Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 27
Fundur til
að mótmæla
kjaraskerð-
ingunni
FUNDUK til að mótmæla þeirri
„stórfelldu kjaraskerðingu, sem
borgarastétt landsins dembir yfir
verkafólk þessa dagana“, eins og
það er orðað í fréttatilkynningu frá
„frumkvæðishópi“ fundarins, verður
haldinn miðvikudaginn 1. september
næstkomandi að Hótel Borg klukk-
an 20.30.
I fréttatilkynningunni er til-
greindur tilgangur fundarins í 5
liðum og er sá hinn fyrsti þegar
upp talinn. Fundurinn er einnig til
þess að mótmæla því, að efna-
hagsvandinn sé til orðinn vegna
eyðslu verkafólks á fjármálum
þjóðarinnar, eins og látið er í veðri
vaka — segir í fréttatilkynning-
unni. Þá segir ennfremur að til-
gangurinn sé að benda á þá stað-
reynd, að „verkafólk ber enga
ábyrgð á kreppu auðvaldsins". Þá
á að „afhjúpa núverandi verka-
lýðsforystu, sem stéttarsamvinnu-
menn og svik þeirra við hagsmuni
verkalýðsstéttarinnar og sameina
verkafólk undir merkjum baráttu
þess gegn árásum auðvaldsins á
kjör þeira.
í lok fréttatilkynningarinnar
segir að kjörorð fundarins sé:
„Látum auðvaldið borga kreppuna
og byggjum hreyfingu gegn kjara-
skerðingu". Undir fréttatilkynn-
inguna eru rituð þessi nöfn: Gunn-
ar Gunnarsson, Dagsbrún, Anna
Ingólfsdóttir, VR, Þorvaldur Þor-
valdsson, TR, Þröstur Jensson,
Iðju, Birgir Ævarsson, INSÍ, Mar-
grét Þorvaldsdóttir, Sókn, Jón Á.
Gunnlaugsson, Dagsbrún, og Ásta
Jónsdóttir, VR.
Hjálmar með sýn-
ingu í Skálholti
Hjálmar Þorsteinsson, list-
málari, opnaði sl. föstudag
málverkasýningu í Skálholti.
Á sýningunni, sem er sölusýn-
ing, eru 15 olíumálverk og 25
vatnslitamyndir. Sýningin er
opin daglega fram til 2. sept-
ember nk.
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÓTA HF
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982
27
Úrslitin ráðast í
síðustu umferðinni
ÚKSLITIN á millisvæðamótinu í
Toluca í Mexíkó ráðast ekki fyrr
en í síðustu umferðinni sem tefld
verður í dag, laugardag, því enn
eiga fimm skákmenn möguleika á
því að lenda í tveimur efstu sætun-
um og komast þar með áfram í
áskorendakcppnina. Að fjórum
biðskákum óloknum fyrir siðustu
umferðina er Eugenio Torre frá
Filippseyjum enn efstur með Th
vinning og biðskák, en jafn honum
að vinningum er Boris Spassky,
sem hefur tekið stórt stökk fram á
við upp á siðkastið. Þeir Lev Pol-
ugajevsky, Sovétríkjunum, og
Yasser Seirawan, Bandaríkjunum,
hafa báðir hlotið 7 vinninga, en
með 6'A vinning er Lajos Portisch,
llngverjalandi. llngverjinn stendur
þó sennilega best að vigi þvi hann
á tvær biðskákir sem hann gæti
unnið.
í biðskákinni við Kússann Juri
Balashov úr 12. umferð hafði Port-
isch peð yfir og betri stöðu, en
biðskákin mikilvæga við Torre úr
11. umferð lítur þannig út.
Svart: Torre
Hvítt: Portisch
Sem sjá má hefur hvítur
tveimur peðum meira, en það er
þó hægara sagt en gert að nýta
yfirburðina til vinnings. T.d. 1.
Kf7 - Rh6+, 2. Kf8 - Kb6, 3.
g8D — Rxg8, 4. Kxg8 — alD, 5.
Rxal — Kc5 og svartur heldur
jafntefli. Þessi skák gæti hæg-
lega ráðið úrslitum á mótinu, en
það er hins vegar ljóst hvernig
sem allt veltur að enginn þátt-
takenda verður öruggur fyrir
síðustu umferð. í henni mætir
Spassky Ivanov, Seirawan Hul-
ak, Torre Nunn og síðast en ekki
sízt hefur Polugajevsky hvítt
gegn Portisch. í því sambandi
skal rifjað upp að á millisvæða-
mótinu í Petropolis árið 1973
mættust þeir Polugajevsky og
Portisch einnig í síðustu umferð
og einnig þá varð hinn fyrr-
nefndi að vinna til að komast
áfram. Það tókst honum í eftir-
minnilegri skák og spurningin er
því auðvitað: Endurtekur sagan
sig?
Hvitt: Adorjan
Svart: Spassky
1. c4 — b6!?
Enskir meistarar með Anth-
ony Miles í fararbroddi hafa
mikið notað þessa óvenjulegu
byrjun, en upp á síðkastið hefur
hún þó verið fremur fáséð.
Skák
Margeir Pétursson
2. d4 - Bb7, 3. Rc3 — e6, 4. e4 —
Bb4, 5. Bd3 - f5, 6. Dh5+ — g6,
7. De2 — Rf6, 8. R - Rc6, 9. e5?
Gróf yfirsjón. Nauðsynlegt er
9. Be3.
9. — Kxd4! 10. Df2
Nú standa báðir svörtu riddar-
arnir í uppnámi, en ...
10. — Rh5! 11. Dxd4?
Hvítur var að vísu fallinn á
eigin bragði, en það var þó óþarfi
að tapa drottningunni.
11. — Bc5, 12. Dxc5
Hvíta drottningin var fönguð.
12. — bxc5, 13. Be3 — Dh4+, 14.
g3 — Kxg3, 15. Bf2 — f4, 16. Be4
— 0-0-0, 17. 0-0-0 — Re2+, 18.
Rgxe2 - Dxf2, 19. Hhfl - De3+,
20. Hd2 — d5, 21. Rdl — Dxd2+,
22. Kxd2 — dxe4+, 23. Kc2 — g5
og nú loksins játaði Adorjan sig
sigraðan.
Artur Jusupov, 22ja ára gam-
all stórmeistari frá Sovétríkjun-
um, lagði sjálfan Portisch að
velli í tíundu umferðinni og I
hafði því tvöfalda ástæðu til að
líta björtum augum á viðureign
sína við Adorjan í elleftu um-
ferðinni. En Ungverjinn var nú
óþekkjanlegur eftir tapið fyrir
Spassky deginum áður og eftir
að Jusupov hafði haft rýmra tafl
lengst af brugðust taugar hans í
lokin. Þar með hafa allir kepp-
endurnir í Toluca tapað skák,
það hefur svo sannarlega færst
líf í tuskurnar eftir fremur
daufa byrjun.
Ilvítt: Jusupov
Svart: Adorjan
Drottningarindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6, 4. a.3
Þessi hógværi leikur Petrosj-
ans hefur notið gífurlegra vin-
sælda á undanförnum árum, eins
og Drottningarindverska vörnin
sjálf reyndar líka.
4. — Bb7, 5. Rc3 — d5, 6. cxd5 —
Kxd5
Leiðir til opnari baráttu en 6.
— exd5. Hvítur fær nú peða-
miðborð, sem hefur ýmist reynst
vera veikleiki eða styrkleiki.
7. e3 — Rd7
Algengara er 7. — Be7, en
skákin beinist þó fljótlega inn á
þekkta farvegi.
8. Bd.3 — c5, 9. e4 — Rxc3, 10.
bxc3 — Be7, 11. De2 — a6
Svartur undirbýr þegar mót-
spil á drottningarvæng. Eftir 11.
— 0-0, 12. 0-0 - Hc8, 13. Bb2 er
staða hans mjög óvirk.
12. 0-0 — 0-0, 13. a4 — cxd4, 14.
cxd4 — Rb8!
Eina von svarts um mótspil
felst í því að koma þessum ridd-
ara til b4.
15. Hdl — Rc6, 16. Hbl
Hvassari skákmenn hefðu
leikið 16. d5 — exd5, 17. exd5 —
Rb4, 18. Bc4, því d-peðið er frið-
helgt.
16. — Rb4, 17. Ba3 — a5, 18. Bb5
— Hc8, 19. Re5 — Hc2, 20. Df3 —
I)c7, 21. Hbcl — Bd6, 22. Bd3 —
Hxcl, 23. Hxcl — Dd8!
Þó liðsskipan hvíts sé góð eru
miðborðspeð hans veik. Hann
tekur því af skarið og stofnar til
uppskipta.
24. Bxb4 — axb4, 25. Rc6 — Bxc6,
26. Hxc6 — Be7!
Svartur hefur nú fyllilega
jafnað taflið.
Tekst l’olugajevsky aó endurtaka
söguna frá Petropolis 1973, leggja
Portisch að velli i síðustu umferð
og komast áfram í áskorenda-
keppnina.
27. d5? — Bc5!, 28. Bc4 — Dg5,
29. Ildl
Ekki 29. dxe6? - Dcl+, 30. Bfl
- Bxf2+ og 29. g3? - Dcl+, 30.
Bfl — Dc2! var einnig varhuga-
vert.
29. — Df6
30. d6??
Hvítur var búinn að missa
þráðinn, en þetta er bjartsýnis-
legra en góðu hófi gegnir. Eftir
30. Dc2 hefur hann enn jafntefl-
ismöguleika.
30. — Dxf2+, 31. Khl — Hd8, 32.
h3
32. d7 er svarað með 32. —
Hxd7!, 33. Hc8+ — Bf8 o.s.frv.
32. — h6, 33. Bb3 — Dg3 og hvít-
ur gafst upp. Umskiptin í þessari
skák urðu afar snögg og það er
greinilega eins gott að hafa
taugarnar í lagi þegar menn
taka þátt í heimsmeistarakeppn-
inni í skák.
TlT- IU 1 1 3 9 5 (o 7 8 9 10 11 12 /3 /9
\ &EIRAWAN (Öandankjunuir^ SM É 1 \ 1 O % Vz /z 0 i 0 \ /z
1 KOUfíTLY (L'ibamn) fíM o V/Á ///, 'k O o \ o o o o o 0 o
3 P0RT/SCH CUnqverjaland'i) SM 0 'lz\ % 1 \ i i 0 \ Vz /z
4 RV0RJAN (UngverjJandi) SM o 1 O íz 7z O 1 /z /z 1 \ Vz.
5 M9A/A/ (Englancli) SM \ 1 o '/z m /z 'íz /z /z /z ’/z /z
6 Rt/BINC T Tl&rqentlnu) EM 7z o o 'lz 'k É o 'Vz 0 /z /z Vz Zz
7 SPASSKY (Sovéinkjunurm) SM '/t. 1 o i 7z 1 'Vz /z 'fz Vz /z \
S JUSUPOV (Sovétnkjununn) SM 'fz 1 1 o 7z 'Vz 1 /z /z Vz /z 'íz Vz
9 TORRE (jFilipps eyju/rn) SM 1 1 Vz /z Vz Tz /z \ 1 i o
10 bPLRSHOVfSovéirik,) SM 0 1 /4 i /z /z /z vK, 'íz /z o /z
11 POL UGR TE VSK Y(So vétfi SM 1 1 'L 7z /4 Vz /z 0 54 f /z 'íz
ii R0DRÍ&UEZ (Káku) S M o 0 O Vz Vz Vz Vz o /z 0 V// \
Tb HULAK (Tú.gos/avju) SM \ /z o /z Vz o /z o \ /z
/9 I/fiNOV (Kamda) fW\ 'h \ 4 4 7z Vz Vz 7 Vz Zz 0 y/7/
HUSGAGNA
SVIMIISIG
SKEIFUNIMAR
SMIOJUVEGI6
Sýnum næstu daga húsgögn sem voru á
„Scandinavian Furniture Fair“ í „Bella Center“
í Kaupmannahöfn s.l. vor.
Laugardag 9-18 Sunnudag 14-18 Virka daga 9-18
Komið og kynnist því nýjasta í húsgögnum, sem
öll eru á kynningarverði:
Þyggið ekta RÍÓ-kaffi meö^in þið skoðið ykkur um.
Skei&n.
™ Simi44544
Verið velkomin.