Morgunblaðið - 28.09.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUtiAGTJR 5Í8. SEPTEMBER 1982
29
ginn. Ljósm.: Einar Falur.
á sunnudag í Grindavík. Um 600 manns voru við vígsluna og þurftu nokkrir frá að hverfa vegna rúmleysis.
Ljósm.: ólafur Rúnar.
y j < 1
Jón Hólmgeirsson meóhjálpari gengur í fylkingarbrjósti meó krossinn, sem stód
á altari gömlu sóknarkirkjunnar í Grindavík yfir í nýju kirkjuna. Á eftir koma
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður kvenfélagsins, og prestar prófastdæmisins.
Ljósm.: Einar Falur.
Mynd þessi er tekin sunnudaginn
12. september, en þá var í síðasta
sinn messað í gömlu sóknarkirkj-
unni í Grindavík. Altaristaflan er
eftir Ásgrím Jónsson, en eftirmynd
hennar er gerð I mósaík i nýju kirkj-
unni. Árið 1909 var gamla kirkjan
vígð — sama dag fyrir 73 árum.
Ljósm.: Ólafur Rúnar.
Altaristaflan í nýju sóknarkirkjunni
í Grindavík — stækkuð eftirmynd
málverks Ásgríms Jónssonar — gerð
í mósaík.
Ljósm.: Ólafur Rúnar.
:agafirði
ur og börn röðuðu sér á réttarvegg-
inn og fylgdust með atganginum
sem oft á tíðum var mikill. Hróp og
köll glymja og stundum fljúga
fleygar setningar eða þá að bölvað
er hraustlega í faðmlögum við fóst-
urjörðina eftir að baldinn foli fór
með sigur af hólmi í einni orrust-
unni, en þá er bara að standa á fæt-
ur á nýjan leik og fljúga á folann
aftur. Síðan þegar safnað er kröft-
um fyrir næstu lotu er gjarnan
heilsað upp á vini og kunningja og
þykir þá vel við hæfi að taka upp
vasapelann til að undirstrika vin-
áttuna. Þegar líður að lokum rétt-
arstarfa brýna sumir raustina og
syngja öðrum og ekki síður sjálfum
sér til ánægju.
Erfitt er að ætla sér svo vel sé að
lýsa þeirri stemmningu í máli og
myndum sem ríkir á samkundu sem
stóðréttir eru. Ef vel ætti að vera
þyrfti bæði tal og tónar að fylgja
með en best er að fara á staðinn
sjálfur og upplifa það sem þar fer
fram. En ef til vill fer hver að verða
síðastur til þess því stoðréttum fer
sífellt fækkandi og ekki ósennilegt
að þessi þjóðlega uppákoma verði
minningin ein í náinni framtíð.
VK
Hér er einn að komast á bak meðan félagi hans reynir að stöðva trippið. í
baksýn má sjá áhorfendadilkinn sem er í miðjum almenningnum í Skarðarétt.
Góð hugmynd að koma slíku fyrir.
Sigurlaug Jónasdóttir, húsfreyja á Kárastöðum (þessi með prikið), sýndi bæði
dugnað og stjórnsemi við hliðgæslu við Rípurhreppsdilkinn og lét hún karlana
óspart heyra það ef þeir ekki stóðu sig i stykkinu. i.jósm. vk.
í þungum þönkum ganga þeir Einar E. Gíslason, ráðunautur og bóndi að
Syðra-Skörðugili, og Sigurður Ingimarsson, Flugumýri, eftir almenningnum.
Dúddi á Skörðugili þi^. _r brjóstbirtu af Guðmundi Valtýssyni stórbónda á
Eiríksstöðum í Svartárdal.