Morgunblaðið - 07.09.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1982
29
fum“
sókn hennar hingað til Washing-
ton,“ sagði hann á meðan hann
beið komu forsetans. „Veðrið er
alveg dásamlegt og borgin er
sjaldan fallegri. Ég vona að fyrstu
viðbrögð forsetans verði því já-
kvæð,“ sagði hann brosandi.
Stoessel var í fylgdarliði Richard
Nixons, þegar forsetar Bandaríkj-
anna og Frakklands áttu fund í
Reykjavík 1972.
Svæðið sem þyrla forsetans
Við komuna á Andrews-
flugherstöðina í Bandaríkj-
unum. í fylgdarliði forsetans
má meðal annarra greina:
Hans G. Andersen, sendi-
herra íslendinga í Banda-
ríkjunum, Ingvar Gíslason,
menntamálaráðherra, frú
Sigríði Thorlacius og Birgi
Thorlacius, ráðuneytisstjóra
í menntamálaráðuneytinu.
Konan við hlið forsetans er
Selma Roosevelt, siðameist-
ari í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu. i.^smynd mw. óik.m.
lenti á, var girt af, svo að vegfar-
endur komust ekki stystu leið
milli minnismerkjanna tveggja.
Þó nokkur mannfjöldi safnaðist
því saman og margir veltu fyrir
sér, hvað til stæði. Brunaliðsbif-
reiðir voru til reiðu. Lögregla og
öryggisverðir voru á staðnum og
floti sex svartgljáandi bifreiða
beið augsýnilega komu einhverra
mikiivægra. Ungur maður frá
Texas spurði hvort utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna eða einhver
álíka væri að koma. Nei, það var
von á forseta íslands. „Ég trúi þér
ekki,“ sagði hann furðu lostinn,
en bætti svo við hróðugur, „þetta
er þá íslenski fáninn ásamt hin-
um bandaríska á fremsta bíln-
um,“ og hnippti í kunningja sinn,
sem hafði verið að velta fánanum
fyrir sér.
Vigdís forseti var klædd í ljós-
græná dragt, með hatt í sama lit.
Nokkrir klöppuðu, þegar hún
steig út úr þyrlunni og hún brosti
yfir götuna. Þegar bílarnir höfðu
ekið burtu, spurði ung kona með
undrun í rómnum: „Er forseti Is-
lands kona?“ Það var staðfest og
hún sagði: „Frábært, gott hjá ís-
lendingum," og skokkaði leiðar
sinnar.
Menningarkynningin Scandin-
avia Today, hefst ekki formlega
fyrr en á miðvikudag. Forseti Is-
lands mun þó tendra flugeldasýn-
ingu í sambandi við kynninguna á
þriðjudagskvöld við minnis-
merkin og Reflecting Pool. Tón-
list frá Norðurlöndunum verður
leikin og þar á meðal nýtt verk
eftir Jakob Magnússon, sem mun
koma út á plötu í Bandaríkjunum
í janúar. Útvarpsstöð í Washing-
ton, sem flytur sígilda tónlist
mun útvarpa beint frá flugelda-
sýningunni.
Forseti íslands hvíldi sig í
Washington á sunnudag og mánu-
dag. Á sunnudagskvöld sat hún
kvöldverðarboð íslensku sendi-
herrahjónanna fyrir forsetann og
fylgdarlið hennar og á mánu-
dagskvöld sótti hún móttöku sem
sendiherrahjónin héldu fyrir ís-
lenska þátttakendur í Scandin-
avia Today.
„Ef þetta eru íslensk
þjóðlög, þá tekst
kórnum að flytja land-
ið hálfa leið til mín“
Wa.shington, 6. september. Frá Önnu
Hjarnadóttur, frétlaritara Mbl.
„ÞIÐ kunnið svo sannarlega
að syngja,“ sagði Dennis
Minshall, einn áheyrenda
karlakórsins Fóstbræðra,
þegar kórinn kom í fyrsta
sinn fram í Bandaríkjunum á
mánudag. Kórinn söng á al-
þjóðlegri barnahátíð í Wolf
Trap-þjóðgarðinum skammt
fyrir utan Washington. Hann
söng íslensk og norræn lög.
Dóttir Dennis Minshall,
Jennifer, sem er þriggja og
hálfs árs, hreifst af „Hani,
krummi, hundur, svín“, stóð
upp í sætinu og klappaði sam-
an lófunum í takt við sönginn
og kærði sig kollótta, þótt
hún skildi ekki orð af því
sem sungið var. „Ef þetta eru
íslensk þjóðlög,“ sagði pabbi
hennar, „þá tekst kórnum að
flytja landið hálfa leið til
mín.“
— sagði einn áheyr-
enda á tónleikum
karlakórsins
Fóstbræðra
Karlakórinn er kominn til
Bandarikjanna til þess að taka
þátt í opnunarhátíðarhöldum
norrænu menningarkynningar-
innar, Scandinavia Today í Wash-
ington og Minneapolis. Kórinn
mun síðan ferðast landleið til New
York og halda tónleika á níu stöð-
um á leiðinni. Dennis Minshall
sagðist aldrei hafa átt von á að
hlýða á íslenskan karlakór, en var
augsýnilega hrifinn, eins og aðrir
áheyrendur kórsins. „Þetta er
gullfallegur söngur," sagði hann.
Skúli Möller, fararstjóri kórs-
ins, sagði, að það hefði verið
ákveðið seint að þeir kæmu fram á
barnahátíðinni í Wolf Trap og því
hefði ekki gefist tími til að æfa
sérstök barnalög, en það var auð-
séð á Jennifer og fleirum, að það
kom ekki að sök. Tapiola-barna-
kórinn frá Finnlandi kom einnig
fram á hátíðinni á mánudag. Börn
frá Taiwan sýndu íþróttir og
margt fleira var til skemmtunar.
Hátíðin stóð í þrjá daga.
Karlakórinn kom fram í svo-
kölluðum Meadow Center, það er
yfirbyggt útileikhús, sem var reist
í hasti, þegar útisviðið í þjóðgarð-
inum brann snemma í apríl. Wolf
Trap-útileikhúsið er ákaflega
vinsælt og peningar bárust víða að
til að endurreisa gamla sviðið, en
það er dýrt fyrirtæki og þótt yfir
ein milljón dollara hafi þegar
safnast og alríkisstjórnin hafi lof-
að að bera helming kostnaðarins,
er enn ekki séð fyrir lok verksins.
Það eru 43 kórfélagar sem taka
þátt í þessari ferð kórsins, en auk
þess er Ragnar Björnsson stjórn-
andi kórsins og undirleikari Jónas
Ingimundarson. Með mökum kór-
félaga er þetta í allt um 80 manna
hópur.
fer í ferð um
luðurland
arklaustur. Efnisskrá hljómleik-
anna er nokkuð blönduð og reynt
hefur verið að gera hana þannig
úr garði, að hún höfði til sem
flestra. Meðal verka sem flutt
verða er sinfónía eftir Mozart,
óperuforleikir, milliþáttaspil og
aríur úr óperum eftir Verdi og
Puccini. Þá eru einnig íslensk lög,
ítalskar kansónur og vínarmúsík
á efnisskránni. Það er alls 60
manna hópur sem þátt tekur í
ferðinnni. Stjórnandi hljómsveit-
arinnar verður Páll P. Pálsson og
einsöngvari Kristján Jóhannsson,
en hann kemur gagngert frá ítal-
íu til þess að fara í þessa ferð.
Frá æfingu sinfóníunnar í gærmorg-
unn. Kristján Jóhannsson, sem
syngur einsöng með hljómsveitinni,
fyrir miðri mynd. Stjórnandi
hljómsveitarinnar Páll P. Pálsson
stjórnar. MorgnnblaAió/ Kristján Kinnrnnon.