Morgunblaðið - 14.10.1982, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
Umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL
„Fjárfesting-
arákvarðanir
á íslandi“
Yfirskrift ráðstefnu Stjórnunarfélags íslands
STJÓRNUNARKÉLAG íslands heldur ráðsUTnu 21. október n.k., sem ber
yfirskriftina „Kjárfestinyarákvarðanir á Islandi", að söjjn Arna Gunnarsson-
ar, framkvæmdastjóra félagsins. Ráðstefnan verður haldin í Kristalsal llót-
els Loftleiða og hefst klukkan 10.15.
Yfirlitsmynd yfir hina nýju fullkomnu bílaverksmiðju Mazda.
Hörður Sigurgestsson, formað-
ur Stjórnunarfélatís Islands, mun
setja ráðstefnuna. Þá mun dr. Jó-
hannes Nordal, seðlabankastjóri,
flytja erindi, sem nefnist „Upp-
runi fjármagns á Islandi". Halldór
Ásgrímsson, alþingismaður, mun
flytja erindi, sem nefnist „Fjár-
festingar opinberra aðila“. Þá
flytur Víglundur Þorsteinsson,
formaður Félags íslenzkra iðnrek-
enda erindi, sem nefnist „Fjár-
festingar einkaaðila". Að loknu
því erindi verða umræður og fyrir-
spurnir.
Eftir hádegi hefst ráðstefnan á
erindi Sigurðar B. Stefánssonar,
frá Þjóðhagsstofnun, en það nefn-
ist „Fjárfestingar og framlag eih-
stakra atvinnugreina til hagvaxt-
ar“. Pétur Maack, dósent við Há-
skóla íslands, flytur erindi sem
nefnist „Ákvarðanataka um fjár-
festingar". Björn Björnsson, hag-
fræðingur ASÍ, flytur erindi sem
nefnisl „Félagsleg sjónarmið og
arðsemi". Þá flytur Kristján Jó-
hannsson, hagfræðingur Félags
islenzkra iðnrekenda, erindi sem
nefnist „Helztu kostir í stýringu
fjármagns“. Að því loknu verða al-
mennar umræður og fyrirspurnir.
Eftir kaffihlé mun Jón Sigurðs-
son, forstjóri Islenzka járnblendi-
félagsins, flytja erindi sem nefnist
„Hvað er að? Hvert stefnir?“. Að
erindi Jóns loknu verða pallborð-
sumræður og ráðstefnunni verður
síðan slitið klukkan 17.00.
Eimskip kaupir 440 nýja gáma
EIMSKII’AFÉLAG ÍSLANDS festi
nýlega kaup á 440 nýjum gámum frá
Japan. Gámakaup þessi eru þau
stærstu, sem gerð hafa verið af ís-
lcnzku skipafélagi og þykja jafnvel
stór á alþjóðlegan mælikvarða, segir
m.a. í nýjasta fréttabréfi Eimskips.
Framleiðandi gámanna er
Tokyo Car Corp., sem er einn
stærsti gámaframleiðandi í heimi.
Fyrstu 20 gámarnir hafa þegar
verið teknir í notkun hjá félaginu.
Gámar þessir munu koma í stað
þeirra fjöimörgu leigugáma, sem
Eimskip hefur haft í notkun á
undanförnum árum, en þeim verð-
ur skilaö á næstu vikum. Komið
hefur í ljós, að mun hagkvæmara
er fyrir félagið að eiga gámana, en
að leigja þá, og stefnir Eimskip
því að aukinni hlutdeild eigin
gáma í fiotanum.
Þeir gámar, sem um er að ræða,
eru ýmist 20 eða 40 fet, eru úr
stáli, en gólf þeirra úr harðviði.
Vandað hefur verið til gámanna
og sérstaklega tekið tillit til ís-
lenzkra aðstæðna, m.a. við máln-
ingu á þeim, en hún er þykkri en
venja er til. Þá er undirbygging
gámanna sérstaklega ryðvarin. I
notkun hjá Eimskip eru nú um
3.700 gámar.
SAS stórlækkar far-
gjöld á Evrópuleiðum
SKANDINAVÍSKA flugfélagið SAS
tilkynnti nýverið, að í vetur yrði boð-
ið upp á sérstök afsláttarfargjöld á
leiðum innan Evrópu, en þessi nýju
fargjöld eiga að taka gildi 15. nóv-
ember nk. Lækkunin er á bilinu
50—70% samkvæmt upplýsingum
SAS.
Þá hefur SAS ákveðið, að lækka
unglingafargjöld til 26 staða í
Evrópu um fjórðung og taka þau
fargjöld gildi 15. nóvember. SÁS-
menn telja, að með þessu móti geti
þeir aukið verulega ferðamanna-
straum Skandinava til Evrópu og
ferðir Evrópumanna til Skandin-
avíu.
Mikill uppgangur hefur verið
hjá SAS undanfarna mánuði, eftir
heldur magra tíð. Talsmaður
fyrirtækisins benti nýverið á, að
þegar IATA, Alþjóðasamtök flug-
félaga, hefðu ákveðið 7% hækkun
fargjalda innan Evrópu, hefði
SAS ekki talið sig þurfa nema 3%
hækkun.
í júníbyrjun tilkynnti SAS um
verulega lækkun fargjalda á
ákveðnum leiðum og sagði tals-
maður fyrirtækisins á dögunum,
að þessi lækkun hefði þegar skilað
sér í liðlega 20 þúsund farþega-
aukningu, sem væri mun meira en
bjartsýnustu menn hefðu þorað að
vona.
Á næsta ári gerir SAS-flugfé-
lagið ráð fyrir að bjóða um 3 millj-
ónir sæta á umræddum afslátt-
arkjörum.
Ný bílaverksmiðja hjá Mazda:
Er ein fullkomnasta
bílaverksmiðja heims
MAZDA-VERKSMIÐJURNAR japönsku tóku í notkun nyja bílaverksmiðju
í lok septembermánaðar sl„ en verksmiðja þessi mun vera einhver sú
fullkomnasta í veröldinni. Aðeins eru liðnir 18 mánuðir frá þvi, að fyrsta
skóflustungan var tekin, en kostnaður við byggingu verksmiðjunnar er í
kringum 150 milljónir dollara.
Oll vinnsla í verksmiðjunni er
mjög sjálfvirk og tölvustýrð, en t
henni er að finna 155 vélmenni,
auk um 1.800 starfsmanna, en
samkvæmt upplýsingum fyrirtæk-
isins er ráðgert, að framleiða um
27.000 bíla á mánuði.
Sveigjanleiki verksmiðjunnar er
verulega mikill, en möguleiki er á
því, að framleiða þrjár mismun-
andi gerðir Mazda-þíla á sama
tímanum. — Þessi mikli sveigjan-
leiki mun hjálpa okkur verulega í
síharðnandi samkeppni á
markaðnum, sagði talsmaður
fyrirtækisins nýverið á blaða-
mannafundi.
Það kom ennfremur fram hjá
talsmanninum, að með síaukinni
sjálfvirkni og tölvustýringu, verði
hægt að auka gæði framleiðslunn-
ar enn frekar frá því sem nú er,
jafnframt því sem framleiðslu-
hraðinn hefur aukizt verulega.
— Eftirspurn eftir framleiðslu
fyrirtækisins hefur aukizt svo
mikið á undanförnum misserum,
að við vorum neyddir til að fara út
í þessa uppbyggingu. Sérstaklega
hefur 323-bíllinn slegið verulega í
gegn, en á þessu ári hefur hann
iðulega verið mest seldi bíllinn í
Japan, en hingað til hafa Toyota
og Nissan einokað efsta sætið. Við
lítum því björtum augum á fram-
tíðina, sagði talsmaður Mazda-
verksmiðjanna ennfremur. Því má
reyndar skjóta að, að Mazda-bílar
hafa um árabil verið mest seldu
bílarnir hér á landi. Þess má svo
geta, að í hinni nýju fullkomnu
verksmiðju verða framleiddir hin-
ir nýju 626-bílar fyrirtækisins og
ennfremur hluti af 323-bílunum.
Erlendar stuttfréttir ...
SÍÐUSTU spár Efnahags- og fram-
farastofnunar Evrópu, OECD, gera
ráð fyrir því, að hagvöxtur standi i
stað hjá hinum vestrænu iðnríkj-
um á þessu ári, en fyrr á árinu
höfðu sérfræðingar stofnunarinnar
gert ráð fyrir 0,5% hagvexti.
KODAK
Eastman Kodak-fyrirtækið
bandariska hyggst markaðssetja
á næsta ári 35 mm litfilmu, sem
verður með ASA-tölunni 1.000,
sem verður bylting í ljósnæmi,
en hingað til hefur ekki tekizt að
framleiða svo „hraða“ filmu.
FRAKKLAND — EBE
Frakkar hafa tilkynnt Efna-
hagsbandalaginu, að þeir muni
setja sig upp á móti nýjum
smjörsamningi bandalagsins við
Nýja Sjáland, nema bandalagið
aflétti banni sínu á sölu smjörs
til Sovétríkjanna, vegna Afgan-
istanmálsins.
AIRBUS — BOEING
Thai Airways, ríkisflugfélagið
í Thailandi, tilkynnti fyrir
skömmu, að það væri hætt við
kaup á tveimur Airbus-flugvél-
um, þar sem afhendingartími
hefði ekki staðist og þess í stað
myndi félagið kaupa Boeing
767-vélar.
TÆKNIÞJÓFNAÐUR
Bandaríkjamenn telja, að um
20.000 Sovétmenn séu að störf-
um víðs vegar um heiminn við að
kaupa, eða stela tækninýjung-
um.
ATVINNULEYSI —
VESTUR-ÞÝZKALAND
Atvinnuleysi fór yfir tvær
milljónir manna í Vestur-Þýzka-
landi í síðasta mánuði, en það er
mesta atvinnuleysi þar í landi
um mjög langt árabil.
YFIRVINNU-
BANN — BRETLAND
Verkalýðsleiðtogar í brezkum
kolanámum tilkynntu í vikunni,
að frá og með 11. október sl. yrði
ekki unnin nein yfirvinna í
brezkum kolanámum.
BRETLAND — STÁL
Fyrirsjáanlegt er, að brezki
stáliðnaðurinn mun enn draga
saman seglin á næstunni og á
borðinu liggur, að fjölda
starfsmanna verður sgt upp
störfum.
VEXTIR — BRETLAND
Fjöldi brezkra banka tilkynnti
fyrir skömmu, að þeir hefðu
ákveðið, að lækka forvexti sína
úr 10'á í 10%.
LISTAVERKA-
MARKAÐURINN
Vegna mikils samdráttar á
listaverkamarkaðnum hefur
hagnaður Chirsties Internation-
al í Bretlandi dregizt verulega
saman. Hagnaður fyrirtækisins
á fyrri helmingi þessa árs fyrir
skatta, var um 1,1 milljón punda,
en á sama tíma í fyrra var hagn-
aður fyrirtækisins um 3,3 millj-
ónir punda.
SUÐUR-AFRÍKA
Suður-Afríkumenn hafa sótt
um til Alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins, að fá 1,1 milljarð dollara í
fjárhagsaðstoð til að rétta af
greiðsluhalla landsins við út-
lönd.
ÍTALÍA —
STÁLIÐNAÐUR
ítalskur stáliðnaður á í veru-
legum rekstrarerfiðleikum um
þessar mundir og nýverið til-
kynnti talsmaður samtaka
stálframleiðenda, að 15.000
starfsmönnum í viðbót við þá
20.000, sem þegar hafa misst
vinnuna, yrði sagt upp á næstu
vikum.
SYKURVERÐ
Sykurverð hefur ekki verið
lægra í fjögur ár en það er nú. í
liðinni viku var sykurtonnið selt
á 81 pund á alþjóðamarkaðnum í
London. Hafði lækkað um 6
pund á tveimur dögum.