Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982 Icelandair, stolt íslendinga? Nei Svar til skrifstofustjóra Flugleiða í Amsterdam eftir Geir R. Andersen „Eru Islendingar ekki lengur stoltir af Icelandair?", spyr Albert P. van Ipenberg, skrifstofu- og sölustjóri þeirra Flugleiða í Amst- erdam. Það hefur kannski verið meira en tímabært að kasta þess- ari spurningu fram. Og fyrst sölu- stjórinn spyr þannig í opnu bréfi til lesenda Morgunblaðsins, er þá ekki rétt, að einhver svari? Sölustjórinn hefði að vísu getað notað tækifærið og svarað fyrir sig, persónulega, hvort hann sjálf- ur væri stoltur af Icelandair. Það gerir hann hins vegar ekki. — Það láir honum enginn. En samkvæmt uppsetningu bréfs Albert P. van Ipenberg skal nú svarað í réttri röð. Ástæðan til þess, að öðru félagi en Flugleiðum hefur verið fengið í hendur flugleyfi til Amsterdam er sú, að þjóð, sem ekki á annarra kosta völ í samgöngum við um- heiminn en með flugi er illilega reyrð í fjötra, ef hún á að treysta eingöngu á eitt fyrirtæki í þeim efnum. Fyrirtæki, sem auk þess er alls ekki traust, og sækir árlega fjárstuðning til landsmanna gegn- um sameiginlegan sjóð þeirra, ríkiskassann. Undirritaður er meðal þeirra fjölmörgu Islendinga, sem er sannfærður um að farþegum frá íslandi, jafnt og frá heimalandi sölustjórans, Hollandi, verði til góðs að breyta til og hafa vaikosti um flugfélög. Þar hafa Hollend- ingar gefið gott fordæmi sjalfir og hafna einu ríkisstyrktu flugfélagi. Sem starfsmaður Loftleiða hf. og síðar Flugleiða um nærri tveggja áratuga skeið, minnist undirritaður einmitt íyrirtækisins „Aerotrans", undir stjórn hins hörkuduglega De Meyer, sem lézt fyrir allmörgum árum. Ekki er hægt að segja, að sú skrifstofa hafi verið sérlega „skemmtileg", né hafi hún verið staðsett í einhverjum „“hallar- garði". Fyrirtækið „Aerotrans" var engu að síður mjög „aktivt" og skilaði verkefnum þeim, sem það tók að sér frábærlega vel. Starfs- lið virtist samhent og traustvekj- andi. Minnist sá er þetta ritar með ánægju margra ferða til Amster- dam í þágu Loftleiða hf., og frá- bærrar fyrrigreiðslu við öll mál Loftleiða á þeim tíma. Um Hollandsmarkaðinn segir sölustjórinn m.a.: „Þetta var og er ekki enn auðvelt verkefni, upplýs- ingabæklingar og þess háttar var af skornum skammti ..." — Þetta væri svo sem eftir öðru, þótt óskapnaðurinn Flugleiðir, sem varð til úr hinum tveimur íslenzku flugfélögum, Loftleiðum og Flug- leiðum, sem varð til úr hinum tveimur íslenzku flugfélögum, Loftleiðum og Flugfélagi íslands, ætti einmitt að þjóna því hlut- verki að auðvelda það verkefni með áreiðanlegum upplýsinga- og áætlunarbæklingum. Slíkt hefur sennilega verið svikið eins og ann- að. Og nú verður skrifstofu Flug- leiða í Amsterdam lokað, segir sölustjórinn. „Sex íslandsvinir verða nú að sjá á eftir störfum sínurn." — Hér í heimalandi Flugleiða hafa ekki bara sex menn þurft að sjá eftir störfum sínum, heldur hundrað og tíu sinnum sex. Undirritaðan minnir að for- stjóri Flugleiða hafi látið hafa eft- ir sér að það hafi verið hátt í 700 manns, vítt og breitt innan fyrir- tækisins, sem misstu atvinnu sína, þegar óskapnaðinum Flugleiðum hafði verið sleppt lausum með nýrri „áhöfn"! í þessum sjö hundruð manna hópi voru margir, ef ekki flestir þeir frumkvöðlar, sem höfðu unn- ið hjá Loftleiðum frá upphafi og höfðu m.a. mótað sölu- og stjórn- unarkerfi þess félags, þ.á m. for- stjóri og aðaleigandi. í þeim efnum hefur raunar engu verið breytt með tilkomu Flug- leiða og byggja Flugleiðir í dag afkomu sína á þeirri einu áætlun- arleið, sem tekin var upp á þessum árum, nefnilega Ameríkuleiðinni. Nyti hennar ekki við nú, væru Flugleiðir steindauðar. En að því marki virðist raunar hafa verið stefnt, allt frá endanlegri samein- ingu flugfélaganna tveggja, árið 1976. — Það var því áfangi í þeirri stefnu, þegar „hreinsanir" úr starfsliði hófust, seinni hluta árs- ins 1980. Að lokum. Sölustjóri Flugleiða í Amsterdam fullyrðir, að eftir sameiningu LL og FI „stöndum við nú í sömu sporum" — og spyr: „Hvers vegna"? Þetta er alveg hárrétt hjá sölustjóranum. Flugmálin eru í þann veginn að komast í sömu spor og fyrir sam- eininguna, og á samgönguráð- herra íslands þar þakkir skildar. Arnarflug, hið unga flugfélag á einmitt margt sameiginlegt með Loftleiðum fyrr á árum, á erfitt uppdráttar, en er stjórnað af frískum mönnum, sem ásamt starfsliði hafa góðar hugmyndir og ryðja vandamálum úr vegi, án ríkisstyrks. — En það má aldrei gleymast, að Flugleiðir eiga stærstan hlut einstakra aðila í Arnarflugi, og það eitt sér, eru handjárn, sem gera Arnarflugi erfitt um vik til athafna. Og hvers vegna vill stjórn Flugleiða hand- járna fyrirtæki, sem hún á aðild að? — Þetta vefst fyrir mörgum Islendingum. Á dögum sameiningarviðræðna FI og LL höfðu gárungar á orði, að bezta nafnið á hið nýja sameinaða félag (sem menn vissu raunar, að aldrei yrði sameinað að fullu, í þess orðs fyllstu merkingu) — væri FILL — og nota einkennis- stafi beggja félaganna. Þegar frá líður er augljóst, að svo klunnalegum óskapnaði sem Flugleiðir eru, hefði nafnið FÍLL hf. verið við hæfi. „Eru íslendingar ekki lengur stoltir af Icelandair?", spyr sölu- stjóri Flugleiða í Amsterdam að lokum. Því verður bezt svarað þannig. íslendingar voru stoltir af nöfn- um flugfélaga sinna, Loftleiða og Flugfélags Islands, sem notuðu ensku orðin „Icelandic" og „Ice- landair", sitt fyrir hvort félag á erlendum vettvangi. Þegar sameiningin átti sér stað og úr varð Flugleiðir — Iceland- air, misstu fjölmargir íslendingar trú á íslenzkum flugmálum yfir- leitt. Orðið Icelandair sem annað heiti á óskapnaðinum Flugleiðum er ekki stolt landsmanna, og hefur aldrei verið, — nema ef til vill þeirra, sem hagsmuna hafa að gæta gengum atvinnu og/eða ætt- artengsl. Slíkt viðhorf verður þó fremur að flokka undir aga og hræðslubandalag. Það er aldrei merki um traustan rekstur fyrirtækis, þegar forstjóri fer að ólmast með hengilása fyrir framan hurðir hinna ýmsu deilda fyrirtækis, boðandi váleg tíðindi. En þótt sölustjóri Flugleiða (nú- verandi eða fyrrverandi) standi við lokaðar dyr skrifstofu félags- ins í Amsterdam, ber undirritaður þá einlægu von í bjrósti, að aðrir aðilar en Flugleiðir fái notið þekk- ingar og reynslu sölustjórans sem fyrst. Flestum, sem urðu þeirrar ógæfu „aðnjótandi" að ánetjast óskapnaðinum Flugleiðum, eftir sameiningu íslenzku flugfélag- anna tveggja tókst þrátt fyrir það að halda lífi og limum. Bók Friedmans árituð af höfundi SVO SEM kunnugt er gáfu Almenna bókafélagið og Félag frjálshyggju- manna út bók Miltons Friedmans, Frelsi og framtak eða ('apitalism and Freedom, 31. júlí sl. á afmælis- degi höfundarins, en hann varð þá sjötugur. Nú hefur Félag frjáls- hyggjumanna gefið út fimmtíu ein- tök af bókinni, sem eru sérstaklega innbundin, tölusett og árituð af Milton Friedman. Friedman áritaði bækurnar fimmtíu úti í Berlín, þar sem hann sat ársfund Mont Péierin-samtak- anna, en þau eru alþjóðasamtök frjálslyndra fræðimanna, sem stofnuð voru 1947 af þeim Fried- man, Hayek, Popper og fleirum. Tveir menn sóttu fund þeirra frá íslandi að þessu sinni, þeir Friðrik Friðriksson hagfræðingur og Hannes H. Gissurarson sagnfræð- ingur, en hann þýddi bók Fried- mans á íslensku. Hér sést Friedman með bók sína. Innbundnu eintökin eru þegar öll upppöntuð, en vera kann, að einhver þeirra verði þó til sölu, ef pantanir verða ekki sóttar. Geta mann haft samband við Félag frjálshyggjumanna vegna þess síðar. Bók Friedmans, Frelsi og fram- tak, skiptist í 13 kafla, en í þeim ræðir Friedman meðal annars um tengsl mannréttinda og mark- aðskerfis, hlutverk ríkisins, skýr- ingar hagfræðinga á heimskrepp- unni (en Friedman telur, að heimskreppan hafi orðið vegna of mikilla ríkisafskipta, en ekki of lítilla eins og margir aðrir hag- fræðingar telja), peningamál og ríkisfjármál, en einnig reifar hann ýmsar hugmyndir sínar, sem þykja róttækar, til dæmis um einkarekstur skóla og trygginga- kerfis. Hún er að sjálfsögðu til sem pappírskilja í öllum bókabúð- um. STJÚRNUNARFR/EÐSLA BOKHALD MEÐ SMÁTÖLVUM Tilgangur námskeiösins er að gefa Leiöbeinandi: þátttakendum innsýn í og þjálfun á tölvuvætt fjárhags-, viöskipta- manna- og birgöabókhald ásamt hvaöa möguleikar skapast meö samtengingu þessara kerfa. Efni: — Tövluvæöing bókhalds og skrán- ingarkerfa. — Sambyggt tölvukerfi og mögu- leikar þeirra. — Kennsla og raunhæfar æfingar á tölvur. Námskeiöiö er ætlað þeim aöilum sem hafa tölvuvætt eöa ætla aö tölvuvæöa fjárhags-, viöskiptamanna- og birgöa- bókhald sitt og einnig þeim sem vinna viö kerfiö á tölvurnar. Gert er ráö fyrir þekkingu í bókfærslu. Hilmir Hilmisson, viöskiptafræöingur. Staöur: Ármúli 36, 3. hæö (gengiö inn frá Selmúla). Tími: 11—13. október kl. 13.30—17.30. Ath.: Fræðslusjóður Verslunarmannafélags Reykjavíkur greiöir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu nám- skeiöi og skal sækja um þaö á skrifstofu VR. Tölvuval — undir- búningur og framkvæmd Tilgangur námskeiðsins er aö gera þátttakendur færa um aö taka ákvaröanir varöandi undirbúning og framkvæmd tölvuvæöingar og val tölvubúnaöar fyrir eigin fyrirtæki. — Þafnast fyrirtækið tölvu? Leiöbeinandi: — Hvaö á aö tölvuvæöa? — Hvenær er rétti tíminn til aö tölvuvæöast? — Meö hvaöa búnaöi á aö tölvu- væöa? Efni: Fjallað veröur um alla verk- þætti tölvuvæöingar frá undirbún- ingi til vals tölvubúnaöar. Auk þess veröur fjallaö sérstaklega um áhrif tölvuvæöingar á stjórnskipulag og starfsfólk fyrirtækisins. Námskeiöið er ætlaö framkvæmda- stjórum og öörum þeim stjórnend- um sem taka þátt í ákvöröunum um tölvuvæðingu og val tölvubúnaöar. Gert er ráö fyrir aö þátttakendur þekki helstu hugtök á sviöi tölvu- tækni og kerfisfræöi. Páll Pálsson, hagverkfræöingur. Staöur: Síöumúli 23, 3. hæö. Tími: 11,—13. október kl. 13- -18. Tölvuritvinnsla Tilgangur námskeiösins er að kynna tæknina viö tölvuritvinnslu og æfa nemendur í notkun ritvinnslukerfa. Efni: — Undirstööuatriöi um tölvur og tölvupóst. — Kostir tölvuritvinnslu. — Kynning og æfingar á ýmis rit- vinnslukerfi sem þegar eru flutt til landsins. Námskeiöiö er ætlaö þeim sem vllja afla sér alhliða þekkingar um hvaö ritvinnsla er og vilja æfa sig og meta mismunandi valkosti ýmissa kerfa sem boöiö er uppá á íslenska mark- aönum í dag. Leiöbeinendur: \ Kolbrún Þórhallsdóttir Staöur: Ármúli 36, 3. hæö (gengiö inn frá Selmúla). Tími: 11.-15. október kl. 09—13. Ragna Siguröar- dóttir Guöjohnsen Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfólagsins í síma 82930. Ath.: Fræöslusjóöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur greiöir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu nám- skeiöi og skal sækja um þaö á skrifstofu VR. STJfiRNUNARFELAG ÍSLANDS SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 82930

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.