Morgunblaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1982
Óeirðir í Póllandi:
Táragasi og vatnsslöngum
beitt gegn mannfjöldanum
VarNjá, l'óllandi, 14. itept. AP.
YFIRVÖLD í Póllandi tilkynntu í dag að óeiróir hefóu brotist
út í fjórum borgum landsins í gær, en þá voru liónir tíu
mánuóir frá setningu herlaganna. í Wroclaw særðust fjórir
lögreglumenn og 59 manns voru handtekin.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
í kvöld að friður væri kominn á
*ð nýju og ekki hefði verið um
mjög róttækar aðgerðir að ræða.
Óeirðir þessar munu hafa orðið í
oorgunum Nowa Huta, Wroclaw,
Lodz og Szczecin. I öllum þessum
borgum að Lodz undanskilinni
kom einnig til óeirða þann 31. ág-
úst síðastliðinn, þegar óháðu
verkalýðsfélögin, Samstaða,
höfðu boðað til „friðsælla mót-
mæla“ til að minna á tveggja ára
afmæli óháðu verkalýðsfélag-
vnna.
í gær mun ástandið hafa verið
ilvarlegast í Wroclaw þar sem
lögreglan handtók 59 manns, en
þar var ráðist að lögreglustöð
borgarinnar með grjótkasti.
I Nowa Huta, sem er stáliðnað-
arborg í nágrenni við Krakow,
beitti lögreglan táragasi og
vatnsslöngum til að dreifa
mannfjölda er safnast hafði sam-
an og verkamönnum er gengu í
hópum að stáliðnaðarstöðinni í
Krakow. Engin slys munu hafa
orðið á mönnum þar þrátt fyrir
harkalegar aðgerðir.
í Wroclaw og Nova Huta voru
hvað harðastir götubardagar
þann 31. ágúst síðastliðinn og í
Wroclaw lést einn maður.
Þrátt fyrir reiði yfirvalda
vegna óeirðanna sagði talsmaður
þeirra í dag að það að gera Sam-
Ráðist til atlögu gegn her og lögreglu sem beitir táragasi sem vopni
gegn „óeirðaseggjum".
stöðu útlæga væri of öfgafull að-
gerð, sem ekki væri í vændum.
í tiikynningu sem birt var í dag
segir einnig að pólsk yfirvöld hafi
nú hafið viðræður við vestræna
banka út af skuldum þeirra og
hvernig þær verði greiddar.
Pólski utanríkisráðherrann,
Stefan Olszowski, snýr að öllum
líkindum heim frá Sovétríkjun-
um á morgun, en þar hefur hann
átt viðræður við hinn sovéska
starfsbróður sinn, Andrei A.
Gromyko, en ekki er talið að
hann muni hitta Leonid I.
Brezhnev að máli. Ekkert hefur
verið gefið upp um viðræður
þeirra annað en að þær hafi verið
mjög vinsamlegar. Talið er lík-
legt að þar hafi verið fjallað að
nokkru um hið róstusama ástand
í Póllandi, en sovéska fréttastof-
an TASS hefur þvertekið fyrir
það.
Flugslysið á Spáni:
Flugstjórinn fullyrðir
að þotan hafi verið í lagi
Madrid, Malaga, Spáni, 14. september. AP.
SPÆNSKI flugmaður DC-10 þot-
-;nnar frá flugfélaginu Spantax, sem
órst í Malaga í gær rétt eftir að hún
tóf sig á loft áleiðis til New York,
agðist í dag sannfærður um að vélin
iafi verið í fullkomnu lagi.
„Ég flýg ekki vélum sem ekki
eru í fullkomlega öruggu ásig-
komulagi. Ég er farþegi ekki síður
en aðrir innanborðs," sagði flug-
naðurinn Juan Perez á meðan að
nn var leitað þeirra 27, sem sakn-
að var, í flakinu.
Tala látinna er nú komin upp í
50 manns, en snemma í morgun
'undust fjögur lík að auki. Enn er
ieitað þeirra 27 sem ófundnir eru
i>g 49 eru á sjúkrahúsum, þar af 9
i lífshættu.
Bandaríska sendiráðið í Madrid
hefur staðfest tölur látinna, en
segir að ekki hafi enn verið hægt
að bera kennsl á öll líkin og marga
sem liggja mikið slasaðir á sjúkra-
húsum. Talsmaður sendiráðsins
segir að 210 bandarískir ríkisborg-
arar hafi verið um borð í vélinni
þegar hún fórst á mánudag með
380 farþega innanborðs og 13
manna áhöfn.
Flugmálayfirvöld á Spáni hafa
leitt að því getum að um vélarbil-
un hafi verið að ræða í þotunni, en
sem fyrr segir neitar flugmaður
hennar þessum getgátum algjör-
lega og segir slíkt hafa verið
óhugsandi.
Einnig hefur verið leitt að því
getum að þotan hafi verið ofhlað-
I Gelli með falsað
■ vegabréf og litað hár
(iení, 14. Neplember. AP.
| I.K'IO Gelli, sem eitt sinn var dýnusali með fasíska fortíð, en er nú
I mikilvæg persóna í fjármála- og stjórnmálahneyksli á Ítalíu, kom til Sviss
frá Madrid á sunnudag, daginn áður en hann var handtekinn þar sem
hann ætlaði að fara að taka út stórfé af „frystum" reikningi í voldugasta
banka Sviss. Fyrir þetta tækifæri hafði Gelli litað hár sitt svart, en við
komuna til Sviss framvísaði hann fdlsuðu argentínsku vegabréfi. Á um-
ræddum reikningi í Sambandsbankanum í Genf eru milli 50 og 70
milljónir Bandaríkjadala, að sögn samstarfsmanna bankans.
Ferill fjárins þykir grun- menn á flestum sviðum ítalsks
samlegur í meira lagi, en það var
tekið út úr hinu suður-ameríska
útibúi Ambrosiano-bankans,
sem stundum er kallaður
„Guðs-banki“ yegna tengsla
sinna við Vatíkanið, áður en það
var lagt inn á reikning í Sam-
bandsbankanum svissneska.
Gelli hefur að undanförnu ver-
ið í hópi þeirra scm ítölsk stjórn-
völd hafa lagt mesta áherzlu á
að góma vegna meintra afbrota.
Hann hvarf frá Italíu í fyrravor
eftir að á hann féll grunur um að
eiga aðild að „frímúrarahneyksl-
inu“ svonefnda, en þar er um að
ræða leynilega frímúrarastúku
er nefnist Propaganda Due. Að-
ild að henni eiga margir forystu-
þjóðlífs, svo sem stjórnmála,
fjármála, blaðamennsku og
viðskipta og innan hersins, en
samtök þessi eru grunuð um að-
ild að skattsvikum, samsæri og
mútum. Svo miklum vandræðum
olli þetta mál á Italíu þegar það
kom upp, að þáverandi stjórn,
sem var undir forsæti Forlanis,
neyddist til að segja af sér.
Búizt er við því að svissnesk
stjórnvöld framselji Gelli í
hendur ítölsku lögreglunnar í
næstu viku. Heimkoman lítur
ekki út fyrir að verða glæsileg,
því að á Ítalíu bíða mannsins
hinar og þessar ákærur, m.a
fyrir njósnir og fyrir að hafa
komizt yfir ríkisleyndarmál.
in, en leikni flugstjórans hefur
ekki verið dregin í efa og er talið
að hann hafi unnið þrekvirki með
lendingu vélarinnar.
„Svarti kassinn“, eða segul-
bandsupptaka af samtölum áhafn-
ar og flugturns fannst í kvöld og
er það mikil hjálp í allri rannsókn
slyssins.
Minningarthöfn um þá sem fórnst I þyrluslysinu í Mannheim á laugardag var
gerð í dag, en þeir voru 46 að tölu. Símamynd - AP.
Þyrluslysið í Mannheim
eitt hið versta í sögunni
Mannheim, V hýskalandi, 14. Neptember. AP. ^
Mannheim, V hýskalandi, 14. Neptember. AP.
AÐ SÖGN v-þýsku lögreglunnar
virðist svo sem einn maður, hugsan-
lega flugmaðurinn, hafi reynt að
henda sér út úr Chinook-þyrlunni,
sem fórst við Mannheim á laugar-
dag.
Alls létu 46 manns, frá fjórum
löndum, lífið í slysinu, en upphaf-
lega var talið að 32 hefðu látist. A
meðal þeirra sem létust voru tveir
bandarískir sjónvarpsmenn, sem
unnu að upptöku þáttar um fall-
hlífarstökk. Þykir mildi að enginn
vegfarenda á þjóðveginum, sem
þyrlan hrapaði niður á, skyldi lát-
ast í þessu þyrluslysi, sem er eitt
hið mesta sem sögur fara af.
Sjónarvottar bera að þeir hafi
séð einn mann henda sér út úr
þyrlunni þegar hún var að hrapa og
ljósmynd í BILD, tekin þegar þyrl-
an er á niðurleið sýnir mann, að því
er virðist með óopnaða fallhlíf í
loftinu. Lík hans fannst skammt
frá þyrlubrakinu. Að sögn lögreglu
var ógerningur að bera kennsl á
mörg likanna, svo illa voru þau
leikin.
Seint í dag hafði rannsóknar-
mönnum ekki enn tekist að komast
að orsökum slyssins. Sjónarvottar
hafa skýrt svo frá að þyrilblað hafi
losnað af þegar þyrlan var í um 300
metra hæð. Flestir þeirra sem lét-
ust voru franskir fallhlífarstökkv-
arar, alls 23 talsins. Þá létust og 9
breskir fallhlifarstökkmenn auk 8
Bandaríkjamanna og 6 V-Þjóð-
verja.
Mesta þyrluslys, sem vitað er
um, átti sér stað í maí 1977 þegar
54 ísraelskir hermenn létust er
þyrla hrapaði á vesturbakka Jórd-
anár.
Eins og sjá má af þessari mynd var næsta iftió heillegt I þyrhmni er hún kom nidur á þjóðveginn rétt utan Mannheim
eftir 300 metra fall. Mörg líkanna 46 voru nær óþekkjanleg.