Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982 Drekka þyrnarnir blóð? Bókmenntír Jóhann Hjálmarsson Pólska skáldið Ryszard Krynicki orti fyrir nokkrum árum eftirfarandi Ijóó: VrAi ój; einhvern tíma aó hrópa: „Dmgi lifl l*ólland!“ — á hvaóa máli ætti ég ad gera þaó? Þetta ljóð er dæmigert fyrir kynsjóð Krynickis, skáld sem fædd eru á fimmta áratugnum. Eitt af skáldum þessarar kynslóðar er Stanislaw Baranczak. Vegna póli- tískra ljóða sinna átti hann snemma í útistöðum við ritskoð- unina og var loks bannað að birta verk sín 'í Póllandi. En Baranczak tókst að koma sér á framfæri með hjálp leynilegra forlaga eins og NOWA og auk þess komu útlaga- forlög til móts við hann. Vegna stuðnings við andófsmenn í verka- lýðshreyfingunni var honum meinað að flytja fyrirlestra við háskólann í Poznan, en hlaut náð fyrir augum yfirvalda haustið 1980.1 desember sama ár fór hann til Stokkhólms í boði Czeslaw Mil- osz sem þangað var kominn til að taka við bókmenntaverðlaunum Nóbels. Nú kennir Baranczak slafnesk mál og bókmenntir við Harvard-háskóla í Bandaríkjun- um. í fyrirlestri sem Stanislaw Bar- anczak hélt í janúar á vegum The Academy of American Poets (birt- it í sænska tímaritinu BLM 4. h. 1982) fjallar hann um ástandið í Póllandi, einkum frá sjónarmiði skálda og bókmenntafólks. í upp- hafi fyrirlestrarins skýrir hann frá því að einum vina sinna, skáld- inu Wiktor Woroszylski, hafi verið stungið í fangelsi. Tvö skáld af kynslóð Baranczaks, Julian Kornhauser og Adam Zagajewski, sitja einnig í fangelsi. Sama er að segja um Leeh Dymarski. Um ör- lög Ryszard Krynickis, kannski mesta skálds minnar kynsióðar, veit ég ekki, segir Baranczak. Og hann vitnar til fyrrgreinds ljóðs Krynickis og kallar það spámann- legt. Fyrirlestur Baranczaks er ekki síst lærdómsríkur fyrir þá sem engin kynni hafa af ritskoðun og einræði. Baranczak segir að það séu engin ný sannindi að ástæðan fyrir hinu beiska stolti sem ein- kenni skáldskap Austur-Evrópu sé vissan um að þar séu skáld fang- elsuð og líflátin; orð þeirra eru greinilega hættuleg einræðis- skipulagi: Jafnvel þeir vina minna sem gerðu ekki annað en yrkja eru taldir jafnhættulegir og baráttu- menn stéttasamtaka og hinir póli- tískt virku. Með þessu móti viður- kennir einræðisstjórnin á því eina máli sem hún kann, nefnilega valdbeitingu, að hún gerir sér. grein fyrir mikilvægi skáldskapar í samfélaginu og á vissan hátt óttast hún skáldið og orð hans. í byrjun desember 1980 kveðst Baranczak hafa getað skrifað um sigur bókmennta yfir sálarlausu skrifstofubákni, um stranga bar- áttu fyrir frelsi og óvænta sigur- göngu frjálsrar hugsunar. Þetta breyttist ailt á einni nóttu, segir hann; eftir aðfaranótt þrettánda desember varð ég að tala um Leiörétting ÞAU MISTÖK urðu hér í blaðinu sl. föstudag í frétt um Ragnar Lassinantti, að lén það, þar sem hann var landshöfðingi, er kallað Kirjálabotnslén. Þetta er rangt. Lén það, þar sem Lassinantti var lénshöfðingi, nefnist Norður- botnslén og er í Svíþjóð. Stanislaw Baranczak Adam Zagajewski handtekin skáld, upptækar bækur og prentvélar og skáldskap sem enn á ný ásamt allri þjóðinni var dæmdur til þjáningar, vonleysis og þagnar. Athyglisverð er sú umræða um skáldskap sem fyrirlestur Bar- anczaks er til vitnis um. Hann bendir á að leynilegu forlögin sem á tímabili fengu pólsk stjórnvöld til að slaka á hafi valdið því að pólsk ljóðagerð náði óvenjulegum þroska. Skáldin ortu að vísu beinskeytt Ijóð sem höfðuðu til lesenda en gerðu kröfur til þeirra um leið. Þetta olli því að margir lesendur óvanir ljóðum fengu á þeim nýjan skilning, en alls ekki án áreynslu. Eins og hann segir: í einræðislöndum getur ljóðið hjálpað fólki og staðið vörð um það með því einu að vera ljóð. Bregðist ljóðið ekki sjálfu sér verður það ósjálfrátt andstæðing- ur einræðis. Það er ekki nauðsyn- legt að vera pólitískt skáld. Það er alveg eins hægt að yrkja um ást, dauða, blóm eða Grikkland fortíð- arinnar. Fyrr eða síðar munu ein- ræðisherrarnir snúast gegn þeim skáldskap sem er sannur. Það er reynsla skálda Austur-Evrópu, eini glæpur þeirra var að þau ortu Ijóð. Dæmi er rússneska skáldið Osip Mandelstam sem lét lífið í sovéskum fangabúðum. Ef til vill þykir mörgum lesend- um vestan járntjalds Baranczak furðu bjartsýnn. En það er vegna þess að hann trúir á hlutverk ljóðsins. Það á hann kannski sam- eiginlegt með valdhöfum í Póll- andi. Skáldin hafa verið lokuð inni í fangelsum og fyrir það öðlast skáldskapur þeirra enn meira gildi, verður ekki þurrkaður út. Um leið og orð Stanislaw Bar- anczak verða okkur umhugsunar- efni getum við velt fyrir okkur því sem annað pólskt skáld, Adam Zagajewski, hefur fram að færa. Yildu einræðittherrarnir aöeins lesa reiðileg, heiflúöuj; og vandk^a fáyuö Ijóð okkar, þá myndi skáldskapurinn sannarlega breyta heiminum. Kn rósirnar þekkja ekki heldur þau verk sem eru tileinkuð þeim. I»yrnarnir drekka ekki blóð. Jóhann Hjálmarsson 2 bækur Fay Wéldon Jóhanna Kristjónsdóttir Fay Weldon er býsna kunnur höfundur hérlendis, sjálfsagt hef- ur skáldsagan Praxis ráðið þar miklu um, hún var fyst lesin í út- varp og síðan gefin út hjá Iðunni í þýðingu Dagnýjar Kristjánsdótt- ur. Menn skiptust nokkuð í hópa um afstöðu til bókarinnar, sumir hófu hana upp til skýja, öðrum fannst hún argasta rugl og klám. Ég skrifaði um hana, bæði upp- runalegu útgáfuna og siðan hina íslenzku, og þótti augljóst, að Fay Weldon væri á margan hátt hinn athyglisverðasti höfundur. Watching Me Watching You er safn smásagna eftir Fay Weldon, og kom út á árinu 1981, nánar til- tekið eru í henni ellefu sögur og þær eru æði misjafnar og héldu ekki allar áhuga mínum. En þær bera sumar hverjar hin beztu ein- kenni höfundarins, þær eru ágeng- ar og láta lesandann ekki ósnort- inn, hvort sem honum líkar betur eða verr verður hann alténd að taka afstöðu, það er meira en hægt er að segja um ýmsa höf- unda og er óumdeilanlega kostur. Þó svo að viðbrögðin séu neikvæð og lesandi sé ekki alls kostar sátt- ur við það sem fram er sett. Enda gerir það út af fyrir sig minnst til og á auðvitað ekki að ráða úrslit- um um hvað lesanda finnst um gildi bókarinnar. Watching Me Watching You er víða mögnuð, óhugnaðurinn gæist víða, en kaldhæðnin og kímnin eru samt sem áður ekki langt undan. Það er út af fyrir sig óþarft að gefa smá- sögunum hverri fyrir sig einhvern sérstakan vitnisburð, flestar hafa eitthvað tii síns ágætis og byggist á því hve hér er á ferð snjall höf- undur. „Little Sister" mun vera önnur bók höfundar, kom út fyrst á árinu 1977, eftir að Fay Weldon hafði skrifað Remember Me, sem ég minnist ekki í fljótu bragði að ég hafi lesið. Það er dæmigert fyrir Fay Weldon, og hefur þó orð- ið æ meira áberandi í nýrri bókum hennar, að hún fer höndum um persónur sínar af fullkomnu mis- kunnarleysi, en þó er sem betur fer enginn hvorki algóður né al- vondur. Bókin snýst um kynlíf, græðgi og ýmsa eiginleika í fari manneskjunnar, sem ekki teljast af hinu fagra. Vegna frásagnar- máta hennar, sem hér er þó ekki orðinn jafn leikandi og lipur og verður í nýlegri verkum hennar, er óhugsandi annað en hrífast með — þó svo að stundum langi mann vissulega til að leggja bókina frá sér og sinna henni ekki framar. Eins og ég vék að í upphafi, er slíkt ákveðinn kostur að lesandi er beinlínis neyddur til að taka af- stöðu. Það kann líka að vera ein af ástæðunum fyrir því, að bækur Fay Weldon eru umdeildar. En mannúð höfundar og orðgnótt og hæfni hennar til að leiða fram á sjónarsviðið Ijóslifandi persónur vega þyngra á metunum en það sem manni hugnast miður. Þess vegna er ávinningur að því að lesa bækur hennar. 3 M WELDON fflíwfiDOn ‘Intolligent, moving and niHturo ... n tour de fort;e’ - !;'t«*» wflTctiino r\t WflTCtllllO TOU Myndlíst Sýning Þorvaldar Þorsteinssonar í sal Myndlistarskólans á Akureyri Bolli Gústavsson í Laufási Sýning Þorvaldar Þorsteins- sonar í húsakynnum Myndlist- arskólans á Akureyri er tíma- mótaviðburður í menningarlífi höfuðstaðar Norðurlands. Það er hún m.a. vegna þess, að Þorvald- ur hefur numið við hinn unga Myndlistarskóla og náð athyglis- verðum árangri á þeim tíma, sem hann hefur varið þar í fjóra vetur. Hann er fyrsti nemandinn þaðan, sem heldur einkasýningu á Akureyri. Sú sýning er upp- skera, sem leiðir í ljós, að Myndlistarskólinn er stofnun, sem Norðlendingar mega vera hreyknir af og þeim er því óhætt að hlúa að honum í framtíðinni. Hjá Þorvaldi fara saman góðir hæfileikar og vönduð undir- stöðumenntun, sem engum dylst. Ekki verður sagt, að sýningin láti mikið yfir sér, en þeim mun dýpra ristir hún í huga hvers, sem myndirnar skoðar með vel- vild og áhuga. Þorvaldur er með afbrigðum öruggur teiknari og nær þeirri hlýju sveiflu, sem gæðir myndir hans lífi og leik. Sá leikur er þó ekki óstýrilátur heldur agaður. Fer vart á milli mála, að þarna er á ferð af- bragðsteiknari, sem mikils er að vænta af. Hann kann vel að fara með vatnsliti, en þar eru fingra- för skólans greinilegri. Penna- teikningin er hans aðal, sem lýs- ir af. Kæmi mér ekki á óvart, að íslensk bókaútgáfa ætti eftir að njóta góðs af hæfileikum Þor- valdar. Verkin á þessari sýningu eru nær 70 talsins og, sem fyrr hefur fram komið, flest túss- og Að lokum (blýantur ’82). Það verður forvitnilegt að fylgjast með ferli Þorvaldar Þorsteinssonar og fararheilla óskum við norðanmenn honum. vatnslitamyndir. Sýningin var opnuð laugardaginn 2. október að viðstöddu fjölmenni og henni lýkur þann 10. október nk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.