Morgunblaðið - 30.09.1982, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1982
„7hamborgaru, einn ko-ffiboUa og
vcitnsfótu."
Ég er nú þeirrar skortunar að það Mitt hús er minn kastali. — Og
sé skemmtilegra að safna frí- hér er drekinn ógurlegi.
merkjum.
HÖGNI HREKKVÍSI
" PÉSI PÁFAGAUK.OK mon lesa upp
þAKKAKÁV/ARP HÖölVA HKEKKt/l'SA- "
X.
K
Horkell Hjaltason .
Enn um
þjóð-
sönginn
l»orkell lijaltason skrifar:
„Þjóðfáninn o« þjóðsöngurinn
Ó, Guð vors lands! eftir Matthías
Jochumsson eru tvíburar af sama
stofni ok af sömu rótum runnir.
Sérstök Iök hafa verið samin og
sett um friðhelgi þjóðfána okkar
íslendinga og sömu lög eiga að
gilda um þjóðsönginn; hann þarf
ekki síður lögverndar við. Sömu
lög eiga því að gilda um hvort
tveggja, hvorugt getur án hins
verið.
Eins og áður sagði eru þetta tví-
burar af sömu rótum runnir, er
lifa eiga án skemmdarverka með
þjóðinni um alla framtíð meðan
líf varir í þessu landi. Stjórnvöld
eiga nú að bregða skjótt við og
lögvernda þjóðsönginn á sama
hátt og þríliti krossfáninn var
löghelgaður á sínum tíma.
Töluverðar umræður hafa
spunnist um þetta mál vegna
kvikmyndar Hrafns Gunnlaugs-
sonar Okkar á milli — í hita og
þunga dagsins. Ágætar blaða-
greinar um misnotkun þjóðsöngs-
ins hafa birst í Morgunblaðinu
eftir Önnu Þórhallsdóttur söng-
konu og Jón Þórarinsson tón-
skáld. Báðir greinarhöfundar for-
dæma afskræmingu þjóðsöngsins
í kvikmyndinni og á hljómplöt-
unni í auglýsingaskyni. T.d. segir
Jón Þórarinsson: „Ég hef engar
kröfur sett fram eða tillögur gert
um hindrun á sýningum hennar.
En engar „listrænar" röksemdir
styðja útgáfu á afskræmdum „út-
setningum" þjóðsöngsins á hljóm-
plötu, þar sem þær eru með öllu
slitnar úr samhengi myndarinnar.
Þó þykir mér smekkleysið (eða
óskammfeilnin) keyra um þver-
bak þegar önnur þessi „útsetning"
er notuð í sjónvarpsauglýsingu
um myndina. Afskiptaleysi
menntamálaráðherra um þetta
tvennt, hljómplötuna og sjón-
varpsauglýsinguna, verður ekki
skilið öðruvísi en sem yfirlýsing
hans um það að hann telji sæmd-
arréttarákvæði höfundalaganna
markleysu eina, og að engu haf-
andi.“
Já, þessi tilfærðu ummæli Jóns
Þórarinssonar tónskálds eru svo
sannarlega réttmæt eins og vænta
mátti frá hans hendi. Tel ég því
tilgangslaust að reyna að tala við
daufdumbana í menntamálaráðu-
neytinu og sný því máli mínu í
von um árangur til forsætisráð-
herra, Gunnars Thoroddsen, sem
sjálfur er músíkmaður mikill og
lagahöfundur meðal annars. Ég
trúi því að forsætisráðherra komi
þessu máli um þjóðsönginn heilu í
höfn, svo að Islendingar þurfi
aldrei að óttast afskræmingu á
)essum þjóðardýrgrip sínum.
Þjóðsöngurinn, eins og þjóðfán-
inn, er og verður ávallt helgi- og
sameiningartákn þjóðarinnar um
alla framtíð."
*
I rallkeppnum:
Hættan er ekki meiri
en þegar farið er út
í búð á föstudegi
Guðm. Guðmundsson skrifar
26. september:
„Kæri Velvakandi.
Mig langar til að fara nokkr-
um orðum um bréf það sem Ó.
skrifar 14. september síðastlið-
inn og birtist í Velvakanda 26.
sama mánaðar.
Þar skrifar Ó. um aksturs-
íþróttir, þá sérstaklega um tor-
færuakstur og rallkeppnir.
Hann segist hafa séð myndir af
keppnum þessum í sjónvarpi, og
ofboðið sú „eyðilegging á gróðri
og röskun á jarðvegi," eins og
hann segir orðrétt. I j)essu sam-
bandi vil ég benda Ó. á það að
björgunarsveitin Stakkur í
Grindavík hefur nú í nokkur ár
gengið frá og sáð í svæði það
sem þeir halda sína árlegu tor-
færuaksturskeppni.
Ó. gerir ennfremur að umtals-
efni „augljósa slysahættu" í
þessum keppnum. Verð ég að
segja það að hinn ágæti Ó. hefur
augsýnilega aldrei gert tilraun
til að kynna sér öryggisreglur
þær sem gilda í svona keppnum,
því ef hann hefði gert það myndi
hann ekki segja svona vitleysu.
Sem dæmi um öryggisbúnað í
bifreiðum þeim sem eru notaðar
í keppnum sem þessum vil ég
nefna veltigrindur og fjögurra
punkta öryggisbelti, sem eru að-
eins lítill hluti öryggisbúnaðar
þess sem krafist er.
A öðrum stað í bréfi sínu seg-
ir Ó. orðrétt: „Höfum vit fyrir
þessu fólki og bönnum því að
leggja sig og e.t.v. aðra í lífs-
hættu.“ Enn kemur fáfræði hins
ágæta Ó. berlega í ljós, þar sem
lífshætta þess fólks sem tekur
þátt í þessum keppnum er ekki
meiri en þegar hann fer út í búð
á föstudegi, rétt fyrir klukkan
Þessir hringdu . . .
„Alþingiskosning-
ar“ í Þýskalandi?
Grétar hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég var að
lesa í dálkum þínum um mistök
sjónvarpsfréttamannsins á
mánudagskvöld. „Varð á í mess-
unni,“ var yfirskrift klausunnar.
Auðvitað getur mönnum orðið á,
fréttamönnum eins og öðrum,
en þó hætti mér að standa á
sama þegar ég heyrði í kvöld-
fréttum hljóðvarpsins þetta
sama kvöld klukkan 19, að
fréttamaðurinn talaði oftar en
einu sinni um „alþingiskosn-
ingarnar" í Þýskalandi. Þetta
minnti mig á það, þegar einhver
góður maður sagði að nú hefðu
strákarnir í Liverpool orðið ís-
landsmeistarar í Bretlandi.
Fyrirspurn til
Seðlabankans
Hrafn Bachmann í Kjötmið-
stöðinni hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Ég hef furð-
að mig svolítið á þessum heil-
síðuauglýsingum Seðlabankans
um arðbærustu leiðina í fjár-
festingu í dag, sem er að dómi
stofnunarinnar að kaupa verð-
tryKKÖ spariskírteini ríkissjóðs.
En tekið er sérstaklega fram, að
samkvæmt gildandi lögum um
tekjuskatt og eignaskatt komi
ekki í neinu tilviki til skattlagn-
ingar á vaxa- og verðbótatekjum
af spariskírteinum þessum „hjá
mönnum utan atvinnurekstrar".
Sem sagt, menn í atvinnurekstri
njóta ekki í þessu efni sömu
kjara og aðrir landsmenn. Þess
vegna er mér spurn, og í því efni
beini ég máli mínu til Seðla-
bankans: Hvað er skynsamleg-
asta og arðbærasta fjárfest-
ingarleiðin fyrir fólk í atvinnu-
rekstri, fyrst við njótum ekki
þeirra réttinda sem öðrum
íandsmönnum bjóðast varðandi
verðtryggð spariskírteini ríkis-
sjóðs?
6ÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Þar er um að ræða ýmsa afstöðu manna
gagnvart hver öðrum.
Rétt væri: ... ýmsa afstöðu manna hvers gagnvart
öðrum.
Einnig væri rétt: Menn hafa ýmsa afstöðu hver gagn-
vart öðrum (og væri þó betra: hver til annars).