Morgunblaðið - 14.10.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, P'IMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
5
Átta skip selja erlendis
FIMM íslenzk fiskiskip hafa selt
afla sinn erlcndis það sem af er
þessari viku og þrjú munu selja í
dag og á morgun. Hafa skipin yfir-
leitt fengið nokkuð gott verð fyrir
aflann, bæði í Englandi og l»ýzka-
landi.
Eftirtalin skip hafa selt það sem
af er vikunni: Sigurfari AK seldi
39,6 lestir í Grimsby á mánudag.
Heildarverð var 607.300 krónur,
meðalverð 15,33. Á þriðjudag seldi
Vöttur SU 55,1 lest í Grimsby.
Heildarverð var 972.900 krónur,
meðalverð 17,65. Þá seldi Birting-
ur NK 120,9 lestir, mest karfa, í
Cuxhaven. Heildarverð var
1.476.000 krónur, meðalverð 12,21.
í gær seldi Freyja RE 52,5 lestir,
mest ýsu, í Grimsby. Heildarverð
var 803.000 krónur, meðalverð
15,28. Sama dag seldi Ársæll HF
131 lest, mest karfa, í Cuxhaven.
Heildarverð var 1.275.900 krónur,
meðalverð 9,74.
Landshappdrætti Sjálfstoeðisflokksins:
Mikilvæg fjáröflunarleið
- segir Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri flokksins
„ÞAD eru blikur á lofti í þjóðmálun-
um eins og öllum er kunnugt, og
hugsanlega verður gengið til alþing-
iskosninga fyrirvaralítið, og þvi er
afar mikilvægt að þetta happdrætti
gangi vel, enda er það einn mikil-
vægasti hlekkurinn i fjáröflunar-
keðju Sjálfstæðisflokksins," sagði
Kjartan Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins i samtali
við Morgunblaðið i gær.
Tilefnið var það, að nú styttist í
að dregið verði í landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins, dregið verð-
ur á laugardaginn. Þúsundir
stuðningsmanna flokksins hafa
fengið heimsenda miða, og kvaðst
Kjartan vilja hvetja fólk eindregið
til að gera skil hið allra fyrsta.
„Það er skammt um liðið síðan
síðast var gengið til kosninga með
öllum þeim kostnaði er því fylgdi,"
sagði Kjartan, „og því má segja að
oft hafi verið þörf, en nú nauðsyn,
að sjálfstæðismenn standi saman
og leggi sitt lóð á vogarskálarnar.
Happdrættið er afar mikilvæg
fjáröflunarleið, og því vonum við
að fólk bregðist nú skjótt og vel
við. Margt smátt gerir eitt stórt,
það sannast best í fjáröflun sem
þessari."
Þá bað Kjartan Morgunblaðið
að koma því á framfæri, að af-
greiðsla happdrættisins í Valhöll
væri opin frá klukkan 9 árdegis til
22, þar sem tekið er á móti greiðsl-
um, og jafnframt er greiðsla sótt
heim til fólks eða á vinnustaði, sé
þess óskað. Meðfylgjandi mynd
tók ljósmyndari Mbl., Emilía, þeg-
ar verið var að vinna í happdrætti
Sjálfstæðisflokksins við Valhöll,
talið frá vinstri: Þóra Ólafsdóttir,
Anna Borg og Kristín Guðjóns-
dóttir.
Hvað segja
gagnrýnendur?
HEFUR ÞÚ HEYRT
„Stór rós í hnappagatið hennar Bergþóru". (Sig. Sv.,
Mbl. 15.9).
„Bergmál er plata sem auðvelt er að láta^er Jíka við,
lögin grípandi og bera vott um þr'oskrándi ög tilfinn-
ingaríkan lagahöfund." CHK, DV, 11.10.).
„Eina Bergmál sem ég veit um og ekki deyr út, en
magnast." (A., Þjóðv., 12.9.).
„Enda væri það dauöur maöur, sem lögin, utsetning
þeirra og söngur Bergþóru kæmi ekki við taugaend-
ana á. Bergmál ómi alls staðar." (Ari, Tíminn, 9.10 ).
GETUR ÞÚ VERIÐ ÁNÆGÐUR
MEÐ PLÖTUSAFNIÐ ÞITT ÁN BERGMÁLS?
Fæst í næstu hljóntplötuver/lun
l)reifinj>
FÁLKINN
Þú getur ómögulega
verið Lappáíaus
næsta sumar