Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.10.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982 Bandarískur trjáræktarmaður í heimsókn DAVII) Bruce skógræktarfræð- ingur frá Bandaríkjunum kom við hér á landi á leið sinni frá Skotlandi og írlandi vestur um haf, en þar hafði hann verið að störfum við að skoða tré ættuð frá vesturströnd Bandaríkjanna, en þau hafa mikið verið notuð til skógræktar á Bretlandseyjum. Hann hafði spurnir af tilraunum okkar íslendinga, með sömu trjátegundir, en sem sóttar hafa verið norðar af vesturströndinni, einkum til Alaska. Morgunblað- ið talaði stuttlega við hann, þeg- ar tækifæri gafst. „Það er mjög forvitnilegt að koma hingað og sjá hvernig þessar tegundir þrífast, vegna þess að þær eru ekki upprunn- ar hér á landi, heldur innflutt- ar. Mér sýnist þessar trjáteg- undir vaxa allvel. Það er að vísu kaldara hér og þess vegna vaxa þau ekki eins hratt og á Bretlandseyjum, en þau þríf- ast samt mjög vel.“ Telur þú að trjárækt hér á Islandi eigi framtíð fyrir sér? „Já, það tel ég vissulega, en hvort hér getur verið um timb- urframleiðslu að ræða, er svo aftur önnur spurning. Vegna þess að hér á landi vaxa tré hægar en víðast hvar annars staðar þar sem trjárækt er stunduð, þá sníður það ykkur þrengri stakk. Þið hafið þegar prófað fræ frá mörgum stöð- um, en samt þurfið þið enn að leita betur fyrir ykkur og ef til vill eigið þið eftir að finna betri einstaklinga þessara teg- unda. Þið hafið einnig fengið lúpínu frá Alaska og það er möguleiki á að enn fleiri plöntutegundir þaðan, geti reynst ykkur mjög nytsamleg- ar. En með veður eins og hefur verið hér, meðan ég hef dvalið I)avid Bruce hér, sem eru bara fáir dagar, er hægt að rækta hvað sem er. Annars er einn megintil- gangurinn með för minni hingað, að koma aftur á því persónulega sambandi sem var á milli amerískra og íslenskra skógræktarmanna allt frá 1944 og fram að 1970, en hefur dofn- að á síðari árum. Væntanlega kemur hingað til lands, banda- rískur skógræktarmaður, dr. Alden á næsta sumri en hann starfar við skógræktartilraun- ir í Fairbanks í Alaska og ég tel það nauðsynlegt að íslend- ingar geri sér för vestur um haf til þess að safna fræi af trjám, runnum ogöðrum hugs- anlegum nytjaplöntum, eins og þeir gerðu áður um árabil.“ Hefurðu farið mjög víða um landið? „Nei, því miður ekki eins víða og ég gjarnan hefði viljað og ég kem ekki til með að kom- ast austur í Hallormsstað, sem mér skilst að sé ykkar aðal- trjáræktarsvæði. Ég hef komið í Þjórsárdal, Haukadal og að Stálpastöðum í Skorradal. Þá hef ég hitt að máli Þórarinn Benedikz, sem stjórnar rann- sóknarstöðinni að Mógilsá og við skipst á upplýsingum og fræðilegu efni ýmiss konar. Þá hef ég talað við Hákon Bjarna- son fyrrverandi skóræktar- stjóra og hann verið mér innan handar meðan á dvöl minni hér á landi hefur staðið," sagði David Bruce að lokum. Senda fatnað til Zambíu Vlls staðar þar sem hægt er lætur Hjálparstarf aðventista til sín taka, segir í fréltatilkynningu frá aðvent- istum. Alloft hefur Systrafélagið Alfa, sem er einn hlekkur í hjálpar- starfinu, sent fatnað til útlanda, m.a. til Afríku. Sending sú, sem hér birtist á myndinni á að fara til Zambíu. Hvað þetta land snertir, hefur fatnaður ekki verið sendur þangað héðan fyrr. Er þetta því eins kon- ar tilraunasending. Lilja Sigurðardóttir hjúkrunar- fræðingur, sem starfar á vegum aðventista í Zambíu, tekur á móti fatnaðinum og ráðstafar honum. VILTU TAKA ÞÉR TAK? VIÐ LEITUM AÐ FÓLKI MEÐ HUGMYNDIR Ef þú ert að velta fyrir þér hug- mynd um smáiðnað eða skyldan rekstur geturðu sótt um þátttöku I verkefni um stofnun og þróun smá- fyrirtækja. Kannski viltu llka reyna nýjung- ar í rekstri, sem þegar er hafinn. Ekki er krafist sérstakrar þekking- ar eða reynslu, aðeins brennandi áhuga á að koma hug- myndum i framkvæmd. ÞÚ VERÐUR AÐLEGGJA HART AÐ ÞÉR Þetta er ekkert venjulegt námskeið: Þú leggur sjálfur til efniviðinn og það erfrum- kvæði þitt og vinna sem ræður úrslitum um árangur- rt. Þú átt auðveldlega að geta sameinað þátttöku í verkefninu núverandi starfi, en gerðu ráð fyrir að mikið af fritíma þinum fari I verkefnið. Við stofnum ekki fyrirtæki fyrir þig, en veitum aðstoð við að meta möguleikana og koma þér I startholumar. Samstarfsnefnd um iðnráðgjöf í landshlutunum skipu- leggur verkefnið í umboði iðnaðarráðuneytisins og í sam- starfi við iðnráðgjafa i landshlutunum. Verkefnið er m.a. styrkt af Iðnþróunarsjóði, Iðnrekstrar- sjóði og Byggðasjóði. Það miðar að þvi að fjölga litlum fyrirtækjum, efla þau sem fyrir eru og auka þannig fjölbreytni i atvinnulífinu. Við hittumst á fjórum vinnufundum um helgar með um þriggja mánaða millibili. Þar verður unnið I hópum og leið- beinendur aðstoða þátttakendur við að meta hugmyndir þeirra og skipuleggja starfið stig af stigi. Milli vinnufundanna þarftu að glima við verkefni sem öll tengjast hugmynd þinni um stofnun fyrirtækis eða nýbreytni í rekstri. Þátttakendur verða valdir úr hópi umsækjenda. Aður en valið fer fram færðu tækifæri til að gera grein fyrir hugmynd þinni og aðstæðum í viðtali. UPPLÝSINGAR GEFA: Halldór Amason Þorsteinn Garðarsson Theodór Blöndal Vinnuslmi 91-42411 Vinnusími 99-1350 Vinnusími 97-2300 Heimasími 91-37865 Heimasími 99-3834 Heimasími 97-2260 SAMSTARFSNEFND UM IÐNRAÐGJÖF í LANDSHLUTUNUM. Iðntæknistofnun íslands, Vesturvör 27,200 Kópavogur, sími 91 -42411. Verkfræðingar tæknifræðingar takið eftir! Jörgen Hörk, sérfræðingur frá Dan- foss verksmiðjunum kynnir rennslis- mœla með hljóðbylgjutœkni og rið- stýrða hraðabreyta fyrir rafmótora í dag, kl. 4 í Byggingaþjónustunni, Hallveigarstíg. Verið velkomnir. = HÉÐINN = SEUAVEGI 2, REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.