Morgunblaðið - 28.09.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1982
35
hafa farið að í þessum verkefnum,
þ.e. með því að nota hinar
svonefndu „vandrekirker".
„Verkfæraskúr Jesú“ svonefnd
er „vandrekirken" í Árósum (Hell-
igándskirken) — og er það rétt-
nefni slíkrar kirkju, því að verk-
færaskúr rúmar alls kyns nytja-
verkfæri í lítilli, yfirlætislausri
byggingu.
„Vandrekirke" er ekki of fín
fyrir forfæringar á búnaði, þar
sem hinn litli kirkjusalur, sem er
hið eina stærra rými í kirkjunni,
þarf að vera nothæfur fyrir alls
konar starfsemi, allt frá guðsþjón-
ustu á sunnudögum til æskulýðs-
heimilis á laugardögum. Inn á
milli geta verið samkomur fyrir
aldraða, kirkjukvöld, kirkjuskóli,
fullorðinsfræðsla, skátastarf,
fermingarfræðsla o.fl. Listinn er
nær óendanlegur og allt gerist
þetta í hinu tiltölulega litla húsi
með einum sal, eldhúsi, presta-
herbergi, fatageymslu og snyrt-
ingu.
I „vandrekirken“ í Helsingjaeyri
var t.d. sagt eftir samkomu með
kaffiveitingum: „Nú förum við yfir
í kirkjuna," en það gerðist með
því, að kaffiborðin voru fjarlægð
og stólum raðað. Og þá var allt
tiibúið til „kirkjugöngunnar"! Lít-
ið Guðshús með mörgum mögu-
leikum, það er „vandrekirke".
Meðan sóknin vex
... Það er hinn mikli kostur
þessa litla kirkjuhúss, að það er
með frá byrjun hinnar nýju
byggðar, þegar sóknin er full-
byggð, en hinn stærri kirkja fram-
tíðarinnar fullbyggð, tilbúin fyrir
þau viðfangsefni og athafnir, sem
hin endanlega kirkja er ein hæf
fyrir. Þegar því marki er náð, hef-
ur sóknarfólkið betur lært að vera
söfnuður, þökk sé hinni litlu
„vandrekirke", því að í henni
myndast samfélag, sem flyst með
inn í kirkjuhús framtíðarinnar.
í ljós hefur komið, að kirkju-
bygginganefndir hafa reynst mikl-
um mun hæfari til að móta þarfir
og kröfur framtíðarkirkjunnar,
eftir að hafa fengið reynslu af
„vandrekirken".
Skapar samfélag
Þessar kirkjur eru allar af mjög
svo hóflegri stærð og einmitt þess
vegna eru þær samfélagsmynd-
andi („Blessuð þrengslin," sögðu
gömlu Þingeyingarnir), og það er
líklega ástæðan fyrir því, að
margir kveðja þær með söknuði,
er þær eru fluttar í enn nýja
byggð. Þetta kom fram, þegar
Margrethe-kirkjan í Kaupmanna-
höfn var vígð og „vandrekirken",
sem verið hafði athvarf safnaðar-
ins í nokkur ár var kvödd. „Þú
litla, blessaða kirkja, við munum
sakna þín.“
Nýi söfnuðurinn sem fær þessa
„vandrekirke“ til afnota mun ef-
laust segja: „Þú litla blessaða
kirkja, við hlökkum til að nota
þig“
Svo mörg eru þau orð. Hugsum
um þau. Eigum við ekki að gera
tilraun með slíka flytjanlega
kirkju í komandi nýbyggðum
okkar í þéttbýlinu? Eðlilegt væri,
að kirkjubyggingasjóðir Reykja-
víkurborgar og ríkisins leggðu
fram stofnfé, en söfnuðurinn, sem
nýtti kirkjuna, greiddi hóflega
leigu uns hann hefur komið sér
upp eigin kirkju fyrir framtíðina.
Á jónsmessu ’82
Megrunarnámskeið
Ný námskeiö hefjast 7. október. (Bandarískt megrun-
arnámskeiö sem hefur notiö mikilla vinsælda og gefiö
mjög góöan árangur.) Námskeiöiö veitir alhliöa fræöslu
um hollar lífsvenjur og vel samsett mataræöi, sem getur
samrýmst vel skipulögöu, venjulegu heimilismataræöi.
Námskeiöiö er fyrir þá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma í veg fyrir aö vandamáliö endurtaki
sig.
• sem vilja foröast offitu og það sem henni fylgir.
Upplýsingar og innritun í síma 74204 kl. 13—18.
Kristrún Jóhannesdóttir,
manneldisfræöingur.
MYNDLIST
í áföngum
Kennari Einar Hákonarson listm.
Námskeiö í teikningu verða haldin á vinnustofu minni aö
Vogaseli 1, Breiðholti, 4. okt.—4. nóv. Innritun í síma
71271.
1. áfangi, byrjendur, 10 skipti. Hluta og módelteiknun.
Mánud. og fimmtud. kl. 17.50—19.50 og 20.00—22.00.
2. áfangi, framhaldsfl., 10 skipti. Myndbygging, módel-
teiknun. Þriöjud. og föstud. kl. 17.50—19.50.
Kennslugjald, efni og áhöld hvers áfanga 1200 kr.
Aldurslágmark 16 ára.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Tafl- og Bridge-
klúbburinn
Fimmtudaginn 30. sept. hefst
aðaltvímenningskeppni TBK.
Keppnisstjóri verður Agnar
Jörgensen. Þátttakendur skrái
sig hjá Sigfúsi Árnasyni, sími
71294 eða Sigfúsi Sigurhjartar-
syni, sími 44988. Spilað er í
Domus Medica og hefst keppnin
kl. 19.50 stundvíslega.
Bridgefélag
Kópavogs
Eins kvölds tvímennings-
keppni var háð fimmtudaginn
23. sept. með þátttöku 19 para.
Spilað var í tveimur 10 para riðl-
um með yfirsetu í öðrum. Sam-
anlögð úrslit úr riðlum urðu:
Hrólfur Hjaltason
— Ásgeir Ásbjörnsson 141 stig
Sigurður Sigurjónsson
— Júlíus Snorrason, 131 stig
Ragnar Björnsson
— Ármann J. Lárusson 125 stig
Friðrik Guðmundsson
— Georg Sverrisson 120 stig
Þórir Sveinsson
— Jónatan Líndal 118 stig
Baldur Bjartmarsson
— Guðjón Jónsson 117 stig
Meðalskor 108 stig
Næsta kéþpni félagsins er 3ja
kvölda tvímenningur sem hefst
fimmtudaginn 30. sept. kl. 20.00
stundvíslega að Þinghóli við
Hamraborg.
Frá Bridgefélagi
Selfoss og nágrennis
Stóra Flórídanamótið
Nú, eins og undanfarin tvö ár,
stendur Bridgefélag Selfoss fyrir
stórmóti í bridge. I ár höldum
við Stóra Flórídanamótið. Mótið
verður haldið í Hótel Selfoss,
laugardaginn 16. okt. nk. Mót-
setning verður kl.13.00 og spila-
mennska hefst kl. 13.15. Spilaður
verður 32ja para tölvugefinn
barómeter. í boði eru 16.000,- kr.
verðiaun og skiptast þau þannig:
1. v. 8.000,- kr., 2. v. 5.000,- kr„
3. v. 3.000,- kr.
Á mótinu verður einnig spilað
um silfurstig. Þátttökugjald er
kr. 500,- pr. par og borgast það í
mótsbyrjun.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist til Erlings Þor-
steinssonar í síma: 99-1653 eða
Garðars Gestssonar í síma 99-
1758, fyrir 10. okt. nk.
Mótstjóri verður Sigurjón
Tryggvason.
Stjórnin.
Bridgedeild
Breiðfirðings
Sl. fimmtudag voru spilaðir 3
tólf para riðlar. Úrslit urðu
þessi:
Stig
1. Halldór Jóhannesson —
Ingvi Guðjónsson 206
2. Albert Þorsteinsson —
Sigurður Emilsson 203
3. Birgir Isleifsson —
Karl Stefánsson 197
4. Jóhann Jóhannsson —
Kristján Siggeirsson 194
5. Halldór Helgason —
Sveinn Helgason 190
6. Hans Nielsen —
Lárus Hermannsson 196
7. Arnar Ingólfsson —
Þorsteinn Bergmann 185
8. Benedikt Björnsson —
Magnús Björnsson 184
Meðalskor 165
Næst verður spilað nk.
fimmtudag, 30. sept., stundvís-
lega kl. 19.30.
Níðsterk klæðning
á þök og veggi
Barkar-stálplötur eru fáanlegar með tveimur mismunandi háum bárum, 45 eöa 76 mm. Stáliö
er f ramleitt erlendis undir ströngu gæöaeftirliti og siöan valsaö i nýjum og fullkomnum vélum
Barkar hf.
Barkar-stálplötur eru galvaniseraðar og húöaöar meö plastisol eöa silikon polyester, sem
tryggir einstakt veörunarþol. Stálplöturnar eru afgreiddar í lltum og lengdum
aö vali kaupanda.
Barkar-stálplötur henta sérstaklega vel sem klæöning á þök og veggi. Vegna mikils buröar-
þols er 76 mm platan einnig hentug i milligólf og þar sem langt bil er á milli ása.
'^BÖRKUR hf
( w H JALLAHR AUNI 2 • SIMI 53755 ■ POSTHOLF 239 ■ 220 HAFNARFlRDI
Framfaraspor - framtíðarlausn
Hringið eöa skrifiö eftir islenskum bæklingi
It