Morgunblaðið - 14.10.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
Strandaði og
sökk við Papey
VELBATURINN Jón Bjarna.son SF3,
sem strandaói við Papey laust eftir
miðnætti aðfaranótt miðvikudags.
Kom mikill leki að bátnum og sökk
hann í gær við eyna. Skipverjar kom-
ust í gúmmíbát og var skömmu síðar
bjargað af vélbátnum Sturlaugi ÁR7,
sem nýlega er farið að gera út frá
llornafirði, og komu þeir til Hafnar
um klukkan 8.30 í gærmorgun. Sjópróf
fóru fram á Höfn í Hornafirði í gær.
Jón Bjarnason SF3 var tryggður fyrir
tæplega 3,7 milljónir króna, en taka
átti hann af skrá um áramót.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá sýslumanninum á
Höfn, steytti báturinn á Flyðru-
skeri, sem er rétt við Papey. Bátur-
inn var að koma frá Reyðarfirði,
með viðkomu á Fáskrúðsfirði, og
ætluðu bátsverjar suður fyrir Papey
í síldarleit. Talið er að rniklir
straumar við eyna hafi átt þátt í
óhapþinu, en innfall var á firðinum
þegar báturinn strandaði. Mikil úr-
koma var þegar strandið varð og
talið er að það hafi haft áhrif á rad-
arinn. Þá er talið hugsanlegt að
sjálfstýring bátsins hafi bilað.
Báturinn sökk skammt frá Papey
Athöfn frest-
að vegna anna
Steingríms
ATHÖFN sem fram átti að fara á Ak-
ureyrarflugvelli í dag vegna tímamóta
í sögu flugvallarins var frestað þar
sem Steingrimur Hermannsson, sam-
göngumálaráðherra, sá sér ekki fært
að fara norður vegna anna.
Fyrir skömmu var lokið við að
lengja flugbrautina á Akureyri í
2.000 metra og malbik lagt. Við
þessa lengingu geta fullhlaðnar
Boeing 727-þotur lent á Akureyrar-
flugvelli. Þá er verið að taka í notk-
un blindflugstæki á flugvellinum.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
haldið verður upp á þennan merka
atburð í sögu flugvallarins.
á tiltölulega litlu dýpi, en um metri
af mastrinu stóð upp úr sjónum þar
sem báturinn lá, þegar síðast frétt-
ist. Töluverð ólga er í sjónum þar
sem báturinn liggur og talið er erf-
itt að bjarga nokkru úr honum,
vegna óróleika í sjónum.
Jón Bjarnason SF3 var einn Sví-
þjóðarbátanna svokölluðu, byggður
á Nýsköpunarárunum. Akveðið
hafði verið að eyða bátnum í vetur,
því samþykkt hafði verið að hann
væri úreltur orðinn, og voru eigend-
ur hans að fá nýjan bát frá Noregi.
Skipstjóri bátsins var annar eig-
enda hans.
Rjúpnaveið-
in hefst
á morgun
RJÚPNAVEIÐIN hefst á
morgun, föstudaginn 15.
október. Leyft er að skjóta
rjúpu til 22. desember.
Rannsóknir hafa verið gerð-
ar á rjúpnastofninum undan-
farin ár, en stofninn hefur ver-
ið tiltölulega lítill allt frá ár-
inu 1%6. Niðurstöður síðustu
rannsókna, sem gerðar hafa
verið á rjúpnastofninum
benda hins vegar til þess að
um 50% aukning sé frá í fyrra.
Hugsanlegt er talið að um
áframhaldandi fjölgun verði
að ræða, í líkingu við það sem
áður hefur verið, en rjúpna-
stofninn var tiltölulega stöð-
ugur allan síðasta áratug.
Síðasta hámark stofnsins
var um 1966, en það hámark
var tiltölulega lágt. Arið 1957
var rjúpan síðast í verulegu
hámarki, en ef rjúpunni fjölg-
ar með sama hraða næstu ár
og nú er, má búast við há-
marki í stofninum árin 1985
eða 1986.
Ljósmynd (•unnar Asgeirsson.
Jón Bjarnason SF3. Myndin er tekin í fyrrinótt þegar báturinn var á
reki við Papey. Báturinn er nokkuð siginn, en myndin er tekin eftir að
áhöfnin fór frá borði. í baksýn má sjá Ijós nálægs báts.
Fjárveitinganefnd Alþingis:
Friðjón kjörinn
í
stað
FRIÐJÓN Þórðarson dómsmála-
ráðherra var kjörinn í fjárveitinga-
nefnd Alþingis í gær af lista
stjórnarliða, en Eggert Haukdal,
fjórói maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins, var felldur, en Eggert
hefur setið í fjárveitinganefnd síð-
ustu þing. Sjálfstæðismenn buðu
fram sameiginlega í allar aðrar
nefndir en fjárveitinganefnd.
Kjartan Jóhannsson formaður Al-
þýðuflokksins tók sæti það sem
Benedikt Gröndal skipaði í
Sameinað Alþingi:
Neitaði að taka fyrirspurn
Vilmundar til meðferðar
ÞINGMENN felldu að viðhöfðu
nafnakalli í sameinuðu þingi í gær
tillögu um að heimila meðferð á fyrir-
spurn frá Vilmundi Gylfasyni til
dómsmálaráðherra varðandi embætt-
isfærslu sýslumannsins á Höfn í
Hornafirði hinn 18. ágúst sl. Forseti
sameinaðs þings, Jón Helgason, neit-
aði að höfðu samráði við forseta
þingsins að taka fyrirspurnina til
meðferðar og krafðist Vilmundur þá
að sameinað þing úrskurðaði um mál-
ið með nafnakalli. Nokkrir þingmenn
gerðu grein fyrir atkvæði sínu við at-
kvæðagreiðsluna og í lok hennar
kvaddi Vilmundur sér hljóðs um
þingsköp og lét þung orð falla í garð
forseta, Jóns Helgasonar, og ásakaði
hann m.a. um hlutdrægni i fundar-
stjórn.
Fyrirspurn Vilmundar var beint
til dómsmálaráðherra og hljóðaði
svo: „Hefur dómsmálaráðherra tal-
ið ástæðu til að gera athugasemd
við embættisfærslu sýslumannsins
á Höfn í Hornafirði hinn 18. ágúst
sl.?“. Vilmundur er hér að rifja upp
fréttaflutning frá atburði til-
greindan dag, en sýslumaðurinn á
Höfn hafði umsjón með yfirheyrsl-
um vegna meints morðs á ungri,
franskri stúlku og árásar á systur
hennar. Vilmundur fjallaði opin-
berlega um mál þetta á sínum tíma
og deildi mjög á sýslumanninn
fyrir að vera of opinskár við fjöl-
miðla um málið.
Á fundinum í gær gerði Jón
Helgason grein fyrir framkominni
beiðni Vilmundar og afgreiðslu
sinni. Jón sagðist telja að tillagan
væri ekki þingleg, þar sem ráðist
væri persónulega að opinberum
embættismanni, sem ekki gæti
svarað fyrir sig. Gert var tíu
mínútna fundarhlé til að menn
gætu borið saman bækur sínar og
við nafnakallið gerðu sex þingmenn
grein fyrir atkvæði sínu. Þeir sem
tóku til máls lýstu sig allir, að und-
anteknum Vilmundi, andstæða
skoðunum Vilmundar sem komu
fram opinberlega í sumar, varðandi
embættisfærslur sýslumannsins.
Flestir þeirra greiddu þó atkvæði
með því að fyrirspurnin yrði tekin
til meðferðar og gerðu grein fyrir
þeirri skoðun sinni að það væri
alvarlegur hlutur að takmarka rétt
þingmanna til þess að bera fram
fyrirspurnir.
Atkvæði féllu þannig að 41 þing-
maður sagði nei, já sögðu 16, þrír
sátu hjá. Allir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins og Framsóknar-
flokksins, að undanskyldum dóms-
málaráðherra, Friðjóni Þórðarsyni,
sem sat hjá, sögðu nei. Alþýðu-
flokksmenn sögðu allir já að
undanskyldum Magnúsi H.
Magnússyni, sem sat hjá. Skoðanir
Alþýðubandalagsmanna voru
nokkuð skiptar.
utanríkismálanefnd og Jón Bald-
vin Hannibalsson var kjörinn í
atvinnumálanefnd sameinaðs Al-
þingis. Nefndarskipan í deildum
var að mestu óbreytt.
„Það var fyrst talað um að hafa
allt óbreytt, en eins og ljóst má
vera þá töldum við ekki fært, með-
an við erum í þessu stjórnar-
samstarfi, að hafa ekki meirihluta
í fjárveitinganefnd," sagði Friðjón
Þórðarson aðspurður um þessa
breytingu. Hann var þá spurður
hvernig það samrýmdist að hans
mati að vera ráðherra og starfa í
svo tímafrekri og stórri þing-
nefnd. „Það er náttúrulega ekki
gott, en ég held að ég sé eini mað-
urinn sem hefur reynslu af því, því
ég sat í nefndinni 1980. Þetta er
auðvitað mikil vinna og alls ekki
æskilegt en það reyndist ekki unnt
að ná samkomulagi. Ég óskaði ein-
dregið eftir því í gær að vera á
lista Sjálfstæðisflokksins, þegar
sjá mátti hvernig færi, en ég fékk
fyrst að vita það rétt fyrir klukk-
an tvö í dag, að þeirri ósk minni
hefði verið hafnað."
Morgunblaðið spurði einnig
Eggert Haukdal álits. Hann sagði:
„Stjórnarandstaðan var búin að
bjóða það fram, að ef nefndaskip-
anin yrði óbreytt yrði Geir Gunn-
arsson áfram formaður nefndar-
innar, þrátt fyrir að stjórnarliðar
misstu meirihlutann. Þetta gat
stjórnarandstaðan ekki sætt sig
við. Þá hlýtur að vera erfitt fyrir
ráðherra að sitja í nefnd sem er
alla daga að störfum. Gagnvart
mér, þá hefur mér verið kunnugt
um það lengi að þeir ætluðu sér
þetta sæti, svo þetta hefur ekki
komið mér á óvart. Við þessu er
svo sem ekkert að segja eða gera,“
sagði Eggert að lokum.
Ríkisráðs-
fundur í dag
RÍKISRÁÐ íslands kemur saman til
fundar kl. 9 árdegis. Aó loknum ríkis-
ráðsfundi verður ríkisstjórnarfundur.
Að sögn Magnúsar Torfa Ólafs-
sonar var ríkisráðsfundurinn ákveð-
inn fyrir nokkuð löngu. Hann kvað
hér einvörðungu um venjubundinn
„afgreiðslufund" að ræða. Dagskrá
ríkisstjórnarfundarins hafði ekki
verið ákveðin í gærkvöldi, en Magn-
ús sagðist reikna með áframhald-
andi umræðum um þingmál o. fl.
Innflutningur á svartolíu
hefiir dregizt saman um 19%
Benzíninnflutningur jókst um
10,5% fyrstu átta mánuði ársins, en
alls voru flutt inn 59.734,9 tonn í ár,
samanborið við 54.094,2 tonn á sama
tíma í fyrra. Verömæti innflutnings-
ins hefur aukizt um liðlega 60% á
milli ára, en verðmætið í ár er liðlega
122,5 milljónir króna, samanborið
við liðlega 54 milljónir króna á sama
tíma í fyrra.
Gasolíuinnflutningur dróst sam-
an um liðlega 1,45% á umræddu
tímabili, en til landsins voru flutt
123.194,4 tonn fyrstu átta mánuð-
ina í ár, samanborið við 124.952,9
tonn á sama tíma í fyrra. Verð-
mæti innflutningsins í ár var lið-
lega 357,2 milljónir króna, sam-
anborið við tæplega 258,6 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
Samdrátturinn í svarolíuinn-
flutningi varð mun meiri, eða í
námunda við 19,1%. í ár hafa verið
flutt inn 75.552,3 tonn, samanborið
við 93.386,5 tonn á sama tíma í
fyrra. Verðmæti innflutningsins í
ár var tæplega 134,3 milljónir
króna, samanborið við liðlega 141,4
milljónir króna á sama tíma í
fyrra. Verðmæti innflutningsins í
ár er því liðlega 5% minna, en það
var í fyrra.
Innflutningur á þotueldsneyti
jókst um tæplega 53,5% fyrstu
átta mánuði ársins, en í ár hafa
verið flutt inn 36.708,9 tonn, sam-
anborið við 23.916,0 tonn á sama
tíma í fyrra. Verðmæti innflutn-
ingsins í ár er um 127% meira, en
fyrstu átta mánuðina í ár var það
liðlega 120,9 milljónir króna, sam-
anborið við liðlega 53,2 milljónir
króna á sama tíma í fyrra.
Bílainn-
flutningur
hefur auk-
izt um 23%
Bifreiðainnflutningur hefur
aukizt verulega á þessu ári, en
fyrstu átta mánuði ársins voru
fluttar inn samtals 8.545 bifreið-
ir, samanborið viö 6.937 bifreiðir
á sama tíma í fyrra. Aukningin
milli ára er liðlega 23,2%.
Verðmæti bifreiðainnflutn-
ingsins í ár er liðlega 460,3
milljónir króna, samanborið
við liðlega 249,3 milljónir króna
á sama tíma í fyrra. Innflutn-
ingsverðmætið í ár er því um
84,6% meira, en á sama tíma í
fyrra.
Til glöggvunar má geta þess,
að á öllu síðasta ári voru flutt-
ar inn samtals 10.366 bifreiðir
og hafði innflutningurinn vaxið
um 16,1% frá árinu á undan,
þegar inn voru fluttar samtals
8.927 bifreiðir.
Þótt ólíklegt sé, að innflutn-
ingsaukningin verði jafn hröð
það sem eftir er af árinu, er
ljóst, að árið í ár verður með
stærstu árum í innflutningi
bifreiða.