Morgunblaðið - 30.09.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
3
Ilmferöarhnútur myndaðist vid Suðurgötu í liöinni viku þegar stór flutningabifreið á leið suður í Skerjafjörð
komst ekki leiðar sinnar framhjá Melavellinum við Suðurgötu, þar sem umferðareyja skiptir veginum í tvennt.
Mynd Mbl. KÖE.
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Atkvæði verða greidd á
föstudag og laugardag
SAMNINGAR tókust í kjaradeilu
Starfsmannafélags Reykjavíkurborg-
ar og borgarinnar fyrir helgina og er
samningurinn, þegar á heildina er lit-
ið, svipaður þeim samningi, sem
BSKB undirritaði við ríkið á dögun-
um.
Haraldur Hannesson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, sagði í samtali við Mbl., að
hann væri þokkalega ánægður með
samninginn. „Við náðum fram
ákveðnum hlutum, sem við erum
mjög ánægð með. í því sambandi
vegur þyngst, að við náðum að
þurrka út alla, sem eru fyrir neðan
6. launaflokk. Það þýðir í grófum
dráttum, að við náum fram stefnu-
miði BSRB-þingsins frá því í
sumar, um að lágmarkslaun verði
ekki lægri en 8.000 krónur," sagði
Haraldur ennfremur.
Haraldur Hannesson sagði
ennfremur aðspurður, að atkvæði
yrðu greidd um nýja samninginn á
föstudag frá klukkan 15.00—21.00
og á laugardag frá 10.00—19.00.
„Við munum telja atkvæði þegar að
kosningu lokinni, þannig að úrslit-
in ættu að liggja fyrir þegar á laug-
ardagskvöld," sagði Haraldur
ennfremur. Þess má svo að lokum
geta, að í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar eru um 2.500
félagar, sem fylla 2.100 stöðugildi.
Sjávarborg GK
seldi í Hull í gær
SJÁVARBORG GK seldi 62,4 lestir
af fiski í Hull í gær. Ilcildarverð var
878.300 krónur, meðalverð 14,06.
í dag mun Vigri RE selja afla
sinn í Þýzkalandi og í næstu viku
munu Albert Ólafsson KE og Bliki
selja afla sinn í Englandi. Um fleiri
sölur verður ekki að ræða í þeirri
viku.
22ja ára maður:
Grunaður um inn-
brot í 100 bíla
— tíu manns viðriðnir málið
MAÐUR sá, sem setið hefur í gæzlu-
varðhaldi frá 16. september vegna
innbrota í bifreiðir, er grunaður um
innbrot í um 100 bifreiðir á Reykja-
víkursvæðinu. Alls koma 10 manns
við sögu í þessum innbrotum, — piltar
á aldrinum 16 til 23 ára. Maðurinn
sem er f gæziuvarðhaldi er 22 ára
gamall.
Það voru einkum hljómburðar-
tæki, sem stolið var úr bifreiðum,
en einnig fundust fimm talstöðvar í
fórum piltanna. Maðurinn sem nú
situr inni var handtekinn um miðj-
an mánuðinn, þegar hann ásamt
öðrum var staðinn að verki við inn-
brot í bifreið í Breiðholti.
Faraldur innbrota í bifreiðir
gekk yfir í sumar. í ágúst var brot-
izt inn í 32 bifreiðir. Hljómburðar-
tækjum og öðrum verðmætum var
stolið úr þeim. Tekizt hefur að hafa
upp á nokkru af þýfinu, en ekki öllu
og óljóst er hvort eitthvað af þýfinu
hefur verið selt. Málið er í rannsókn
hjá rannsóknarlögreglu ríksins.
Iðntæknistofnun:
Þrír sækja um forstjórastöðu
ÞRÍR hafa sótt um stöðu forstjóra
Iðntæknistofnunar, en umsóknar-
frestur er nú runninn út.
Að sögn iðnaðarráðherra, Hjör-
leifs Guttormssonar, óskaði einn
umsækjenda nafnleyndar, en hinir
tveir eru Sveinn Björnsson, núver-
andi forstjóri, og Þórður Vigfússon,
hagverkfræðingur. Samkvæmt lög-
um skal forstjóri stofnunarinnar
skipaður til fjögurra ára af iðnað-
arráðherra og því hefur staðan ver-
ið auglýst laus til umsóknar.
Starfstímabil Sveins er þegar út-
runnið, en hann gegnir áfram störf-
um þar til gengið hefur verið frá
ráðningu í stöðuna.
Haukur Bjarnason skipaður
aðstoðaryfirlögregluþjónn
HAUKUR Bjarnason lögreglufull-
trúi hefur verið skipaður aðstoðar-
yfirlögregluþjónn í rannsóknarlög-
reglu rikisins.
*
Hann hóf störf í lögreglunni í
Reykjavík 1. nóvember 1950. Hann
starfaði um eins árs skeið sem ör-
yggisvörður hjá Sameinuðu þjóð-
unum. Árið 1955 hóf hann störf
hjá rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík. Hann var skipaður
Haukur Bjarnason
lögreglufulltrúi þegar RLR tók til
starfa 1977. Haukur er 57 ára að
aldri, fæddur 28. september 1925.
Haukur tekur við af Kristmundi
J. Sigurðssyni, sem lét af störfum
16. júní síðastliðinn. Kristmundur
hóf störf í lögreglunni í Reykjavík
1. apríl 1940. I janúar 1945 hóf
hann störf í rannsóknarlög-
reglunni í Reykjavík. Kristmund-
ur er 69 ára að aldri, fæddur 9.
október 1912.
Kristmundur J. Sigurðsson