Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 32
n
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTPMBER 1982
Samræmd
kjör á út-
flutnings-
lánum
NÝVERIÐ hafa OKCD-löndin
komiö sér saman um samræmd
vaxtakjör og lánstima vcgna út-
flutnint'slána. Kclst i þcssu nvja
samkomulagi nokkur vaxta-
hækkun og skal ryrirkomulagið
tfilda þar til í maí árið 1983.
Refílurnar eru þannin, að
taki „tiltölulega rík þjóð“ lán
til 2—5 ára skal hún greiða
12,15% vexti, en greiddi áður
11%. Sé lánið tekið til 5 ára
skal Kreiða 12,40% vexti, en
áður voru Kreiddir 11,35%
vextir. Fyrir „tiltölulega ríkar
þjóðir" er hámarkslánstími 5
ár.
Ef um er að ræða „meðal-
ríka þjóð“ er hármarksláns-
tíminn 8'k ár. Sé lánið til
2—5 ára skal greiða af því
10,85%. vexti, en áður þurfti
að að Kreiða af slíku láni
10,5% vexti. Sé lánið til 5 ára
eða lengur skal greiða af því
11,35% vexti, sem er það
sama og áður.
Ef um er að ræða „tiltölu-
lefía fátæka þjóð“, þá er há-
markslánstíminn 10 ár. Ef
lánið er til 2—5 ára skal
Kreiða af því 10% vexti, sem
er það sama ojj áður og ef lán-
ið er til 5 ára eða lengur skal
greiða af því 10% vexti, sem
einnig er sama hlutfallstalan.
Volvo 240 af 1983-árgerðinni.
Mikil söluaukning hjá Volvo
fyrstu sex mánuði þessa árs
MJÖG mikil söluaukning ein-
kcnndi fyrstu sex mánuði þessa
árs hjá Volvo á árgerð 1982. Sala á
Volvo 240 og 760 hefur aukist um
11%, er nú 116 þúsund hifreiðir
miðað við 105 þúsund á sama tíma
á síðasta ári, samkvæmt upplýs-
ingum fyrirtækisins.
Á sumum mörkuðum sínum
hefur Volvo sett ný sölumet. T.d.
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL
í Bandaríkjunum hefur Volvo
sett ný sölumet bæði í vor og
snemma í sumar.
Söluaukningin hefur orðið
þrátt fyrir minnkandi heildar-
sölu hjá öðrum framleiðendum.
í júní sl. féll bifreiðasala í sama
fjölda og hann var í júní 1958.
Þetta þýðir að salan í júní 1982
var ekki helmingur af sölumeti
júnímánaðar fyrir fjórum árum.
Það verður að líta allt til árs-
ins 1961 til að sjá sömu hlutföll
bifreiðasölu í Bandaríkjunum á
fyrstu 6 mánuðum þessa árs.
Þrátt fyrir minnkandi sölu
bifreiða í heiminum í dag, þriðja
árið í röð, hefur Volvo aukið
markaðshluta sinn allverulega.
Á fyrstu sex mánuðum þessa
árs er fjöldi skráðra bifreiða á
sextán stærstu mörkuðum í
heiminum 6% minni en á sama
tíma á síðasta ári, sem var um
10,8 milljónir bifreiða. Á þess-
um sextán mörkuðum voru
skráðir 4% fleiri 240- og
760-Volvo-bifreiðir en á sama
tíma sl. ár.
Þrír stærstu markaðir Volvo
fyrstu 6 mánuði þessa árs:
1. USA + 15% 35.800
2. Svíþjóð + 17% 23.800
3. Bretland + 0,4%
Volvo 760 GLE, sem kynntur
var í febrúar sl., hefur verið
mjög vel tekið og vakið mikla
athygli. Nú er verið að afhenda
fyrstu sendingarnar á helstu
markaði Volvo, og hafa nú verið
afhentir um 1.200 Volvo 760
GLE síðan framleiðsla hófst.
Árið 1982 er fimmta árið í röð
sem Volvo eykur markaðshlut-
deild sína í Bandaríkjunum. Ár-
ið 1978 var hún 0,4% en er nú
um 1% af heildarmarkaðinum.
Vegna mikillar eftirspurnar
eftir Volvo 240 og 760 GLE, hef-
ur Volvo aukið framleiðslu sína
í 225.000 bifreiðir sem er aukn-
ing um 15.000 bifreiðir frá því
sem áætlað var í upphafi. Fram-
leiddir verða á milli 15.000 og
18.000 Volvo 760 GLE á þessu
ári, þessi aukning kallar á fleira
starfsfólk og hefur Volvo nú
ráðið 600 starfsmenn til viðbót-
ar og seinna í haust verða
300—400 manns ráðnir til við-
bótar.
Einnig hefur orðið fram-
leiðsluaukning á Volvo 340.
Áætlað var að framleiða 87.500
bifreiðir, en framleiðsluaukning
var nauðsynleg vegna mikillar
eftirspurnar og var því ákveðið
að auka framleiðsluna um
11.000 þúsund bifreiðir.
Á þessu ári framleiðir Volvo
fleiri en 310.000 þúsund bifreið-
ir.
Erlendar stuttfréttir . . . !
Atvinnuleysi hefur sjaldan verið
mcira en um þessar mundir í lönd-
um Kfnahagsbandalagsins, en í
síðasta mánuði voru 11 milljónir
manna án atvinnu í löndunum 10.
Japan/Launafrysting
Zenko Suzuki, forsætisráð-
herra Japan, tilkynnti nýverið,
að ríkisstjórnin hefði ákveðið að
frysta öll laun í opinberri þjón-
ustu til þessa minnka hallann á
fjárlögum landsins, sem er gíf-
urlegur um þessar mundir.
Volkswagen-starfsmenn
Talsmaðúr Volkswagen-verk-
smiðjanna tilkynnti í vikunni, að
enn þyrfti að draga saman seglin
vegna minnkandi eftirspurnar.
Hefur vinnudagur starfsmanna
fyrirtækisins verið styttur til að
spara og verður eitthvað haldið
áfram á þeirri braut.
Ítalía/vöruskiptajöfnuður
Vöruskiptajöfnuður ítala var
óhagstæður um 522 milljónir
dollara í júlímánuði sl. og hefur
hann ekki verið minni um langt
árabil. Sérfræðingar þakka
þennan bata aðallega auknum
ferðamannastraumi í landinu.
International Harvester
Bandaríska stórfyrirtækið
International Harvester, sem
hefur átt í gríðarlegum rekstrar-
erfiðleikum undanfarin ár, til-
kynnti nýverið, að ljóst væri, að
tap fyrirtækisins fyrstu 10 mán-
uði ársins yrði í námunda við 1,5
milljarð dollara, en um mitt ár
töluðu menn urh 1 milljarð doll-
ara.
Sony
Hagnaður Sony-fyrirtækisins
japanska var um 165 milljónir
dollara fyrstu sjö mánuði ársins,
en það er um 14% samdráttur
miðað við sama tímabil í fyrra.
Talsmaður Efnahagsbanda-
lags Evrópu, EBE, tilkynnti ný-
verið, að bandalagið hefði ákveð-
ið stálframleiðslukvóta banda-
lagslandanna fyrir tímabilið
október-desember og verður
hann að þessu sinni 25,6 milljón-
ir tonna í stað 31,6 milljóna
tonna á sama tíma í fyrra.
FIAT
Eftir mikinn uppgang á síð-
asta ári hefur verulega dregið úr
eftirspurn hjá FIAT-bílaverk-
smiðjunum ítölsku á þessu ári.
Þess vegna hefur fyrirtækið
neyðst til að segja upp töluverð-
um fjölda starfsmanna.
Atvinnuleysi/Bretland
Atvinnuleysi hefur ekki verið
jafn mikið í Bretlandi og um
þessar mundir, en í síðasta mán-
uði voru 3,34 milljónir manna án
atvinnu. Hins vegar hefur verð-
bólga ekki verið minni um langt
árabil, eða um 6,5%.
(ilasgow-London
Nú er hafið mikið verðstríð
milli brezku flugfélaganna Brit-
ish Airways og British Midland,
sem bæði fljúga svokallað
„skutluflug" milli London og
Glasgow. Farþegar geta ein-
faldlega gengið um borð og
greitt farseðla sína þar. Lengi
vel var farmiðaverðið hið sama,
en á dögunum tilkynnti British
Midland, að eftirleiðis myndi fé-
lagið bjóða um 20% lægri far-
gjöld, en British Airways gerir.
Chrysler
Chrysler-bílaverksmiðjurnar
bandarísku tilkynntu nýverið
1983-bílana og við það tækifæri
sagði Lee Iacocca, forstjóri fyrir-
tækisins, að hækkun á milli ára
yrði aðeins um 2%, sem væri það
minnsta hjá bandarísku fram-
leiðendunum.
Hagvöxtur/Bandaríkin
Bandarískir hagfræðingar
telja margir hverjir, að hagvöxt-
ur þar í landi verði eitthvað í
námunda við 3,5% á næsta ári,
en talsmenn ríkisstjórnarinnar
segja hins vegar að vöxturinn
verði nærri 4%.
Iðnaður/Svíþjóð
Eftirspurn jókst um 3% í
sænskum iðnaði á fyrstu átta
mánuðum ársins, samanborið
við fyrstu átta mánuði ársins
1981, samkvæmt upplýsingum
sænska iðnaðarráðuneytisins.
ASEA
Mikill uppgangur hefur verið
hjá ASEA-samsteypunni
sænsku, en fyrstu átta mánuði
ársins jókst sala fyrirtækisins
um liðlega 20%, miðað við sama
tímabil á árinu 1981.
Svíþjóð/útflutningur
Sænskir efnahagssérfræð-
ingar gera ráð fyrir, að útflutn-
ingur landsmanna muni aukast
um í námunda við 3,5% á þessu
ári, en fyrri spár höfðu gert ráð
fyrir a.m.k. 4% aukningu.
Massey-Ferguson
Massey-Ferguson hefur átt við
mikla rekstrarerfiðleika að
stríða á liðnum misserum. Fyrir
skömmu lauk þriggja daga fundi
forsvarsmanna fyrirtækisins og
helztu lánardrottna þess og var
tilkynnt eftir fundinn, að bráða-
birgðalausn væri í sjónmáli.
Þjóðarfram leiðsla /
Bandaríkin
Þjóðarframleiðsla Banda-
ríkjamanna jókst um 2,1% á
öðrum ársfjórðungi þessa árs,
samkvæmt upplýsingum banda-
rískra yfirvalda, en spár höfðu
gert ráð fyrir um 1,5% aukn-
ingu.
Neytendaverð/Bandaríkin
Neytendaverð hækkaði um
0,3% í Bandaríkjunum í ágúst-
mánuði og er það minnsta hækk-
un þess um langt árabil. Enn-
fremur hefur verðbólga ekki ver-
ið minni um sex ára skeið, en
verðbólguhraðinn er talinn vera
í námunda við 5,5% um þessar
mundir.
Dai-Ichi
Dai-Ichi, stærsti banki Japans
og jafnframt níundi stærsti
banki veraldar, tilkynnti nýver-
ið, að hann hefði tapað um 36,5
milljónum dollara á gjaldeyris-
viðskiptum það sem af er árinu.