Morgunblaðið - 05.09.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1982
75
Hræringur
Þögn er gulls ígildi, en ...
Öldum saman hafa Trappist-
munkar gengist undir strangt
þagnarheit og varla mælt orö frá
munni. Áriö 1969 var hins vegar
gerö nokkur breyting á klaustur-
reglum þeirra og þeim veittur rétt-
ur til „örstuttra mjnnlegra sam-
skipta" og mega þeir nú segja
nokkur orð, án þess aö sækja um
leyfi til þess fyrst. En hvernig hefur
þessi breyting haft áhrif á viðhorf
munkanna til sjálfra sín og klaust-
urbræöra sinna? Eru þeir ánaBgöir
með breytinguna, eöa vildu þeir
heldur hverfa á ný til algerrar
þagnar?
J. Jaksa og E. Stech, prófessor-
ar í samskiptavísindum viö Mic-
higan-háskóla, framkvæmdu um-
fangsmikla könnun i 7 klaustrum
Trappist-munka til aö fá þessum
spurningum svaraö. Þeir fylgdust
meö munkunum aö daglegum
störfum, dreiföu spurningalistum
og ræddu viö þá þegar tækifæri
gafst. Prófessorunum til undrunar
staöhæföi fimmti hver munkur aö
tíöni viöræöna heföi alls ekki auk-
ist þrátt fyrir nýju reglurnar. Hinir
töldu aö oröiö heföi töluverö eöa
mikil aukning samræöna.
Viöhorf þeirra til þessarar breyt-
ingar voru æriö misjöfn. Fjörutíu
prósent töldu aö málskrafiö í
klaustrinu væri hæfilegt, en jafn
margir vildu aö þaö væru minna.
Aöeins 20 prósent töldu aö meira
málfrelsi væd æskilegt.
Meiri samstaöa kom fram er
Jaksa og Stech spuröu hver áhrif
hin rýmkaöa regla heföi haft á til-
finningu munkanna fyrir sjálfum
sér og klausturbræörum sínum.
Um 80 prósent munkanna álitu aö
þeir heföu aukna sjálfsmeövitund
eftir breytinguna, 90 prósent töldu
sig hafa meiri skilning á klaust-
urbræðrum sínum og um 75 pró-
sent töldu sig hafa meiri sam-
kennd gagnvart þeim.
Þá haföi málfrelsiö einnig breytt
viöhorfi flestra þeirra til þagnarinn-
ar. Um 90 prósent töldu sig hafa
jákvæöa tilfinningu fyrir því aö
hverfa aftur til þagnar eftir stuttar
viöræöur, og þrír fjóröu þeirra
töldu þessa reynslu mjög jákvæöa.
I daglegu lífi haföi hiö aukna
málfrelsi leyst úr mörgum vanda-
málum sem áöur höföu plagaö
bræöurna. Einn munkanna sagöi
t.d. frá því, aö fyrir breytinguna
1969 heföi hann legiö andvaka í
rúmi sínu nótt eftir nótt og hlustaö
á brakið í rúmi munksins i næsta
klefa, án þess aö fá nokkuö að
gert. Ekki þótti honum viöeigandi
aö gera uppistand út af slíkum
smámunum, hann mátti ekki
ávarpa hinn munkinn og segja
honum af þessu og klausturregl-
urnar bönnuöu aö snerta eigur
annarra, þannig aö ekki gat hann
gengiö í þaö sjálfur aö laga rúmiö.
Þannig leið langur tími, en loks-
ins hélt munkurinn aö hann heföi
fengiö tækifæri til aö koma kvört-
un á framfæri viö nábýling sinn.
„Dag nokkurn ókum viö saman í
heyvagni og byrjaöi þá eitt gólf-
borðanna í vagninum aö braka.
Mér tókst aö ná athygli hans og
benti á gólfboröið en haföi síöan í
frammi látbragö fyrir svefn allt
hvaö af tók. Hann skildi þó ekki
þaö sem ég var aö reyna aö segja
og leit á mig eins og ég væri eitt-
hvaö skrítinn."
Þessi misheppnaöa tilraun varö
til þess aö hinn svefnlausi munkur
greip loks til örþrifaráöa. Hann „af-
hjúpaöi" rúmbraksbróöurinn á
kórbræörasamkomu — og ákæröi
hann opinberlega. Rúmiö var lag-
aö, en munkurinn sem fyrir brak-
inu haföi staöiö, varö aö boröa
mat sin á gólfi klausturboröstof-
unnar í heila viku, sem refsingu
fyrir hiröuleysi sitt. Undir hinum
milduöu reglum, sem nú gilda í
klaustrunum, myndu slík vandamál
leysast bæöi fljótar og greiöar, til
hagræðis fyrir alla aöila ...
Bölvun
múmíunar
Lögreglumaöur nokk-
ur, George Labrash,
fékk alvarlegt hjartaslag
er hann stóö vörð við
múmíu Tuts faraós og
fjársóöi hans i De
Young-safninu í San
Francisco.
Þetta geröist
árið 1979 en þaö var
ekki fyrr en í janúar á
þessu ári aö Labrash
lagði fram bótakröfu á
safniö, þar sem hann
heldur því fram aö
sjúkdómur sinn eigi ræt-
ur aö rekja til starfs síns
á safninu. Hann taldi sig
hafa oröiö fórnardýr
bölvunar sem stafaöi frá
múmíu faraósins, og
nefndi þessu til sönnun-
ar nokkur dauösföll og
fjölmörg sjúkdómstilfelli
sem ill öfl frá múmíunni
eiga aö hafa valdiö i
gegnum tíöina.
Verjandi hins opin-
bera í málinu sagöist
ekki finna neitt fordæmi
þess aö mönnum heföu
verið dæmdar bætur
fyrir bölbænir. Og
stálhraustur öryggis-
vöröur viö safniö, Rich-
ard Adamson, sem svaf
í grafhvelfingunni í
grennd við múmíuna frá
1923 til 1930, lét hafa
eftir sér aö sögurnar um
aö bölvun fylgdi múmí-
um væru uppspuni —
þeim heföi upprunalega
veriö komiö af stað til
aö vernda egypskar
grafir fyrir grafarræn-
ingjum.
Svo viröiöst sem
dómstóllinn í San Fran-
cisco hafi veriö honum
sammála því Labrash
tapaöi málinu í febrúar
síöastliönum. Hafa
stuöningsmenn hans
hvatt hann til aö fá málið
tekiö upp aö nýju i
Egyptalandi ...
Hugarorka
og
málmvísindi
ísraelsmaöurinn Uri Gell-
er vakti mikla athygli á síö-
asta áratug er hann fullyrti
aö hann gaeti beygt málm-
skeiöar og fleiri málmhluti
meö „hugarorku" sinni einni
saman. Virtist hann aöeins
þurfa aö strjúka skeiöarnar
og undust þær þá og bogn-
uöu aö skammri stundu lið-
inni. Síöan hafa margir,
sem telja sig gædda sál-
rænum hæfileikum, fullyrt
aö þeir geti þetta líka.
En styöjast þessar full-
yröingar viö einhver rök?
Flestir vísindamenn hafna
því meö öllu. En nú hafa
tveir franskir málmvísinda-
sérfræöingar, Jean Bouvais
og Charles Crussard, fund-
iö nýja hliö á þessu máli.
Þeir notuðu rafeindasmá-
sjár til að rannsaka málm-
hluti sem beygöir höföu
verið með „hugarorku“ af
Jean-Pierre Girard — hin-
um franska sporgöngu-
manni Gellers. Samkvæmt
niöurstöðum þeirra er
marktækur munur á sam-
eindamynstri þeirra
málmhluta sem Girard hef-
ur beygt meö „sálrænum”
hætti og hliöstæöum hlut-
um sem beyglaðir hafa ver-
iö á venjulegan hátt. „Það
liggur ekki Ijóst fyrir hvernig
túlka skal þessa uppgötvun
Bouvais og Crussards,"
segir dularsálfræöingurinn
dr. Schott Rogo í grein sem
hann skrifar um þetta efni.
„En engu aö síöur sannar
þessi rannsókn þeirra aö
þaö er hægt aö nota nútíma
tækni til að kanna hið yfir-
skilvitlega."
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
I KAUPMENN-VERSLUNARSTJÓRAfí
AVEXTIR
IKUNNAR
NÝ UPPSKERA
Eingöngu epli rauö USA
(og svo auövitaö allt hitt)
EGGERT KRISTJANSSON HF
Sundagörðum 4, simi 85300
Litmyndir samdægurs
Komdu meö filmuna fyrir ki. 11 aö morgni og
þú færö myndirnar tilbúnar ki. 5 síödegis.
Afgreiöslustaöir okkar eru:
Glögg mynd, Suðurlandsbraut 20, sími 82733,
Glögg mynd, Hafnarstrætl 17, sími 22580 og
Magasín, Auöbrekku 44—46, Kópavogi, sími 45300.
í LEIÐINNI BJÓÐUM VIÐ ÞÉR SAKURA-
FILMUR MEÐ 50% AFSTÆTTI.
VÖRULISTAVERSLUN,
Auöbrekku 44—46, Kópavogi.