Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 28.08.1982, Blaðsíða 40
Síminná QQflQQ afgretðsíunm er OOUOO fltorgttttfiIaMfc Sími á ritstjóm H fl i flfl og skrifstofu: IU IUU LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1982 í Guttormslundi í Hallormsstaðaskógi. Mor*u«w»*i*/6i«riir K. \ias>nu«son Verðlagsráð: Heímilar hækkan- ir á bilinu 5—31,6% Benzín hækkar um 8,9%, gasolía um 14,3% og svartolía 15,6% VKKÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær, að heimila 8,9% hækk- un á benzíni, þánnig að hver lítri hækkar úr 11,20 krónum í 12,20 krónur. Hækkunin tekur þegar gildi. Olíufélögin höfðu farið fram á 14,3% hækkun, þannig að hver lítri hefði hækkað i 12,80 krónur. I*á samþykkti ráðið að heimila 14,3% hækkun á gasolíu, þannig að hver lítri af gasolíu hækkar úr 4,55 krónum í 5,20 krónur. Olíufélögin höfðu hins vegar farið fram á 23% hækkun, þannig að hver lítri hefði farið í 5,60 krónur. Ráðið samþykkti að heimila 15,6% hækkun á svartolíu, þannig að hvert tonn hækkar úr 3.210 krónum í 3.710 krónur. Olíufélögin höfðu hins vegar farið fram á 26,5% hækkun, þannig að hvert tonn hefði farið í 4.060 krónur. A fundi verðlagsráðs var síðan samþykkt að heimila 19,9% hækk- un á smjörlíki. Ráðið samþykkti og að heimila 24,2% hækkun á kaffi. Þá var samþykkt að heimila 16,5—19,9% hækkun á brauðum. Þá var heimiluð 25% hækkun á aðgöngumiðum kvikmyndahusa, 31,6% hækkun á saltfiski og 7,5% hækkun á útseldri vinnu. Loks var samþykkt 5% viðbótarhækkun á öli og gosdrykkjum, vegna gífur- legrar hækkunar á sykri, en í síð- ustu viku var heimiluð 12% hækk- un á öli og gosdrykkjum. Að sögn Georgs Ólafssonar, verðlagsstjóra, eru flestar þessar hækkanir fyrst og fremst til komnar vegna gengisfellingarinn- ar á dögunum auk gengissigs á undanförnum vikum. Þá má geta þess, að talsímagjöld til útlanda hækka nú um 40%, en verð þeirra hefur verið óbreytt frá því 1. febrúar sl. Órói við Kötlu NOKKIJR órói hefur verið á jarð- skjálftamælum við Kötlu að undan- förnu. Kr óróinn nú nokkru meiri en þær árvissu hrinur sem verið hafa i Kötlu á haustin, eða um 4 stig á Richter. Af þessu tilefni vill Almanna- Trúnaðarmannaráð LIU saman á fimmtudag eftir margra ára hlé: varnanefnd ríkisins beina því til fólks að það haldi sig nærri al- faraleið og leggi ekki leið sína um fáfarna staði. Þá eru ferðamenn og aðrir á þessum slóðum beðnir að hlusta eftir hugsanlegum til- kynningum í útvarpi. Guðjón Pet- ersen forstjóri Almannavarna sagði, að þeir almannavarnamenn væru búnir að yfirfara öryggis- ráðstafanir ef til þyrfti að grípa. Rætt verður um hugs- anlega stöðvun flotans Tvær olíuverðshækkanir á þremur vikum kosta útgerðina um 170 milljðnir króna, segir Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ „OLÍAN hefur nú hækkað um 24% á sama tíma og sjávarútvogsráðhorra ætlaði að lækka hana um 20% og það er augljóst hvert stefnir," sagði Kristján Kagnarsson, formaður Landssambands íslenzkra út- vegsmanna, í samtali við Mbl., er hann var inntur álits á þeim hækkunum, sem heimilaðar hafa verið á gasolíu og svartolíu, en frá og með deginum í dag hækk- ar gasolía um 14,3% og svartolía um 15,6%. „Hækkunin nú kostar út- gerðina um 110 milljónir króna og sú hækkun, sem var heimil- uð fyrir þremur vikum kostaði útgerðina um 60 milljónir króna, þannig að samtals kost- ar þetta útgerðina um 170 milljónir króna," sagði Kristján Ragnarsson ennfrem- ur. „Ástandið er þannig í dag, að togari þarf að meðaltali að fiska 5—6 tonn af þorski á dag til þess eins að hafa upp í olíu- kostnaðinn, eða þá að hann þarf að fiska 12—13 tonn af karfa á dag til þess að borga olíukostnaðinn. Okkur er því alveg fyrirmunað að skilja þessar ráðstafanir. Það er óskiljanlegt, að ríkisstjórnin ímyndi sér, að málið geti geng- ið á þennan hátt. Vandamál útgerðarinnar eru alveg óleyst í efnahagsmálapakka ríkis- stjórnarinnar og svo kemur þetta í ofanálag," sagði Kristján Ragnarsson ennfrem- ur. Aðspurður um hversu mikið fiskverð þyrfti að hækka, ef sú leið yrði farin til að rétta við hag útgerðarinnar, sagði Kristján Ragnarsson augljóst, að það þyrfti að hækka um tugi prósenta. „Það má því segja, að sú leið sé í raun ófær," sagði Kristján Ragn- arsson ennfremur. Það kom einnig fram hjá Kristjáni Ragnarssyni, að nk. fimmtudag hefur trúnaðar- mannaráð LIU, sem skipað er 25 mönnum víðs vegar að af landinu, verið boðað til fundar, en það hefur ekki verið boðað saman í mörg ár. „Vandamál útgerðarinnar verða þar til umræðu og má m.a. búast við, að hugsanleg stöðvun flotans verði til umræðu og það má reyndar geta þess, að sam- þykki þrír fjórðu hlutar fund- armanna að stöðva flotann, eru allir aðildarfélagar LÍÚ bundnir af þeirri samþykkt," sagði Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ, að síðustu í samtali við Mbl. 16 sandreyðar komnar á land SKXTÁN sandreyðar eru komnar á land í Hvalflrði, en heimilt er að vciða 100 sandreyðar á vertíðinni. Langreyðar komnar á land eru 188 og á aðeins eftir að veiða 6 til að fylla kvótann. Alls hafa veiðst 39 búrhvalir, en heimilt er að veiða 87. Sandreyðar veiðast venjulega síðari hluta sumars. Fyrstu sand- reyðarnar veiddust í júlí, þá veidd- ust tvær. Hinar veiddust núna síð- ustu dagana. Ráðgjafar iðnaðarráðherra í ál- málinu deila hart um anóðuverð ÁGREININGUR er kominn upp milli erlendra ráðgjafa lljörleifs Gutt- ormssonar, iðnaðarráðherra, um anóðuviðskipti Alusuisse og álversins í Straumsvík. Iðnaðarráðuneytinu bárust nýlega drög að skýrslu frá endurskoðendafyrirtækinu ('oopers & Lybrand í London um anóðuvcrð á árinu 1980. ('arlos M. Varavsky, einn af erlendum ráðgjöfum iðnaðarráð- herra, fékk þessi drög til umsagnar og í bréfi til Halldórs J. Kristjánssonar, starfsmanns í iðnaðarráðuneytinu, dags. 9. ágúst sl., mótmælir Varavsky ýmsum mikilvægum atriðum i drögunum harðlega. Lokaskýrslan frá Coop- ers & Lybrand um þetta mál mun væntanleg innan skamms. Samkvæmt þeim heimildum í Straumsvík, anóður á of háu sem Morgunblaðinu eru tiltækar í þessu máii snýst deilan milli er- lendra ráðgjafa iðnaðarráðherra um það við hvað skuli miða, þegar leitað er eftir hæfilegu verði til að sýna fram á, að Alusuisse hafi selt dótturfyrirtæki sínu, álverinu verði. Vill Carlos M. Varavsky að miðað sé við verksmiðju, sem ekki er til nema á pappírnum og í reiknilíkönum og það verð sem hún gæti lagt á anóður. Þessari aðferð hafna Coopers & Lybrand og vilja miðá við framleiðslu- kostnað fyrirtækisins Aluchemie, sem framleiðir anóðurnar fyrir álverið í Straumsvík. Af þessari reikniaðferð leiðir, að Coopers & Lybrand telja yfirverð á anóðum lægra í viðskiptum Alusuisse og álversins en þeir höfðu áður talið, en jafnframt segja þeir, að Alu- suisse muni hafa ýmislegt við þessa niðurstöðu að athuga. Iðnaðarráðherra hefur farið sér hægt í álmálinu opinberlega und- anfarna mánuði en hefur ráðið innlenda og erlenda sérfræðinga til að vinna að ýmsum hliðum þess, meðal annars er hafin ritun sögu málsins á vegum ráðherrans. 1 vor kom hingað bandarískur lögfræðingur, prófessor Lipton, sérfróður um samskipti ríkis- stjórna og alþjóðafyrirtækja. Hélt hann fyrirlestur á ráðstefnu sem iðnaðarráðuneytið efndi til fyrir nokkra lögfræðinga. Iðnað- arráðherra fól Lipton að semja skýrslu um réttarstöðuna ef til þess kæmi, að samningunum við Alusuisse yrði rift með einhliða aðgerðum. Prófessor Lipton hefur skilað áfangaskýrslu um máliö og mun væntanlegur hingað til lands í byrjun september um leið og von er á lokaskýrslu Coopers & Ly- brand um anóðuverðið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.