Morgunblaðið - 28.08.1982, Page 10

Morgunblaðið - 28.08.1982, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982 Siglufjörður Tekjur hafnar- innar lækkar niður í lA af því sem verið hefur — rætt viö Svein Björnsson formann hafnarnefndar Séð yfir SiglufjarAarhöfn. BúiA er aA rífa mikiA af undanfonim áratugum. Enn er þó mikiA eftir. trébryggunum sem einkennt hafa SiglufjörA svo mjög á | „DiAnuhresturinn kemur óhjá- kva-milega niAur á framkva-mdum viA hiifnina. Tekjur hafnarinnar voru á meAan loAnan veiddist um I milljón króna á ári, þar af voru 75% beint vegna loAnunnar, þannig aA tekjur hafnarinnar eru nú '/< af þvi sem veriA hefAi aA óbreyttu," sagAi Sveinn Kjörnsson, formaAur hafnar- nefndar á SiglufirAi, í samtali viA MorgunblaAiA nýlega. „Vegna mikilla tekna af loðn- unni var hægt að fara út í upp- hyggingu hafnarinnar en nú hæg- ist á og verður ekki hægt að fara út í neinar stórframkvæmdir vegna þess að við komum ekki til með að geta lagt fram okkar hluta af kostnaðinum. Hægist því á öll- um framkvæmdum. Brýnustu framkvæmdirnar eru að endurbyggja öldubrjótinn og halda áfram framkvæmdum inni í höfninni. Við verðum nú að velja um hvort verður tekið fyrir. Byrj- að er að rífa gömlu trébryggjurn- ar og þarf að halda því verki áfram, en ætlunin er að láta dokk- ina halda sér með trébryggjum. Vita- og hafnarmálastjórnin hefur ítrekað það, að allar hafnir verði að leggja sinn hluta fram á móti, annars verða þær hafnir sem það geta ekki settar aftur fyrir í framkvæmdum. Hafnar- sjóður hefur ekki fengist endur- reistur vegna fjárskorts bæjar- sjóðs og hafa tekjurnar af loðn- unni því ekki nýst eingöngu í höfnina heldur til alhliða upp- byggingar bæjarins. Það er ljóst að bæjarsjóður verður ekki aflögufær núna, því loðnubrestur- inn hefur áhrif á hann eins og all- an bæinn og mun því örugglega hægjast mjög á framkvæmdum við höfnina. Eftir þessi áföll verður að treysta á togarana og einnig á sildarsöltunina á haustin, sem nú er að hefjast," sagði Sveinn Björnsson að lokum. Sveinn Kjörnsson, formaður hafnarnefndar á SiglufirAi. Draga verAur mikiA úr framkvæmdum viA höfnina vegna loAnubrestsins. Krá SiglufjarAarhöfn, veriA aA gera klárt til veiAa. Loðnubresturinn hefur ekki síst gífurleg áhrif á fjárhag fjölda heimila - segir Björn Jónasson, efsti maður á lista sjálfstæðismanna „DiAnubresturinn hefur ekki síst gifurleg áhrif á fjárhag fjölda heim- ila. Þeir menn, sem við þetta hafa unniA á síAastliAnum árum, voru há- tekjumenn og það kemur sér illa núna þegar við búum í jafn skatt- píndu þjóðfélagi og raunin er og vinna mennirnir þvi tæplega fyrir sköttunum sínum í ár. í mínu starfi sé ég ekki að fólk sé að biðja um lán til framkvæmda eða fjárfestinga, heldur einfaldlega til að geta lifað,“ sagði Rjörn Jónasson, sparisjóðs- stjóri á Siglufirði, I samtali við MorgunblaðiA nýlega, þegar hann var spurður um áhrif loðnubrestsins á líf manna á SiglufirAi. Björn skip- aði efsta sætið á lista sjálfstæð- ismanna í bæjarstjómarkosningun- um á Siglufirði I vor. SjálfstæAis- menn lentu í minnihluta í bæjar- stjórninni, þrátt fyrir að þeir hafi tvöfaldað fulltrúatölu sína I bæjar- stjórn, eru með 4 bæjarfulltrúa af 9, í stað 2ja áður. Björn sagði einnig: „Loðnu- bresturinn hefur víðtæk áhrif á alla framþróun í bænum, til dæm- is stórminnka tekjur bæjarsjóðs og hafnarsjóðs og hefur það áhrif á framkvæmdir, til dæmis má nefna lagningu varanlegs slitlags á götur bæjarins, sem allir, sem hingað koma, sjá að ekki má stöðvast.“ — Hvernig er atvinnuástandið? „Atvinnuleysi er ekki og hefur ekki verið hér fram til þessa, nema eitthvað hjá kvenfólki vegna stöðvunar Sigló-verksmiðjunnar, en menn hafa aftur á móti áhyggj- ur af atvinnumálunum næsta vet- ur. Þar kemur til, að við misstum togara sem seldur var í burtu, það þoldum við ekki. Þessi bær byggir allt á sjónum, einfaldlega vegna landfræðilegrar legu sinnar. Þjón- usta verður aldrei neinn atvinnu- vegur að ráði hér. Þessvegna máttum við alls ekki við því að missa skuttogarann. Það er mjög jákvætt að í haust verður byrjað á að salta hér síld á nýjan leik. Það hefur farið í skap- ið á mönnum hér í síldarbænum Siglufirði, að síldin, sem veiðst hefur hér undan, virðist vera sölt- uð allsstaðar annarsstaðar. Annars höfum við nú um þessar mundir mestar áhyggjur af störf- um stjórnarskrárnefndar, ef ætl- unin er að fækka þingmönnum landsbyggðarinnar," sagði Björn Jónasson að lokum. „Frekar ætti að greiða mönnum staðaruppbót fyrir að halda þessum stöðum í byggð. Einnig held ég að þjóðin hafi ekki næga trú á þingmönnun- um, til að grundvöllur sé til að fjölga þeim.“ Björn Jónasson, sparisjóðsstjóri á Siglufirði, sem skipaði efsta sætið á lista sjálfstæðismanna í bæjarstjórn- arkosningunum I vor. Sjálfstæðis- menn unnu tvo menn I kosningun- um en lentu samt í minnihluta í bæj- arstjórninni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.