Morgunblaðið - 14.10.1982, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
19
ur að þeim staðið en oft áður.
Margir góðir menn hafa áhyggur
af þverrandi búsetu fólks í sveit-
um landsins og er það ekki að
ástæðulausu, því þar liggja rætur
íslenskrar menningar og mega
ekki losna um of frá móður jörð.
Þessi ótti er að sjálfsögðu ekki
ástæðulaus, en þó finnst mér að
nútíminn bjóði upp á meiri mögu-
leika til búsetu fólks í sveitum,
sem stundar annað en landbúnað,
en áður var. Slíka búsetu mætti
styðja á margvíslegan hátt og
vega þannig upp á móti hugsan-
legri fækkun í bændastéttinni.
Þótt ég hafi einkum gert offram-
leiðsluvandamál landbúnaðarins
að umræðuefni hér, þá eru vissu-
lega mörg önnur vandamál honum
tengd, sem bíða úrlausna, og er
hart til þess að hugsa þegar svo er
ástatt, að landbúnaðurinn skuli
ekki fá það hagræðingarfé, sem
honum ber lögum samkvæmt. Það
er nú sem oft áður, að íslensk
bændastétt þarf á góðra manna
ráðum að halda því það sem nú
kann að verða gert í málefnum
landbúnaðarins mun trúlega
varða velferð bændastéttarinnar
um langa framtíð. Ég er sann-
færður um að ef nú verður tekið
harkalega á offramleiðsluvanda-
málum landbúnaðarins, þá gæti
farið af stað verulegur flótti fólks
frá sveitum að sjávarsíðu. Sá
flótti þýddi vissulega ekki annað
en það, að offramleiðsluvandamál
bændastéttarinnar flyttust beint
inn á hinn almenna vinnumarkað í
landinu og getur hver sagt sjálfum
sér, hversu farsælt það yrði. Við
skulum minnast þess að ef við
leysum vandamálin á þann hátt að
önnur og kannski verri komi í
staðinn, þá er verr farið en heima
setið.
Laxamýri, 1. okt. 1982.
Jakob Hafstein með einn stærsta
hænginn sem veiddist.
I.jósm. Mbl. KAX.
við Mbl. að engin uppgripaveiði
hafi verið í haust, enda kvaðst
hann telja að farið hefði verið í
árnar og laxi stolið.
Klakveiðarnar fara þannig
fram, að notað er „létt“ net, sem
lagt er í hylinn og laxinn síðan
rekinn í. Síðan er laxinn hirtur úr
netinu og settur í grind, síðan er
hann fluttur í sérstökum kassa,
sem súrefni er hleypt á, í klak- og
eldisstöðina. Þar er fiskurinn lát-
inn í þró og geymdur þar, uns
komið er að kreistingu.
-ój.
Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík komin heim:
Spiluðu sig inn í hjörtu áheyrenda
Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík. í fremri röð frá vinstri eru: Hávarður Tryggvason, Kryndís Gylfadóttir,
Sigrún Eðvaldsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir og Guðrún Þórarinsdóttir. í efri röð frá vinstri eru: Gréta Guðnadóttir,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, stjórnandinn Mark Reedman, Bryndís Pálsdóttir og Vera Ósk Steinsen. Á myndina vantar
Ornólf Kristinsson og Svövu Bernharðsdóttur, en þau eru farin utan til framhaldsnáms.
segir stjórnandinn
Mark Reedman
GÓÐUR árangur Strengjasveitar
Tónlistarskólans í Reykjavík á al-
þjóðlegu móti ungra tónlistarmanna
i Belgrad í Júgóslavíu á dögunum
hefur vakið mikla athygli, en sveitin
varð í fjórða sæti i keppni níu sveita.
Keppnina vann hljómsveit frá
Guildhall-skólanum breska, en í
öðru og þriðja sæti voru sveitir frá
Ungverjalandi og Póllandi.
Sagði stjórnandinn, Mark Reed-
man, að það segði ekki nema hálfa
söguna að nefna sætið sem is-
lenska strengjasveitin hafnaði í
undir lokin; árangur hennar væri
um margt merkilegri en lokasætið
gæfi til kynna þegar eftirfarandi
er haft í huga:
í fyrsta lagi það að hér er um
hreina áhugamannahljómsveit að
ræða, þar sem á hinn bóginn aðrar
hljómsveitir keppninnar væru
meira og minna skipaðar atvinnu-
tónlistarmönnum.
í öðru lagi var islenska sveitin
sú fáliðaðasta í keppninni, og auk
þess með yngsta meðalaldurinn,
eða 19 ár.
í þriðja lagi nefndi Mark, að
vert væri að hafa í huga árangur
sveitarinnar í fyrstu tveimur hlut-
um keppninnar, en keppnin fór
fram í þremur lotum. í fyrstu lot-
unni hafnaði sveit íslands í 2.
sæti, og í annarri lotu í 3. sæti.
„Það er óhætt að segja að ís-
lenska strengjasveitin hafi spilað
sig inn í hjörtu áheyrenda," sagði
Mark ennfremur. „Þótti mönnum
hreint ótrúlegt að svo fámenn þjóð
gæti haft svona góðum ungum
tónlistarmönnum á að skipa.“
Það er eftirtektarvert að sveitin
hrapaði niður um tvö sæti eftir
því sem á leið keppnina. Hvers
vegna?
Töldu krakkarnir að það væri
einföld skýring á því. Þau sögðust
ekki hafa búist við að ná svona
langt í keppninni og því lagt
mesta áherslu á þau verk sem til-
heyrðu fyrri hlutanum.
Það kom einnig fram í samtali
við tónlistarfólkið unga að æf-
ingar hefðu verið af skornum
skammti. Þau fengu ekki tilkynn-
ingu um þátttökurétt fyrr en tæp-
um þremur vikum fyrir brottför
og þá höfðu þau ekki æft saman
allt sumarið og áttu eftir að læra
tvö ný verk.
En hver var annars aðdragand-
inn að því að sveitin tók þátt í
keppninni?
Barðaströnd:
Hrefnuveiöin
hefur gengid vel
Innri-Múla, Bardislrönd, 5. október.
HÉRADSSAMBANDIÐ Hrafna-
Flóki hefur haldið árlegt
frjálsíþróttamót sitt og tókst það
mjög vel. Ungmennafélag Barð-
strendinga sá um mótið að þessu
sinni undir stjóm formanns félags-
ins, ívars Ragnarssonar. Flest stig á
mótinu hlaut Hörður Patreksfirði,
og Ungmennafélag Tálknfirðinga
varð í iiðru sæti. I þriðja sæti var
Ungmennafélag Barðstrendinga og
íþróttafélag Bílddælinga í fjórða
sæti.
Ennfremur er keppt í sundi og
knattspyrnu á vegum Hrafna-
Flóka á hverju sumri.
Slátrun hófst á Petreksfirði í
enda september og er áætlað að
slátra rúmum sex þúsundum fjár
og um þrjú hundruð nautgripum.
Hrefnuveiði er að ljúka hér og
hefur hún gengið vel í sumar, en
óvíst er, hvort skelvinnsla verður
hér í vetur. Við vonum samt að svo
verði.
Heyskap lauk hér að mestu í
ágústlok. Hey eru næg og mjög
góð svo bændur þurfa ekki að
kvíða vetri með fóður.
— SJ.Þ.
Mark Reedman sagði að fyrir
ári hefði hann séð auglýsingu um
þessa keppni og þá tekið eftir því
að sum verkanna sem flytja átti,
hefði Strengjasveit Tónlistarskól-
ans æft saman. Það var þó ekki
fyrr en í júní að umsókn var send
inn, en þegar dróst að fá svar voru
krakkarnir hálfvegis búnir að af-
skrifa ferðina. En svar fékkst um
síðir og þegar borgarstjórn
Reykjavíkur og bæjarstjórn Sel-
tjarnarness ákvað að veita nokk-
urn fjárstuðning til ferðarinnar
var ákveðið að taka þátt þrátt
fyrir knappan tíma til undirbún-
ings.
Það má nefna það í lokin að
flestöll koma krakkarnir til með
að leika með hinni nýstofnuðu ís-
lensku hljómsveit í vetur.