Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir BJÖRN BJARNASON
Formenn sendinefndanna í INF-viðræðunum heilsasf. Til vinstri er Paul Nilze frá Bandarikjunum og andspæn-
is honum Yuli A. Kvitsinsky frá Sovétrikjunum.
Viðræðurnar í Genf
um SS-20 og Pershing
SKNDINKFNDIR Kandaríkjanna og Sovétríkjanna i svonefndum INF-
viðræðum hefja i dag nýja samningalotu. INF-viðræðurnar snúast um
Intermediate-range Nuclear Forces eða meðallangdrægar kjarnorkueld-
flaugar. I*eim má ekki rugla saman við MBFK-viðræðurnar, sem fram
hafa farið í Vinarborg með mislöngum hléum síðan 1973. í Vín er rætt um
Mutual and Balanced F'orce Reductions, jafnan og gagnkvæman sam-
drátt venjulegs herafla í Mið-Kvrópu. INF-viðræðunum má ekki heldur
rugla saman við START-viðræðurnar (Strategic Arms Keduction Talks)
um niðurskurð langdrægra (strategískra) kjarnorkueldflauga, sem hófust
í Genf nú í sumar.
Meðallangdrægri eldflaug
er lýst þannig, að hana
megi senda frá skotpalli á landi
á skotmark í 2700 til 5500 km
fjarlægð. Bandaríkjamenn eiga
engar slíkar eldflaugar eins og
stendur, en hins vegar eiga Sov-
étmenn þær og er SS-20-eld-
flaugin þekktust þeirra. Þessum
sovésku kjarnorkueldflaugum er
beint gegn skotmörkum í Vest-
ur-Evrópu og draga þær alla leið
hingað til íslands frá skotpöllum
innan Sovétríkjanna.
SS-20-eldflaugarnar voru
fyrst teknar í notkun á árinu
1977. Talið er að núverandi gerð
þeirra dragi 5700 km en ný og
endurbætt gerð hafi verið fram-
leidd og reynd, sem dragi 7500
km. Sagt er að unnt sé að miða
SS-20-eldflauginni af svo mikilli
nákvæmni að ekki skeiki nema
200 til 300 metrum. Hver flaug
er 10,5 m löng og 1,4 m í þver-
mál. Skotpallar flauganna eru á
hjólavögnum, svo að auðvelt er
að flytja þær. Unnt er að nota
skotpallana oftar en einu sinni. í
samanburði við eldri gerðir sov-
éskra meðallangdrægra eld-
flauga, SS-4 og SS-5, er
SS-20-flaugin mun hættulegri.
Marksækni hennar eykur líkur á
því að hún verði notuð til árása
— hægt er að miða henni á hern-
aðarmikilvægar stöðvar, en eldri
gerðum sovésku eldflauganna er
fremur miðað á borgir og iðnað-
arhéruð. SS-20-eldflaugin er
þannig að hún yrði notuð til að
ráðast á flugvelli, kafbátastöðv-
ar, flugvélamóðurskip, meðal-
langdrægan kjarnorkuherafla
Frakka, geymslustöðvar fyrir
kjarnaodda, fjarskiptamiðstöðv-
ar, bækistöðvar herstjórna
o.s.frv.
Eins og áður segir eiga Banda-
ríkjamenn ekkert sambærilegt
vopn. Nokkur hundruð SS-20-
eldflaugum hefur verið komið
fyrir á skotpöllum og getur hver
þeirra flutt allt að þremur
kjarnaoddum. Til að svara þeirri
ógn sem af eldflaugunum stafar
og skapa ákvarðanatengsl á milli
langdrægs kjarnorkuherafla
Bandaríkjanna og kjarnorku-
vopna í Evrópu var ákveðið á
utanríkisráðherrafundi Atl-
antshafsbandalagsins 12. des-
ember 1979 að endurnýja banda-
rískan kjarnorkuvopnastyrk
bandalagsins í Evrópu með 108
Pershing Il-eldflaugum, sem
draga 1750 km og má því skjóta
til Moskvu frá skotpöllum í
Vestur-Þýskalandi, og 464 land-
stýriflaugum af Tomahawk-gerð
sem draga um 2500 km. Bæði
Pershing II og stýriflaugarnar
munu verða þannig búnar, að
hver flaug ber einn kjarnaodd.
Pershing II»flaugarnar eiga að
koma til Evrópu í desember 1983
og stýriflaugarnar nokkru
seinna. Þessum eldflaugum á að
deila þannig á milli landa: 160
stýriflaugar til Bretlands, 108
Pershing II og 96 stýriflaugar til
Vestur-Þýskalands, 112 stýri-
flaugar til Ítalíu, 48 stýriflaugar
til Belgíu og 48 stýriflaugar til
Hollands. Belgar og Hollend-
ingar hafa enn fyrirvara á því,
hvort þeir muni taka á móti
stýriflaugunum.
Ákvörðun NATO 12. desember
1979 var tvíþætt. í henni fólst
ekki aðeins að hinum nýju
bandarísku eldflaugum skyldi
komið fyrir í Vestur-Evrópu
heldur einnig að hafnar skyldu
viðræður við Sovétmenn um
niðurskurð meðallangdrægra
eldflauga í Evrópu. Ronald
Reagan, forseti Bandaríkjanna,
sagði í ræðu 18. nóvember 1981:
„Bandaríkjamenn eru reiðubúnir
til að hætta við að koma fyrir
Pershing II og stýriflaugum ef
Sovétmenn vilja taka niður og
fjarlægja SS-20-, SS-4- og
SS-5-eldflaugar sínar." Þessi yf-
irlýsing er á ensku kölluð „zero
option" eða „núll-leiðin“ og sagði
Reagan, að á henni mundi af-
staða Bandaríkjastjórnar byggj-
ast í INF-viðræðunum, sem hóf-
ust síðan í Genf 30. nóvember
1981.
Á grundvelli ákvörðunar
NATO frá 12. desember 1979
hefur bandarískum kjarna-
oddum í Vestur-Evrópu verið
fækkað um 1000. Hins vegar
hafa Sovétmenn fjölgað kjarna-
oddum sínum sem beint er gegn
Vestur-Evrópu um 750 á síðustu
sex árum og er mestur hluti
þeirra í SS-20-eldflaugunum. Af
hálfu Sovétmanna hefur því
oftar en einu sinni verið lýst yfir
síðan í ársbyrjun 1981, að þeir
væru tilbúnir til þess að fresta
uppsetningu á fleiri SS-20-eld-
flaugum gegn Vestur-Evrópu á
meðan INF-viðræðurnar fari
fram, enda hætti NATO við að
koma eldflaugum sínum fyrir (í
árslok 1983) þar til niðurstaða
liggur fyrir í viðræðunum.
NATO-ríkin hafa ekki ljáð máls
á þessu, enda liggur fyrir, að
Sovétmenn hafa alls ekki hætt
við að setja upp SS-20-eldflaug-
arnar.
Við upphaf INF-viðræðnanna
lýsti Paul Nitze, formaður
bandarísku samninganefndar-
innar, því yfir að ræðst yrði við í
trúnaði og ekki skýrt frá efni
viðræðnanna. Við þessa yfirlýs-
ingu hefur verið staðið og finnst
ýmsum það gefa til kynna, að
Sovétmenn vilji ná einhverjum
árangri, að þeir skuli ekki hafa
byrjað áróðursherferð fyrir
ágæti eigin tillagna í viðræðun-
um. Enn snúast viðræðurnar um
ýmis flókin skilgreiningaratriði.
Friðarhreyfingarnar í Vest-
ur-Evrópu hafa lýst mun meiri
andúð á hinum væntanlegu
vopnum til varna eigin löndum
en SS-20-eldflaugum Sovétríkj-
anna. Það er því mikiil pólitísk-
ur þrýstingur á ráðamenn í
NATO-löndum. Hvort dregur úr
þessum þrýstingi eftir nýleg
kosningaúrslit í Hollandi og
væntanleg stjórnarskipti í
Vestur-Þýskalandi skal ósagt
látið. Og hvað sem því líður er
ljóst að andmæli gegn hinum
nýju eldflaugum munu magnast
eftir því sem nær dregur árslok-
um 1983, þegar þeim verður
komið fyrir, hafi ekki ei.nhver
árangur náðst í INF-viðræðun-
um.
Blaðið Grimsby Evening Telegraph:
Grein um fiskverk-
smiðju dótturfyrir-
tækis SH í Grimsby
í DAGBLAÐINU Grimsby Evening
Telegraph birtist grein 2. sept. sl. um
hina nýju fiskverksmiðju sem nú er
verið að reisa á vegum breska fyrir-
tækisins Snax (Ross) sem Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna rekur.
Kemur þar fram að kostnaður við
byggingu verksmiðjunnar sé um 2
millj. punda.
Þar segir m.a. að eitt af síðustu
embættisverkum Sigurðar
Bjarnasonar sem sendiherra í
Lundúnum hafi verið að skoða
verksmiðjuna. í viðtali við blaðið
segir Sigurður: „Verksmiðjan á
eftir að koma bæði Bretum og ís-
lendingum til góða. Ég er mjög
ánægður að sjá hina nánu sam-
vinnu sem er milli þessara þjóða.
Ennfremur kemur fram í grein-
inni að Sigurður hafi farið lof-
samlegum orðum um vinnu þeirra
Breta sem starfað hafa við að
reisa verksmiðjuna. „Ég hef rætt
við starfsfólkið og það er fært í
sínu starfi," sagði Sigurður.
Þá kemur fram að fram-
kvæmdastjóri Snax, Ólafur Guð-
mundsson, hafi tjáð blm. blaðsins
að í ráði sé að 200—300 manns
muni starfa við verksmiðjuna. I
upphafi yrðu þó aðeins um nokkra
tugi að ræða, en síðan yrði smám
saman bætt við starfsfólki.
Samkvæmt greininni í Grimsby
Evening Telegraph á starfsemi að
hefjast í verksmiðjunni í október
nk., en hún verður öll tekin í notk-
un næsta vor.
Ólafur sagði ennfremur í þessu
viðtali að skip kæmu með fisk í
verksmiðjuna og honum yrði síðan
dreift til allra viðskiptaaðila
fyrirtækisins. Hann bætti því við
að Snax sendi fisk á markað í
Belgíu, Frakklandi, Spáni og
Portúgal, svo að dæmi væru tekin.
Á myndinni, sem birtist í dagblaðinu Grimsby Evening Telegraph, eru frá
vinstri: Guðmundur Garðarsson, blaðafulltrúi SH, Sigurður Bjarnason,
sendiherra í Lundúnum, og Ólafur Guðmundsson, forstjóri dótturfyrirtækis
SH, Snax (Ross) í Grimsby.
Samningur um heilbrigð-
isþjónustu undirritaður
í GÆR var undirritaður í Reykja-
vík samningur milli íslands og
Bretlands um heilbrigðisþjón-
ustu. Olafur Jóhannesson, utan-
ríkisráðherra, undirritaði samn-
inginn fyrir íslands hönd og
Belstead lávarður, varautanrík-
isráðherra Bretlands, fyrir hönd
Bretlands.
Samningurinn gerir ráð fyrir
því að bráðnauðsynleg sjúkra-
hjálp verði veitt íbúum annars
landsins sem dveljast um
stundarsakir í hinu landinu. í
samningnum eru settar nánari
reglur um þessa sjúkrahjálp.
Samningurinn öðlaðist gildi
VÍð undirritun. FrétUtilkynninK