Morgunblaðið - 28.08.1982, Síða 19

Morgunblaðið - 28.08.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGIAR ?8. ÁGÚST 1982 19 Róa eftir eigum sínum Með spjöld fyrir árar reyndu þessir menn að bjarga þvi sem bjargað varð eftir að stífla hafði brostið í Stockton í Kaliforniu, og 6200 ekrur af korni höfðu farið undir vatn. Sex manns var bjargað naumlega af nálægum húsþökum, er dalur þessi lagðist undir vatn á mánudag síðastliðinn. N-frland: Sprengjum kastað að heimili Hume líftfast, N-írlandi. 27. átfúat. Al*. RKIÐUR almúgi henti í nótt bens- ínsprengjum og steinum að heimili John llume, leiðtoga hins kaþólska Verkamannaflokks á N-írlandi, samkvæmt heimildum lögreglunnar í dag. Lögreglan í Belfast sagði að bæði bíll og hús Hume hafi hlotið tölu- verðar skemmdir og einnig var ráð- ist að lögreglubifreið er var í eftir- litsferð um hverfíð og hún skemmd að cinhverju leyti. 37 ára gamall maður var einnig drepinn árla í morgun er hann varð fyrir sprengju í bifreið sinni í þorpinu Millford sem staðsett er um 56 kílómetra suð-vestur af Belfast. Lögreglan segist hafa þá trú að bílasprengjan sé verk írska lýð- veldishersins, IRA. Arásin á heimili Hume í nótt átti sér stað áður en sólarhringur var liðinn frá því að hann til- kynnti að Verkamannaflokkurinn myndi taka þátt í kosningum til n-írska þingsins, en ekki koma til með að sitja þar nái þeir einhverj- um sætum. James Prior, breski ráðherrann sem sér um málefni N-írlands, Ráðherrann James Prior. ákvað á fimmtudag að efna til kosninga þrátt fyrir mikla and- stöðu kaþólska minnihlutans við þær, en Hume hefur sagt að ráða- gerð Prior, þess eðlis að gefa hinu 78-sæta þingi smám saman meiri völd, sé „óvinnandi og ekki sé hægt að ganga að henni". Flugránið á miðvikudag: Flugræningjarnir eru meðlimir í Samstöðu Miinchen, V l'ýskalandi, 27. ágÚNt. Al'. PÓLVERJARNIR tveir, sem rændu farþegaflugvél í Ungverjalandi og neyddu hana til að snúa til Miinchen fyrr i þessari viku, voru meðlimir í samtökum óháðu verkalýðsfélag- anna Samstöðu í Póllandi og segjast hafa tekið á þetta ráð vegna ótta við kúgun í hcimalandi sínu, samkvæmt hcimildum yfirvalda i dag. Þeir hafa verið ákærðir fyrir að stofna flugumferð í mikla hættu, en þeir segjast hafa undirbúið flugránið mjög gaumgæfilega, að því er saksóknarinn segir eftir yf- irheyrslur með þeim. Mennirnir tveir, sem eru 25 og 27 ára að aldri, segjast hafa farið fyrst í sumarleyfi til Ungverja- lands og notað það sem einhvers konar „stökkpall" til vesturs. Mál þetta er nú fyrir rétti í Múnchen, en samkvæmt vestur- þýskum lögum geta þeir átt von á fangelsisvist er varðar allt frá einu ári og upp í fimm eftir því hversu alvarlegum augum réttur- inn lítur á brot þeirra varðandi almenn flugumferðarlög. Vélin lenti í Múnchen með Pól- verjana tvo um borð ásamt 72 far- þegum og átta manna áhöfn á miðvikudag og sneri til baka eftir fjögurra tíma stopp, en sprengjan sem félagarnir hótuðu að beita ef ekki yrði farið að kröfum þeirra reyndist síðar ekki vera annað en kerti og vírar. Danir og V-Þjóðverjar karpa um þorskveiðikvóta við Grænland Frá Lím Tinn, frúUaritara Mbl. í Kaupmannahófn, 27. áj(ú.st. FISKVEIÐIDEILUNNI á milli Dana og V-Þjóðverja, sem farið hefur stigvax andi á undanförnum vikum, hefur nú verið ýtt til hliðar um stundarsakir. Framkvæmdanefnd Efnahags- bandalags Evrópu, sem nú er und- ir danskri formennsku, hefur bannað allar þorskveiðar V-Þjóð- verja við Grænlandsstrendur a.m.k. til 8. september en þá kem- ur hún aftur saman til fundar. Veður víða um heim Akureyrí 4 hálfskýjað Amsterdam 17 skýjaó Aþena 30 heiðskírt Barcelona 27 skýjað Berlin 22 skýjað Briissel 19 heiðskírt Chicago 25 rigning Dyflinni 16 skýjað Feneyjar 26 léttskýjað Frankfurt 25 heiðskírt Genl 27 skýjað Helsinki 17 skýjað Hong Kong 32 heiðskírt Jerúsalem 26 heiðskírt Jóhannesarborg 21 heiðskírt Kairó 34 heiðskírt K aupmannahöf n 18 rigning Las Palmas 25 skýjað Lissabon 25 heiðskirt London 19 skýjað Los Angeles 31 heiðskirt Madrid 31 skýjað Malaga 29 iéttskýjað Mallorca 28 skýjað Mexíkóborg 27 heiðskírt Miami 31 skýjað Moskva 19 skýjað Nýja Delhí 34 skýjað New York 29 rigning Osló 17 rigning París 21 skýjað Perth 21 heióskírt Rio de Janeiro 34 heiðskirt Reykjavik 7 léttskýjað Rómaborg 30 heiðskírt San Francisco 18 skýjað Stokkhólmur 19 rigning Sydney 23 heiðskírt Tel Aviv 29 heiðskírt Tókýó 31 skýjað Vancouver 21 skýjaö Vinarborg 26 heiðskírt Þórshöfn 9 alskýjaö Áður en bann nefndarinnar kom til hafði danska ríkisstjórnin sent v-þýskum yfirvöldum harðorð mótmæli vegna einhliða ákvörð- unar þeirra um að leyfa þorskveið- ar þýskra togara við Grænland á ný. Þýsk skip hættu þorskveiðum á þessum slóðum fyrir fjórum ár- um þegar sýnt þótti með rann- sóknum að stofninn væri í mikilli hættu. I júní á þessu ári lagði fram-) kvæmdanefnd EBE til nýjan veiðikvóta, sem hljóðaði upp á að veiða mætti þorsk við Vestur- Grænland. Landsstjórnin á Græn- landi taldi hins vegar ekki óhætt að veiða meira en 62.000 tonn á þessu ári. Gengið var til atkvæða um kvótaskiptinguna í ráðherra- nefnd EBE þann 21. júlí, en ekki varð komist að samkomulagi. Um miðjan ágúst tilkynnti þýska stjórnin, að hún gæti ekki lengur beðið eftir samkomulagi og leyfði skipum sínum að hefja veiðar við Grænland. Sú taia er hin sama og Græn- lendingum var úthlutað þegar nýju veiðikvótar EBE voru lagðir í sumarveiðikvóta Grænlendinga. Grænlendingar eru meðlimir í EBE þar 1. janúar 1984. Græn- lendingar njóta nokkurrar sér- stöðu innan Efnahagsbandalags- ins. Þegar veiðikvótum var úthlut- að var einmitt sérstaklega tekið tillit til þess að Grænlendingar byggja afkomu sína að mestu á fiskveiðum. Sú regla gildir innan EBE, að hvert einstakt land má hefja veið- ar strax og viðræður hefjast um veiðikvóta hvers lands. Þegar svo samkomulag hefur náðst um end- anlega kvótaskiptingu er ailur afli, sem þegar hefur verið veidd- ur, dreginn frá leyfilegu afla- magni viðkomandi þjóðar. V-Þjóð- verjum var úthlutað 10.000 tonn- um. Grænlendingar hafa til þessa veitt um 50.000 tonn af þorski ár- lega. Flóttamanna- straumur aldrei meiri frá Mexíkó Kl 1’a.so, Handaríkjunum. 27. ágú.st. Al*. LANDAMÆRAVERÐIR til- kynntu í dag, að flóttamanna- straumurinn frá Mexíkó hafi aldr- ei verið meiri en síðustu daga. Segjast þeir hafa náð allt upp í 1.200 manns, sem reynt hafa að komast ólöglega yfir landamærin, á einum degi. Efnahagsástandið í ERLENT Mexíkó er mjög bágborið um þess- ar mundir. Gengi pesoans var fellt um nánast helming í byrjun mán- aðarins. Að sögn yfirlandamæravarðar- ins í E1 Paso hafa þegar verið gripnir fleiri ólöglegir innflytj- endur það sem af er ágústmánuði, en allan sama mánuð í fyrra. „Metveiði" var hjá vörðunum á þriðjudag er þeir gómuðu 1.205 ólöglega innflytjendur. Nú stend- ur yfir aðaluppskerutíminn í Tex- as. Er það talið auka innflytjenda- strauminn því margir innflytjend- anna hafa vafalítið hugsað sér gott til glóðarinnar með vinnu á stórbýlunum. Glæsilegt úrval af vönduðum leðursófasettum K M- húsgögn, Langholtsvegi 111, 1 A ít sími 37010 og 37144. V>fUlU -Ö

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.