Morgunblaðið - 30.09.1982, Page 1
I
56SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
216. tbl. 69. árg.
FIMMTIJDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
PrentsmiÖja Morgunblaðsins
Luxemborg:
12 létust,
þota fórst
l.uxemhorg. 29. september. AP.
TÓLF farþegar létu lífið og 65 slösuðust þegar sovésk
Ilyushin-62 farþegaþota fórst í kvöld í lendingu á Findel-
flugvelli í Luxemborg. Var vélin á leið til Lima í Perú.
er sovézk
í lendingu
Lendingarskilyrði voru hin
ákjósanlegustu er þotan hóf að-
flug sitt, sem var að öllu leyti eðli-
legt. Um leið og vélin kom inn á
flugbrautina snerist hún skyndi-
lega til hægri og fór út af braut-
inni.
„Vélin hafnaði fyrst á litlu húsi
utan brautarinnar, þar sem er
fjölstefnuviti, og sópaði því með
sér,“ sagði Valgeir Sigurðsson í
Luxemborg er Morgunblaðið
ræddi við hann seint í gærkvöldi.
„Síðan lenti vélin ofan i litlu, af-
líðandi og skógi vöxnu gili og rann
alls um 3-400 metra. Vélin brotn-
aði í mél. Sumt fólkið komst af
sjálfsdáðum út úr vélinni og var
bjargað."
Að sögn Valgeirs var það lán í
óláni, að vélin fór útaf hægra
megin á brautinni. Hefði hún farið
útaf á nákvæmlega sama stað
vinstra megin hefði hún hafnað á
flugskýli Cargolux, þar sem í voru
tvær DC-8 þotur. Fyrir framan
flugskýlið voru þrjár þotúr til
viðbótar. Ein DC-8 þota frá Flug-
leiðum og tvær aðrar vélar Cargo-
lux, júmbóþota og önnur DC-8.
ísraelar á brott
fyrir áramót
Fúlsa við poppi og jazzi:
Klassísk tón-
list er besta
svefnmeðalið
Dewsburv, Knglandi, 29. september. Al*.
TÓNLIST Brahms, Hándel og
Mozart hefur reynst hið besta
ráð til að svæfa börnin á Stain-
cliffe-fæðingarsjúkrahúsinu í
Dewsbury í vesturhluta York-
shire.
„Þetta hefur alveg verið
draumur," segir hjúkrunar-
konan Angela Avery. „Börnin
sofna um leið og við leikum
klassíska tónlist." Leika hjúkr-
unarkonurnar tónlist af seg-
ulbandi á göngum sjúkrahúss-
ins með þessum árangri.
„Það þýðir ekkert að leika
popptónlist eða jazz fyrir
börnin, það hefur ekki svæf-
andi áhrif. Þeim finnst það
óþægilegt og láta strax í sér
heyra. Um leið og eitt barnið
byrjar að gráta fara öll hin af
stað,“ sagði Avery hjúkrun-
arkona. „Eg held að við höfum
dottið niður á bestu aðferðina
til að hafa hér ró og frið.“
Beirút, 29. september. AP.
RÚMLEGA 800 bandarískir her-
menn gengu á land í Líbanon í
morgun og bættust í hóp ítalskra
og franskra gæsluliða, sem þegar
voru komnir til Beirút. Komu
gæsluliðarnir ýmist með skipum að
bryggju eða með þyrlum frá flug-
móðurskipinu Guam. Að sögn tals-
manns bandaríska sendiráðsins í
Beirút, er von á 400 hermönnum
auk skriðdreka, brynvagna og fleiri
farartækja með Hermitage, sem
leggst að bryggju á morgun,
fimmtudag.
„Bandaríkjamenn búast við því
að herir ísraela og Sýrlendinga
verði farnir frá Líbanon innan
skamms og eigi síðar en um ára-
mót,“ sagði Nicolas A. Veliotes,
aðstoðarutanríkisráðherra
Bandaríkjanna í Washington í
dag. Sagði hann ennfremur að
Bandaríkjamenn litu svo á að
brottför Israelsmanna frá Beirút
í dag væri fullkomnun annars
skrefsins í þeirri viðleitni Banda-
ríkjamanna að færa Líbönum
eigið land á ný.
Síðustu hermenn ísraela drógu
sig til baka frá flugvellinum í
Beirút svo að segja á sama
augnabliki og bandarísku gæslu-
liðarnir stigu á land.
Einn bandarísku gæsluliðanna, sem komu til Beirút i gærmorgun, tekur
i hönd ungs pilts í Beirút, sem fékk að smella herhjálmi á höfuð sér í
tilefni dagsins. Símamynd AP.
Begin tekur á sig alla
ábyrgð á fjöldamorðunum
Jerúsalem, 29. september. AP.
í FREGNUM, sem „láku út“ af
fundi utanríkis- og öryggismála-
nefndar ísraelska þingsins, sem
fram fór fyrir luktum dyrum í
dag, og skýrt var frá í ríkisút-
varpinu í Israel, segir að Men-
achem Begin, forsætisráðherra,
hafi lýst því yfir að hann væri
ábyrgur „fyrir öllu því er gerst
hefði“ í Beirút að undanfórnu.
Hann sagði að það skipti engu
hvort hann hefði frétt af fjölda-
morðunum strax eða síðar. Það
breytti ekki staðreyndum máls-
ins.
Lokaundirbúningur ítarlegr-
ar rannsóknar á fjöldamorðun-
um í Beirút hófst í dag. Begin
„Aldrei verið farið eins á
bak við kjósendur og nú“
— segir Willy Brandt, fyrrum kanslari, um ráðagerð stjórnarandstöðunnar
Bonn, V Pýskalandi, 29. september. AP.
„ALDREI FYRR í sögu Vestur-Þýskalands hefur verið reynt að fara á
bak við kjósendur eins rækilega og nú,“ sagði Willy Brandt, fyrrum
kanslari landsins og flokksbróðir Helmut Schmidt, í yfirlýsingu sem
hann gaf út í dag. Var Brandt að vitna til ráðagerða kristilegra og frjálsra
demókrata, sem miða að því að fella Schmidt.
Flokkur Schmidt herti enn
róðurinn gegn stjórnarandstöð-
unni í dag. Undirbjó flokkurinn í
dag fjöldafund í Bonn undir því
siagorði, að verið sé að fella
Schmidt án samráðs við kjós-
endur. Þá voru límdir upp borð-
ar á víð og dreif með kjörorðinu
„Við viljum kosningar strax" og
„Við verðum að ákveða hvert
V-Þýskaland stefnir".
Helmut Kohl, leiðtogi kristi-
legra demókrata, og Hans Diet-
rich Genscher, leiðtogi frjálsra
demókrata, hafa báðir lýst því
yfir að þeir séu samþykkir nýj-
um kosningum en ekki fyrr en í
byrjun næsta árs.
Vonast frjálsir demókratar,
sem fóru hroðalega út úr ríkis-
kosningunum í Hessen um helg-
ina, til að auka fylgi sitt áður en
gengið verður að kjörborði.
Margir vilja kenna þeim stimpii,
sem flokkurinn hefur fengið á
sig, „kanslaradrápararnir", um
hið slæma gengi í kosningunum í
Hessen.
Schmidt heldur ræðu í þinginu
á föstudag, rétt áður en gengið
verður til kosninga um hvort
hann skuli felldur. Talið er víst
að með ræðu sinni muni hann
vinna á sitt band einhverja
þeirra frjálsu demókrata, sem
sögðu skilið við stjórnarsam-
starfið fyrir hálfum mánuði.
Andstæðingar Schmidt segja
að þeir hafi 10 þingmanna meiri-
hluta til að fella hann. Kosning-
in verður leynileg og það rennir
stoðum undir þá skoðun, að e.t.v.
muni nægilega mörgum snúast
hugur á elleftu stundu til að
Schmidt haldi velli.
sendi í dag bréf til Yitzhak
Kahans hæstaréttardómara og
bað hann að útnefna menn til
að skipa þessa rannsóknar-
nefnd, sem myndi hafa vald til
að kalla fyrir vitni, þar með
talið forsætisráðherrann sjálf-
an.
Rannsóknarnefnd þessari
eru engin tímatakmörk sett.
Niðurstöður hennar yrðu held-
ur ekki bindandi fyrir ríkis-
stjórnina, en þær myndu engu
að síður hafa veruleg áhrif á
álit almennings. Það er skilyrði
fyrir starfsemi nefndarinnar
að einn meðlima hennar sé
hæstaréttardómari.
Skoðanakönnun, sem gerð
var eftir fjöldamorðin í Beirút,
til að kanna áhrif þeirra á
vinsældir Menachem Begins og
Ariel Sharons og birt hefur
verið, sýnir, að vinsældir
þeirra beggja hafa dvínað, þó
mun minna en búist hafði verið
við. 72% aðspurðra kváðust
vera ánægð með Begin í emb-
ætti á móti 82% í síðustu könn-
un og 64%. sögðust ánægð með
frammistöðu Sharons á móti
78% í næstu könnun þar á und-
an.