Morgunblaðið - 30.09.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
Magnús H. Magnús-
son sextugur
Ilávær símhrinKÍng í morgun-
sárið. Hvínandi símalínur ok ham-
íarir Atlantshafsins á línunni.
„Gos í Eyjum“ — sagði röddin á
hinum enda línunnar. Tilefnið var
að þá voru í vist hjá mér nokkrir
nemendur úr Eyjum við Mennta-
skóiann á ísafirði. Þetta var á
fimmta tímanum örlananóttina
23. janúar 1973.
Athynli alþjóðar beindist þá að
hetjulejíri baráttu Vestmanney-
inna við hamfarir náttúruaflanna.
Frá oj; með þessari örlaganóttu,
o(í næstu misserin, átti þjóðin eft-
ir að kynnast æ betur bæjarstjóra
þeirra Vestmanneyinga, Magnúsi
II. Majínússyni. Það er fljótsa«t,
að Ma«nús óx mjö« af þeim kynn-
um. ilann reyndist bezt, þe«ar
mest á reið. Hann var fumlaus,
æðrulaus, úrræðagóður á rauna-
stund. Betri eftirmæli «etur en«-
inn áunnið sér.
Stundum er sagt, að auðveldara
seíað vinna stríðið en friðinn.
Ma«nús komst vel frá þeirri
mannraun, sem stríðið við nátt-
úruöflin var. Sumum þykir þó ekki
minna um vert, að hann reyndist
ekki síður hamhleypa til verka í
því friðsama uppby««in«arstarfi,
sem síðan hefur staðið yfir í Eyj-
um. Endurreisn Vestmannaeyja
eftir «os er aðdáunarvert afrek.
Þar li(?Kur mikið starf eftir Ma«n-
ús.
Ma«nús H. Ma«nússon er fædd-
ur í Vestmannaeyjum 30. sept-
ember árið 1922. Foreldrar hans
voru Ma«nús HelKason, ættaður
úr Ölfusi, ok kona hans, Ma«nína
Sveinsdóttir, frá Skutulsfirði við
Djúp. Sjálfur telur Ma«nús si«
VestmannaeyinK í húð o« hár,
enda borinn þar o« barnfæddur.
En«u að síður verður að árétta, að
hann er VestfirðinKur í aðra ætt-
ina. Ekki þykir mér það lakara.
Seinni kona Magnúsar, Marta
Björnsdóttir, er IsfirðinKur o«
ættuð frá Aðalvík. Börn þeirra
Mörtu ok MaKnúsar eru því Vest-
firðinKar í meira en aðra ættina.
Ekki sakar það heldur.
Ma«nús ólst upp í Vestmanna-
eyjum til átta ára aldurs í hópi
fimm systkina. Þau eru: Páll
MaKnússon, fluKmaður, sem fórst
i fluKslysi á EnKlandi árið 1951,
Sveinn MaKnússon, starfsmaður á
Veðurstofu, Hermann, stöðvar-
stjóri Pósts ok síma á Hvolsvelli,
ok María, verzlunarstjóri, eÍKÍn-
kona Ta«es Ammendrups,
forstöðumanns lista- o« skemmti-
deildar sjónvarps.
Ma«nús er tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var GuðbjörK Guð-
lauKsdóttir, sem látin er fyrir all-
mörKum árum. Þeim varð tveKKja
barna auðið. Þau eru MaKnús,
framkvæmdastjóri Plastiðjunnar
á Selfossi, ok Guðlaugur Ægir,
verzlunarstjóri á sama stað.
Með seinni konu sinni, Mörtu, á
MaKnús fjögur börn: Sigríði,
meinatækni við Sjúkrahúsið í
Keflavík, Pál, fyrrum fréttastjóra
Tímans, er nú á ritstjórn Iceland
Review, Björn Inga, er stundar
nám í tölvunarfræðum við háskól-
ann, o« Helgu Bryndísi, sem er
nemandi við Menntaskólann í
Hamrahlíð og Tónlistarskólann.
Á uppvaxtarárum sínum stund-
aði Magnús öll algeng störf til
lands ok sjávar. Frarr.an af árum
var hann mör« sumur í sveit og
því næst talsvert til sjós. Það er
sérstakur kapítuli í ævi Magnúsar
að hann sigldi á norskum skipum
á stríðsárunum, og dvaldi þá lang-
dvölum á Englandi. Þegar ég gisti
eina eftirminnilega nótt á heimili
þeirra hjóna eftir kratafund úti í
Eyjum, rann upp fyrir mér, að við
Magnús kunnum báðir vel að meta
sitthvað í fari Breta, svo sem
hversdagslega glaðværð þeirra,
hlýleika í viðmóti og þrautseigju á
raunastund. Magnús hafði frá
mörgu að segja úr sigjingum sín-
um á stríðsárunum. Ég játa, að
það kom mér skemmtilega á óvart,
hversu vel þessi þrautreyndi sveit-
arstjórnarmaður og félagsmála-
frömuður var heima um gang al-
þjóðamála fyrir stríð, og um styrj-
aldarreksturinn sjálfan. Þessa
nó:t áttum við Magnús og vinur
hans, Ágúst stórútgerðarmaður,
eftirminnilegar viðræður um
utanríkismál og utanríkispólitik
Islendinga. Þá fann ég glöggt, að
sannfæring Magnúsar um nauð-
syn varnarsamstarfs lýðræðisríkj-
anna stendur djúpum rótum í
hans eigin lífsreynslu og byggir á
mikilli þekkingu og yfirvegaðri
söguskoðun.
Upp úr stríði lagði Magnús fyrir
sig símvirkjun með radíótækni
sem sérgrein. Yfirboðarar hans
fundu brátt að Magnús var
afkastamikill starfsmaður, ná-
kvæmur og ósérhlífinn. Hann var
því brátt gerður að verkstjórn-
armanni og síðar yfirverkstjóra
radíódeildar.
Árið 1956 urðu þáttaskil í ævi
Magnúsar, þegar hann var fyrst
kjörinn í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja. Því starfi hefur hann gegnt í
tvo áratugi, unz hann gaf ekki
kost á því lengur á sl. vori. Árið
1966 var hann kjörinn bæjarstjóri
Vestmanneyinga, eins og fyrr er
að vikið. Þegar dró til kosninga
árið 1978, kusu Sunnlendingar
Magnús til að leiða framboðslista
jafnaðarmanna í Suðurlandskjör-
dæmi. Magnús vann þá góðan
kosningasigur. Hann var ekki fyrr
sestur inn á Alþingi, en hann var
valinn til að gegna embætti fé-
lagsmálaráðherra í ráðuneyti
Ólafs Jóhannessonar (1978—1980).
Magnús gat sér sérstaklega ^ott
orð sem félagsmálaráðherra. I því
starfi naut hann yfirgripsmikillar
þekkingar sinnar og reynslu sem
sveitarstjórnarmaður, enda
streymdu frumvörpin frá honum
eins og á færibandi um hvert um-
bótamálið öðru merkara. Er t.d.
mikil eftirsjá af því að húsnæð-
ismálafrumvarp Magnúsar hefur
síðar verið limlest af skammsýn-
um mönnum.
Sem þingmaður og einn helzti
talsmaður jafnaðarmanna á þingi
um félagsmál og málefni sveitar-
stjórna nýtur Magnús bæði virð-
ingar og vinsælda. Hann undirbýr
sín mál vel. Hann er töluglöggur,
nákvæmur, og afkastamikill.
Hann er óáleitinn við aðra að
fyrra bragði, en fastur fyrir, ef á
hann er leitað. Þar að auki er
Magnús glaðvær í umgengni og
hlýr í viðmóti. Þess vegna nýtur
hann trausts, virðingar og vin-
sælda.
Sem betur fer er Magnús enn í
fullu fjöri. Við vinir hans væntum
þess að hann eigi enn ólokið löngu
dagsverki.
Vinir hans, Vestmannaeyingar
jafnt sem meginlandsmenn, munu
þess vegna fjölmenna í Átthagasal
í dag til þess að árna Magnúsi og
Mörtu heiila.
Jón Baldvin Hannibalsson
Magnús H. Magnússon alþingis-
maður og fyrrverandi ráðherra er
60 ára í dag. Á þeim tímamótum
vil ég senda honum hugheilar af-
mælisóskir og þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf.
Magnús er nú varaformaður Al-
þýöuflokksins og stendur á sex-
tugu með fangið fullt af pólitísk-
um og félagslegum verkefnum. Ég
ætla ekki við þetta tækifæri að tí-
unda eða rekja öll þau hin giftu-
drjúgu störf, sem Magnús á nú að
baki, heldur víkja lítillega að ein-
úm þætti þeirra. Þó er ekki hægt
að hugsa til Magnúsar á þessari
stundu án þess að sjá fyrir sér
bæjarstjóra Vestmannaeyja með
hjálm á höfði í eimyrju eldsum-
brotanna 1973, og raunar má
segja, að Magnús sé eldklerkur
okkar tíma. Hlutur Magnúsar í
samgöngumálum Vestmannaeyja
sem og í vatnsveitu- og hitaveitu-
málum kaupstaðarins ber vott um
áhuga hans fyrir uppbyggingu
byggðar og atvinnulífs í Eyjum.
Ég vildi minnast hér á störf
Magnúsar í þágu Brunabótafélags
íslands.
Magnús var kosinn í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja árið 1962,
en fjórum árum seinna eða 23.
september 1966, var hann kjörinn
bæjarstjóri í Eyjum og gegndi
hann því starfi til 1. júlí 1975.
Eftir bæjarstjórnarkosningarn-
ar 1966 var Magnús kosinn í full-
trúaráð Brunabótafélags íslands
fyrir Vestmannaeyjakaupstað og
á næsta aðalfundi þess, 17. ágúst
1967, var hann kosinn í stjórn
Brunabótafélagsins. Má segja að
Magnús hafi tekið þar sæti Emils
Jónssonar, sem þar hafði verið frá
1955.
Allar götur síðan hefur Magnús
verið í stjórn Brunabótafélagsins
og er það enn. Magnús hefur tekið
mikinn og góðan þátt í uppbygg-
ingu félagsins á þessum 15 árum
og ber að þakka honum fyrir þau
störf. Magnús hefur á þessum
starfsvettvangi verið tillögugóður
og hefur áhugi hans fyrir vel-
gengni félagsins reynst því vel.
Sérstaklega lagði Magnús sig
eftir því að treysta samstöðu
sveitarfélaganna um Brunabótafé-
lagið og í þeim efnum varð honum
mjög vel ágengt, en sveitarfélögin
eru hinn trausti bakhjarl þessa
fyrirtækis.
Magnús lætur sér annt um
starfskjör starfsfólks félagsins og
nýtur hann óskoraðrar virðingar
þess og vináttu. Á þessum tíma-
mótum í lífi Magnúsar flyt ég hon-
um hinar bestu afmælisóskir og
þakkir frá stjórn Brunabótafé-
lagsins og öllu starfsfólki þess.
Ingi R. Helgason
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
jJ'élagsstarf
Sjálfstœðisflokksins]
Viðtalstímar borgarfulltrúa
Viótalstímar borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins hefjast í Valhöll 2.
október næstkomandi Munu borgarfulltrúar og varamenn þeirra |
veröa til viötals a laugardögum frá kl. 10—12 á skrifstofu Sjálfstæö-
isflokksins, Háaleitisbraut 1.
Borgarfulltrúar veröa til viðtals i þessari röö:
2 okt Markús Örn Antonsson Guömundur Hallvarösson,
9. okt. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Málhildur Angantýsdóttir,
16 okt. Ingibjörg Rafnar Einar Hákonarson,
23. okt. Magnús L. Sveinsson Jóna Gróa Siguröardóttir,
30. okt. Páll Gíslason Gunnar S Björnsson,
6. nóv. Hilmar Guölaugsson Anna K. Jónsdóttir,
13. nóv. Hulda Valtýsdóttir Julíus Hafstein,
20. nóv Albert Guömundsson Margrót S. Einarsdóttir,
27. nóv. Ragnar Júliusson Sveinn Björnsson.
4 des. Katrin Fjeldsted Kolbeinn H. Pálsson,
11 des Sigurjón Fjeldsted Vilhjálmur G. Vilhjálmsson
Orðsending
til flokksráös Sjálfstæðisflokksins og for-
manna flokksfélaga og flokkssamtaka.
Miöstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveöiö
aö halda sameiginlegan fund flokksráðs og
flokkssamtaka Sjálfstæðisflokksins sbr. 32.
gr. skipulagsreglna Sjálfstæöisflokksins.
Fundurinn veröur haldinn í veitingahúsinu
Glæsibæ í Reykjavík föstudaginn 5. og
laugardaginn 6. nóvember n.k.
Dagskrá fundarins hefur ekki enn verið end-
anlega ákveöin en veröur tilkynnt hlutaöeig-
endum bréflega.
Þau félög, þar sem formannaskipti hafa orðiö
síðan á landsfundi 1982 og ekki hafa tilkynnt
þaö til flokksskrifstofunnar eru beðin um aö
gera þaö nú þegar.
Miöstjórn Sjálfstæöisflokksins.
Landssamband
sjálfstæðiskvenna
minnir á áöur boðaða ráöstefnu og for-
mannafund í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
Reykjavík, 2. október 1982.
Kópavogur —
Kópavogur
Sjálfstæóisfelag Kópavogs heldur opinn fund
i Sjálfstæðishúsinu, Hamraborg 1. fimmtu-
daginn 30. september kl. 20.30.
Fundarefni: Samskipti sveitarfelaga á höfuð-
borgasvæöinu — Fossvogsbraut.
Frummælendur: Richard Björgvinsson
bæjarfulltrúi og Davið Oddsson borgarstjórl
Allir velkomnir, kaffiveitingar.
Sljórn Sjálfstæöisfélags Kópavogs.
Dagskrá
Kl. 9.00—10.00
Kl. 10.00
Kl. 10.15
Kl. 10.30
Kl. 10.45
Kl. 11.00
Kl. 11.15
Kl. 11.30
Kl. 12.15
Kl. 14.00
Formannafundur.
Raöstefna
Setning — form. landssambandsins.
Margrót S. Einarsdóttir.
Skólaskylda 6 ára barna — Elín Pálmadóttir.
Heilbrigöismál — Katrín Fjeldsted.
Verkaskipting ríkis og sveitastjórna
— Ólina Ragnarsdóttir.
Barnaverndarmál — Dögg Pálsdóttir, lögfr.
Samstarf sveitastjórna — Salome Þorkelsdóttir.
Frjálsar umræöur.
Hádegisveróur — gestur Friörik Zophusson
Pallborösumræóur — stjórnandi
Bessi Jóhannsdóttir.
Birna Guöjónsdóttlr, Sauöárkróki,
Katrín Eymundsdóttir, Húsavík,
Ingibjörg Rafnar, Reykjavík,
Jóna Gróa Siguröardóttir, Reykjavik,
Svanhildur Björgvinsdóttir, Dalvík,
Ragnheióur Ólafsdóttír, Akranesi.
Kl. 16.00—18.00
Samverustund —
léttar veitingar.
Vinsamlega tilkynniö þátttöku sem fyrst. Stjórnin.
ife’HMÍ
Kriðrik
Mvgrél
Salomv
iMHOt
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AlliLYSINGA
SIMIN.N ER:
2248Ö