Morgunblaðið - 28.08.1982, Page 39

Morgunblaðið - 28.08.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982 39 Enska deildarkeppnin hefst í dag: Tekst Liverpool að verja titilinn? í dag hefst enska deildarkeppnin i knattspyrnu enn eina feröina og ef- laust margir farnir aö hlakka til aö sjá hvernig „sínum mönnum“ muni ganga. Heil umferö er að sjálfsögðu i deildunum fjórum, og mikið af stórlcikjum. Mikið hefur verið rætt og ritað um liðin í Englandi að undanförnu, og reynt að finna út hvert þeirra sé sterkast. Telja flestir að baráttan um Englandsmeistaratitilinn komi til með að standa á milli núverandi meistara, Liverpool, Manchester Un- itcd, Tottenham og Arsenal, og einn- ig gætu Ipswirh og Southampton blandað sér i baráttuna. Leikirnir sem fara fram í 1. deildinni í dag eru þessir: Aston Villa — Sunderland Brighton — Ipswich Coventry — Southampton Liverpool — WBA Man. Utd — Birmingham Norwich — Man. City Notts County — Swansea Stoke — Arsenal Tottenham — Luton Watford — Everton West Ham — Nott. Forest. Margir athyglisverðir leikir eru á dagskrá í fyrstu umferðinni eins og sjá má. Nýliðarnir Norwich og Watford eiga heimaleiki, fyrr- nefnda liðið við Man. City, en það síðarnefnda við Everton. Gaman verður að fylgjast með Watford liðinu í vetur, en Graham Taylor, hinn ungi framkvæmdastjóri þess, hefur byggt upp mjög léttleikandi lið. Þá verður einnig gaman að fylgjast með því hvernig Luton gengur gegn Tottenham á White Hart Lane. Luton leikur mjög skemmtilega knattspyrnu, opinn sóknarleik, og eru taldir með eitt athyglisverðasta liðið í Englandi. Aðalbaráttan um meistaratitil- inn er talin koma til með að standa milli Liverpool og Manch- ester. Bæði hafa liðin keypt nýja leikmenn fyrir tímabilið, og skul- um við líta fyrst á United. Arnold Muhren, hinn frábæri hollenski miðvallarspilari, kom til þeirra frá Ipswich og gæti hann verið sá hlekkur sem liðið hefur vantað undanfarið til að vinna til verð- launa. Víst er að miðjan hjá liðinu verður geysilega sterk í vetur, og samþykkja víst flestir að þeir Ray • Kenny Dalglish, Liverpool. Marg- ir spá þvi að liði hans takist að verja Englandsmeistaratitilinn. Samband málm- og skipasmiöja — lönþróunarverkefni og Landssamband ísl. útvegsmanna Wilkins, Steve Coppel, Bryan Robson og Muhren séu allt annað en árennilegir mótherjar. Þá hafa þeir fengið til liðs við sig Peter Bodak, ungan kantmann frá Cov- entry og lék hann með liðinu hér á landi fyrir skemmstu. Sýndi hann að hann er stórhættulegur leik- maður. Liverpool festi kaup á David Hodgson frá Middlesbrough, en hann hefur verið einn besti maður Boro um tíma. I æfingaleikjum undanfarið, og svo í Charity Shield leiknum gegn Tottenham á síðasta laugardag, lék Liverpool með þrjá miðverði, sem er sama leikaðferð og ítalir beittu í heims- meistarakeppninni. Alan Hansen, „Beckenbauer Bretlands," lék sem „sweeper" fyrir aftan Phil Thompson og Mark Lawrenson, sem voru miðverðir. Ætla verður að ekki verði auðvelt að komast í gegnum vörn Liverpool í vetur, frekar en fyrri daginn, ef liðið mun beita þessari aðferð. Ekki vilja þeir Liverpoolmenn fallast á að þeir leiki algeran varnarleik, heldur munu þrír fyrrnefndir mið- verðir taka virkan þátt í sóknar- leiknum þegar svo ber undir. Nú er bara að bíða og sjá hvern- ig leikirnir fara. Eflaust verður eitthvað um óvænt úrslit eins og alltaf, knattspyrnan er óútreikn- anleg og vonlaust að segja til um útkomuna. Úrslitaleik öld- unga frestað ÍJRSLITALEIK Eram og Víkings í íslandsmóti öldunga hefur verið frestað, en leikurinn átti að fara fram í dag. Stefnt er að því að leik- urinn geti farið fram í næstu viku. Stórqott míluhlaup hjá Joni Diðrikssyni JÓN Diðriksson hlaupari úr UMSB stóð sig með miklum ágætum er hann setti nýtt ís- landsmet i miluhlaupi á ein- hverju mesta frjálsíþróttamóti sumarsins, sem haldið var i Koblenz í V-Þýzkalandi á mið- vikudag. Jón hljóp míluna á 3:57,63 mínútum og bætti Islandsmet Svavars heitins Markússonar KR um tæpar 10 sekúndur. Jón verður því fyrstur Islendinga til að hlaupa enska mílu undir fjórum mínútum, og er tími hans tæpum tveimur sekúnd- um betri en tími Rogers Bann- ister, sem fyrstur manna hljóp míluna undir fjórum mínútum, en það gerði hann á háskóla- vellinum í Oxford fyrir 28 ár- um, eða ári áður en Jón fædd- ist I hlaupinu í Koblenz sigraði bandaríski hlauparinn SteVe Scott, sem ógnað hefur heims- meti Sebastians Coe hvað eftir annað, m.a. i þetta sinn, hljóp á 3:49,6 mínútum. Mjög góður ár- angur náðist í hlaupinu, mörg landsmet sett, og nægðu 3:53 mínútur t.d. aðeins í níunda sæti. Árangur Jóns í míluhlaupinu samsvarar til þess að hann hafi hlaupið 1500 metra á um 3:41 mínútu, en íslandsmet hans í þeirri grein er 3:41,65 mín. Jón hefur verið valinn til þátttöku á Evrópumeistara- mótinu í Aþenu í september- byrjun vegna hins glæsilega hlaups í Koblenz. — ágás. Fimm fara til Aþenú FIMM íslenzkir frjálsíþrótta- menn hafa verið valdir til þátt- töku á Evrópumeistaramótinu í frjálsíþróttum, sem haldið verður í Aþenu 6.—12. september. Frjálsíþróttamennirnir eru Oskar Jakobsson ÍR, sem kcppir í kúluvarpi. Oddur Sigurðsson KR, sem keppir i 400 metra hlaupi, Þórdis Gisladóttir ÍR, sem keppir i hástökki, Einar Vilhjálmsson UMSB, sem keppir i spjótkasti, og Jón Diðriksson IIMSB, sem keppir í 1500 m hlaupi. Fararstjórar með kepp- endunum verða Örn Eiösson formaöur Frjálsíþróttasambands íslands og Sigurður Björnsson varaformaður. Frjölsar íbrðltir VESTFIRÐIR efna til fjögurra daga námskeið, sem fjallar um undirbúning og framkvæmd skipaviögeröa Námskeiðið er sniðið að norskri fyrirmynd og er ætl- að þeim aðilum í smiðjum, sem taka á móti og skipu- leggja skipaviðgerðaverk, vélstjórum og / eöa þeim sem hafa umsjón með viðhaldi skipa í umboði út- gerða, svo og þeim öðrum, sem afskipti hafa af fram- gangi skipaviðgerða. Námskeiðiö miöar aö því aö skýra fyrir þátttakendum mikilvægi vandaös undirbúnings áöur en skipavið- gerö hefst og markvissrar stjórnunar, eftir aö hún er hafin. Þátttakendur fjalla einnig með dæmum og verklegum æfingum um þá þætti sem ráða úrslitum um vel heppnaöa viðgerð og þeim leiöbeint um meginatriöi þeirra. M.a. veröur fjallað um: — verklýsingu — áætlanagerö — mat á verkum — mat á tilboðum og val verkstæða — undirbúning fyrir framkvæmd viögeröa — uppgjör Auk þess veröa gestafyrirlestrar frá Siglingamála stofnun ríkisins og um flokkunarfélög. Leiðbeinendur eru Brynjar Haraldsson tæknifræðingur og Kristinn Halldórsson úgeröartæknir. Þátttökugjald er kr. 4.500.— (hádegisveröur og kaffi innifaliö). Námskeiöið fer fram á Hótel ísafirði, dag- ana 7,—10. september frá kl. 09.00 til kl. 19.00 alla dagana. Þátttöku ber aö tilkynna til SMS (91—25561) eöa LÍÚ (91—29500) fyrir 1. sept. Fjöldi þátttakenda tak- markaöur viö 20. RR BYGGINGAVÖRUR HE SUOURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. PAK3AI í hvaða lengd semer „Standard” lengdir eða sérlengdir, allt eftir óskum kaupandans. Að auki þakpappi, pappasaumur, þaksaumur, kjöljárn, rennu- bönd og rennur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.