga Gunnarssonar staðarverkfræðings Kröfluvirkjunar. Gunnar Ingi sagði að ekki væri víst að þetta afl héld- ist, það yrði að koma í ljós. Þessi hola er vel í meðallagi miðað við aðrar holur, að sögn Gunnars Inga. Ferðamálaráðstefnan á Isafirði: Útifundur Alþýðu- bandalags á Lækjartorgi í gær FORYSTUMENN Alþýðubanda- lagsins héldu útifund á Lækjartorgi síAdegis í gær. MeAal ræAumanna voru ráAhcrrarnir lijörleifur Gutt- ormsson og Ragnar Arnalds auk þingflokksformannsins Ólafs Ragn- ars Grímssonar. Á meAan þeir fluttu boAskap sinn gengu þeir Baldur Oskarsson, erindreki flokksins, og Einar Karl Haraldsson, ritsjóri ÞjóAviljans, um torgiA og afhentu vegfarendum orAsendingu. Efni orA- sendingarinnar er tvíþætt. Annars vegar lýsing á efnahagskreppu og hins vcgar tillögur AlþýAubanda- lagsins til úrbóta. Ræðumenn Alþýðubandalags- ins minntu launamenn á að flokk- ur þeirra væri eina brjóstvörnin gegn kjaraskerðingaröflunum — aðeins hjá Alþýðubandalaginu væri skjól að hafa fyrir láglauna- fólk. Ekki virtust allir vegfarend- ur sammála forystumönnum Al- þýðubandalagsins hér um. Steyttu menn ýmist hnefa eða gerðu hróp að ræðumönnum þegar þeir ítrek- uðu ágæti sitt og flokks síns. Einkum skorti nokkuð á að þing- flokksformaðurinn fengi gott hljóð er hann hvatti menn til að fylkja sér um Alþýðubandalagið, brjóstvörn launamanna. Ræðumenn lýstu því yfir að nú væri kreppa á flestum sviðum þjóðlífsins og það væri ríkis- stjórninni að þakka að ekki væri enn verr komið hag þjóðarinnar. Með hag launamanna fyrir brjósti hefði Alþýðubandalagið ýmsar skynsamlegar tillögur fram að færa. Allt að eitt hundrað manns gerðu stuttan stans á vegferð sinni um Lækjartorg til að hlýða á baráttu- og hvatningarorð for- ystumanna. Meðfylgjandi myndir tók Ólafur K. Magnússon, ljós- myndari Mbl. Ráðstefnugestum boð- ið norður í Jökulfirði RAGNAR Arnalds fjármálaráðherra talaði máli Alþýðubandalagsins á fundinum á Lækjartorgi og nokkrir fundarmanna, þar á meðal sá, sem á myndinni er, létu álit sitt á bráða- birgAaliigunum og vísitöluskcrAing- unni í Ijós með steyttum hnefa. ísafirdi, 27. ágúst. Ferðamálaráðstefnan, sem að þessu sinni er haldin á ísafirði, var sett kl. 10 í morgun af Heimi Hannessyni, formanni Ferðamála- ráðs. Heimir flutti síðan skýrslu Ferðamálaráðs fyrir síðastliðið ár. Kristján K. Jónasson, forseti bæjar- stjórnar ísafjarðar, flutti ávarp og bauð ráðstefnugestum til siglingar með m/b Fagranesi norður í Jökul- firði á kostnað bæjarsjóðs, en Krist- ján er jafnframt framkvæmdastjóri Útför Yvetta Beuhaud gerð á þriðjudag ÚTFÖR Yvette Beuhaud, frönsku stúlkunnar, sem lét lífið í harmleikn- um á Skeiðarársandi, var gerð sl. þriðjudag í heimabæ hennar René, rétt við Nantes. Systir hennar, Marie Luce, ligg- ur á háskólasjúkrahúsi í Nantes. Þar mun hún liggja í 7—10 daga, en fer síðan á endurhæfingar- miðstöð til að þjálfa upp vinstri fótinn sem lamaðist að nokkru vegna höfuðhöggsins, sem hún hlaut. Foreldrar stúlknanna hafa beð- ið um að fram kæmi þakklæti fyrir hjálpsemi, velvild og hlut- tekningu, sem þau hefðu orðið að- njótandi í stuttri dvöl sinni hér á landi. Mikill fjöldi íslendinga vottaði þeim samúð sína, m.a. for- seti íslands, Vigdís Finnbogadótt- ir, sem bauð fjölskyldunni á sinn fund. Hrunamannahreppur: Deilur um staðsetningu lím- trésverksmiðju á Flúðum Syðra-Langholti, 27. ágúst. IIREPFSNEFND Hrunamannahrepps hefur ákveðið að staðsetja límtrés- vcrksmiðju í Torfdal, á bakka Litlu Laxár, við Flúðir, þrátt fyrir mótmæli 95 íbúa hreppsins. Forsaga málsins er sú að undanfarið hefur stofnun lím- trésverksmiðju verið í undirbúningi í hrcppnum og er nú komin svo langt að vélar hafa verið keyptar og búið er að ráða byggingameistara til að reisa verksmiðjuhúsið. Hrunamanna-, Gnúpverja-, Skeiða- og Biskupstungnahreppar koma til með að eiga meirihlutann í væntanlegu hlutafélagi. Danskt fyrirtæki, Kaj Vilhelmsen að nafni, mun eiga um 15% og það sem eftir er hefur verið boðið aðilum innan- héraðs og utan til kaups. Það verk- smiðjuhús sem fyrirhugað er að reisa er 2.000 fermetrar að stærð. Reiknað er með að um 20 manns vinni í verksmiðjunni sem áætlað er að taki til starfa síðari hluta vetrar og framleiða mun burðarbita og sperrur úr límtré, um 800 rúmmetra á ári. Undirbúningsfélag verksmiðjunn- ar leitaði til hreppsnefndar Hruna- mannahrepps um verksmiðjulóð og ákvað hreppsnefndin að úthluta fé- laginu lóð við Flúðir, í svokölluðum Torfdal, á hringvelli hestamanna sem er á bakka Litlu-Laxár. Á laug- ardaginn var fyrsta skóflustungan tekin að verksmiðjuhúsinu með pompi og prakt og tilheyrandi veislukaffi. Á sunnudagskvöldið hafði hreppsnefndinni hinsvegar borist undirskriftalisti, sem 95 hreppsbúar höfðu skrifað sig á, þar sem þeim tilmælum var beint til hreppsnefndarinnar að hún sæi til þess að límtrésverksmiðjan yrði ekki byggð þar sem fyrirhugað væri. Sigurgeir Sigmundsson, kaup- maður á Flúðum, sagði í samtali við Mbl. að almenn óánægja væri í hreppnum vegna staðsetningar verksmiðjunnar og ástæður hennar væru að verksmiðja væri alveg við byggðina á Flúðum og klyfi hana í sundur að nokkru. Þarna við væru íbúðarhús, elliheimili og hótelrekst- ur og þetta svæði væri ákjósanlegt útivistarsvæði. Börnin lékju sér mikið þarna og hestamenn hefðu lagt í talsverðar framkvæmdir og komið sér upp ágætri aðstöðu. Sig- urgeir sagðist vilja að hreppsnefnd- in reyndi að finna aðra lóð undir verksmiðjuna, það væri alls ekki fullreynt enn, hvort aðrir möguleik- ar væru fyrir hendi, þó að Flug- málastjórn hefði af einhverjum ástæðum lagst á móti byggingu hennar á hentugum stað í landi Grafar í nágrenni flugvallarins. Staðsetning verksmiðjunnar stóð síðan í þófi þar til í gær (26/8) að hreppsnefndin gerði samhljóða samþykkt um að breyta ekki fyrri samþykkt sinni um staðsetningu verksmiðjunnar. Loftur Þorsteins- son oddviti sagði í samtali við Mbl. að hreppsnefndin teldi útilokað að finna annan stað sem hentað gæti. Ix)ftur sagði að hægt væri að laga svæðið fyrir hestamennina þannig að þeir gætu vel við unað og yrði það gert þeim að kostnaðarlausu. Hann sagðist vonast til að málinu væri nú lokið og að grafið yrði fyrir húsinu um helgina, þannig að hægt verði að byrja að slá upp fyrir grunninum á mánudag. Þegar endanleg ákvörðun hrepps- nefndarinnar var borin undir Sigur- geir Sigmundsson sagðist hann ekki reikna með frekari aðgerðum af hálfu þeirra sem stóðu fyrir undir- skriftalistanum, en hann sagðist harma það að hreppsnefndin skyldi ekki taka meira tiliit til óska tæp- lega 100 íbúa í ekki fjölmennara sveitarfélagi. Sig. Sigm. Fagranessins. Magnús Reynir Guð- mundsson bæjarritari á ísafirði flutti erindi um ferðamál á Vest- fjörðum. Þá var gert matarhlé til kl. 14 en þá áttu að hefjast hringborðs- umræður, en þegar ráðstefnu- fulltrúar komu úr mat hafði verið ákveðið að breyta dagskránni vegna slæmrar veðurspár og fara strax í siglinguna með Fagranes- inu norður í Jökulfirði. Ferðamálaráðstefnan hefst að nýju kl. 10 í fyrramálið með hringborðsumræðunum en verður slitið síðdegis á morgun. Ráð- stefnugestir, sem eru um 100 tals- ins, sitja að lokum kvöldverðarboð samgönguráðherra á morgun. — ÍJIfar. Örin á myndinni, sem er loftmynd af Flúðum, vísar á hringvöll hestamanna þar sem fyrirhugað er að byggja límtrésverk- smiðju, en ekki eru allir íbúar Hrunamannahrepps ánægðir með staðsetningu verksmiðjunnar þar. (Ljósm. Mbl. Sig.Sigm.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.