Morgunblaðið - 30.09.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
25
Morgunblaðið/RAX
iur hættir kl. 5
lskvldunnar“
sem heldur þessu uppi svo það er
vissulega full ástæða til að standa í
þessu verkfalli, þó það komi til með
að kosta töluvert, ef það verður til
þess að kjörin batna.
Eg er ekki mikið inní þessum
málum, hef ekki lagt mig sérstak-
lega eftir að kynna mér þau, en ég
vona bara að þetta verði til þess að
kjörin skáni," sagði Kári Bjarnason
að lokum.
Kemst ekki heim kl. 5
Um borð í Dísarfellinu hittum við
einnig að máli Kristin Aadnegard
stýrimann. Við spurðum hann
hvernig yfirmönnum, sem ekki eru í
verkfalli litist á verkfall undir-
manna.
„I sjálfu sér kann maður ekkert
illa við þetta. Það er gott að geta
verið með fjölskyldunni eftir langa
fjarveru og ganga bara sínar vaktir.
En hvernig það kemur þjóðhagslega
út, er svo aftur alit annað mál.“
Telurðu að þetta geti orðið lang-
vinnt verkfall?
„Mér sýnist bera það mikið á
milli, að það sé ekki fyrirsjáanlegt
að þeir nái saman á næstunni.
Það er mikill misskilningur sem
iðulega gætir hjá fólki, sem aldrei
hefur verið til sjós, að einblína bara
á heildartekjurnar. Það er gífurleg
vinna sem liggur að baki þessum
tekjum. Til dæmis þegar við förum
á ströndina erum við iðulega á 2—3
höfnum á sólarhring og þá er þetta
alveg gífurleg vinna og kaupið bygg-
ist á því. En ef menn hafa ekki yfir-
vinnuna er ekki verandi í þessu og
ég held að það komi nokkuð til hvað
varðar sum skipin hjá Eimskip og
Hafskip, þó það hafi ekki verið hjá
okkur, að þeir hafa mjög litla yfir-
tíð.
Annað í þessu, sem er mjög at-
hyglisvert er, að nú standa yfir
samningaviðræður við þá sem vinna
á Tungnaársvæðinu, þar sem þeir fá
sérstaka staðaruppbót fyrir það að
vera þarna uppfrá fjarri heimilum
sínum. En það mætti halda, þegar
um sjómenn er að ræða, að fólk
héldi að þeir væru fæddir með þeim
ósköpum að geta ekki verið heima
hjá sér. Ég er hræddur um að eitt-
hvað heyrðist í fólki, ef það væri
lokað inni á sínum vinnustað og
kæmist ekki heim til sin nema á
mánaðarfresti. Þegar þú ert á sjó,
þá býrðu í lokuðu samfélagi og
kemst ekki neitt. Ef þú átt ekki skap
með þeim sem sigla með þér, er ekk-
ert við því að gera, þú verður að
sætta þig við það. Þetta er því alls
ekki sambærilegt við störf í landi og
það á ekki að vera með samanburð.
Sjómennska er ekki starf, þar sem
þú getur hætt klukkan 5 og farið
heim til fjölskyldunnar. Það er lág-
mark að menn hafi mannsæmandi
laun fyrir þetta starf og undirmenn
eru síst ofaldir af því sem þeir hafa.
Launakjörin þurfa að vera þannig
hjá farmönnum, að þeir þurfi ekki
að vera nema 7—8 mánuði á sjó á
ári og geti verið hinn tímann í landi.
Breytingin á þessu hefur verið gíf-
urleg frá því að ég byrjaði sem há-
seti á sjó. Þá var kannski stoppað í
viku í hvert skipti sem komið var tii
hafnar, en nú er það oft ekki nema
dagurinn og þá hafa menn ef til vill
ekki séð fjölskyldu sína í mánuð og
þurfa að útrétta og gera annað slíkt,
eins og aðrir þjóðfélagsþegnar,"
sagði Kristinn Aadnegard að lokum.
Vegaframkvæmdir að skíðasvæðum við Kolviðarhól:
„Nýi vegurinn gjör-
breytir allri aðstöðu“
— segir Siguröur Guðmundsson, formaður skíðadeildar Vals
VEGAFRAMKVÆMDIR standa nú
yfir að skíðasvæðum þriggja íþrótta-
félaga í Kevkjavík við Kolviðarhól;
skíðasvæði IR í Hamragili, Víkings í
Sleggjubeinsskarði og Vals í
Sleggjubeinsdal. Félögin hafa samið
við verktakafyrirtækið ístak um að
endurbyggja veginn frá Suður-
landsvegi að skíðasvæðunum. Veg-
urinn verður hækkaður upp um allt
að metra, breikkaður, ræsi verða
lögð og bílastæði gerð. Framkvæmd-
ir hófust þann 15. september síðast-
liðinn og er áætlað að Ijúka verkinu
næstu daga. Kostnaöur er áætlaður
liðlega 300 þúsund krónur.
„Nýi vegurinn gjörbreytir allri
aðstöðu, sem félögin hafa upp á að
bjóða. Vegurinn er byggður upp á
5 kílómetra kafla að svæðunum og
bílastæði gerð. Sannleikurinn er
sá, að aðkeyrsla hefur verið afleit.
Þarna er ein besta skíðaaðstaða
landsins, 8 skíðalyftur og þrír
skíðaskálar. Við vonumst til að
Borgarsjóður taki þátt í kostnaði.
Hingað til hefur borgin greitt
snjómokstur en við vonum, að með
þessum framkvæmdum eigi
snjómokstur að vera að mestu úr
sögunni og þannig á að sparast
umtalsvert fé. í vetur munu því
Valur, Víkingur og ÍR bjóða upp á
einhverja bestu aðstöðu til skíða-
iðkunar á landinu,“ sagði Sigurður
Guðmundsson, formaður skíða-
deildar Vals, í samtali við Mbl.
Vetraráætlun Flugleiða
verður með svipuðu sniði
VETRARÁÆTLUN Flugleiða í
millilandaflugi verður með svip-
uðu sniði í vetur og hún hefur ver-
ið, samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá félaginu, en vetrará-
ætlun tekur gildi 1. nóvember nk.
og er í gildi til 26. marz á næsta
ári.
Farnar verða fimm ferðir í
viku til Kaupmannahafnar, þar
af verða tvær með viðkomu í
Glasgow. Farið er til baka sömu
daga. Auk þess verður eitt vöru-
flug í viku til Kaupmannahafn-
ar.
Tvær ferðir verða í viku frá
Keflavík um Osló tii Stokkhólms
og til baka sömu daga. Til Lond-
on verður flogið fjórum sinnum
í viku.
Frá Keflavík verða þrjár ferð-
ir í viku til Luxemborgar, en frá
Luxemborg verða hins vegar
fimm ferðir vikulega til Kefla-
víkur. Milli Keflavíkur og New
York verða fjórar ferðir í viku,
en hins vegar þrjár ferðir frá
New York til Keflavíkur. Þá
verður ein ferð í viku frá Kefla-
vík til Chicago um Baltimore og
má geta þess, að sl. vetur var
ekki flogið til Baltimore