Morgunblaðið - 05.10.1982, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1982
Utanríkisráðherrafundur NATO-ríkja um helgina:
Yfirleitt mjög
mikil eining
— segir Olafur Jóhannesson
„ÞI-nTA var óformlegur aukafundur
og fyrir honum lá engin dagskrá.
Kundinn sátu ráóherrar einir og
ýmis mál voru rædd, en engar álykt-
anir gcrðar,“ sagði Ólafur Jóhann
esson utanríkisráöherra i samtali vió
Mhl., en hann sat um helgina utan-
ríkisráóherrafund NATO-ríkjanna,
sem haldinn var í Quebec í Kanada.
Ekkert þok-
aðist hjá mjólk-
urfræðingum
KKKKKT þokaóizt í kjaradeilu
mjólkurfræðinga og viðsemjenda
þ<‘irra á fundi hjá sáttasemjara i
gærdag, en nýr fundur hefur ver-
ió hoóaóur nk. fimmtudag klukk-
an 15.00.
Samkvæmt upplýsingum
Mbl. eru kröfur mjólkurfræð-
inga í anda samnings þess er
byggingaiðnaðarmenn gerðu á
sínum tíma, en eins og kunnugt
er, felldu mjólkurfræðingar
ASÍ—VSÍ samkomulagið á
fundi sínum í síðasta mánuði.
Mjólkurfræðingar hafa boð-
að verkfall frá og með næsta
föstudegi hafi samningar ekki
tekizt fyrir þann tíma.
Ólafur sagði að á fundinum
hefði talsvert verið rætt um efna-
hagsviðskipti og efnahagsmál og
hefði tónninn í mönnum verið sá
að gott væri að hafa samráð um
viðskipti, en fara yrði eftir hags-
munum viðkomandi lands, hvern-
ig viðskiptum landa yrði best fyrir
komið. Ekki sagði Ólafur að deilt
hefði verið á fundinum um þessi
atriði. Þá hefði verið rætt um
hernaðarleg málefni, og einnig
hvernig unnt væri að hafa sam-
vinnu um að verjast hryðju-
verkastarfsemi. Þá sagði Ölafur
að rætt hefði verið um Madrid-
ráðstefnuna og látin í ljós ósk um
að niðurstaða næðist.
Ólafur sagði að þessi fundur
væri sá fyrsti sinnar tegundar, sá
fyrsti með þessu óformlega formi,
en tilefni fundarins sagði Ólafur
þann orðróm sem á kreiki hefði
verið um ósamkomulag á milli
Bandaríkjanna og Evrópuríkja.
„Það voru auðvitað skiptar skoð-
anir um ýmis atriði, en ágreining-
ur var ekki mikill og yfirleitt var
mjög mikil eining á fundinum,"
sagði Ólafur. Kvað hann umræður
um gasleiðsluna umdeildu hafa
farið fram, en enginn dómur um
hana felldur.
Frá stofnfundi Félags aldraðra á Akureyri.
Félag aldraðra stofnað á Akureyri:
Ljósm.: KGA
Liðlega 500 manns
sóttu stofnfundinn
Akureyri, 4. október.
STOFNFUNDIIR Félags aldraöra á Akureyri var haldinn sl. sunnudag
klukkan 15.00 í Sjálfstæðishúsinu. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og
biskup Islands, séra Pétur Sigurgeirsson, og frú mættu á fundinn og fluttu
forseti og biskup ávörp.
Biskupinn sagði, að þetta væri
fyrsta félag sinnar tegundar á ís-
landi. Hann minnti ennfremur á,
að fyrsta ungmennafélagið og
fyrsta stúkan voru stofnuð á Ak-
ureyri. Gestur Ólafsson flutti
Starfsmenn Reykjavíkurborgar samþykktu nýjan kjarasamning:
Um 21% félagsmanna tóku
þátt í atkvæðagreiðslunni
ATKVÆÐI voru greidd um nýgeró-
an kjarasamning mílli Starfsmanna-
félags Keykjavíkurborgar og borgar-
innar í allsherjaratkvæöagreióslu í
Starfsmannafélagi Keykjavíkurborg-
ar um helgina. Að sögn Haraldar
llannessonar, formanns félagsins,
var samningurinn samþykktur með
miklum meirihluta atkvæða.
Á kjörskrá voru 2.360 félagar.
Aðeins 501 greiddi atkvæði, eða
liðlega 21% félagsmanna. Af þeim
sögðu 377, já eða 75%, en 121 nei,
eða 24%. Samningurinn telst því
réttilega samþykktur.
Haraldur Hannesson sagði að í
grófum dráttum mætti segja, að
um svipaðan samning væri að
ræða og hjá BSRB og ríkinu. „Við
erum þó með rýmri aldurshækk-
anir og fáum betri viðurkenningu
til handa eldri félögum. Það sem
við teljum þó mikilvægast við
þennan samning er það, að okkur
hefur tekizt að þurrka út laun
fyrir neðan 6. launaflokk, sem í
raun þýðir, að lágmarkslaun
okkar félaga eru ekki undir 8 þús-
und krónum, sem var einmitt
meginkrafa BSRB-þingsins í vor,“
sagði Haraldur ennfremur.
„Annars vil ég taka fram, að við
erum að sjálfsögðu mjög óánægðir
með að vera með eins skertan
samningsrétt, eins og raun ber
vitni, vegna þeirra forgöngu, sem
ASI hafði í sumar. Við kunnum
þeim ASI-mönnum engar þakkir
fyrir þeirra hlut að málinu. Við
reyndum því einfaldlega að ná
samningum innan hinna fyrir-
fram ákveðnu marka, á þann hátt
sem félagsmenn okkar gætu bezt
við unað,“ sagði Haraldur
Hannesson, formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar
að síðustu.
framsöguræðu og undirbúnings-
nefnd lagði fram drög að lögum og
tillögu að fyrstu stjórn þess, sem
hvoru tveggja var samþykkt á
fundinum.
I stjórn voru kjörin Jón G. Sól-
nes, formaður, Ragnar Ólafsson,
Stefán Reykjalín, Júdit Jón-
björnsdóttir og Erlingur Davíðs-
son.
Heillaóskir bárust á fundinn frá
Svavari Gestssyni, heilbrigðis-
ráðherra, og Ingvari Gíslasyni,
menntamálaráðherra. Forseti
bæjarstjórnar, Valgerður Bjarna-
dóttir, flutti ávarp, og færði félag-
inu 20.000 króna gjöf frá Akur-
eyri. Mikil ánægja var ríkjandi
með fundinn, sem liðlega 500
manns sóttu. Altalað var á fundin-
um, að hann væri fjölmennasti
stofnfundur, sem haldinn hefur
verið á Islandi.
Jón G.Sólnes, formaður félags-
ins, flutti ræðu, og að lokum fóru
fram ýmis skemmtiatriði og fund-
argestir fengu kaffi og konfekt.
— Fréttaritari
Björgvin á
Broadway
BJÖKGVIN Halldórsson og
hljómsveit hans, sem nýkomin
eru úr mikilli hljómleikaför um
Sovétrikin, munu halda hljóm-
leika í veitingahúsinu Broadway
nk. fimmtudags- og fostudags-
kvöld i tilefni fararinnar.
Hljómsveitin hélt eins og kunnugt
er 27 tónleika á liðlega mánuöi
við mjög góðar undirtektir sov-
ézkra áheyrenda.
Mörg innbrot —
miklar skemmdir
TALSVERT var um innbrot um helg-
ina og var tveimur bifreiðum stolið.
Brotist var inn í Lúkasverkstæðið,
Síðumúla 8, og þaðan var Willys-
jeppa, árgerð 1955, stolið. Jeppinn
Átök um hafréttarmál
á þingi Evrópuráðsins
Tillaga Þorvalds Garðars Kristjánssonar náði fram
ALLSNÖRP átök urðu á þingi
Evrópuráðsins síðastliðinn fostu-
dag, þegar afstaða var tekin til
breytingartillögu Þorvalds Garðars
Kristjánssonar alþingismanns við
ályktun laganefndar ráðsins um
hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóð-
anna. Lauk átökunum með því að
tillaga Þorvalds Garðars náði fram
að ganga en þeir urðu undir sem
vildu gera sem minnst úr gildi haf-
réttarsáttmálans.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, sem enn er á þingi Evrópu-
ráðsins í Strasbourg, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að
hann hefði tekið þátt í störfum
undirnefndar laganefndar ráðs-
ins um þetta mál fyrr í sumar og
þar átt við ofurefli að etja, þegar
hann vildi láta það koma fram í
ályktun nefndarinnar um haf-
réttarsáttmálann að það væri
mikils virði að sem flestar þjóðir
gerðust aðilar að honum, svo að
hann tæki gildi. Sagðist Þor-
valdur Garðar hafa lýst þeirri
skoðun sinni í undirnefndinni að
afstaða manna þar mótaðist af
þröngsýni. Hefði hann síðan enn
tekið málið upp í laganefndinni
sjálfri en þar hefði viðhorf sitt
aftur orðið undir. Því hafi ekki
verið annar kostur en flytja
breytingartillögu á þinginu
sjálfu og hefði hún verið til um-
ræðu og afgreiðslu á föstudag-
inn.
Breytingartillaga Þorvalds
Garðars Kristjánssonar var efr.-
islega á þá leið, að þing Evrópu-
ráðsins lýsti yfir þeirri von, að
sem flestar þjóðir gerðust aðilar
að hafréttarsáttmálanum sem
samþykktur var með miklum
meirihluta á 3ju hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna, en
aðild sem flestra þjóða væri for-
senda þess, að sáttmálinn þjón-
aði tilgangi sínum um heim all-
an. Var þessi breytingartillaga
við ályktun laganefndarinnar
samþykkt og sagðist Þorvaldur
Garðar líta á þá niðurstöðu sem
mikinn sigur fyrir „okkar mál-
stað“ eins og hann orðaði það.
En hann fékk sem flutnings-
menn með sér formenn fjöl-
margra sendinefnda á þinginu.
Þegar þing Evrópuráðsins af-
greiðir mál eru atkvæðatölur
ekki birtar.
Við lokaafgreiðslu hafréttar-
sáttmálans á ráðstefnu Samein-
uðu þjóðanna greiddi eitt aðild-
arríki Evrópuráðsins, Tyrkland,
atkvæði gegn sáttmálanum en
sjö Evrópuráðsríki sátu hjá og
telja sáttmálann óhagstæðan
fyrir sig. Sagði Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson að í þessu ljósi
yrði að skoða andstöðu við sjón-
armið sín í laganefndinni. Hann
sagði að í Evrópuráðinu færi
landbúnaðarnefndin með sjávar-
útvegsmál og hefði Kjartan Jó-
hannsson alþingismaður haft
framsögu fyrir áliti þeirrar
nefndar án þess að þar hefði ver-
ið tekin afstaða til tillögunnar.
ber einkennisstafina R-56054. Þá
var sendibifreið stolið frá heildversl-
un Ásgeirs Sigurðssonar í Síðumúla
35. Bifreiðin fannst í Suðurhólum á
laugardag.
Miklar skemmdir voru unnar í
heildversluninni Asiaco á Vestur-
götu 2. Sextán hurðir voru brotnar
og margar skrifstofuvélar eyði-
lagðar og er tjónið tilfinnanlegt.
Áður var farið inn á verslun Ála-
foss, sem er á 1. hæð og þar rótað
til.
Á laugardag barst RLR tilkynn-
ing um innbrot í Kokkhúsið í
Lækjargötu. Þar voru sprengdar
upp þrjár hurðir að matvæla-
geymslum en engu stolið. Þá var
farið inn í verslunina Skalla í
Lækjargötu en ekkert hvarf það-
an. Brotist var inn í Alaska við
Miklatorg.
Á sunnudag barst RLR tilkynn-
ing um innbrot í skóvinnustofu
Hafþórs í Garðastræti en þaðan
var stolið smámynt. Einnig var
brotist inn í Sögufélagið í Garða-
stræti og bækur teknar. Þá barst
RLR tilkynning um innbrot í
Fálkann við Suðurlandsbraut.
Hurð brotin upp en litlu stolið.
Tjón í þessum innbrotum nemur
tugþúsundum, en ljóst er að þjóf-
arnir höfðu lítið upp úr krafsinu.
O'
INNLENT