Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982 13 Langidalur: Bílvelta en ökumaður á bak og burt SEINNI partinn á sunnudag lenti fólksbirreið út af veginum í Langa- dal í Húnavatnssýslu og valt. Öku- maóur sem var á leið frá Stykkis- hólmi norður í Hóla í Hjaltadal fór af slysstað án þess að tilkynna um slysið og tókst ekki að hafa upp á honum fyrr en seinni partinn á mánudag og hafði hann þá fengið far yfir í Skagafjörð. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi er bíllinn ónýtur og má furðulegt teljast að ökumað- ur skyldi sleppa ómeiddur því bíllinn hafi að öllum líkindum farið þrjár veltur. Einnig kom það fram að þarna á sömu slóð- um hafa áður skeð óhöpp en þarna sleppir olíumöl og við tek- ur malarvegur. Um niúleytið á sunnudags- kvöld varð svo allharður árekst- ur tveggja fólksbíla er þeir mættust skammt frá Skipanesi í Melasveit. Mannlaus bifreið var staðsett í vegkantinum og mun hvorugur ökumannanna hafa séð bílinn í tæka tíð og mættust þeir samhliða þeim kyrrstæða. Skipti það engum togum að önnur bif- reiðin sem var Subaru lenti með framhlutann í hlið hinnar bif- reiðarinnar sem var Dodge. Stúlka sem var í Dodge-bifreið- inni fékk höfuðhögg og var flutt á sjúkrahús en aðrir sluppu ómeiddir. Önnur bifreiðin skemmdist mikið og varð að flytja hana á brott á vörubifreið. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi bendir allt til þess að bifreiðin hafi verið á mikilli ferð og farið þrjár veltur. Uónm. v.k. ERBILUNN Það er um að gera fyrir þann sem hyggst kaupa sér nýjan bíl að kynna sér vel hvað í boði er. Skoða bíla og bera saman verð þeirra og gæði. BMW, Ford, Toyota, Volvo eða hvað þeir nú heita allir saman. Sjáðu hinsvegar hvað SAAB býður hér: Stórkostlegir bílar af árgerð '82. Þeir eru til sölu núna á mjög hagstæðu verði. SAAB 99 GL 2ja dyra, kr. 179,200 SAAB 900 GL 4 dyra, kr. 220,900 SAAB 900 GLI4 dyra, kr. 231,900 SAAB 900 GLE 4 dyra sjálfsk. kr.272,200 Það ber allt að sama brunni — SAAB er bíllinn. TÖGCURHF SAAB UMBOÐtÐ BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.