Morgunblaðið - 28.08.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIEV LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
Pólverjar
biðja hælis
Osló, 27. ágúst. Al'.
TVKIR l’ólverjar eru nú komnir til
Osló og hafa beðió þar um pólitískt
ha’li eftir aó hafa fvrr í þessum mán-
uói flúió frá hópi pólskra vísinda-
manna í Spitsborgen á Svalbaróa,
samkvæmt upplýsingum frá tals-
manni útlendingaeftirlitsins þar i
landi.
Umsóknir þeirra verða með-
höndlaðar á sama hátt og aðrar er
borist hafa um sama efni, en þeir
munu hafa notið tækifærið og flú-
ið er þyrla sem er í eigu hins
norska yfirmanns á Svalbarða var
í eftirlitsferð á vísindasvæðinu.
Miklar rannsóknir eru að jafn-
aði stundaðar á eyjunni og eru þar
í sumar 72 norskir vísindamenn,
ásamt fjölda erlendra starfs-
bræðra þeirra.
Sendiráðsfull-
trúi myrt-
ur í Ottawa
(Mlawa, Kanada, 27. á(fúst. Al'.
IIKRNAÐAKFULLTRÚI vió tyrkn
eska sendiráóió í Ottawa, Atilla Alti-
kat, lét í morgun lifió er hann varð
fyrir kúlnahríó manns, sem beið eft-
ir honum vió gatnamót í vesturhluta
borgarinnar.
Bifreið hans, splunkunýr
Oldsmobile Cutlass, var eins og
gatasía öðrum megin. Fundust 13
kúlnagöt í bílnum og jafnmargar
tómar patrónur við tré skammt
frá. Morðinginn komst undan, en
ekki er vitað hvort hann flýði í
bifreið eða á tveimur jafnfljótum.
Forsetakjörinu fagnað
Kristnir varólióar í Beirút draga tappa úr kampavinsflösku til aó fagna
kjöri Bashir Gemayel, sem forseta lábanon.
Bók Hitlers veldur
úlfaþyt í Bæjaralandi
Miinchen, 27. ágúst. AP.
RÁÐAMENN í Bæjaralandi gerðu í
dag ráóstafanir til aó stöóva sölu á
bók Adolf Hitlers, „Mein Kampf"
eóa „Barátta mín“ eins og hún hefur
verið þýdd á íslensku. Ilefur bókin
fengist í llollandi og Belgíu aó und-
anförnu.
Fjármálaráðuneyti Bæjara-
lands á einkarétt á útgáfu bókar-
innar. Hálft sjötta þúsund eintaka
hefur verið gefið út á hollensku í
Belgíu og hafa bækurnar sést í
verslunum í Múnchen. Var þýska
utanrikisráðuneytið í Bonn beðið
að hafa samband við yfirvöld í
Brússel til að koma í veg fyrir
frekari prentun á bókinni.
Svipuð dæmi hafa áður komið
upp í öðrum Evrópulöndum og
hefur prentun þá verið stöðvuð.
„Barátta mín“ er bönnuð í Vest-
ur-Þýskalandi, en hvorki í Hol-
landi né Belgíu.
Verðbólga á síðasta ári:
Mest í Argentínu
Minnst í Japan
Genf, 27. ágúst. AP.
VKRDBOLGA í Argentínu náói
131,3 af hundraði á síðasta ári og
mun Argentína því hafa þann
vafasama heiður að vera með
hæstu verðbólgu í heiminum, sam-
kvæmt skýrslum frá Alþjóða
vinnumálastofnuninni sem birt
var í dag.
Hvað varðar minnstu verð-
bólgu er Japan í því sæti með 4,7
af hundraði, en hún mun hvergi
vera minni í heiminum sam-
kvæmt þessum skýrslum, en
Panama fylgir þar fast á eftir
mð 4,8 af hundraði.
Þau lönd sem fylgja Argent-
ínu fast á eftir í efri mörkunum
eru Israel með 101,5 af hundr-
aði, Perú með 72,6 af hundraði,
Costa Rica með 65,1 af hundraði,
Júgóslavía með 35,7 af hundraði
og Mexíkó með 28,5 af hundraði
verðbólgu.
Verðbólga í Bandaríkjunum á
síðasta ári var 8,7 af hundraði.
THE OBSERVER
Ungverskir andófsmenn líta
á Pólverja sem fyrirmynd
Réttur í Búdapest kvaó nýlega
upp 20 daga fangelsisdóm yfir
Gabor Demszky, útgefanda ólög-
legra rita. Þykir dómur þessi sýna,
aó stjórnvöld i l'ngverjalandi hafi
vaxandi áhyggjur af starfsemi and-
ófsmanna.
Á síðustu tveimur áratugum
hafa mál þróast í Ungverjalandi
með dálítió öórum hætti en í öðr-
um ríkjum Austur-Evrópu. Tékkar
og l’óiverjar hafa gert tilraunir
meó nýjar leióir í kommúnisma, en
svo sem kunnugt er, fengu þeir
ekki tóm til að þrautreyna þær. Á
hinn bóginn hefur stefna llngverja
borió miklu minni keim af þeim
járnaga, sem stjórnarhættir í
grannríkjunum hafa einkennzt af.
Ungverjar hafa smám saman þró-
aó sérstaka efnahagsmálastefnu.
Kjölmiólar í landinu hafa greini-
lega meira frjálsræði en annars
staóar í Austur-Evrópu, þótt þeir
væru mjög haróoróir, mcðan til-
raunir voru geróar með stjórnar-
farslegar umhætur í Tékkóslóv-
akíu og Póllandi. Þá hafa Ungverj-
ar nokkuó góóa möguleika á aó
feröast til Vesturlanda.
Lengi vel létu ungverskir and-
ófsmenn lítt á sér kræla og komu
saman á einkaheimilum eða
störfuðu í fámennum hópum. Nú
hafa þeir greinilega sameinað
kraftana, þannig að fram er
komin óvefengjanleg andófs-
hreyfing. Þessi hreyfing hefur
stöðugt meira látið til sín taka,
eftir að herlög voru sett í Pól-
landi í desember á síðasta ári.
Gabor Demszky, maðurinn
sem nýlega var dæmdur í fang-
elsi fyrir ólöglega útgáfustarf-
semi, er einn virkasti félaginn í
hreyfingu þessari. Hann var fé-
lagi í SZETA, en það eru óopin-
ber samtök til styrktar fátæk-
um, og hafa þau safnað saman
fjárframlögum handa fátæku
fólki.
Það er dálítill tvískinnungur í
því, að blaðamönnum og
menntamönnum skuli vera leyft
að fjalla opinberlega um fátækt í
landinu, en hins vegar sé það ill-
þolandi að samtök á borð við
SZETA séu starfrækt. Eigi að
síður er þetta nokkuð dæmigert
fyrir ástandið í Ungverjalandi.
Yfirvöld hafa á margan hátt
reynt að leggja stein í götu
SZETA, og þau litu mjög óhýru
auga það frumkvæði, er
Demszky sýndi sl. ár, er hann
útvegaði fé til að greiða fyrir
orlofsdvöl fátækra pólskra
barna í Ungverjalandi. Skipu-
lagning þessarar starfsemi var í
samvinnu við Samstöðu í Pól-
landi. I byrjun þessa árs stofnaði
Demszky fyrirtækið AB, þ.e.
óháðir útgefendur. Hafði hann
þar til hliðsjónar pólska útgáfu-
fyrirtækið NOWA. Á meðal þess
fyrsta, sem fyrirtækið sendi frá
sér, voru rit um ritskoðun og
mannréttindi í Ungverjalandi.
í nýútkomnu hefti af Labour
Focus on Eastern Europe er
skýrt frá starfsemi ungversku
andófshreyfingarinnar í smáat-
riðum. Athyglisvert er, hversu
djúptæk áhrif atburðirnir í Pól-
landi og Tékkóslóvakíu hafa haft
á starfsemi hennar. Ýmsar leið-
arstjörnur ungversku hreyf-
ingarinnar voru í tengslum við
pólska andófshópa á síðasta ára-
tug og höfðu báðir aðilar svipað-
ar hugmyndir um „endurbætur á
sósíalisma". Ungversku andófs-
mennirnir fengu Pólverja til að
birta ýmsar greinar í ritum sín-
um.
Þegar kveðnir voru upp þungir
fangelsisdómar yfir 5 tékknesk-
um andófsmönnum árið 1979,
skrifuðu 252 ungverskir mennta-
menn undir bréf til leiðtoga
ríkisins og Kommúnistaflokks-
ins, þar sem farið var fram á, að
þeir beittu áhrifum sínum gegn
dómunum. Andófsmenn í Ung-
verjalandi urðu að sjálfsögðu
yfir sig hrifnir af stofnun Sam-
stöðu í Póllandi. Margir þeirra
sóttu samstöðumenn heim, á
meðan hagur þeirra stóð með
mestum blóma.
Ungverskir andófsmenn gefa
út nokkur óopinber blöð um
þessar mundir. Þeir efna jafnvei
til háskólafyrirlestra á svipaðn
hátt og andófsmenn í Pólland'
gerðu. í Búdapest er jafnve
bókaverzlun, sem selur rit and
ófsmanna. Hún er á vegun
Laszlo Rajk, en faðir hans va
einn þeirra fyrstu, er létu lífið
hreinsunum Stalíns í landinu á
sínum tíma.
Stjórnvöld í Ungverjalandi
hafa reynt að beita andófsmenn
ýmsum ráðum án þess að grípa
til valdboðs og harkalegra að-
gerða. Þeim hefur þó ekki tekizt
að stemma stigu fyrir starfsemi
þeirra, og víða ólgar undir niðri.
Til skamms tíma voru með vit-
und og vilja stjórnvalda starf-
rækt samtök ungra rithöfunda,
þar sem ungir og reiðir menn
gátu látið að sér kveða. En starf-
semi samtakanna fór fljótt úr
böndunum, og á síðasta ári var
fyrirskipað að þau skyldu lögð
niður.
Árið 1975 hófst í tilraunaskyni
útgáfa tímaritsins Mozgo Vilag.
m
Gabor Demszky
Það hlaut viðurkenningu opin-
berra aðila, þótt þar birtust
stundum svæsnar ádeilugreinar.
Ritstjórar tímaritsins hafa orðið
fyrir ýmsu aðkasti, en þó lifir
það enn góðu lífi. I framhalds-
skólum og háskólum hafa verið
stofnaðir sérstakir Mozgo Vil-
ag-hópar og efnt hefur verið til
málfunda á vegum þeirra, þar
sem ýmis mergjuð skeyti hafa
flogið.
Stjórnvöld í Ungverjalandi
hafa á margan hátt sýnt sveigj-
anleika og umburðarlyndi,
a.m.k. miðað við stjórnvöld
grannríkjanna. Þó standa þar
ýmsar kenningar óhaggaðar, t.d.
krafa flokksins um óskorað vald.
Það eru slík atriði, sem and-
ófsmenn berjast gegn eftir
mætti.
Nýjasta tölublað andófsblaðs-
ins Beszelo, sem nýlega hefur
hafið göngu sína, ber þess nokk-
ur merki, hvert ungverskir and-
ófsmenn ætla að stefna. Blaðið
gerir grein fyrir vandkvæðum
friðsamra kaþólskra presta, sem
hafa skotið yfirvöldum kirkj-
unnar skelk í bringu. Blaðið
greinir einnig frá tilraunum sem
gerðar hafa verið til að breyta
stefnu Mozgo Vilag, en framá-
menn Kommúnistaflokksins í
menningarmálum hafa reynt að
hafa þar hönd í bagga, þótt þeir
hafi farið að öllu með gát. Blaðið
gagnrýnir fjölmiðla á Vestur-
löndum fyrir að gefa ranga
mynd af lífinu í Ungverjalandi,
og koma því inn hjá almenningi,
að þar sé þægilegt að búa, þrátt
fyrir kommúnismann. Vestrænir
blaðamenn eru gagnrýndir fyrir
að leiða það hjá sér, hversu mjög
flokkurinn hlutast til um al-
menn málefni.
Að lokum er skoðað ástandið í
Austur-Evrópu eftir setningu
herlaga í Póllandi. Þar segir, að
tilraunirnar í Póllandi hafi verið
mjög mikilvægar fyrir Austur-
Evrópu í heild. „I næsta ná-
grenni við okkur var að mótast
nýtt skipulag," segir orðrétt í
blaðinu. Samkvæmt þessari nýju
skipan hafi flokkurinn sætt sig
við vissar takmarkanir á „for-
ystuhlutverki sínu“, en samfé-
lagið hafi viðurkennt „forystu-
hlutverk flokksins" og því gert
sér þá staðreynd ljósa, að vonir
þeirra um umbætur væru tak-
mörkunum háðar.
En nú er fokið í flest skjól í
Austur-Evrópu. Ungverskir and-
ófsmenn hafi komizt að raun
um, að þeir standa ábyrgir fyrir
því, að umræða um pólitískar
umbætur á þessum slóðum haldi
áfram, en falli ekki í gleymsku
og dá.