Morgunblaðið - 05.09.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
49
Sérstaða kokains
Þessi sérstaða kokains getur
að sjálfsögðu haft í för með sér
alveg sérstaka hættu. í Banda-
ríkjunum er litið á kokainneyzlu
sem „fína“ yfirsjón. Það er ekki
litið á hana sem glæp á neinu
sviði þjóðfélagsins. Svo virðist
einnig sem kokainneytendur geti
líka vænzt meiri linkindar
frammi fyrir dómstólum en
heroin- og jafnvel hassneytend-
ur. — Hvaða dómari er haft eftir
lögreglumanninum Ken Welty í
Los Angeles, hefur áhuga á því
að setja ungan, geðugan mann,
snyrtilegan til fara á allan hátt, í
fangelsi. Ekki dregur það heldur
úr, þegar þessi ungi maður mæt-
ir með allri fjölskyldu sinni og
þar keppist hver og einn um að
fullvissa dómarann um, að þetta
sé í fyrsta og eina skiptið, sem
ungi maðurinn hefur snert á
kokaini.
Þetta er ekki ný afstaða gagn-
vart þessu fíkniefni. Allt frá því
fyrir rúmlega einni öld, er Vest-
urlandabúar komust fyrst í tæri
við kokain, hefur því verið
skipaður „veglegri" sess en öllum
öðrum fíkniefnum.
Ástæðan var ekki bara sú, að
kokain var skoðað sem fíkniefni
ríka fólksins, vegna þess hve það
var dýrt, heldur kom það einnig
til, að skáld og listamenn jafnt
sem vísindamenn veittu engu
öðru fíkniefni viðlíka gaum sem
kokaini. Ekkert fíkniefni vakti í
upphafi jafn mikla eftirvæntingu
og jafn miklar falsvonir sem
kokain.
Faraldur, sem
breiðist út
Bandarísk yfirvöld telja, að nú
neyti um 10 milljónir manna þar
í landi kokains, sumir reglulega
en aðrir af og til. Þessi gífurlega
notkun hefur ekki enn breiðzt út
til Evrópu í sama mæli og í
Bandaríkjunum, þar sem sumir
hafa iíkt þessu vandamáli við
faraldur. En hin opnu þjóðfélög
Vestur-Evrópu eru ekki síður í
hættu en Bandaríkin. Notkun
fíkniefnisins breiðist þar nú ört
út. í marz sl. tókst lögreglunni í
Zúrich í Sviss að komast yfir
rúmlega 20 kg af kokaini (áætlað
söluverð ca. 30 millj. ísl. kr.). í
Vestur-Þýzkalandi er Múnchen
nú miðstöð kokainverzlunarinn-
ar og blöðum þar hefur orðið
mjög tíðrætt um kokainneyzluna
og atburði, sem rekja má beint
til hennar.
Blaðið Múnchener-Abendzeit-
ung sagði svo frá réttarhöldum í
kokainmáli fyrir skömmu: —
Þessi réttarhöld náðu til leiðandi
fólks í kvikmyndum og sjónvarpi
en einnig til fólks af háaðli og
svo til venjulegs fólks. í vitna-
stúkunni mátti sjá norður-
þýzkan prins svo og tvær greifa-
frúr frá Múnchen. Þetta fólk
hafði gefið út ávísanir til kaupa á
„fornum listmunum frá Asíu“.
í Nordrhein-Westfalen hefur
fjöldi kokainsjúklinga tífaldast
frá árinu 1975. Lögreglan þar
hefur tamið alla leitarhunda sína
til þess að hafa upp á kokaini
jafnt sem öðrum fíkniefnum. —
En, sagði Bert Parsch, yfirmaður
fikniefnalögreglunnar í Köln,
fyrir skemmstu: — Það magn,
sem okkur tekst að finna, er allt
of lítið. Okkur tekst einfaldlega
ekki að ná til þeirra, sem kokain
nota.
En afleiðingar kokainneyzl-
unnar dyljast ekki. Nærtækt
dæmi er dauði leikstjórans Rain-
er Werner Fassbinders, sem
fannst látinn í íbúð sinni í
Múnchen 10. júní sl. Hann var 36
ára gamall. Líkrannsókn leiddi
það í ljós, að leikstjórinn kunni
hafði tekið inn svefnlyf og koka-
in i slíku magni, að leiddi til
dauða.
Þýtt og endursagt úr Der Spiegel
Heba heldur
vió heilsunni
Nýtt námskeið að hefjast
Dag- og kvöldtímar tvisvar eöa
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leikíimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaííi -
0.11.
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Kvennaleikfími
Hefst
þriðjudaginn
7.
september.
Kennari Guörún Gísladóttir.
Sauna og Ijós. Innritun í
síma 74925 í íþróttahúsi
Gerplu aö Skemmuvegi 6.
MEST SELDU HJÓLIN, . ítfí I uJK
Þaö er ekki aö ástæðulausu aö Kalkhoff-hjólin eru lang mest seldu
reiöhjólin á (slandi ár eftir ár. Hjá Kalkhoff fara saman þýsk nák-
væmni og vandvirkni og veitir verksmiðjan því 10 ára ábyrgð á stelli
og gaffli. Vegna mjög hagstæðra samninga viö Kalkhoff-Werke
GmbH, stærstu og virtustu reiöhjólaverksmiðju Vestur-Þýskalands,
bjóðum viö nú í haust Kalkhoff-reiðhjólin á ótrúlega lágu verði. Hér
eru örfá sýnishorn af úrvalinu.
Gerð nr. 6453 5 gira, 53 cm stetl. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Silfur
Verðkr. 3.040 -
Gerð nr. 2167, án gíra, kr. 2.018-.
Gerð nr. 2171, 3 gíra, kr. 2.279.-.
Gerð nr. 5602, án gira, kr. 1.952,-
58 cm stell. Dekk: 26x 1 1/2 nema
á gerð nr. 5605:26x1.75 (Mjög breið)
Litir: Silfur, blátt.
Gerð nr. 6305 5gíra kr. 2.445.-.
Gerð nr. 6309 Wgírakr. 2.680,-
48 cm stell fyrir aldur frá 9 ára.
Dekk: 24x1 3/8 (24x1 3/8)
Litir: Silfur, rauð, blá.
Gerðnr. 6408 Wgíra, 58cmsteit. Dekk: 27x1 1/4
Litur: Silfur
Verð kr. 2.535 -
Gerð nr. 2622 10 gíra, 53 cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Burgundy-rautt.
Verðkr. 3.515 -
Gerð nr. 6411 Wgira lúxus útgáfa, 58cm stell. Dekk: 27x1 1/4.
Litur: Metal-blátt
Verðkr. 3.712.-
Til vidmidunar um val d stærri reidhjólum
innaníótarmal 70-73, 74-78, 79oghærri j
stellhæd í cm 48 cm, 53 cm, 58(711 I
Sendum í póstkröfu um allt land
Pekking - Þjónusta - Reynsla
Allir fylgihlutir sem sjást á myndunum fylgja med, svo sem, Ijósabúnadur, lás, standari, pumpa, teinaglito.fi. o.fl.
Gerið verðsamanburð
Sérverslun i meira
en hálfa öld ,
SpíTalastíg 8 og vió Óóinstorg 510101:14661,26888