Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
39
fclk í
fréttum
Eftirlíkingar þjóðhöfðingja
+ Andlit þessi líta kunnuglega út en þau eru hvorki af Elísabetu II Bretadrottningu né Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta, heldur fólki er hefur þaö aó lifibrauði að líkjast þeim skötuhjúum. Plaköt þessi voru sett upp
um allt Frakkland nú um helgina sem auglýsing fyrir romm nokkurt og hafa auglýsendurnir greinilega álitið að
þjóðhöfðingjarnir gætu aukið sölu þessa eflaust ágæta drykkjar...
„Sic transit
gloria mundi“
+ Bandaríska þjóðlagasöngkonan Joan Baez má nú reyna það, að
valt er veraldargengið. Nýlega var eftir henni haft: „Ég er orðin 43
ára gömul og af allt annarri kynslóð en meirihluti plötukaupenda. Ég
hitti strák, sem sagði við mig: „Þú hefur mjög fallega rödd — ég hef
heyrt í þér á plötunum hans pabba". Ég hefði getað lamið hann! Mér
finnst ég enn hafa boðskap fram að færa, en samt fæ ég ekki gefna út
nýjustu plötuna mína, sem ég gerði með hljómsveitinni Grateful
Dead.“ Hér er Joan Baez stödd í kvöldverðarboði með Edward Kenn-
edy og syni hans, Patrick.
COSPER
Heyrðu, geturðu ekki kennt mér að synda?
Fagan
sýknaður
af vín-
stuldinum
+ Michael Fagan, sá er gerði garð-
inn frægan fyrr í sumar er hann
birtist skyndilega á rúmstokk
Elísabetar Bretadrottningar II, var
i síðastliðinni viku sýknaöur af
þeim sökum að hafa stolið hálfri
flösku af víni er var í eigu Karls
prins, þegar hann hraust inn i
Buckingham-höll í ferð er hann tók
sér á hendur áður en hann birtist
síðan í rúmstokksferðinni.
Kviðdómur er saman stóð af
tólf manns (fimm konum og sjö
karlmönnum) var fjórtán mínút-
ur að koma sér saman um þessa
niðurstöðu eftir að fimm klukku-
stunda réttarhöld höfðu farið
fram.
Dagblöð í Bretlandi hafa lýst
furðu sinni á þessari niðurstöðu
kviðdómsins og blaðið Sun birti
þessa fyrirsögn að fenginni
niðurstöðu: „Næst þegar þið eigið
leið hjá Buekingham-höll og eruð
með þurrar kverkar, af hverju
Elísabet II Bretadrottning I lok-
rekkju sinni...
skellið þið ykkur þá bara ekki inn
í höllina og fáið ykkur drykk?" og
bætti því við að niðurstaða
kviðdómsins þýddi í raun að
heimili drottingar og fjölskyldu
hennar væri í raun eins og hvert
annað opið hús.
Fagan sagði réttinum að hann
hefði fundið til þorsta er inn í
höllina kom eftir allt klifrið og
púlið. „Hvað átti ég að gera ann-
að en fá mér eitthvað við þessum
þorsta og grípa til flöskunnar
þar sem hún stóð fyrir framan
mig?“ sagði Fagan og sagði að
óhætt væri að fullyrða að hann
hefði fullkomlega unnið til sop-
ans...
Megrunarnámskeið
Ný námskeiö hefjast 7. október. (Bandarískt megrun-
arnámskeið sem hefur notið mikilla vinsælda og genu
mjög góðan árangur.) Námskeiðiö veitir alhliöa fræöslu
um hollar lífsvenjur og vel samsett mataræði, sem getur
samrýmst vel skipulögöu, venjulegu heimilismataræði.
Námskeiðið er fyrir þá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma í veg fyrir að vandamálið endurtaki
sig.
• sem vilja foröast offitu og það sem henni fylgir.
Upplýsingar og innritun í síma 74204 kl. 13—18.
Kristrún Jóhannesdóttir,
manneldisfræðingur.
Já, það er von
þú hváir.
En líttu á: Við bjóðum
upp á meira
en 500 titla!
Það gerir samtals
50.493 mín. dagskrá.
Fyrir
VHS, BETA og 2000.
Opið
frá kl.12.00-21.00
virka daga.
12.00 —18.00 laugardaga.
Lokaö á sunnudögum.
VIDEOMIÐSTÖOIN
Laugavegi 27 — Sími 14415
heyrir&i
ekkert óvenjulegt
úrPhilips hljómtækjum!
Pannigá það líka að vem
Hljómtæki eiga að skila nákvæmlega því sem er á
hljómplötu eða kassettu og því sem kemur úr útvarpinu. Engu skal
bætt við og engu sleppt. Þannig er það einmitt hjá Philips.
Philips hefur ávallt verið í fararbroddi í hljómtækjaframleiðslu og með þvf
að hagnýta sér fullkomnustu tækni sem völ er á hefur þeim tekist að
framleiða hljómtæki sem uppfylla kröfur hinna vandlátustu.
ePHiuPS
i Phlllps hlustardu á tónltst en ekkl á tækin sjálf!
F 212 samstæðan kostar aðeins 23.445 kr. staðqreitt.
2x30 watta magnari.plötuspilari.kassettutæki.útvarD. hátalarar oq skápur.
Hafðu samband, viö erum svetgjanlegir j samningum
heimilistæki hf.
HAFNARSTRÆTI3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655