Morgunblaðið - 30.09.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982‘
L5l
JÆJA, VIÐ VITUM AÐ
NISSAN FRAMLEIÐIR
DATSUN BÍLA,
EN HVER ER ÞAÐ ÞÁ
SEM FRAMLEIÐIR
NISSAN BÍLA?
Líklega hefur þú, lesandi góður, heyrt eða séð áður að Datsun bílar eru framleiddir af Nissan. Það
hefur komið ýmsum á óvart og e.t.v. líka þér, að Datsun bílar eru ekki framleiddir af Datsun. Nú, í
þetta skipti ætlum við að segja þér dálítið, sem þú hefur sennilega ekki heyrt áður. Við hjá Nissan
ætlum að fara að framleiða Nissan bíla. Það gerum við auðvitað ekki gagngert til þess að rugla þig í
ríminu, heldur vegna þess að okkur finnst að okkar bílar eigi að bera okkar nafn. Þetta breytir
auðvitað engu fyrir ykkur, sem akið á bílunum frá okkur. Þið fáið áfram sömu gæði, sömu sparneytni,
sömu háþróuðu tæknina í bílum ykkar, sömu frábæru nýtingu bæði farþega- og farangursrýmis og
sama straumlínulagaða útlitið, sem þið hafið vanist hjá Datsun. Þessi atriði o.fl hafa gert kaup á
Datsun bílum bestu bílakaupin í dag. Nafnbreytingin skipti ekki svo miklu máli. Þegar öllu er á
botninn hvolft þá hafið þið alltaf ekið á Nissan bílum. Þeir hétu að vísu annað en það var líka allt og
sumt. Þið getið þess vegna haft sömu tröllatrú á Nissan bílum og þið höfðuð á Datsun bílunum. Þeir
komu frá mjög traustu fyrritæki, sem er eitt af þremur stærstu bílaframleiðendum heims, þ.e.a.s.
Nissan.
Ingvar Helgason hf. — Sýningarsalurinn v/Rauðagerði — Reykjavík — Sími 91-33560.
DATSUN — fullkomnun NISSAN tækninnar
THE NAME OF QUALITY
NISSAN
NISSAN MOTOR Ca LTD