Morgunblaðið - 25.09.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1982
\?/
ERLENT
Yashin fékk
heilablóðfall
Moskvu, 24. seplember. AP.
SOVÉZKI knattspyrnukappinn Lev Yashin, einn frægasti knattspyrnn-
maður Kússa, fékk heilablódfall fyrir nokkrum dögum, að sögn sovézkra
heimilda.
Ekki hefur verið skýrt frá
þessum sjúkleika Yashins í sov-
ézkum fjölmiðlum. Hermdu
fregnir að hann hefði getað talað
á fimmtudag þegar embættis-
menn, sem með íþróttamál fara,
heimsóttu hann á sjúkrahús.
Yashin hætti keppni fyrir 12
árum, þá 41 árs að aldri. Hann
lék með knattspyrnufélaginu
Dynamo Moscow í 21 ár, en á
sama tímabili 78 leiki með sov-
ézka landsliðinu og tók m.a. þátt
í þremur heimsmeistarakeppn-
um.
Þegar Yashin hætti keppni
1970 hafði hann unnið til sæmd-
arheitisins bezti markvörður
allra tíma, og vegna frammi-
stöðu sinnar á íþróttavellinum
var hann m.a. sæmdur Lenín-
orðunni.
Yashin varð ólympíumeistari
1956 og árið 1963 kusu evrópskir
íþróttafréttamenn hann bezta
leikmann ársins í Evrópu. Það ár
fékk hann aðeins sex mörk á sig
í 27 leikjum sovézku meistara-
keppninnar. Yashin var hátt-
settur í knattspyrnudeild sov-
ézku íþróttanefndarinnar þegar
hann fékk heilablóðfallið.
Æ-
Ovænt tap Koch í flokks-
kosningum til ríkisstjóra
New York, 24. Heplember. Al*.
IMAKIO CUMO vann í gær mjög
óvæntan sigur yfir Edward Koch,
borgarstjóra New York, í kosningu
um útnefningu frambjóöanda demó-
krata í næstu ríkisstjórakosningun-
um. Ix'w Lehrman, kunnur maður úr
viðskiptum og forríkur, vann sigur
yfir Paul Curran í hliðstæðum kosn-
ingum repúblikana.
Þá hlaut Daniel Moynihan,
þingmaður demókrata, fyrirhafn-
arlitla endurútnefningu til öld-
ungadeildarinnar og mætir þar
Florence Sullivan úr flokki repú-
blikana, sem á sæti á ríkisþinginu.
Koch, sem fyrirfram var álitið
að myndi vinna öruggan sigur í
borginni sjálfri, hlaut aðeins tæp
52% atkvæða. Cumo fékk á hinn
bóginn nær % hluta atkvæða í
flestum úthverfum. Er hinn mikli
sigur Cumo þar talinn að ein-
hverju leyti eiga rætur sínar að
rekja til ummæla Koch í Playboy
fyrr á árinu þar sem hann sagði líf
fólksins í úthverfunum vera „ger-
ilsneytt" og „brandari".
„Ég er þó enn borgarstjóri,"
sagði Koch við vonsvikna stuðn-
ingsmenn sína. Hann á enn þrjú
ár eftir af kjörtímabilinu. „Fólkið
hefur kveðið upp sinn dóm og
Cumo er frambjóðandi demó-
krata," sagði Koch ennfremur.
Glemp mun heimsækja tólf
borgir í Bandaríkjunum og Kan-
ada og m.a. eiga fundi með Banda-
ríkjamönnum, sem eru af pólsku
bergi. Pólskur erkibiskup hefur
ekki heimsótt Bandaríkin áður.
Glemp mun fara til fundar við
Jóhannes Pál páfa í Vatikaninu 7.
október, en til Bandaríkjanna fer
hann frá Róm 14. eða 15. október.
Páfi ferðaðist um Bandaríkin
1979, skömmu eftir að hann tók
við embætti sem æðsti maður kaþ-
ólsku kirkjunnar í október 1978.
Bandarísk freigáta
strandar við Helsinki
licUinkí, 24. september. AP.
BANDAKÍSKA freigátan McCandless, sem strandaði við Helsinki í svarta-
þoku í morgun, var dregin á flot síðdegis og voru skemmdir sagðar óveru-
legar, að sögn talsmanns finnska sjóhersins.
Freigátan strandaði þegar hún Finnskur hafnsögumaður var
var að sigla inn til Helsinki og um borð í freigátunni þegar
steytti á skeri þrjú hundruð metra
frá landi. Freigátan var að koma í
þriggja daga heimsókn til Hels-
inki ásamt beitiskipinu Harry E.
Yarnell.
óhappið átti sér stað. Engan sak-
aði um borð við óhappið. Beiti-
skipið sigldi óhappalaust til hafn-
ar í þokunni, sem er sögð megin
orsök strandsins.
I'cking, 24. neptenber. Al*.
MARGARET Thatcher, for-
sætisráðherra Bretlands,
sagði í dag, að hún myndi
hefja viðræður við kínverska
ráðamenn um framtíð Hong
Kong eins fljótt og auðið
væri. Stefnt væri að formleg-
um viðræðum um leið og
opinberri heimsókn hennar
lyki. Óformlegar viðræður
hafa staðið yfir að undan-
förnu. Meginmarkmiðið
sagöi hún vera, að tryggja
áframhaldandi jafnvægi og
blómstrandi viðskipti.
Thatcher og Deng Xiaoping
ræddu saman í tvær klukkustund-
ir í morgun. Thatcher vildi ekki
segja fréttamönnum um hvað við-
ræður þeirra hefðu snúist, utan
hvað sjónarmið beggja hefðu verið
viðruð. Sagði forsætisráðherrann
ennfemur, að ljóst væri að leysa
þyrfti vanda Hong Kong á sem
allra skjótastan máta. Málið væri
í eðli sínu flókið en framvindu
þess yrði flýtt eins og auðið væri.
Thatcher sagði einnig, að enga
breytingu virtist að sjá í afstöðu
Kínverja til Sovétmanna á undan-
förnum fimm árum, en á hinn
bóginn hefðu tengsl Bretlands og
Kína styrkst frekar við þessa
heimsókn. Sagðist Thatcher gera
sér vonir um að auka mætti út-
flutning til Kína á næstunni.
Fjöldamorðum mótmælt — Hópur manna safnaðist saman
fyrir utan bústað Menachem Begins, forsætisráðherra
ísraels, í vikunni til þess að mótmæla fjöldamorðunum í
Beirút. Krafðist fólkið að Begin og Sharon, varnarmála-
ráðherra, segðu af sér.
Sarah Churchill látin
l/ondon, 25. september. AP.
SARAH Churchill, hin umtalaða dóttir Winston Churchills fyrrverandi for-
sætisráðherra Breta, lézt á heimili sínu í London í dag eftir löng veikindi.
Hún varð 67 ára að aldri.
Mágur hennar, Soames lávarð-
ur, sagði að hún hefði látizt í
svefni. Sarah, eða lafði Audley
eins og hún hét eftir að hún giftist
hið þriðja sinnið, og Mary Soames
voru einu eftirlifandi börn
Churchills. Sonurinn Randolph
lézt 1968 og Diana 1963.
Lafði Audley gegndi ýmsum
störfum í sjálfboðasveitum brezka
hersins í stríðinu og hún var í
föruneyti föður síns á Yalta-
ráðstefnunni og fundinum í Te-
heran, þegar leiðtogar stórveld-
anna hittust þar. Hún var ritari
Churchills og skráði niður það
sem fram fór á fundunum. Hún
lýsti Stalín meðal annars svo: „Jói
vinur er mikilmenni — um það
getur ekki verið neinn vafi. Hann
hefur líka mikla kímnigáfu."
Sarah Churchill sagði einhverju
sinni, að hún hefði átt ljúfa og
hamingjuríka bernsku, en sautján
ára gömul hefði hún fundið, að
hún yrði að koma sér úr þessu
verndaða hreiðri og skjóli, sem
bernskuheimili hennar hafði ver-
ið. Hún hljópst á brott með aust-
urrískum leikara og giftist honum
1936, þrátt fyrir eindregin varnað-
arorð föður síns. Þau skildu árið
1945. Þá fluttist hún til Bandaríkj-
anna og sneri sér að leiklist sem
hún hafði lengi haft áhuga á. Hún
giftist þar ljósmyndaranum Anth-
ony Beauchamp, kom fram í
nokkrum leikritum og fékk ekki
sérlega örvandi umsagnir. Hún og
Beauchamp áttu bæði við áfeng-
isvandamál að stríða og hann lézt
árið 1958 eftir að hafa tekið inn of
stóran skammt af svefnlyfjum.
Sarah stundaði oft blaðamennsku
næstu ár, en hún var hvað eftir
annað handtekin vegna drykkju,
ýmist vegna ölvunar við akstur,
eða sakir óspekta á almannafæri.
Systir hennar, lafði Mary Soames,
segir að hún hafi loks fundið frið-
inn er hún giftist Audley lávarði,
en hann andaðist 1963, réttu ári
eftir giftingu þeirra. Sarah flutti
þá til Italíu og tók þátt í hinu ljúfa
lífi þar, unz heilsa hennar bilaði
og síðustu árin var hljótt um
þessa ævintýrakonu.
Jozef Glemp
til Banda-
ríkjanna
Varsjá, 24. september. AP.
JOZEF Glemp erkibiskup, yfirmað-
ur pólsku kirkjunnar, fer til Banda-
ríkjanna og Kanada um miðjan
næsta mánuð, og mun að líkindum
eiga fund með Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta, að sögn áreiðan-
legra heimilda.
Thatcher vill flýta lausn
vandamála Hong Kong